Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir ökuskírteinið, passann, ferilskrána o.fl. Góð passamynd skiptir máli Engar tímapantanir Skjót og hröð þjónusta Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Tvö stór skemmtiferðaskip, Mein Schiff 4 og MSC Orchestra, voru í höfn á Akureyri í gær og á mánu- daginn var kom þangað skipið Nieuw Statendam í fyrsta sinn. Um borð í þessum þremur skipum voru samtals hátt í ellefu þúsund manns, farþegar og áhafnir. „Það má alveg reikna með að þessi þrjú skip hafi skilað samanlagt um 180 milljónum króna í norð- lenska hagkerfið og skapað fjölda manns vinnu,“ sagði Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á Akureyri og formaður Cruise Iceland. Það eru samtök þeirra sem taka á móti skemmti- ferðaskipum hér á landi. Skildu eftir 16 milljarða Pétur sagði að skemmti- ferðaskipin sköpuðu vinnu hjá hafn- arstarfsmönnum, umboðsmönnum skipanna, leigubílstjórum, toll- vörðum, öryggisvörðum, rútubíl- stjórum og leiðsögumönnum, starfs- mönnum bílaleigna auk þeirra sem vinna í verslun og ferðaþjónustu. Hann sagði að í fyrra hefðu skemmtiferðaskipin skilið eftir hér rúmlega 16 milljarða, að öllum áhrif- um meðtöldum, og 900 heilsársstörf. „Það er aðeins aukning á þessu ári og má reikna með að það komi ívið meira á þessu ári,“ sagði Pétur. Nokkuð hefur verið rætt um mengun frá skemmtiferðaskipum. Pétur sagði að vélknúin farartæki, hvort sem eru flugvélar, skip eða bílar menguðu. Hann taldi eðlilegt að opinberir aðilar sinntu meng- unarmælingum og mældu hlutlægt áhrif allra ferðamáta. „Siglingar skemmtiferðaskipa eru um 0,8% af öllum siglingum um heimsins höf. Aðeins 4-5% ferðamanna sem koma til landsins koma með skemmti- ferðaskipum. Hinir koma með ferj- unni Smyrli og langflestir með flugi. Það er mikilvægt að skoða meng- andi áhrif allra ferðalaga,“ sagði Pétur. Hann sagði að komur skemmti- ferðaskipa og ferðamannanna sem þau flytja væru mikil lyftistöng fyrir hafnir úti á landi. Akureyri yrði t.d. mun líflausari á sumrin ef skemmti- ferðaskipanna nyti ekki við. „Sum skemmtiferðaskipin koma við í 7-9 höfnum. Samtals eru 16-17 hafnir sem fá skemmtiferðaskip í sumar. Æ fleiri hafnir sýna áhuga á að sinna þessum ferðamáta. Þetta eyk- ur líf í sveitarfélögunum,“ sagði Pét- ur. Skipin styrkja atvinnulífið úti á landi  Komur skemmtiferðaskipa skildu eftir um 16 milljarða í fyrra  Sköpuðu um 900 heilsársstörf  Norðlenska hagkerfið fékk um 180 milljóna króna innspýtingu í þessari viku þegar þrjú skip komu Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyri Tvö skemmtiferðaskip voru í höfn í gær. Þau skapa fjölda fólks vinnu og stækka norðlenska hagkerfið. Anne Mette Dale, lögmaður lögregl- unar í Stavangri í Noregi, segir að Íslendingurinn, sem handtekinn var eftir að hann reyndi að brjóta sér leið inn í flugstjórnarklefa farþega- þotu Wizz Air hafi verið látinn laus úr haldi í gærkvöldi. Dale segir manninn hafa verið samvinnuþýðan við yfirheyrslu sem fram fór yfir honum í gærkvöldi en hann mundi í henni ekki eftir því sem gerðist í flugvél Wizz Air. Með samtölum við fjölda vitna hafi verið hægt að varpa ljósi á atburðarásina sem sé nokkuð skýr. Dale segir að allt bendi til þess að hegðun mannsins megi rekja til veikinda og hann verði að öllum líkindum ekki ákærður. Mað- urinn sem er á sjötugsaldri þarf að mæta til yfirheyrslu á morgun en að henni lokinni er honum frjálst að halda för sinni áfram en maðurinn var á leið til Íslands frá Búdapest. Rólegur við handtöku Að sögn Dale var maðurinn róleg- ur þegar hann var handtekinn við komuna á Sola flugvellinum í Stav- angri í gærmorgun en flugvél Wizz Air þurfti að lenda á Sola-flugvell- inum. Fjölmiðillinn Stavanger Aft- enblad greindi frá því að vélinni hefði verið snúið við yfir Norðursjó. Var bæði lögregla og slökkvilið kall- að út og beið liðið komu vélarinnar. Lögreglan í Stavangri sagði í gær að ekkert benti til þess að maðurinn hefði haft nokkurn ásetning um að ræna flugvélinni. Íslendingurinn hefði virst undir áhrifum og