Morgunblaðið - 21.08.2019, Page 2

Morgunblaðið - 21.08.2019, Page 2
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjókví Gatið á netapokanum hjá Arnarlaxi var 7x12 cm að stærð. Ekki eru taldar líkur á að margir laxar hafi sloppið út um gat sem kom á nótapoka einnar sjókvíar Arnarlax við Laugardal í Tálkna- firði. Gatið var lítið og enginn fisk- ur veiddist við kvína eftir að skemmdin uppgötvaðist. Starfs- maður Fiskistofu segir þó ekki hægt að útiloka að einhver lax hafi sloppið. Fiskistofa sinnir málefnum sem varða slysasleppingar á eldisfiski. Ef óhöpp verða í fiskeldi og fiskur sleppur ber rekstarleyfishöfum að tilkynna það tafarlaust. Arnarlax tilkynnti þegar gat á kvínni kom í ljós þótt engin merki sæust um að fiskur hefði sloppið. Guðni Magnús Eiríksson, sviðs- stjóri lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu, segir að net hafi verið við kvína í tvo daga um helgina án þess að nokkur fiskur hafi komið í þau. Tilgangurinn var að reyna að ná þeim fiski sem hugsanlega hefði sloppið og draga úr hættu á að vist- fræðilegt tjón yrði. Ekki hafi verið talin ástæða til að reyna frekari veiðar, þar sem reynslan frá Noregi sýndi að fiskurinn leitaði í burtu frá kvíunum og slíkar aðgerðir gögn- uðust aðeins fyrst eftir óhapp. 300 gramma seiði Meðalþyngd fiska í kvínni er inn- an við 300 grömm. Ekki eru líkur á að lax af þeirri stærð leiti strax upp í laxveiðiár en hann gæti gert það á næsta ári. helgi@mbl.is Ekki taldar líkur á að margir laxar hafi sloppið í Tálknafjörð  Enginn stroku- lax við sjókvína 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Óvenjulega lítið vatn er í Öxarár- fossi á Þingvöllum þessa dagana og segja má að fossinn, sem er ein af táknmyndum staðarins og jafnvel Íslands alls, er aðeins svipur hjá sjón. Að jafnaði er fossinn um fimm metra breiður þar sem hann fellur niður af brún Almannagjár. Nú rennur aðeins mjó buna fram af berginu, þaðan í Drekkingarhyl og um Leirurnar út í Þingvallavatn. Öxará á upptök sín á Leggjar- brjóti, milli Botnsúlna og Búrfells, og rennur þaðan fram til Þingvalla. Á þeirri leið falla ýmsir lækir og sprænur í ána, en eftir langvarandi þurrka í sumar eru þær margar að engu orðnar. „Ég hef unnið hér á Þingvöllum í mörg ár og minnist þess ekki að hafa áður séð ána og fossinn jafn vatnslítil og nú. Oft hafa komið hér þurrviðratímar, en þetta held ég að slái öll met. Og við þessu er ekkert að segja eða gera nema vonast eftir rigningu, sem veður- fræðingar spá að komi eftir helgina,“ segir Einar Á.E. Sæmundsen þjóð- garðsvörður í samtali við Morgun- blaðið. Sandkluftavatn er horfið Fyrir norðan og ofan Þingvelli, við Uxahryggjaleið, er Sandkluftavatn, sem á veturna og í vorleysingum getur orðið allt að 100 ha. að flatar- máli. Nú ber svo við að vatnið er horfið og í norðlægum áttum, eins og ríkt hafa að undanförnu, rjúka laus leirkennd jarðefni úr þurrum vatns- botnum og berst mökkurinn þá til suðurs og austurs svo jafnvel tekur fyrir fjallasýn á Þingvallasvæðinu. Vatnslítill Öxarárfoss aðeins svipur hjá sjón  Buna fram af bjargbrúninni  Áhrif langvarandi þurrka Morgunblaðið/Sigurður Bogi Náttúra Margir voru á Þingvöllum í gærdag. Þegar að Öxarárfossi kom fengu ferðamenn talsvert aðra mynd af honum en oftast er birt. