Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri segir það koma vel til greina að
hið opinbera komi að mælingum á
hlustun og áhorfi ljósvakamiðla.
Tilefnið er gagnrýni Arnþrúðar
Karlsdóttur, útvarpsstjóra Útvarps
Sögu, í Morgunblaðinu í gær. Telur
hún að RÚV leggi með þátttöku í
mælingunum fram samkeppnis-
hindranir. „Hér á
Íslandi, eins og í
öllum nágranna-
löndum okkar,
hafa fjölmiðlar um
árabil tekið sig
saman um fjöl-
miðlamælingar.
Það er jákvætt
fyrir almenning,
stjórnvöld, at-
vinnulífið og aug-
lýsendur að hafa
glögga mynd af því hvernig fjölmiðla-
notkun er,“ segir Magnús Geir.
Æskilegra að allir séu með
„Fyrirkomulag rafrænna mælinga
er með sambærilegum hætti og aðrar
fjölmiðlakannanir hérlendis, hvort
sem er á lestri prentmiðla eða net-
miðla. Flestir stærri miðlar landsins
taka þátt í þessum könnunum, þar á
meðal RÚV. Best er að sá aðili sem
framkvæmir kannanirnar og hefur
frumkvæðið, Gallup, svari fyrir
kostnað og aðgengi smærri miðla. Að
sjálfsögðu væri æskilegast að allir
innlendir miðlar væru inni í könn-
uninni, líka þeir smærri. Mér þætti
vel koma til greina að hið opinbera
kæmi að fjármögnun mælinga og að-
stoðaði þar með þátttöku hinna
minni, eins og lagt var til í umfjöllun
Morgunblaðsins.“
Tekjumöguleikar RÚV skertir
– Sérðu fyrir þér óbreytta hlut-
deild RÚV á auglýsingamarkaði?
„Það hefur á síðustu árum nokkuð
verið dregið úr möguleikum RÚV til
tekjuöflunar í gegnum auglýsingar
og kostun með lagasetningu og í
framhaldinu túlkun fjölmiðlanefndar
á lögunum. Við aðlögum okkur að
sjálfsögðu að þeim breytingum. RÚV
getur lítið sagt um það hvaða ákvarð-
anir löggjafinn tekur í framtíðinni
varðandi stöðu RÚV, þótt ég trúi því
að áfram ríki sátt um mikilvægi þess
að hér sé rekinn öflugur almanna-
þjónustumiðill með áherslu á íslenskt
efni, upplýsandi umræðu, menningu
og þjónustu við börn. Hins vegar er
auglýsingamarkaðurinn síbreyti-
legur, auglýsingatekjur RÚV hafa
minnkað allnokkuð undanfarið og
mér finnst líklegt að sú þróun haldi
áfram. Reyndar er líklegt að hlut-
deild allra innlendra miðla minnki í
mikilli alþjóðlegri samkeppni.“
Byggt á ákvörðun Alþingis
– Er eðlilegt að RÚV, sem fær
opinber framlög, sé svo fyrir-
ferðarmikið á auglýsingamarkaði?
„RÚV starfar í þágu almennings
og í áratugi hefur það verið ákvörðun
Alþingis að fjármagna RÚV með
blandaðri leið í gegnum útvarpsgjald
og sölu auglýsinga. Slíkt er jafnframt
algengasta fjármögnunarfyrirkomu-
lag almannaþjónustumiðla í Evrópu.
Stjórn RÚV og stjórnendur hafa ekki
haft sérstaka skoðun á hvaða leið sé
farin við fjármögnun RÚV en bent á
að til að halda úti áþekkri þjónustu
megi heildartekjur ekki minnka.
Ég tel að það sé mikilvægt fyrir ís-
lenskan almenning, menningu og
tungu að hér sé öflug almannaþjón-
usta við hlið fjölbreyttrar flóru einka-
rekinna miðla. Þetta er sérstaklega
mikilvægt nú þegar erlendar efnis-
veitur bjóða upp á mikið úrval afþrey-
ingarefnis á erlendri tungu.
Ef núverandi fjármögnunarleið
verður endurskoðuð þarf að tryggja
að RÚV geti áfram sinnt sínu mikil-
væga hlutverki og þjónusta skerðist
ekki, enda væri það í andstöðu við
vilja almennings samkvæmt könn-
unum. RÚV starfar eftir þeim lögum
og reglum sem um stofnunina gilda.
Alþingi ætlast til að RÚV afli um
þriðjungs tekna sinna í gegnum aug-
lýsingasölu og eftir því höfum við
starfað. RÚV, eitt og sér, tekur engar
ákvarðanir um breytingar á fyrir-
komulagi fjármögnunar RÚV. Það er
viðfangsefni löggjafans.“
– Eiga mögulegar breytingar á
rekstrarumhverfi RÚV þátt í umsókn
þinni um stöðu þjóðleikhússtjóra?
