Morgunblaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019
Áratugur er liðinn frá því að
spretthlauparinn Usain Bolt setti
heimsmet sín sem enn standa í
100 og 200 metra hlaupum.
Metin setti Bolt á HM í Berlín
sumarið 2009 en í gær var raun-
ar sléttur áratugur frá metinu í
200 metra hlaupi. Hafði hann
sett heimsmet á sama degi, 20.
ágúst, á Ólympíuleikunum árið
áður. Vanafastur maður Bolt. HM
fór fram á Ólympíuleikvanginum
í Berlín, á sama stað og annar
spretthlaupari, Jesse Owens,
stal senunni árið 1936.
Heimsmet Bolt í greinunum
eru stórbrotin og ekki áhlaupa-
verk að bæta þau. Eða hvað?
Ekki var búist við öðru en að
heimsmet Michael Johnson í
200 metra hlaupi stæði lengi en
Bolt bætti það umtalsvert. Einn-
ig þótti ósennilegt að mann-
skepnan kæmist niður fyrir 9,70
sekúndur í 100 metrunum án
þess að fá bærilegan fellibyl í
bakið. Bolt fór hins vegar með
heimsmetið niður fyrir 9,60 sem
er svívirðileg bæting.
Ég man að ég var á vakt í Há-
degismóum þegar Bolt setti
metið í 100 metrunum. Við Guð-
mundur Hilmarsson fylgdumst
með útsendingunni. Ég trúði því
ekki að tímatakan hefði heppn-
ast þegar ég sá tíma Bolt.
Þremur árum síðar var ég svo
lánsamur að sjá Bolt hlaupa í úr-
slitum í báðum greinum á ÓL í
London. Var það upplifun en um
leið krefjandi að blikka ekki aug-
unum og eiga á hættu að missa
af manninum þjóta hjá. Ótrúlegt
eintak af Homo sapiens. Golli
myndaði þá kappann á enda-
sprettinum í 200 metrunum og
birti hér í blaðinu. Myndin er afar
upplýsandi því hún sýnir þennan
195 cm mann í loftköstum á
sprettinum.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
ÞJÓNUSTA FYRIR
ÁSKRIFENDUR
HLJÓÐMOGGI FYRIR
FÓLK Á FERÐ
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Hinn 19 ára gamli Kolbeinn Birgir
Finnsson skrifaði undir þriggja ára
samning við þýska knattspyrnu-
félagið Borussia Dortmund á dög-
unum. Kolbeinn kemur til félagsins
frá enska B-deildarliðinu Brentford
þar sem hann hefur spilað frá 2018
en Dortmund er eitt sögufrægasta
lið Þýskalands. Átta sinnum hefur
liðið orðið Þýskalandsmeistari, síð-
ast árið 2012, og þá hefur félagið
fjórum sinnum orðið þýskur bikar-
meistari. Þá varð liðið Evrópu-
meistari 1997 en liðið lék til úrslita
í Meistaradeildinni vorið 2013 þar
sem Dortmund tapaði 2:1 fyrir
Bayern München í úrslitaleik á
Wembley. Kolbeinn er þriðji Ís-
lendingurinn sem semur við félagið
en Atli Eðvaldsson lék með liðinu á
árunum 1980 til ársins 1981 og þá
lék Magnús Bergs með því á ár-
unum 1980 til 1982.
„Ég er mjög sáttur með þessi fé-
lagaskipti. Ég heyrði fyrst af
áhuga Dortmund fyrir nokkrum
vikum en ef ég á að vera alveg
hreinskilinn átti ég ekki von á að
þetta myndi ganga svona langt. Ég
var með samning við Brentford og
mér leið vel þar en svo kom form-
legt tilboð frá Dortmund í síðustu
viku og þá þurfti ég að ákveða mig.
Þetta var ekkert sérstaklega erfið
ákvörðun og ég þurfti ekki að
hugsa mig mikið um. Dortmund er
risastórt félag með mikla sögu og
þetta er fyrst og fremst frábært
tækifæri fyrir mig sem knatt-
spyrnumann til þess að halda
áfram að þróa minn leik og bæta
mig.“
Alvörukeppni í stórri deild
Kolbeinn lék með varaliði Brent-
ford á síðustu leiktíð og mun spila
með U23 ára liði Dortmund í þýsku
D-deildinni á komandi leiktíð.
Hann er spenntur fyrir nýrri
áskorun og telur að þýski boltinn
muni henta sér vel.
„Það er spilaður ákveðinn fót-
bolti í Brentford en þetta er aðeins
öðruvísi í Þýskalandi. Dortmund er
stærri klúbbur en Brentford fyrir
það fyrsta og ég held að fótboltinn
sem er spilaður í Þýskalandi muni
henta mér mjög vel. Þeir fíla leik-
menn sem berjast mikið og gefa sig
alla í verkefnið og svo skemmir það
auðvitað ekki fyrir að geta eitthvað
í fótbolta líka. Mike Tullberg, þjálf-
ari U23 ára liðs Dortmund, hafði
samband við mig og seldi mér það í
raun bara á nokkrum mínútum að
skipta yfir til félagsins. Ég vissi
það fyrir fram að aðstæðurnar hjá
klúbbnum væru fyrsta flokks og
það skemmdi auðvitað ekki fyrir.
