Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 / l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6
The Reader Wing Chair kr. 199.800 / My Spot Borð kr. 36.200 / A Conversation Piece Lounge Chair kr. 159.800
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Ég er búinn að stunda þetta lengi,
að semja lög og texta, og það er
gamall draumur að gera eitthvað
fyrir tónlistina mína, koma henni
út,“ segir Þorgrímur Pétursson.
Hann gaf á dögunum út fyrstu plötu
sína, Álög. Hún hefur að geyma tón-
list af ýmsu tagi, allt frá lögum í
þjóðlagastíl yfir í popp.
Þorgrímur lærði sem barn og
unglingur á klassískan gítar og hef-
ur tekið þátt í kórstarfi undanfarin
ár. „Það var kominn tími til og loks-
ins dreif ég mig í þetta. Ég vann
þetta á löngum tíma, var í stúdíói af
og til á annað ár,“ segir hann.
Þorgrímur semur sjálfur öll lög á
plötunni og alla texta nema tvo sem
eru eftir Böðvar Bjarka Pétursson.
Þorgrímur nefnir einnig að Jóhann
Ásmundsson hafi hjálpað mikið til
og spili á ýmis hljóðfæri á plötunni. Í
einu laginu fékk hann svo kórinn
sinn, Kór Laugarneskirkju, til þess
að syngja með sér bakraddir. Ýmsir
fleiri komu að gerð plötunnar.
Eftir að hafa samið lög og texta í
mörg ár reyndist úr nógu að velja
þegar setja átti saman plötu. „Ég
hef sjálfur alltaf haft gaman af text-
um sem hafa sögur að segja þannig
að ég ákvað að velja svoleiðis lög.
Þau voru svolítið valin út frá text-
anum.“ Hann skýrir þennan áhuga
sinn á textum sem segja sögur. „Það
er tilfinningin sem fylgir sögunum,
þetta verður meira en bara melódía.
Í írskum og skoskum ballöðum er til
dæmis oft einhver saga og það höfð-
ar til mín og heillar mig.“ Sumar
sögurnar sem sagðar eru á plötunni
eru raunsæislegar en aðrar æv-
intýralegar.
Hafði gaman af sköpuninni
Þorgrímur segist yfirleitt semja
lag fyrst og bæta síðan textanum við
eftir á. „Mér finnst einhver ákveðin
tilfinning fylgja laginu. En svo byrj-
ar maður nú oft að skrifa eitthvað og
hugmyndirnar breytast á meðan
maður skrifar. Sögurnar þróast.
Ætli það sé ekki svipað og þegar rit-
höfundar skrifar sínar sögur.“
Þorgrímur segist ekki meðvitað
vera undir áhrifum frá öðrum
tónlistarmönnum eða fylgja ákveð-
inni stefnu. „Það er bara afrakstur
minnar kynslóðar eða tónlistin sem
maður hefur hlustað á í gegnum tíð-
ina. Þegar ég sem lög reyni ég að
láta þau bara koma án þess að
ákveða nokkuð fyrirfram. Alla vega
þau sem fóru á þessa plötu,“ segir
hann.
„Það er ekkert ólíklegt að ég geri
eitthvað meira af þessu. Ég hafði
mjög gaman af þessari sköpun og
þetta var gefandi þótt þetta sé auð-
vitað töluverð vinna þegar maður er
að gera allt sjálfur, öll þessi prakt-
ísku atriði.“
Heillast af tónlist
sem segir sögur
Þorgrímur Pétursson gefur út fyrstu hljómplötu sína
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sköpun „Ég hafði mjög gaman af þessari sköpun og þetta var gefandi,“ segir Þorgrímur Pétursson.
Kvikmyndaframleiðslufyrirtæki
leikarans Roberts De Niros, Canal
Productions, hefur lagt fram
óvenjulega kæru á hendur fyrrver-
andi starfsmanni sínum, Chase
Robinson. Hún er sökuð um fjár-
drátt og að hafa horft á sjónvarps-
efni á Netflix klukkutímum saman
á vinnutíma. Fyrirtæki De Niros
hefur krafið Robinson um sex millj-
ónir Bandaríkjadala, 750 milljónir
íslenskra króna. Robinson var hátt-
sett hjá fyrirtækinu og gegndi síð-
ast stöðu aðstoðarforstjóra fram-
leiðslu og fjármála. Hún hætti
störfum í apríl síðastliðnum.
Að sögn The Guardian er Robin-
son sökuð um að hafa nýtt fjármagn
fyrirtækisins til þess að greiða rán-
dýra reikninga á veitingahúsum og
hótelum. Hún á einnig að hafa nýtt
sér vildarpunkta De Niros sjálfs hjá
flugfélögum til þess að fjármagna
eigin ferðalög. Hún er auk þess sök-
uð um að hafa notað greiðslukort
fyrirtækisins til þess að greiða fyrir
hádegis- og kvöldverði frá afar
fínni sendingaþjónustu, Caviar San
Francisco, og veitingastaðnum
Paola’s. Á tveggja ára tímabili á
Robinson að hafa greitt með fé
fyrirtækisins meira en 12 þúsund
dali hjá Paola’s, hátt í níu þúsund
dali í lúxusmatvörubúðum og 32
þúsund dali fyrir leigubíla.