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sandkluftavatn Fínn og leirkenndur jarðvegur rýkur úr botni vatnsins, sem stundum er 100 ha. en er nú er horfið. Áreksturshætta varð skammt frá Langavatni, í nágrenni Reykjavíkur, 29. mars 2018 þegar flugmaður vélarinnar TF-IFB hóf flug í átt til lendingar á Reykjavíkurflugvelli áð- ur en hann fékk heimild til þess, að því er segir í skýrslu Rannsóknar- nefndar samgönguslysa. Er atvikið flokkað sem „alvarlegt flugatvik“. Í skýrslunni segir að flugvélin TF- TWO, sem hafði verið í snertilend- ingum á flugvellinum við Sandskeið, hafi verið á leiðinni til lendingar á Reykjavíkurflugvelli er atvikið átti sér stað. Við stjórnvölinn var einka- flugmaður sem var að kynna sér flugvélina, hún var annarar gerðar en sú flugvél sem hann hafði lært á í einkaflugnáminu. Með í för var flug- maður sem hafði reynslu af þessari tegund flugvélar. Fékk flugstjóri TF-TWO heimild til þess að nýta leið 3 í samskiptum við flugumferðarstjóra í flugturni á Reykjavíkurflugvelli. Ekki svarað í fyrstu vegna anna Um borð í hinni vélinni, TF-IFB, var flugkennari sem var að fljúga ásamt flugnema í fyrsta tíma í einka- flugnámi. Skömmu seinna hafði flug- maður TF-IFB kallað í flugturninn til þess að biðja um heimild til þess að koma inn til lendingar í Reykja- vík, fékk hann ekki svar í fyrstu vegna anna í flugturni. Hélt hann þó í átt að upphafi leiðar 3. Kallaði hann að nýju í flugturninn, sem síðan veitti honum heimild til lendingar um umrædda leið. Þá skárust leiðir loftfaranna tveggja á meðan flugumferðarstjóri var að veita TF-IFB flugumferðar- upplýsingar. Var minnsta lárétta fjarlægð flugvélanna um 35 metrar og minnsta lóðrétta fjarlægð 90 fet, að því er segir í skýrslunni. Rannsóknarnefnd samgönguslysa segir í lokaorðum sínum að nefndin telji „að flugmaður TF-IFB hafi ekki átt að halda áfram inn að upphafi leiðar 3 við Langavatn, eftir að hann náði ekki sambandi við flugturninn í fyrra skiptið, fyrr en að undangeng- inni heimild frá flugturni“. 35 metrar á milli flugvéla  Alvarlegt flugatvik nálægt Reykjavík Morgunblaðið/Árni Sæberg Reykjavík Litlu munaði að tvær vélar í aðflugi rækjust saman. Lögmenn tveggja kaupenda að íbúð- um sem Félag eldri borgara í Reykjavík eru að byggja við Ár- skóga í Mjódd áttu í gær í samninga- viðræðum við fulltrúa félagsins um lausn á deilum um afhendingu íbúð- anna. Kaupendurnir tveir fóru í mál við félagið til að knýja á um afhendingu og neituðu að greiða viðbótar- greiðslu sem FEB krefst. Fyrirtaka er í málinu í héraðsdómi kl. 9 í dag og þá er gert ráð fyrir að lögmaður FEB skili greinargerð vegna kröfu kaupendanna. Viðræður um lausn stóðu fram eftir kvöldi í gær og ekki var komin endanleg lausn í málið þegar Morgunblaðið frétti síðast. Búist var við að málið skýrðist við fyrirtöku málsins árdegis í dag. Viðræður um lausn Árskógamálsins  Mál skýrast við fyrirtöku í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Árskógar Deilt er um afhendingu íbúða í húsi Félags eldri borgara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.