Morgunblaðið - 13.08.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.08.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019 » Daníel Þ. Magnús-son opnaði sýning- una Pósterar – Testa- ment á laugardaginn í Listmunahúsi Ófeigs að Skólavörðustíg. Mynd- irnar sem Daníel sýnir spanna yfir 20 ára tíma- bil og teljast með verk- um sem hann kýs að nefna Póstera og hafa ekki verið sýnd áður. Daníel Magnússon opnaði sýningu í Listmunahúsi Ófeigs Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Listamaðurinn Daníel við eitt verka sinna á sýningunni. Fjölmennt Fjöldi gesta var við opnun sýningarinnar á laugardag. Gestir Elín S. Jónsdóttir og Hjálmar Benónísson. Listunnendur Herdís Þorgeirsdóttir og Halla Oddný Magnúsdóttir virtu verk Daníels fyrir sér. Skeggrætt Daníel á tali við listamálarann Tolla. AF TÓNLEIKUM Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Enska poppstjarnan Ed Sheeran steig á svið á Laugardalsvelli um kl. 21 á laugardagskvöldi eftir þrefalda upphitun þeirra Glowie, Zöru Lars- son og James Bay. Grallaralegur var hann þegar myndatökumenn eltu hann skælbrosandi upp á svið, klæddur ósköp venjulegri hettu- peysu og gallabuxum og vopnaður kassagítar. Hefði kannski átt að vera í dúnúlpu því það var skítkalt í Laugardalnum þetta kvöld, gestir í stúku orðnir blánefjaðir í norðang- arranum þegar sá rauðhærði lét sjá sig. Öllu skárra var að vera á gólfinu þar sem skjól var af tónleikagestum og dreif ég mig þangað um tón- leikana miðja. Sheeran var einn á hinu stóra sviði, bara með gítar og „loop stat- ion“, bjó til alla takta og bakraddir með því að lúppa gítarleik, gítarslátt og rödd af miklu listfengi. Mikill hæfileikapiltur þar á ferð og geðsleg- ur með endemum. Ég er einn þeirra sem hafa furðað sig undanfarið á ógnarvinsældum Sheeran og hef komist að þeirri niðurstöðu að þær megi þakka einmitt því hversu geðs- legur og vinalegur náunginn er, ágætur lagasmiður og söngvari sem nær til mjög breiðs hóps fólks á öll- um aldri, eins og dæmin sanna. Tón- listin er auðmelt, lítið sem ekkert um Ekki lítill lengur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Orkubolti Ed Sheeran hljóp og hoppaði um sviðið á Laugardalsvelli. tilraunastarfsemi í lagasmíðum og útsetningum og textar ágætir. Íslandsmet í aðsókn Á tónleikunum mátti sjá leik- skólabörn jafnt sem ellilífeyrisþega og kom mér nokkuð á óvart þessi fjölbreytta aldurssamsetning og þá sérstaklega hversu margir voru um og yfir fimmtugt. Hvernig þeir kynntust Ed Sheeran veit ég ekki en sjálfur hef ég lítið fylgst með honum og ekki leitað uppi lögin hans en vissulega heyrt þau leikin í útvarpi. Það segir þó ekkert um gæði tónlist- arinnar og vinsældirnar tala auðvit- að sínu máli, maðurinn er stjarna og þeir sem kunna ekki að meta hann verða bara að una því. Og þeir virð- ast vera margir, ef marka má Fa- cebook-þras síðustu daga, sem finnst lítið til Sheeran koma. Ég spyr á móti hver annar gæti dregið 50.000 manns á tónleika, um sjöunda hluta þjóðarinnar? Það er auðvitað mögn- uð aðsókn og Íslandsmet sem verður varla slegið í bráð. Sheeran flutti fínustu blöndu af smellum, hóf leik á „Castle on the Hill“, vippaði sér svo í „Eraser“ og „The A Team“ við gífurleg fagnaðar- læti aðdáenda sinna. Ekki þekkti ég öll lögin þetta kvöld en þó mörg og kunni einna best að meta Sheeran í ballöðunum, finnst hann betur eiga heima þar en í einhvers konar rapp- tilraunum sem mátti heyra í einu eða tveimur lögum. Veit þó ekki hvort rapp er rétta orðið en mikill var orðaflaumurinn þó á köflum. Sheeran á líka nokkra ágæta poppsmelli, t.d. þann sem hann gerði með kollega sínum Justin Bieber, „I Don’t Care“, sem fékk að hljóma þetta kvöld. Fínt að dilla sér við þann smell í kuldanum og aðrir dillismellir fengu líka að fljóta með, hinn írsk- stemmaði „Galway Girl“ og líka „Shape of You“. Og auðvitað var ekki hægt að sleppa hinu ofurrómantíska „Perfect“ sem brætt hefur margt meyjarhjartað og sjá mátti tár víða á hvarmi þegar það ómaði. Sheeran kvaddi svo með „You Need Me, I Don’t Need You“. Gekk þá mikið á, bæði hjá Sheeran og í vídeóvörpun sem fór í yfirsnúning að baki honum á háu sviðinu. Gengu gestir að því loknu á braut og gekk vel að tæma völlinn en eins og fjallað hefur verið um gekk illa að hleypa fólki inn og biðu sumir í tvær klukkustundir í röð sem náði að Glæsibæ. Ósýnilegur á krám Sheeran rabbaði af og til við tónleikagesti og sagðist eitt sinn hafa verið þybbinn, lítill strákur að spila á hinum og þessum krám í London þar sem fáir gáfu honum gaum. Hann er ekki lítill lengur og búinn að slá met hvað varðar miðasölutekjur af tón- leikaferð. Þurfti sjálf U2 að lúta í gras, hvorki meira né minna. Þetta er algjört Öskubuskuævintýri. Mannmergðin var svakaleg á fyrri tónleikum Sheeran á Laugar- dalsvelli, um 30.000 manns á laug- ardegi og 20.000 kvöldi síðar. Sú staðreynd að nær sjöundi hver Íslendingur hafi séð Sheeran (ein- hverjir útlendingar hljóta líka að hafa verið þarna) er út af fyrir sig merkileg. 50.000 manns fóru að sjá trúbador einan á sviði með lúppug- ræju. Bob Dylan hefði ekki trekkt svo marga að og ég er ekki viss um að Bruce gamla Springsteen hefði tekist það. Það er því ekki bara mannfjöldinn sem vekur athygli heldur líka hvers konar listamaður er hér á ferðinni, trúbador og popp- ari sem kýs frekar að vera eins manns hljómsveit en að fylla sviðið af hljóðfæraleikurum og söngvurum. Það eitt og sér er merkilegt, hvort sem maður dáist að Sheeran eða ekki. » Á tónleikunummátti sjá leikskóla- börn jafnt sem ellilíf- eyrisþega. Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Matur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.