Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019 ÚTILJÓSADAGAR afsláttur af völdum útiljósum 50% Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888 OPIÐ ALLA DAGA Mán. til fös. kl. 9–18 Laugard. kl. 10–16 Sunnud. kl. 12–16 Mjólkurbikar karla Undanúrslit: Víkingur R. – Breiðablik ..........................3:1 Pepsi Max-deild kvenna Stjarnan – ÍBV ......................................... 2:1 Þór/KA – Keflavík .................................... 3:1 Staðan: Valur 13 12 1 0 51:8 37 Breiðablik 13 11 2 0 43:12 35 Þór/KA 14 7 3 4 27:21 24 Selfoss 13 7 1 5 17:15 22 Fylkir 13 6 1 6 18:26 19 Stjarnan 14 5 1 8 14:28 16 KR 13 4 1 8 16:27 13 ÍBV 14 4 0 10 24:37 12 Keflavík 14 3 1 10 22:31 10 HK/Víkingur 13 2 1 10 10:37 7 Markahæstar: Elín Metta Jensen, Val ..............................13 Margrét Lára Viðarsdóttir, Val................12 Hlín Eiríksdóttir, Val.................................12 Cloé Lacasse, ÍBV......................................11 Berglind B. Þorvaldsdóttir, Breiðabliki...11 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki......11 Inkasso-deild karla Fram – Njarðvík ...................................... 2:0 Frederico Bello 77., Helgi Guðjónsson 90. Staðan: Fjölnir 16 10 4 2 34:15 34 Þór 16 9 4 3 28:16 31 Grótta 16 8 6 2 34:24 30 Leiknir R. 16 8 2 6 28:24 26 Fram 17 8 2 7 26:26 26 Víkingur Ó. 16 6 6 4 17:13 24 Keflavík 16 6 4 6 22:21 22 Þróttur R. 16 6 3 7 32:24 21 Afturelding 16 5 2 9 21:30 17 Haukar 16 3 5 8 22:32 14 Magni 16 3 4 9 18:42 13 Njarðvík 17 3 2 12 16:31 11 3. deild karla Reynir S. – KH ......................................... 3:1 Álftanes – Kórdrengir.............................. 1:1 Staðan: Kórdrengir 17 13 3 1 45:18 42 KF 16 12 2 2 42:16 38 KV 16 10 2 4 33:21 32 Reynir S. 17 8 5 4 30:27 29 Vængir Júpiters 16 9 1 6 30:24 28 Einherji 16 6 5 5 21:19 23 Álftanes 17 5 4 8 30:30 19 Sindri 16 5 3 8 33:40 18 Höttur/Huginn 16 3 6 7 23:26 15 Augnablik 16 3 4 9 21:33 13 KH 17 4 1 12 22:43 13 Skallagrímur 16 2 0 14 16:49 6 4. deild karla A Ísbjörninn – Vatnaliljur........................... 0:1 Árborg – SR.............................................. 4:2 4. deild karla B KM – Hvíti riddarinn ............................. 0:11 4. deild karla C Hamar – Léttir ....................................... 10:1 4. deild karla D Ægir – KÁ................................................. 3:0 KNATTSPYRNA KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfuknattleik, er ánægður með baráttuandann í íslenska lið- inu. Landsliðið hefur lent í tveimur háspennuleikjum í forkeppninni fyr- ir EM 2021 en í báðum tilfellum var liðið undir en tókst að koma sér í stöðu til að vinna leikina. Það tókst gegn Sviss í Höllinni en ekki úti í Portúgal. „Andrúmsloftið hefur verið af- skaplega gott. Sumir leikmanna eru stífir eftir fyrstu tvo leikina og við erum að safna kröftum. Við verðum tilbúnir á laugardaginn þegar við tökum á móti Portúgal. Við þurfum að verja heimavöllinn og vonandi náum við fram eins góðri frammi- stöðu og hægt er. Í báðum leikj- unum höfum við sýnt keppnishörku með því að komast yfir eftir að hafa lent undir. Því miður töpuðum við í Portúgal en tókst að snúa leiknum gegn Sviss okkur í vil undir lokin. Í okkar leik má finna ýmislegt já- kvætt. Á heildina litið þá höfum við skapað okkur ágæt skotfæri en gætum nýtt þau betur. Þjálfurum og leikmönnum hefur tekist að finna lausnir í leikjunum sem hafa heppnast vel þegar bregðast þurfti við. Í tapleiknum í Portúgal þá settu andstæðingarnir niður mörg erfið skot og það var vel gert hjá þeim. Portúgal hefur unnið báða heimaleiki sína og það þurfum við einnig að gera.