Morgunblaðið - 16.08.2019, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Arnþór
Það er nýjung í ís-
lenskri þjóðmála-
umræðu að rætt sé um
orkumál á þeim nótum
að orkan sé tvinnuð ís-
lensku þjóðerni og hin-
um hreina kynstofni
sem Ísland byggir. Þá
er einnig rifjuð upp
sjálfstæðisbarátta ís-
lensku þjóðarinnar,
þar sem öllu sem út-
lenskt er skal hafnað.
Þannig verður íslensk löggjöf
ávallt betri en sú löggjöf sem byggir
á erlendri hugmyndafræði. Það er í
raun merkilegt að landsstjórn skuli
byggjast á „lýðræðishugmyndum“
því lýðræði var ekki fundið upp á Ís-
landi. Oft skortir nokkuð á að út-
færsla á íslensku lýðræði byggi á
frumhugmyndum lýðræðisins.
Miklu fremur skal í íslensku lýðræði
byggja á sérhagsmunum fremur en
almannahagsmunum.
Orkustefna og orkusáttmáli
Það var ekki fyrr en á síðari hluta
20. aldar sem umfjöllun um orku-
stefnu hófst hér í landi. Hugmyndir
um nýtingu á fallvötnum áttu undir
högg að sækja í upphafi, en nýting
jarðvarma til húshitunar þótti
snemma alger snilli. Um skeið var
talið að raforkuframleiðsla með fall-
vatni yrði ekki samkeppnishæf við
raforku framleidda með kjarnorku.
Slík orka er ekki til umræðu að
sinni.
Í nóvember 1991, þ.e. fyrir aðild
að EES, fjallaði þáverandi iðnaðar-
ráðherra um orkusáttmála Evrópu.
Ráðherra sagði innihald orkusátt-
málans einkum vera:
Meginmarkmiðin með fyrirhug-
uðu samstarfi eru:
- að tryggja öryggi í orkumálum,
- þróa orkuviðskipti,
- bæta orkudreifingu og
- ná sem mestu út úr orkulindum
og fjárfestingum á því sviði
jafnframt því sem tekið sé fullt
tillit til umhverfisverndar.
Markmiðunum er ætlunin að ná
með fjölþættu samstarfi:
- aðgangi að orku-
lindum, í samræmi
við ákvæði sátt-
málans,
- frjálsum við-
skiptum með orku,
- samvinnu um fjár-
festingar í orku-
málum,
- tæknilegum stöðl-
um og öryggis-
reglum,
- rannsóknum,
tækniþróun,
- bættri orkunýt-
ingu og verndun
umhverfis,
- menntun og þjálfun.
Samstarf milli aðildarríkja að
sáttmálanum verður fyrst og fremst
milli fyrirtækja á grundvelli mark-
aðsviðskipta. Hlutverk stjórnvalda
verður aðallega að móta leikreglur
til að svo megi verða.
Iðnaðarráðherra sagði að ríkis-
stjórnin hefði ákveðið að taka þátt í
undirbúningi að gerð orkusáttmála
Evrópu.
Iðnaðarráðherra sagði „að fyrst
um sinn yrði óbeinn ávinningur fyrir
Íslendinga af aðild að sáttmálanum.
Með samstarfinu yrði greiðari að-
gangur en ella að nýjungum í orku-
málum. Einnig má ætla að orku-
rannsóknir okkar gætu haft hag af
aðildinni í formi rannsóknasam-
vinnu. Þá má ætla að auðveldara
yrði að afla íslenskum ráðgjöfum
verkefna í aðildarríkjunum, t.d. á
sviði jarðvarma í Austur-Evrópu.
