Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 22
kvæmdastjóri 75 ára afmælis-
hátíðar HÍ árið 1986, auk ýmissa
fleiri stjórnunarstarfa innan há-
skólans. Hann var formaður forn-
leifanefndar, rannsóknarnefndar
sjóslysa og kærunefndar útboðs-
mála, varaformaður áfrýjunar-
HÍ og stundaði rannsóknir á því
sviði.
Fræðimaður og ferðalangur
Alla tíð hefur Páll verið mjög
virkur í rannsóknum og stundað
þær víða um lönd. Þegar hann var
laganemi birti hann nokkrar fræði-
greinar í Úlfljóti, tímariti laga-
nema, og fyrsta bók hans, Brot úr
réttarsögu, kom út þegar Páll var
27 ára gamall, en hann hefur mikið
ritað um réttarsöguleg efni, bæði
íslenska réttarsögu og samanburð-
arréttarsögu. Bækurnar eru orðnar
50 talsins, en sú síðasta, Lagaglæð-
ur, kom út í fyrra. Bækurnar
spanna fjölbreytt svið lögfræðinnar
auk þess sem Páll skrifaði rit í
tveimur bindum um húsnæðis- og
byggingarsögu HÍ, þrjár árbækur
Ferðafélags Íslands um Skagafjörð
og ferðabækur um útlönd. Hann
var ritstjóri Lögfræðiorða-
bókarinnar sem kom út árið 2008.
Páll hefur gegnt ýmsum stjórn-
unarstörfum, hann átti sæti í
stjórn Lagastofnunar í hálfan ann-
an áratug, var formaður
kynningarnefndar HÍ og fram-
P
áll Sigurðsson fæddist
16. ágúst 1944 í
Reykjavík. „Ég fór á
Sauðárkrók nokkurra
mánaða gamall með
móður minni og ólst þar upp með
henni og ömmu minni og afa. Ég
var sex sumur í sveit í Blönduhlíð,
þar af fjögur seinni árin í Flugu-
mýrarhvammi hjá ömmusystur
minni sem þar bjó.“
Páll gekk í barnaskólann á Sauð-
árkróki, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri vorið
1964 og embættisprófi frá laga-
deild Háskóla Íslands í maí 1969.
Hann stundaði síðan framhaldsnám
og rannsóknir víða um lönd, m.a. í
sjórétti og skaðabótarétti við Ósló-
arháskóla og í réttarsögu og rétt-
arfari við Háskólann í Bonn. Í nóv-
ember 1978 lauk hann doktorsprófi
frá lagadeild HÍ með ritgerðinni
Þróun og þýðing eiðs og heitvinn-
ingar í réttarfari.
Eftir að hafa útskrifast úr laga-
deildinni 1969 var Páll fulltrúi hjá
sýslumanninum í Snæfells- og
Hnappadalssýslu um nokkurra
mánaða skeið áður en hann hélt í
framhaldsnám. Þegar heim var
komið var hann um skeið fulltrúi í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
Hann varð dósent við lagadeild HÍ
1973 og var skipaður prófessor
1987 og gegndi þeirri stöðu óslitið
þar til hann lét af störfum haustið
2014. Hann var deildarforseti laga-
deildar 2000-2002.
Aðalkennslugreinar Páls voru
lengi samningaréttur og kaupa-
réttur, sem voru skyldugreinar við
lagadeildina. Hann samdi mikið
efni sem var notað í kennslunni og
var það kærkomið fyrir nemendur
en á þessum tíma var algengt að
við kennslu væru notuð yfirgrips-
mikil lögfræðirit á dönsku. Strax á
fyrstu starfsárum sínum stóð Páll
fyrir því að taka upp fjölbreyttari
kennsluhætti við lagadeildina, og
ritaði m.a. hugleiðingar um
kennsluaðferðir og -tækni. Síðar
kenndi Páll erfðarétt í grunnnám-
inu og kenndi og hafði umsjón með
fjölmörgum greinum í meistara-
námi við lagadeild. Hann kenndi
einnig kirkjurétt við guðfræðideild
nefndar samkeppnismála, stjórnar
Örnefnastofnunar, gerðardóms
Verkfræðingafélags Íslands og
áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar.
Hann sat í stjórn Landverndar,
náttúruverndarráði, ferðamálaráði
og alþjóðanefnd Rauða kross Ís-
lands. Páll sat í stjórn Ferðafélags
Íslands og var forseti þess 1994-
1997 og er heiðursfélagi FÍ.
Páll er náttúruverndarsinni og
hefur ferðast mikið bæði hér á
landi og víða um heim. Hann hefur
kynnt sér réttarsögu og menningu
flestra þjóða í Evrópu og í fjarlæg-
ari löndum og álfum og stofnað til
tengsla við erlenda fræðimenn.
Páll hefur haldið málverkasýn-
ingar, m.a. á olíuverkum, og í
fyrstu bók hans eru nokkrar teikn-
ingar.