“ Sveiflur í öllum leikjunum Hvernig metur Pedersen stöðuna nú þegar Ísland hefur leikið tvo leiki af fjórum? „Segja má að riðill- inn sé aðeins meira en hálfnaður eftir að Portúgal og Sviss léku seinni leik sinn. Það kom mér ekk- ert á óvart að Portúgal hafi unnið vegna þess að í fyrri leiknum í Sviss sem Sviss vann þá var Portúgal yfir lengi vel. En það kom mér hins veg- ar svolítið á óvart að Portúgal skyldi vinna svo öruggan sigur. Þeir léku mjög vel og leikmenn náðu vel saman. Við mætum því portúgölsku liði á laugardaginn sem er að leika afar vel um þessar mundir,“ sagði Pedersen en fyrstu tveir leikir ís- lenska liðsins hafa verið hnífjafnir og væntanlega má búast við ein- hverju svipuðu á laugardaginn. „Það hafa verið talsverðar sveifl- ur í öllum leikjunum. Ekki bara okkar leikjum heldur einnig hjá Sviss og Portúgal. Annað liðið nær tíu stiga forskoti sem sveiflast yfir í að hitt liðið nær tíu stiga forskoti. Á heildina litið hafa leikirnir verið jafnir og í nokkrum tilfellum mjög spennandi undir lokin,“ sagði Kan- adamaðurinn sem stýrt hefur ís- lenska landsliðinu síðan 2014 eða í fimm ár. Fór hann með íslenska lið- ið á EM 2015 og 2017 en leiðin á næsta EM sem verður 2021 er býsna löng. Sterkar þjóðir bíða takist Íslandi að vinna riðilinn Landsliðsmennirnir súpa nú seyðið af því að hafa hafnað í neðsta sæti í undankeppninni þar síðasta vetur. Þá tapaði Ísland heima fyrir Búlgaríu sem var í neðsta styrk- leikaflokki en riðillinn var nokkuð skrautlegur og Íslandi tókst á hinn bóginn að vinna Finnland og Tékk- land í Laugardalshöllinni. Lið sem eru hærra skrifuð en það íslenska í körfunni. Fari svo að íslenska liðið vinni riðilinn þá tekur liðið þátt í und- ankeppni næstu tvo vetur með Serbíu, Finnlandi og Georgíu. Þar þyrfti Ísland að skilja eina þjóð eft- ir fyrir aftan sig til að komast á EM. Leikmenn í NBA og Euroleague liðum fá yfirleitt ekki leyfi til að fara í landsleikina á veturna. Gæti það sett verulega sterkan svip á rið- ilinn. Ekki yrði það einungis til góðs fyrir íslenska liðið því Martin Hermannsson leikur nú í Euro- league með Alba Berlín og fær væntanlega ekki frí ef til þess kem- ur að Ísland verði í undankeppn- inni. Hafa sýnt keppnishörku að mati þjálfarans  Pedersen ánægður með andann í landsliðinu  Á von á erfiðum leik Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen fer yfir málin með sínum mönnum í leiknum gegn Sviss á laugardaginn. Íslenska karlalandsliðið í körfu- bolta er í harðri keppni við Portú- gal og Sviss um efsta sæti H-riðils og þar með eina lausa sætið í boði í undankeppni EM 2021. Aðeins tveir leikir eru eftir í riðlinum, viðureign Íslands og Portúgals í Laugardals- höll á laugardag og svo leikur Sviss og Íslands ytra næstkomandi mið- vikudag. Portúgal er efst í riðlinum með 5 stig og +12 í stigatölu. Sviss er með 4 stig og -12 í stigatölu. Ísland er með 3 stig og 0 í stigatölu. Rétt er að ítreka að 1 stig fæst fyrir tap en 2 fyrir sigur. Hvaða möguleikar eru þá í boði?  Ef Ísland vinnur báða leikina sem liðið á eftir þá endar liðið efst í riðlinum með 7 stig, stigi meira en Portúgal og tveimur fyrir ofan Sviss.  Ef Ísland tapar gegn Portúgal á laugardaginn er ljóst að Portúgal vinnur riðilinn með 7 stig, sama hvernig leikur Sviss og Íslands fer.  Ef Ísland vinnur leikinn við Portúgal á laugardaginn en tapar gegn Sviss munu öll þrjú liðin enda jöfn að stigum. Þá ræður innbyrðis stigatala úr öllum leikjunum í riðl- inum. Eins og fyrr segir stendur Portúgal nú best að vígi eftir 16 stiga sigur á Sviss í annars mjög jöfnum riðli. Í þessu tilviki þarf Ís- land að vinna Portúgal með meiri mun en Ísland tapar fyrir Sviss með. Þessi munur þyrfti að vera 1-6 stig, eftir því hve stór sigurinn og tapið eru. Liðið sem vinnur riðilinn leikur í E-riðli undankeppni EM með Finn- landi, Georgíu og Serbíu, og kom- ast þrjú lið úr þeim riðli á EM árið 2021. sindris@mbl.is Snúin staða Íslands fyrir lokaleikina Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Harður slagur Ísland, Sviss og Portúgal berjast um eitt sæti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.