Þegar til beins útflutnings kemur á
orku frá Íslandi mun aðild að sátt-
málanum styrkja stöðu Íslendinga.“
Inntak orkusáttmála
Ekki verður séð að megininntak
„orkupakka“ Evrópsks efnahags-
svæðis hafi breyst þrátt fyrir fjölg-
un „pakka“. Í stuttu máli má segja
orkustefnu EES byggjast á sjálf-
bærni, samkeppni, neytendavernd
og að hvert ríki tryggi eigið orku-
öryggi. Það verður því ekki lögð
kvöð á eina þjóð að bjarga öðrum
þjóðum um orku vegna vanrækslu
þeirra. Ríki geti tengt orkumarkaði
sína eftir atvikum og á grundvelli
hagkvæmni og öryggis.
Íslensk orkustefna og orkufram-
leiðsla byggist á sjálfbærri nýtingu
fallvatna og jarðvarma. Ísland er
með stærstu útflytjendum orku á
EES-svæðinu. Sá orkuútflutningur
liggur í framleiðslu á áli, en fram-
leiðsla þess byggist á rafgreiningu á
erlendu hráefni. Um 80% af raf-
orkuframleiðslu hér á landi fara til
framleiðslu á áli og kísilmálmi til út-
flutnings.
Náttúruleg einokun
Raforkuframleiðsla byggist á dýr-
um fjárfestingum og því eru að-
gangshindranir að markaðnum
miklar. Slíkt getur leitt til náttúru-
legrar einokunar eða yfirburða-
stöðu. Það er eitt viðfangsefna orku-
stefnu að koma í veg fyrir að
neytendur verði fyrir barðinu á ein-
okuninni. Reynt er að markaðsvæða
og vernda kaup neytenda á raforku
til að koma í veg fyrir ofurhagnað
orkuframleiðenda vegna einokunar
eða yfirburðastöðu. Framleiðsla og
sala á raforku var gefin frjáls með
fyrri orkupökkum ESB og neytend-
ur geta í dag valið af hverjum þeir
kaupa sitt rafmagn.
Þá þarf einnig að tryggja að litlir
framleiðendur rafmagns eigi aðgang
að flutningsneti á jafnræðisgrund-
velli, til að gefa þeim möguleika á
dreifingu og sölu á afurð sinni í
formi rafmagns. Flutningur og
dreifing rafmagns er sérleyfisstarf-
semi og lýtur sem slík ströngu opin-
beru eftirliti og verðstýringu.
Með því að hvert land þarf að
tryggja eigið orkuöryggi þarf fyrst
að tryggja raforku til almennings og
því næst til stórkaupenda sam-
kvæmt sérstökum samningum. Það
sem afgangs er kann að fara á ein-
hvers konar uppboðsmarkað.
Orkustofnun og Samkeppniseftir-
liti ber að annast eftirlit með verð-
lagningu á raforku til almennings og
það þarf að tryggja þessum stofnun-
um valdheimildir til að framfylgja
ákvörðunum sínum. Það er nauðsyn-
legt að koma í veg fyrir ofurhagnað
orkufyrirtækja vegna einokunar og
yfirburðastöðu sinnar. Það er hluti
af orkuöryggi einstakra ríkja.
Sæstrengur
Sæstrengur til flutnings raforku
getur flutt raforku í báðar áttir, þ.e.
til og frá Íslandi. Sagt er að Nor-
egur flytji raforku út á háu verði á
daginn, en safni í miðlunarlón á
nóttunni og flytji inn raforku, sem
framleidd er með vindorku á nótt-
unni.
Forsendur fyrir lagningu
sæstrengs eru:
Umframrafmagn
Kaupandi rafmagns
Fjármögnun, sem byggist á
áhættumati
Umhverfisþættir
Samþykki Alþingis
Allt tal um ímyndaðar skaðabæt-
ur á grundvelli missis hagnaðar er
fásinna.
Forstjóri Landsvirkjunar tíund-
aði það árið 1991 hver ábatinn yrði
fyrir Landsvirkjun af útflutningi á
umframorku Blönduvirkjunar. Sú
umframorka hvarf með raf-
orkusamningum til álframleiðslu.