Það undarlegasta við þessa kæru
er þó líklega sú ásökun að Robinson
hafi stundað gríðarlega mikið sjón-
varpsgláp á vinnutíma. Hún er
meðal annars sögð hafa horft á 55
þætti úr vinsælu þáttaröðinni
Friends á fjórum dögum. Á öðru
fjögurra daga tímabili á hún að
hafa horft á tuttugu þætti úr röð-
inni Arrested Development og tíu
úr Schitt’s Creek. Í kærunni kemur
fram að sjónvarpsáhorf Robinson
hafi eingöngu verið henni sjálfri til
ánægju en ekki átt neitt skylt við
það sem heyrði undir starfslýsingu
hennar.
Ákærð fyrir fjárdrátt og sjónvarpsgláp
Kæra Fyrirtæki Roberts De Niros
kærir fyrrverandi starfsmann.
Hljómsveitin White Lies kemur til Ís-
lands í tilefni af því að tíu ár eru liðin
síðan sveitin sendi frá sér fyrstu
plötu sína sem nefnist To Lose My
Life. Bretarnir halda upp á frum-
burðinn í Eldborg Hörpu mánudag-
inn 9. desember og munu þeir flytja
plötuna í heild sinni á tónleikunum.
Sveitin sem áður nefndist Fear of
Flying samanstendur af forsöngv-
aranum og gítarleikaranum Harry
McVeigh, bakraddasöngvaranum og
bassaleikaranum Charles Cave og
trommuleikaranum Jack Lawr-
ence-Brown.
„Síðast (og í eina skiptið) kom
hljómsveitin til Íslands á Airwaves-
hátíðina árið 2008 en þá var stutt í að
To Lose My Life kæmi út. Platan fór
beint í efsta sætið á Englandi og lög
eins og „Farewell to the Fairground“
og „To Lose My Life“ urðu gríðar-
vinsæl um allan heim. Síðan þá hefur
White Lies gefið út fleiri stórgóðar
plötur eins og til dæmis Ritual og á
þessu ári gáfu þeir út fimmtu plötu
sína, Five, sem hefur fengið af-
bragðsgóða dóma og viðtökur.
White Lies hefur alltaf þótt gríðar-
flott á tónleikum og því má búast við
mjög svo skemmtilegri kvöldstund í
desember í Eldborg,“ segir í tilkynn-
ingu frá skipuleggjendum. Þar kem-
ur einnig fram að miðasala hefjist
mánudaginn 26. ágúst á harpa.is,
tix.is og í síma 528-5050.
Sveitin White Lies á leið til Íslands
Hljómsveitin White Lies.
Craig Zobel, leikstjóri hins um-
deilda stjórnmálatryllis The Hunt,
segir söguþráð kvikmyndarinnar
og boðskap hafa verið misskilinn.
Myndin gerist í hliðarveruleika
Bandaríkjanna þar sem meðlimir
frjálslyndrar yfirstéttar veiða fólk
úr verkamannastétt sér til skemmt-
unar. Með aðalhlutverk fara meðal
annars Betty Gilpin og Hilary
Swank. Nýlega vakti athygli sú
ákvörðun framleiðenda að fresta
útgáfu myndarinnar í kjölfar skot-
árásanna í El Paso og Dayton en
hana átti að gefa út í september.
Ýmsir hafa gagnrýnt kvikmyndina,
meðal annars Donald Trump
Bandaríkjaforseti.
Zobel sagði í
samtali við Var-
iety að kvik-
myndin tæki ekki
pólitíska afstöðu.
Hann segir
markmiðið hafa
verið að pota
jafnt í báðar hlið-
ar málsins og
framleiðend-
urnir hafi viljað „skemmta og sam-
eina, ekki reita til reiði og sundra“.
Hann segir það vera undir áhorf-
endum komið hvað þeir lesi úr
myndinni og að hann hefði ekki
framleitt myndina ef hann tryði því
að hún gæti hvatt til ofbeldis.
Segir boðskap The Hunt misskilinn
Betty Gilpin
Myndlistarkonan Jelena Antic er
fulltrúi Íslands á sýningunni The
Other Art Fair í Los Angeles dag-
ana 5.-8. september. Jelena fæddist
í Serbíu en hefur búið og starfað
hér á landi í tæp fjögur ár. Hún er
með meistaragráðu í myndlist og er
einn listamannanna sem reka
Gallery Korka í Reykjavík. Mynd-
heimurinn sem Jelena skapar er
abstrakt og undir áhrifum af sál-
rænum pælingum, heimspeki og
listheimspeki.
Í tilkynningu kemur fram að
Saatchi Art sjái um allt skipulag
The Other Art Fair, en um sé að
ræða umfangsmestu kaupstefnu
veraldar, sem haldin er í Brooklyn,
Chicago, Los Angeles og Dallas í
Bandaríkjunum, London og ástr-
ölsku borgunum Sydney og Mel-
bourne.
Jelena Antic sýnir á The Other Art Fair
Listakonan Jelena Antic.