Það eru fjórir dagar síðan ég kom
til Þýskalands og þetta lítur mjög
vel út. Það eru aðeins meiri gæði
hérna og leikmennirnir eru betri,
heilt yfir, en hjá Brentford. Fjórða
deildin í Þýskalandi er frekar stór
deild og þetta er alvörudeildar-
keppni ef svo má segja. Það er fullt
af fólki sem mætir á völlinn hérna
úti þannig að ég er mjög spenntur
að byrja spila.“
Batteríin hlaðin á Íslandi
Kolbeinn sneri aftur til uppeldis-
félags síns Fylkis fyrr í sumar þeg-
ar hann kom á láni frá Brentford.
Hann lék 13 leiki með Fylkis-
mönnum í úrvalsdeildinni, Pepsi
Max-deildinni, þar sem hann skor-
aði tvö mörk. Hann er ánægður
með þá ákvörðun að hafa komið til
Íslands í sumar og þá ætlar hann
sér stóra hluti í framtíðinni, bæði í
Þýskalandi og með íslenska lands-
liðinu.
„Ég er mjög sáttur við þá
ákvörðun að koma heim og taka
slaginn með Fylki í sumar. Ég
hafði gott af þessu og eftir á að
hyggja var þetta líka jákvætt þar
sem ég mæti til leiks í flottu formi
eftir góða leiki með Fylki í staðinn
fyrir að vera kannski aðeins þyngri
á mér eftir undirbúningstímabil
með Brentford. Andlega var þetta
líka mikilvægt fyrir mig því það er
alltaf gott að koma heim og á Ís-
landi fæ ég tækifæri til þess að
hlaða aðeins batteríin. Núna er ég í
raun bara ennþá að átta mig á
þessu og hversu stórt þetta er í
raun og veru að hafa skrifað undir
hjá Dortmund. Þetta er fyrst og
fremst frábært tækifæri fyrir mig
og nú er það undir sjálfum mér
komið að nýta það sem best. Ég
geri mér grein fyrir því að ég er
kominn í mjög stóran klúbb og það
er ekkert hlaupið að því að fá tæki-
færi hérna. Að sama skapi vil ég
auðvitað spila leiki fyrir aðallið
Dortmund einn daginn og svo vil
ég festa mig í sessi í íslenska A-
landsliðinu í framtíðinni.“
Pabbinn stoltur af stráknum
Finnur Kolbeinsson, fyrirliði
Fylkis til margra ára, er faðir Kol-
beins en hann er nú staddur með
Kolbeini úti í Þýskalandi. Knatt-
spyrnumaðurinn ungi viðurkennir
að það hafi verið gott að hafa föður
sinn sér við hlið þegar mest lá við í
félagaskiptunum til Þýskalands.
„Samband mitt og pabba hefur
alla tíð verið mjög gott og hann
hefur hjálpað mér mikið á mínum
ferli. Við erum saman í þessu og
hann er stoltur af þessu skrefi, sem
kristallast kannski best í því að
brosið hefur ekki farið af honum
undanfarna daga,“ sagði Kolbeinn
Birgir í samtali við Morgunblaðið.
Nítján ára á hraðri uppleið
Þriðji Íslendingurinn í herbúðum Dortmund Þriggja ára samningur við eitt
sigursælasta lið Þýskalands Mætir í frábæru leikformi eftir dvöl í Árbænum
Ljósmynd/Dortmund
Efnilegur Kolbeinn Birgir Finnsson ásamt Mike Tullberg, þjálfara U23 ára liðs Dortmund, á æfingasvæði félagsins.
Elfar Freyr Helgason, leikmaður
Breiðabliks í knattspyrnu, var í gær
úrskurðaður í þriggja leikja bann í
bikarkeppni KSÍ af aga- og úr-
skurðarnefnd sambandsins. Elfar
Freyr fékk beint rautt spjald fyrir
brot í undanúrslitaleik gegn Víkingi
R. í síðustu viku, en í kjölfarið tók
Elfar spjaldið af Þorvaldi Árnasyni
dómara og kastaði því í jörðina. Fékk
hann því lengra bann fyrir vikið.
Leikbönn í bikarnum eru aðskilin
deildarkeppnum og því getur Elfar
ekki tekið út bannið fyrr en næsta
sumar. Hann getur í fyrsta lagi kom-
ið inn í undanúrslitin á næsta ári, nái
Blikar að vinna í þremur umferðum
þar á undan, en ef allt fer á versta
veg gæti Elfar ekki spilað bikarleik
fyrr en árið 2023 ef lið hans fellur úr
leik í fyrstu um-
ferð næstu þrjú
árin.
Þá fékk bik-
armeistarinn
Grace Rapp úr
kvennaliði Selfoss
eins leiks bann í
bikarnum.
Þeir Morten
Beck Guldsmed
(FH), Hallur
Flosason og Hlynur Sævar Jónsson
(ÍA), Kennie Chopart (KR), Bjarni
Ólafur Eiríksson (Val) og Guð-
mundur Andri Tryggvason (Víkingi
R.) fengu svo eins leiks bann í efstu
deild karla og Caroline van Slambro-
uck (ÍBV) eins leiks bann í efstu deild
kvenna.
Blikar þurfa í undanúrslit ef
Elfar á að geta spilað 2020
Elfar Freyr
Helgason