Finnbogi Jónsson, þá forstjóri
Síldarvinnslunnar hf. og um skeið
stjórnarmaður í Landsvirkjun, sagði
í viðtali við Morgunblaðið sama ár:
„Hraða undirbúningi að raforkusölu
um sæstreng til Evrópu og afskrifa
strax álversdraumóra“. Álver reis í
Fjarðabyggð nokkrum árum síðar
og þeim fylgdu Norðfjarðargöng til
Eskifjarðar og Reyðarfjarðar og
aukið atvinnuöryggi og fjölbreytni í
atvinnu.
Almennt er það ekki farsæl stefna
fyrir þjóðir að afsala sér góðu verði
fyrir verðmætustu auðlindir sínar af
ótta við að innanlandsverð á þeim
hækki. Íslendingar vilja þannig fá
sem hæst verð fyrir fisk til útflutn-
ings og verða því að sæta hækkun á
verði innanlands; olíuþjóðir vilja að
olíuverð sé hátt; og þannig mætti
áfram telja.
Fram hefur komið ítrekað í gögn-
um frá Landsvirkjun og öðrum á
undanförnum árum að með sæ-
streng mun orkuverð til almennings
og fyrirtækja ekki hækka. Annað er
falsfréttir.
Hvað er ekki?
Það hefur verið sýnt fram á að
samstarf í orkumálum er ekki afsal
á fullveldi eða forræði á auðlindum.
Engin kvöð er lögð á að einkavæða
Landsvirkjun, sem er gullegg í eigu
þjóðarinnar.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
sagði það á fundi með sjálfstæðis-
mönnum 10. ágúst síðastliðinn að
það væri [orðin] hans skoðun að
Landsvirkjun yrði áfram í ríkiseigu.
Sú skoðun er trúlega orðin ríkjandi.
Vandamálið með Landsvirkjun er að
fyrirtækið er svo stórt að það þarf
að hemja það.
Með þriðja orkupakkanum er
ekki lögð neins konar kvöð á að
tryggja orkuöryggi annarra en ís-
lensku þjóðarinnar. Það verður
aldrei lögð sú kvöð á íslenska þjóð
að landið eyði hlutfallslegum yf-
irburðum sínum í raforkufram-
leiðslu til að tryggja afkomu ann-
arra þjóða.
Það er og verður hlutverk Alþing-
is að tryggja slíkt. Sú skoðun sem
kom fram hjá landsbankastjóra fyr-
ir áratugum „að það ætti alls ekki að
virkja meira, það ætti aðeins að
hækka verð á rafmagni, því þá
myndi fólk nota minna af rafmagni“
er ekki innihald nokkurs „orku-
pakka“.
Kvenhylli og lýðhylli
Það er hægt að eyða orku í tal
með rangfærslum og útúrsnún-
ingum í þingsal Alþingis til viðbótar
við tal um kvenhylli á Klaustri. Það
er tilraun til lýðhylli. Það hefur allt
eðli „falsfrétta“. Kvenhyllin er fals-
frétt. Afsal fullveldis er falsfrétt og
krafa um sæstreng er falsfrétt. Lýð-
hylli er fallvölt.
Skáldið sagði: „Maður sem segir
hvað hann hugsar er hlægilegur; að
minsta kosti í augum kvenmanns.“
Það á enn við.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason » Í stuttu máli má
segja orkustefnu
EES byggjast á sjálf-
bærni, samkeppni, neyt-
endavernd og að hvert
ríki tryggi eigið orku-
öryggi.
