Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 8
Á vef Reykjavíkurborgar ernokkuð sem heitir mælaborð
borgarbúa og virðist eiga að gefa
borgarbúum tölulega innsýn í borg-
ina og starfsemi hennar. Þetta virð-
ist þó ekki hugsað út frá því að
svara þeim spurningum sem helst
kynnu að brenna á íbúunum eða lík-
legast er að
þeir kynnu að
velta fyrir
sér.
Undir yfirskriftinni „mann-auður“ eru til dæmis birtar
tölur um starfsmenn borgarinnar,
en hvergi eru sjáanlegar upplýs-
ingar um íbúana.
Undir fjármálum eru upplýs-ingar um heildartölur borg-
arinnar, þar með taldar tekjur og
útgjöld, en ekkert um skattbyrði
hins almenna borgarbúa og hve
miklu meiri skattbyrðin er í borg-
inni en víða í nágrenninu.
Þá vekur athygli að undir um-hverfi og samgöngum er að-
eins einn liður: Hjólaumferð. Þar er
greint frá umferð hjólandi á þrem-
ur tilteknum stöðum í borginni en
ekki er orð eða tala um bílaumferð.
Þær upplýsingar væru þó mungagnlegri fyrir mun fleiri og
ættu því meira erindi í „mælaborð
borgarbúa“. Þannig væri áhuga-
vert fyrir nær alla borgarbúa að
vita hve langar raðir og tafir hafa
myndast á götum borgarinnar, hve
lengi beðið er á hverjum ljósum að
meðaltali og hve mikið ferðatími
fólks hefur lengst á síðustu árum
vegna sérvisku borgaryfirvalda í
umferðarmálum.
Ekkert þessu líkt er þó að finna í„mælaborði borgarbúa,“ sem
er bersýnilega fremur hugsað sem
áróðurstæki en upplýsingaveita.
„Mælaborð
borgarbúa“
STAKSTEINAR
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
VERSLUN &
VERKSTÆÐI
Opið virka daga 10-18
laugardaga 12-17
Snorrabraut 56, 105 Reykjavík, Sími 588 0488, feldur.
FELDUR
verkstæði
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Guðmunda Júlía var af Bergsætt
Í andlátsfregn í blaðinu á miðvikudag um Einar Grétar Sveinbjörnsson fiðlu-
leikara var móðir hans, Guðmunda Júlía Jónsdóttir, ranglega sögð af Garðs-
ætt en hún var af Bergsætt. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Herdís Tryggvadóttir,
hugsjóna- og baráttukona
á sviði mannúðarmála,
lést 15. ágúst sl. á nítug-
asta og öðru aldursári.
Herdís fæddist í
Reykjavík 29. janúar
1928, dóttir hjónanna
Herdísar Ásgeirsdóttur
og Tryggva Ófeigssonar
athafnamanns, sem rak
togaraútgerðina Júpíter
og Mars og frystihús á
Kirkjusandi.
Herdís var við nám í
húsmæðraskóla Skarhult
í Svíþjóð eftir seinni heimsstyrjöldina
og lauk stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands 1950. Hún lagði
síðar stund á nám í ensku við Háskóla
Íslands. Herdís vann að mann-
úðarmálum, einkum tengdum kirkj-
unni. Hún átti þátt í stofnun safnaðar
Grænáss á Keflavíkurflugvelli og var
þar sóknarnefndarformaður. Herdís
studdi heilsugæsluverkefni á vegum
Kristniboðssambandsins í Afríku,
beitti sér innan samtakanna Herferð
gegn hungri og átti þátt í stofnun
samtaka gegn limlest-
ingu á kynfærum
kvenna.
Herdís var stofn-
aðili að friðarsveitum
Sameinuðu þjóðanna
á Íslandi og tók þátt í
starfi bænahóps fyrir
sjúka í Hallgríms-
kirkju um langt ára-
bil. Herdís tók virkan
þátt í náttúruvernd-
arbaráttu og birti
fjölda blaðagreina um
hugðarefni sín, þ.á m.
um dýravernd, en hún
neytti ekki kjöts frá unga aldri.
Herdís var gift Þorgeiri Þorsteins-
syni, lögreglustjóra og sýslumanni á
Keflavíkurflugvelli, syni Þorsteins
Jónssonar, fyrrverandi kaupfélags-
stjóra KHB, og Sigríðar Þorvarð-
ardóttur Kjerúlf, en þau skildu.
Herdís og Þorgeir eignuðust fjögur
börn. Þau eru: Herdís, f. 1954, mann-
réttindalögfræðingur, Þorsteinn, f.
1955, hagfræðingur, Sigríður, f. 1958,
prófessor, og Ófeigur Tryggvi, f.
1960, læknir.
Andlát
Herdís Tryggvadóttir
Skipstjórar nýja Herjólfs eru hæst-
ánægðir með arftakann eftir að hafa
siglt á honum í nokkrar vikur.
„Hann hefur bara reynst okkur
virkilega vel,“ segir Gísli Valur
Gíslason, skipstjóri á Herjólfi.
Til að byrja með var nýi Herj-
ólfur býsna valtur.
„Það var galli í öðrum stöðug-
leikaugganum sem á að gera við 18.
september. Það er búið að gera
bráðabirgðareddingu svo við getum
notað hann,“ segir Gísli, sem tekur
fram að gallinn sé ekki hættulegur.
Gísli sigldi sjálfur gamla Herjólfi
um nokkurra mánaða skeið og segir
að sér líki jafnvel betur við þann
nýja. Þó sé erfitt að kveðja gamlan
vin.
„En það var svo sem alveg kom-
inn tími á það líka,“ segir Gísli.
Gamli Herjólfur er þó ekki alveg
dauður úr öllum æðum og Gísli þarf
ekki að kveðja hann alveg strax.
„Hann á að vera í Vestmanna-
eyjum næstu tvö árin sem varaskip
og svo veit maður ekki hvað verður.
Hann er ekki alveg farinn frá okkur
strax. Það er ágætt að hafa hann til
vara,“ segir Gísli.
Nýi Herjólfur hóf siglingar 25.
júlí síðastliðinn eftir miklar tafir.
Aðstaða í Vestmannaeyjahöfn hafði
þá verið bætt en hún verður bætt
enn frekar í haust. ragnhild-
ur@mbl.is
Kominn tími á að kveðja gamlan vin
Mikil ánægja með nýjan Herjólf Galli í stöðugleikaugga gerði hann valtan
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Jómfrúferð Skipstjórar Herjólfs.