„Umsókn mín um stöðu þjóðleik-
hússtjóra grundvallast á einlægri
ástríðu minni fyrir leikhúsinu, löngun
til að snúa þangað aftur og trú minni
á að ég hafi heilmargt fram að færa
sem geti nýst Þjóðleikhúsinu og leik-
húslífi í landinu. Ég hef nú gegnt
stöðu útvarpsstjóra í á sjötta ár og er
afskaplega stoltur af þeim árangri
sem náðst hefur á þeim tíma, bæði á
dagskrársviðinu og hvað rekstrar-
árangur varðar. Ég sé ekki fyrir mér
að miklar breytingar verði á stöðu
RÚV á næstu misserum, fjármála-
áætlun ríkisins gerir ráð fyrir stöðug-
leika í fjármögnun og tekjuöflun
RÚV, forsvarsmenn ríkisstjórnar-
innar hafa ítrekað að þeir vilji ekki
skerða þjónustu RÚV og kannanir
staðfesta jákvæðara viðhorf almenn-
ings til RÚV en mælst hefur um ára-
bil. Ég sé því ekki annað en að staða
RÚV sé sterk til framtíðar,“ segir
Magnús Geir Þórðarson.
Löggjafans að stýra
auglýsingasölu RÚV
Útvarpsstjóri sér ekki fyrir sér breytingar á tekjuöflun
Morgunblaðið/Eggert
RÚV Tekjurnar voru 6,5 ma. 2017.
Guðni Rafn Gunnarsson, sviðs-
stjóri fjölmiðlarannsókna hjá Gall-
up, segir öllum sjónvarps- og út-
varpsstöðvum standa til boða að
taka þátt í rafrænum ljósvakamæl-
ingum.
Tilefnið er gagnrýni Arnþrúðar
Karlsdóttur, útvarpsstjóra Útvarps
Sögu, á mælingarnar í Morgun-
blaðinu í gær. Telur hún þær fela í
sér samkeppnishömlur fyrir
smærri fyrirtæki á markaðnum. Til
dæmis sé RÚV auglýst með
ákveðna hlustun en látið eins og
hinir sem ekki taka þátt í mæling-
unni séu ekki til.
„Viðbrögð okkar eru að ítreka að
öllum standi til boða að taka þátt í
mælingunni. Gallup er rannsóknar-
fyrirtæki. Okkar hagur er að sem
flestir séu með,“ sagði Guðni Rafn.
Þess má geta að Morgunblaðið
reyndi að ná tali af honum áður en
umrædd umfjöllun birtist í gær.
Fram kemur á vef Gallup að
mælingarnar séu öllum opnar. Þá
að því gefnu að
koma megi
fyrir PPM-
merki í útsend-
ingu stöðvar-
innar með
tækjabúnaði
Gallup. PPM-
mælingarnar
séu unnar í
samstarfi við
alþjóðlegu
rannsóknarfyrirtækin Kantar
Media og Nielsen. Þessar aðferðir
séu m.a. notaðar annars staðar á
Norðurlöndunum. Tekið sé tillit til
minni aðila hvað varðar kostnað.
Verð fyrir grunnmælingu á þriggja
mánaða prufutímabili sé 190 þús-
und krónur.
„Þegar hlutdeildarupplýsingar
eru sýndar, hvort sem er um sjón-
varpsáhorf eða útvarpshlustun að
ræða, skal tekið fram að hlut-
deildin eigi við um mælda miðla,
ekki aðra,“ segir þar m.a.
Öllum frjáls þátttaka
MÆLINGAR GALLUP Á HLUSTUN Á ÚTVARPSSTÖÐVAR
Guðni Rafn
Gunnarsson
Magnús Geir
Þórðarson
Á réttri leið
Sunnudaginn 18. ágúst mun sjálfstæðisfólk um allt land koma saman á tuttugu stöðum
á landinu og ganga saman í tilefni af 90 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins á þessu ári.
Um að ræða fjölskyldugöngur sem hentar öllum aldursflokkum. Að jafnaði er gengið í
hádeginu og á flestum stöðum endar gangan með samverustund, grilli eða kaffisopa.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Sauðárkrókur
12:00 frá
heimavist FNV
Aðaldalur
(Geitafellshnjúkur)
12:00 frá Kísilveginum
Akranes
12:00 frá Garðalundi
Akureyri
12:00 í Kjarnaskógi
Fljótsdalshérað (Fardagafoss)
10:00 frá bílastæðinu neðst á Fjarðarheiði
Grenivík
(Þengilshöfði)
Kl. 12:00 frá Kjarna
Grindavík
12:00 frá
Víkurbraut 25
Hafnarfjörður
12:00 við Norðurbakka
Hella 12:00
við Stracta hótel
Hvanneyri
12:00
Hveragerði
12:00 í Lystigarðinum
Höfn
11:00 við Sjálfstæðishúsið
Ísafjörður
12:00 í Tungudal
Kirkjubæjarklaustur
12:00 við Kirkjubæjarskóla
Mývatnssveit
(Hverfjall)
12:00 við bíla-
stæðið við Hverfjall
Reykjanesbær
12:00 Duus-hús
Vestmannaeyjar
12:00 við Ásgarð
Stykkishólmur
11:00 við Eldfjallasafnið
Selfoss
12:00 frá Austurvegi 6
Reykjavík 12:00 frá
Rafstöðvarheimilinu í Elliðaárdal
Komdu út að ganga á sunnudag!