„Ég er enn að mála og svo sit ég
við tölvuna hluta úr degi og læt
mér detta eithvað í hug, er að fara
í gegnum heimildir og les ýmislegt
sem ég hafði ekki tíma til áður.
Það er tvennt sem ég hef alltaf
haft áhuga á meðal annars; annars
vegar réttarsaga og tengsl hennar
við almenna menningarsögu og
Páll Sigurðsson, fyrrverandi lagaprófessor – 75 ára
Fræðimaðurinn Páll á heimili sínu og ber bókasafnið merki um fjölbreytileg viðfangsefni Páls gegnum tíðina.
Grúskar í samanburðarlögfræði
Fjölskyldan Sigríður, Anna
Sigríður, Ólafur og Páll.
50 ára Valur Freyr
ólst upp í Garðabæ en
býr í Reykjavík. Hann
lærði leiklist við Man-
chester School of
Theatre og er leikari
hjá Leikfélagi Reykja-
víkur. Hann mun leika
titilhlutverkið í Vanja frænda sem verður
jólasýning LR á komandi leikári.
Maki: Ilmur Stefánsdóttir, f. 1969, lista-
maður.
Börn: Salka, f. 1995, Ísak, f. 1996, Grett-
ir, f. 2002, og Gríma, f. 2004.
Foreldrar: Einar H. Ágústsson, f. 1934,
d. 2015, rafvirki og kennari í Vélskól-
anum, og Herdís Hergeirsdóttir, f. 1935,
d. 2009, kaupmaður. Þau voru bús. í
Garðabæ.
Valur Freyr
Einarsson
60 ára Tómas Þór er
Kópavogsbúi og ólst
þar upp. Hann er með
BA í sagnfræði frá Há-
skóla Íslands og lauk
BS-námi í stjórnun
ferðamála í New
Haven, BNA, og MBA-
námi frá Warwick Business School í
Bretlandi. Hann er sérfræðingur í fram-
leiðslu og sölu hjá Úrvali-Útsýn.
Maki: Helga Jónasdóttir, f. 1959, grunn-
skólakennari í Ölduselsskóla.
Börn: Þóra, f. 1982, Jónas, f. 1985, Tóm-
as Helgi, f. 1990, og Arnhildur, f. 2000.
Foreldrar: Tómas Árnason, f. 1923, d.
2014, ráðherra og seðlabankastjóri, og
Þóra Kristín Eiríksdóttir, f. 1926, d. 2007,
húsfreyja. Þau voru síðast bús. í Rvík.
Tómas Þór
Tómasson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú verður að skipuleggja starf þitt
betur ef þú átt að koma einhverju í verk.
Fylgstu vel með því sem er að gerast í
kringum þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt sjálfsagt sé að taka hlutina alvar-
lega er óþarfi að vera svo stífur að geta ekki
brosað út í annað þegar svo ber undir.
Kauptu þér eitthvað alveg sérstakt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það reynir á stjórnunarhæfileika
þína og þá ríður á miklu að þú bregðist rétt
við. Gakktu rösklega til verks og fagnaðu
svo árangrinum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú lætur ýmislegt í umhverfi þínu
fara í skapið á þér og mátt ekki láta það
bitna á þeim sem standa þér næstir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú stendur frammi fyrir kröfum um
aukna ábyrgð en ert eitthvað tvístígandi.
Láttu slag standa.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Óvænt tækifæri berst þér upp í
hendurnar og þér er fyrir bestu að nýta þér
það til hins ýtrasta. Segðu hug þinn og það
mun koma þér á óvart hversu margir eru
sammála þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Flas er ekki til fagnaðar og það á svo
sannarlega við um þá aðstöðu sem þú ert í
núna. Þú ert næmur á líðan annarra og
veist hvað er viðeigandi að segja og hvað
ekki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er sjálfsagt að vinna skoð-
unum sínum brautargengi en það er ekki
sama hvernig það er gert. Aðrir sjá um sig
en þín verk vinnur enginn fyrir þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú munt þurfa á öllum þínum
hæfileikum að halda til þess að komast hjá
mjög vandræðalegum atburði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú færist allur í aukana við að
koma fyrirætlunum þínum í framkvæmd,
ekki síst vegna hvatningar samstarfsfólks
þíns.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er gaman að sigla fyrir full-
um seglum en vertu viðbúinn því að vindur-
inn geti blásið úr annarri átt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú veist að þú ert á réttri leið og
gefur ekkert eftir. Mundu að það kemur upp
neikvæðni í öllum fjölskyldum og að það
skiptir höfuðmáli hvernig unnið er úr henni.
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Til hamingju með daginn
Vinkonurnar Díana Lind Ragnars-
dóttir og Hekla Lind Axelsdóttir héldu
nú á dögunum tombólu fyrir utan
Krambúðina á Selfossi. Ágóðann gáfu
þau Rauða krossinum, alls 6.036 kr.
Rauði krossinn þakkar Díönu og Heklu
fyrir þetta frábæra framtak.
Tombóla