Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 32

Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 32
Söngkonan Diddú, Sigurður Ingvi Snorrason klarínettuleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari hefja stutta tónleikaferð í dag með tónleikum í Skólahúsinu á Kópa- skeri kl. 20. Næst er förinni heitið í Mývatnssveit þar sem þau koma fram í Reykjahlíðarkirkju á morgun kl. 16 og síðasti viðkomustaður er svo Akureyri þar sem tónleikar verða haldnir í Hofi á sunnudag kl. 17. Á efnisskránni verða hjarðlög og -söngvar til heiðurs smölum landsins o.fl. lög. Til heiðurs smölum FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 228. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Víkingur Reykjavík mætir FH í bik- arúrslitaleik karla í fótbolta þann 14. september en þetta varð ljóst í gær þegar Víkingar unnu Breiðablik 3:1 í Fossvogi. Mikill hiti var í mönn- um í leiknum og rauða spjaldið fór á loft, og niður á jörðina reyndar. Víkingar hafa ekki leikið bikarúr- slitaleik síðan árið 1971 þegar þeir urðu bikarmeistarar. »26 Við suðupunkt þegar langri bið Víkings lauk ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Krosssaumur nefnist gjörningainn- setning eftir Pétur Eggertsson, í samstarfi við Lilju Maríu Ás- mundsdóttur, sem sýnd verður í Mengi í kvöld. Í Krosssaumi er sniðmengi tónlistar og sauma- skapar skoðað til hlítar og verður boðið upp á langtíma tónlist- argjörning sem lýkur með útsaum- uðum tónskúlptúr sem gestir geta virt fyrir sér að lokum, eins og því er lýst í til- kynningu. Verður saumavél nýtt til verksins. Pétur og Lilja eru bæði tónskáld. Lýkur með útsaumuð- um tónskúlptúr Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslandsmót golfklúbba fyrir eldri kylfinga fer fram um helgina og verður keppni í 1. og 2. deild kvenna hjá golfklúbbi Öndverð- arness. Þórdís Geirsdóttir, marg- faldur meistari í golfi, er í öldunga- deildarliði Keilis í Hafnarfirði, en þegar Íslandsmót golfklúbba fór fram í lok júlí var hún í kvennaliði Keilis í efstu deild 35. árið í röð. „Þetta er svo skemmtilegt,“ segir Þórdís, sem byrjaði í golfi áður en hún varð ellefu ára 1976. „Ég elti bræður mína út á golfvöll, „stal“ kylfum frá þeim og féll strax fyrir íþróttinni, en fékk síðan hálft sett í fermingargjöf og eftir það varð ekki aftur snúið.“ Samkvæmt upplýsingum á golf.is voru 17.859 kylfingar skráðir fé- lagar í golfklúbbum landsins 1. júlí síðastliðinn og hafði þeim fjölgað um 4% frá liðnu ári. Er það mesta fjölgun frá 2009. 5.748 konur voru á meðal félagsmanna en þegar Þórdís steig sín fyrstu skref á golfvellinum í Hafnarfirði voru þær lítt áberandi. „Stelpum hefur oft verið ýtt út ef þær eru ekki nógu góðar en ég var svo heppin að vera „ein af strákun- um“ og það bjargaði mér,“ rifjar Þórdís upp. „Þegar ég byrjaði voru strákar eins og Hörður Hinrik Arn- arson og Úlfar Jónsson á sama báti og það hélt mér á floti að vera á pari við þá. Þess vegna var mér ekki ýtt út.“ Í landsliði í 37 ár Eitt leiddi af öðru, Þórdís fór upp allan stigann, spilaði fyrst með B- landsliðinu 16 ára gömul, síðan í A- landsliðinu um árabil og er nú í öld- ungalandsliðinu. Hún ólst upp á holtinu í Hafnarfirði og hefur alltaf verið í Keili. „Ég átti heima í nokk- ur ár í Garðabæ en var fljót til baka og bý rétt hjá vellinum enda vil ég helst hvergi annars staðar vera.“ Miklar breytingar hafa orðið á öllum sviðum golfsins frá því Þórdís byrjaði að æfa íþróttina. Hún bend- ir á að eftir því sem konum hafi fjölgað hafi leikjum fjölgað og nú sé svo komið að þær spili jafnmarga leiki og karlarnir á Íslandsmóti golfklúbbanna. „Við erum á sama stigi og þeir,“ segir hún. Bætir við að gæði vallanna séu líka allt önnur og meiri en áður, kunnátta vallar- starfsmanna og þjálfara sömuleiðis að ónefndum spilurunum og búnaði þeirra. „Kylfingar verða alltaf betri og betri og þá er hætta á að vell- irnir verði of litlir fyrir þessa bestu.“ Þórdís segist hafa mikið keppnis- skap og það komi sér vel í golfinu. Félagsskapurinn og útiveran hafi líka mikið að segja. Hún byrjaði sem stelpa að æfa 800 m hlaup og lengri vegalengdir en sér ekki eftir því að hafa hætt í frjálsum um fermingu og einbeitt sér að golfinu eftir það. „Það besta við golfið er að þetta er eina sportið sem hægt er að stunda frá vöggu til grafar. Það er ekkert aldursbil.“ Ljósmynd/Sigurður Elvar/seth@golf.is Afrekskona Þórdís Geirsdóttir í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði lætur ekki deigan síga í golfinu. Stendur í strákunum  Þórdís Geirsdóttir í kvennaliði Keilis í efstu deild í golfi í 35 ár og í landsliði í 37 ár  Í golfi frá vöggu til grafar FLOTTAR UMGJARÐIR KOMNAR Í HÚS VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi | Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9:30–18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.