Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti - Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Stefán E. Stefánsson
Aron Þórður Albertsson
Augu fjárfesta um heim allan eru á
helstu hlutabréfamörkuðum þar sem
talsverðs taugatitrings gætir um
þessar mundir. Virðast fjárfestar í
auknum mæli telja hættu á sam-
drætti í heimshagkerfinu. Þannig litu
hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjun-
um illa út skömmu eftir opnun í gær.
Þeir réttu hins vegar úr kútnum þeg-
ar nýjar tölur voru birtar um einka-
neyslu þar í landi sem gáfu til kynna
að enn væri þróttur í hagkerfinu. Þá
gladdi það fjárfesta þegar netversl-
anarisinn Alibaba kynnti uppgjör sitt
fyrir fyrri árshelming sem sýndi að
sala fyrirtækisins jókst um 42% milli
ára og fór fram úr væntingum sem
gerðu ráð fyrir minni vexti í ljósi við-
skiptastríðs Bandaríkjanna og Kína.
Enn meiri titrings gætti í Kaup-
höllum víðsvegar í Evrópu þar sem
vextir hafa lækkað. Er það til marks
um erfiða stöðu á fjármálamörkuðum
að hinn danski Jyske Bank býður nú
viðskiptavinum sínum húsnæðislán á
-0,5% föstum vöxtum til 10 ára. Þá
greindi Wall Street Journal frá því í
gær og hafði eftir heimildarmönnum
innan Evrópska seðlabankans (ECB)
að í september myndi stofnunin
kynna afar umfangsmiklar örvunar-
aðgerðir sem koma mundu til viðbót-
ar við sögulega lága stýrivexti og
gríðarlega innspýtingu í formi svo-
kallaðrar magnbundinnar íhlutunar.
Sigurður Rúnar Ólafsson, sérfræð-
ingur markaðsviðskipta hjá Íslensk-
um verðbréfum segir að titring í
heimshagkerfinu megi ekki síst rekja
til deilna Bandaríkjamanna og Kín-
verja á undanförnum misserum.
„Þess utan er Brexit yfirvofandi,
stjórnmálakrísa á Ítalíu, aukin harka
í Hong Kong auk ýmiss annars. Það
er margt sem telur í þessu og jafnvel
margt sem getur verið uppsafnað,“
segir Sigurður Rúnar.
Hann bendir einnig á að miklar
stýrivaxtalækkanir ECB hafi að ein-
hverju leyti mislukkast. Þeim hafi
verið ætlað að hvetja fólk til fjárfest-
inga. „Neikvæðir vextir fá fólk yfir-
leitt til þess að skríða inn í skelina
frekar en að fjárfesta,“ segir hann.
Aukinn titringur á markaðnum í
Bandaríkjunum hefur hins vegar
aukið líkurnar á því að Donald
Trump færist nær því að semja frið í
deilunum við Kína. Þannig bendir
Bloomberg á að í kjölfar þess að
hlutabréfavísitölur tóku að snúast
niður á við hafi tístum forsetans fjölg-
að þar sem hann fór fögrum orðum
um Xi Jinping, forseta Kína. Hafi
hann kallað hann „góðan mann“ og
„mikinn leiðtoga.“ Eru ummæli for-
setans talin til marks um að hann vilji
rétta sáttahönd til mótherja sinna í
Asíu í því skyni að róa markaðina
heima.
Afkomuviðvörun setur
strik í reikninginn
Ljóst var frá opnun markaða hér
heima í gærmorgun að fjárfestar
voru ekki jákvæðir á horfurnar fram-
undan. Það var hins vegar laust upp
úr klukkan þrjú síðdegis sem Reitir,
stærsta fasteignafélagið í Kauphöll
Íslands, sendi frá sér afkomuviðvör-
un þar sem spá félagsins um rekstr-
arhagnað fyrir matsbreytingar var
færð niður um 300-450 milljónir
króna fyrir árið. Segir félagið breytt-
ar horfur skýrast af fækkun ferða-
manna og þyngri rekstrarhorfum „í
mörgum atvinnugreinum“eins og það
var orðað.
Hrökk markaðurinn allur við þeg-
ar tíðindin bárust og lækkuðu bréf
allra félaga í Kauphöllinni snarpt að
bréfum Sýnar undanskildum en eng-
in viðskipti voru með bréf félagsins í
gær.
Mest lækkuðu Reitir eða um tæp
5%. Fast á hæla félagsins kom Reg-
inn sem lækkaði um 4,7% og þá lækk-
aði Eik um 3,6%. Icelandair Group
tók einnig á sig högg og lækkaði um
4,8%. Þá lækkaði Marel, langstærsta
félagið í Kauphöll, um tæp 3,5%.
Titringur um heim allan
Fjárfestar óttast afturkipp í heimshagkerfinu Íslenski hlutabréfamarkaður-
inn tók dýfu í gær í kjölfar afkomuviðvörunar Reita Trump ber klæði á vopnin
Ávöxtun Fjárfestar óttast að hlutabréfamarkaðir gefi eftir á næstunni.