borið því við að hann hefði innbyrt bæði lyf og áfengi. Maðurinn gekkst und- ir læknisskoðun í kjölfar handtök- unnar. Sveinn H. Guðmarsson, fjölmiðla- fulltrúi utanríkisráðuneytisins, sagði að mál Íslendingsins hefði komið inn á borð borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í gær og var honum veitt hefðbundin aðstoð. Í samtali við mbl.is í gærdag sagði Victoria Hillveg, aðgerðastjóri lögreglunnar í Stavangri, að mál Ís- lendingsins væri meðhöndlað sem mál óhlýðins borgara sem yfirbug- aður hefði verið í flugvél. Fram kom á mbl.is að viðurlög við slíku í Noregi geti verið allt að sex mánaða fangelsi, fjársekt eða hvort tveggja. Íslenskur flugdólgur tekinn  Sat í haldi lögreglunnar í Stavangri í Noregi vegna óláta í flugvél  Reyndi að komast inn í flugstjórnarklefa vélarinnar Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Framkvæmdastjórum verður fækk- að um nær helming og sviðsskrif- stofum úr níu í tvær til þrjár til þess að ná samlegð,“ sagði Páll Matthíasson, forstjóri Landspítal- ans, í samtali við mbl.is í gærkvöldi um þær skiplagsbreytingar sem kynntar voru eftir fund stjórnenda spítalans og fulltrúa heilbrigðis- ráðuneytisins sama kvöld. Páll segir skipulagsbreytingarnar vissulega gerðar í skugga rekstr- arhalla Landspítalans, en þær séu þó ekki gerðar vegna hans. Skipu- lagsbreytingar muni hins vegar hjálpa til með rekstur. Meðal breytinga er að byggður verður kjarni í kringum tvo mik- ilvæga sjúkdómaflokka, hjarta- og æðasjúkdóma og krabbamein. Upp- bygging kjarnans verður í sam- ræmi við heilbrigðisstefnu en fimm ár eru þar til meðferðarkjarni spít- alans verður tek- inn í notkun og það þarfnast undirbúnings. Páll segir að með breytingun- um sé verið að efla klíníska þjónustu. Með breytingum á skipulagi og vinnufyrirkomu- lagi sé hægt að draga úr sóun og spara fjármuni. Aukin afköst auka tekjur Forstjóri Landspítalans gat ekki svarað því hvort von væri á frekari fækkun stöðugilda á Landspítala þegar hann var inntur eftir því í gærkvöldi. Þá gat hann heldur ekki svarað hvernig rekstrarhalli Land- spítala yrði leystur, en viðræður standa yfir við stjórnvöld um ýmsa þætti því tengda. Páll segir að í hálfsársuppgjöri Landspítalans þurfi m.a. að telja ýmsa bókhaldsþætti til halla sem muni skila sér til baka síðar á árinu. Þar að auki sé hluti fjár- mögnunar spítalans breytilegur og tengdur afköstum. Búast megi við að vegna aukinna afkasta fái spít- alinn meira fé að hluta til. Markmið skipulagsbreytinganna og forgangsatriði er að sögn Páls að verja þjónustustig spítalans. Það komi í ljós síðar með hvaða hætti reynt verði að hagræða á Landspít- alanum. Páll segir aðspurður hvort grípa hefði þurft til aðgerða strax að loknu þriggja mánaða uppgjöri, að þegar hafi verið gripið til ýmissa aðgerða, stigið á bremsuna og að verkefni sem voru í bígerð hafi ver- ið stöðvuð. Á þessu stigi liggi ekki alveg ljóst fyrir hvaða áhrif aðgerð- irnar hafi. Páll segir markmiðið að rekstur spítalans verði sjálfbær en hvort það takist á þessu ári þori hann ekki að spá um. Framkvæmdastjórum fækkað  Tvær til þrjár sviðsskrifstofur í stað níu og helmingi færri framkvæmdastjórar á Landspítalanum  Skipulagsbreytingar til þess að verja þjónustustig spítalans Morgunblaðið/Golli Spítali Skipulagsbreytingar í gangi Páll Matthíasson ,,Fundurinn var fámennari en við hefðum viljað. Fundur ráðherra Sjálfstæðis- flokksins á sama tíma í Fjarða- byggð og fundur Sigurðar Ingi Jó- hannssonar, sam- göngu- og sveit- arstjórnarráðherra með sveitar- stjórnarfólki á Austurlandi skýrir að einhverju leyti dræma fundarsókn,“ segir Snorri Styrkársson, sem stýrði fundi í forföllum Smára Geirssonar á þriðja fundi af fjórum í hringferð Más Guðmundssonar seðlabanka- stjóra. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins voru fundargestir um 10 talsins. Hafa nú alls tæplega 50 manns sótt þrjá fundi, en fundaröð Más lýkur í Árborg á mánudag. Tíu sátu seinasta fund Más  Ferð lýkur senn Már Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.