Vilhjálmur
Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
(Kjarn) orka og (kven) (lýð) hylli
Það hefur gengið
ýmislegt á síðustu
dagana í málefnum
Félags eldri borgara
í Reykjavík og fjöl-
miðlar hafa verið
duglegir að hringja
og birta fréttir af
stöðunni sem snýr að
sölu íbúða í Ásgarði
og verði þeirra, til
kaupenda. Hér er um
að ræða íbúðir sem verktakar
Mótex hafa byggt fyrir FEB. Mál-
ið snýst um það að búið var að
verðsetja íbúðirnar og tilkynna
hverjir valdir voru til kaupa.
Byggingarnefnd FEB gaf út verð-
ið og við í stjórninni vissum ekki
betur en að þær tölur væru
bundnar við kostnað bygginganna.
Sem ekki reyndist nægilegt þegar
upp var staðið. Það vantaði fjögur
hundruð milljónir króna til að
endar næðu saman. Þar stendur
hnífurinn í kúnni.
Félag eldri borgara hefur tekið
að sér að sækjast eftir lóðum til
að koma til móts við eldri borgara
og selja þeim á kostnaðarverði,
sem oftast er mun lægra en mark-
aðsverð. Með öðrum orðum hefur
það aldrei vakað fyrir okkur að
græða á byggingum, heldur hitt
að þjóna kröfum og þörfum eldri
borgara til að minnka
við sig húsnæði og
eignast ódýrari og
minni íbúðir þegar
aldurinn lengist.
Hér er ekki um
það að ræða að félag-
ið eða einhverjir ein-
staklingar séu að
selja til að græða.
Hér hefur enginn
misnotað stöðu sína,
hér hefur enginn
brotið lög, hér hefur
engin svikamylla eða
misnotkun átt sér stað, heldur að
útreikningar á kostnaði reyndust
hærri en upp var gefið þegar íbúð-
irnar áttu að afhendast.
Félag eldri borgara neyddist til
að hækka íbúðarverðið til að geta
greitt reikninga frá verktökum
húsanna. Um það snýst málið.
Í félagi eldri borgara í Reykja-
vík eru skráðir rúmlega tólf þús-
und meðlimir. Félagið hefur staðið
fyrir margvíslegu starfi og
skemmtun. Utanferðum, innan-
landsferðalögum, námskeiðum,
brids, söng, dans og samba, nám-
skeiðum og sagnfræði og mörgu
fleira. Þar er líka starf í þágu líf-
eyris og eftirlauna eldri borgara
og hvergi gefið eftir. Þjónusta og
uppákomur gagnvart eldri borg-
urum er líka og kannski stærsta
viðfangsefni félagsins. Starfsemi
FEB er og hefur alla tíð og ekki
síst, nú síðustu árin, verið mik-
ilvæg og eftirsótt hjá eldri borg-
urum á höfðuðborgarsvæðinu og
gegnir þar hlutverki sem skiptir
máli fyrir meðlimi og aldraða og
býður upp á áhyggjulausara ævi-
kvöld.
Viðleitni mín og okkar allra (án
launa) sem tekið hafa að sér að
sinna málefnum eldri borgara er
sú að skilja kvartanir og kröfur
þess fólks sem hefur sóst eftir og
fengið íbúðir í Ásgarði. Við erum
að leita að niðurstöðum sem
hjálpa bæði þeim og okkur til að
endar nái saman. Við erum jafn
miður okkar og fólkið sem hefur
fengið réttinn til að kaupa. Ég
bendi á síðasta útspil okkar, þar
sem lögð er fram tillaga um sætt-
ir.
Málefni eldri
borgara – og ástand
Eftir Ellert B.
Schram »Hér er ekki um það
að ræða að félagið
eða einhverjir séu að
selja til að græða heldur
reyndust útreikningar á
kostnaði hærri en upp
var gefið þegar íbúð-
irnar áttu að afhendast.
Ellert B. Schram
Höfundur er formaður FEB.
Sumarkvöld Nýi vitinn við Sæbraut í Reykjavík, sem er mjög í anda þeirra
gömlu sem finna má við hafnarmynnið, er vinsæll áningarstaður ferðamanna.