AFP
lagsins stóð í 31,5%.
Í kynningu frá félaginu segir að
aðsókn í Egilshöll, sem er ein af
stærstu eignum félagsins, hafi hald-
ið áfram að aukast. Þá sé umbreyt-
ingarferli Smáralindar einnig lokið
en hún er í eigu félagsins. Þá hefur
félagið átt ríka aðkomu að Hafnar-
torgi í miðborg Reykjavíkur. Þar
hafa, í húsnæði Regins, opnað fyrir-
tækin COS á Íslandi, Collections og
GK Reykjavik. Þá verða á næstu vik-
um opnaðar verslanir Franks Mic-
helsen og Optical Studio. Í nágrenn-
inu hefur einnig verið opnaður
veitingastaður undir merkjum Joe
and the Juice. Stjórnendur Regins
telja að horfur í rekstri félagsins séu
góðar. Hins vegar telja þeir líkur á
að leigutekjur félagsins upp á 9.400
milljónir á árinu haldist ekki og að
þær verði undir neðri mörkum áætl-
unarinnar sem birt var í byrjun árs-
ins. Ástæðan er sögð vera seinkun á
opnun útleigurýma í Smáralind og í
Hafnartorgi, fyrirsjáanlegar breyt-
ingar í Höfðatorgi vegna stórra
nýrra leigusamninga og breytinga á
Suðurhrauni 3 vegna leigusamnings
við Vegagerðina. ses@mbl.is
Hagnaður fasteignafélagsins Regins
eftir tekjuskatt nam 2,1 milljarði
króna á fyrri árshelmingi, sam-
anborið við tæpa 1,5 milljarða yfir
sama tímabil í fyrra og jókst því um
42%. Rekstrarhagnaður fyrir mats-
breytingu og afskriftir nam rúmum
3,2 milljörðum og jókst um 36% frá
fyrra ári. Bókfært virði fjárfesting-
areigna í lok tímabilsins nam rúm-
um 136 milljörðum króna. Á tíma-
bilinu voru fjárfestingareignirnar
færðar upp um 2,2 milljarða og þá
fjárfesti félagið fyrir rúma 2,8 millj-
arða króna.Vaxtaberandi skuldir fé-
lagsins námu 82,1 milljarði króna í
lok júní og höfðu aukist um tæpa 1,6
milljarða króna. Eiginfjárhlutfall fé-
Hagnaður Regins eykst til muna
Matsbreytingar fjárfestingareigna
2,2 milljarðar á fyrri árshelmingi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Uppbygging Reginn er með mikið undir á Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur.
16. ágúst 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.37 123.95 123.66
Sterlingspund 149.15 149.87 149.51
Kanadadalur 93.05 93.59 93.32
Dönsk króna 18.48 18.588 18.534
Norsk króna 13.811 13.893 13.852
Sænsk króna 12.856 12.932 12.894
Svissn. franki 126.78 127.48 127.13
Japanskt jen 1.161 1.1678 1.1644
SDR 169.64 170.66 170.15
Evra 137.91 138.69 138.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.4564
Hrávöruverð
Gull 1500.35 ($/únsa)
Ál 1730.5 ($/tonn) LME
Hráolía 61.07 ($/fatið) Brent
88,85% þeirra
hluthafa sem
sóttu hluthafa-
fund HB Granda
síðdegis í gær
samþykktu kaup
félagsins á sölu-
félögum Útgerð-
arfélags Reykja-
víkur (sem áður
hét Brim hf.), stærsta hluthafa
HB Granda, í Japan, Hong Kong
og á meginlandi Kína sem og
þjónustufélagi á Íslandi sem teng-
ist framangreindum félögum.
Kaupin voru samþykkt með
breytingatillögu sem Lífeyr-
issjóður verslunarmanna hafði
lagt fram fyrri part dags í gær
sem kvað á um að kaupverðið
væri skilyrðum um tiltekinn
rekstrarárangur bundið. Áður
hafði lífeyrissjóðurinn Gildi lýst
því yfir að hann hygðist greiða
atkvæði gegn kaupunum.Kaup-
verðið er greitt með útgáfu nýrra
hluta og nemur það 34,9 millj-
ónum dollara, jafnvirði 4,3 millj-
arða króna. Verði samanlögð
EBITDA hinna keyptu félaga
undir 8,3 milljónum dollara skal
frávikið frá þeirri fjárhæð marg-
faldað með stuðlinum 7,6 og sú
fjárhæð kemur þá til lækkunar
kaupverðs. Verður lækkunin
greidd með endurgreiðslu kaup-
verðs.
Möguleg lækkun kaupverðs
mun þó aldrei nema meira en
35% af upphaflegu kaupverði.
Á hluthafafundinum var einnig
tekin fyrir tillaga þess efnis að
nafni HB Granda yrði breytt í
Brim hf. Var sú tillaga samþykkt
með 90,95% atkvæða þeirra hlut-
hafa sem fundinn sóttu. ses@m-
bl.is
Hluthafar
samþykktu
kaupin