Morgunblaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Einbúavirkjun í Skjálfandafljóti, Þingeyjarsveit
Einbúavirkjun ehf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar
frummatsskýrslu um Einbúavirkjun í Skjálfandafljóti.
Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 21. ágúst—2. október á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu
Þingeyjarsveitar á Laugum, á Þjóðarbókhlöðunni og hjá
Skipulagsstofnun.
Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar
www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 2. október 2019 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105
Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Auglýsing um skipulagsmál í
Rangárþingi ytra
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing að eftirfarandi deiliskipulagi.
Leynir 2 og 3, Rangárþingi ytra
Landeigandi hefur fengið heimild sveitarstjórnar Rangárþings ytra til að leggja fram deiliskipulag af spildu
sinni. Samkvæmt fyrirliggjandi áformum verður jörðin nýtt undir ferðaþjónustu. Á svæðinu er tjaldsvæði sem
fyrirhugað er að efla m.a. með því að bjóða upp á heilsárstjöld/hjólhýsi til útleigu, auk mögulegrar stækkunar
tjaldsvæðis. Einnig er ráðgert að vera með gistingu fyrir allt að 240 gesti í gestahúsum og/eða gistiheimili. Auk
þess verða byggð allt að 4 íbúðarhús, m.a. með möguleika til útleigu.
Lýsingin er til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu
Rangárþings ytra, www.ry.is. Skila má ábendingum við efni lýsingar til skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra
í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Kynningu lýsingar lýkur föstudaginn 6. september nk. klukkan 15.00
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra
í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson,
skipulagsfulltrúi.
Rangárþing ytra
Uppboð
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri, s: 458 2600
Eftirtalin ökutæki verða boðin upp á lóð
Hafnarsamlags Norðurlands, við Fiskitanga á
Akureyri, fimmtudaginn 29. ágúst 2019, kl. 14:00
eða á öðrum stað eftir ákvörðun uppboðshaldara,
sem verður kynnt á staðnum:
1 Bifreiðar og önnur ökutæki:
Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða
ávísanir ekki teknar gildar nema með samþykki
gjaldkera. Ekki er tekið við greiðslukortum.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis á skrifstofu
embættisins og þar verða einnig veittar frekari
upplýsingar ef óskað er.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
20. ágúst 2019
Halla Einarsdóttir, ftr.
UPPBOÐ
LPF88
NI130
EZ233
TP468
VY280
BTD59
MUB71
PT657
SXT19
PFB31
RFY84
SKX21
URG02
OP558
VVY06
KXR31
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15.
Bridge kl. 12. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-15. Opið fyrir innipútt
og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunleikfimi með
Rás 1 kl. 9.45. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Spiladagur, frjáls spilamenn-
ska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Þátttökulistar liggja
frammi. Hádegismatur kl. 11.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir
óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 félagsvist.
Gullsmári Myndlist kl .9-11.30, postulínsmálun kl. 13, kvennabrids
kl.13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Handavinnustofan er opin frá kl. 13, liðleiki
á stólum með Önnu kl. 13.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Velkomin.
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum, hraðganga, sniglaganga og kaffi-
spjall á eftir. Hádegisverður kl. 11.30, Borgardætur með starfsdag, því
Korpúlfar með kaffið e.h. Takk fyrir tillitsemi við aðstæður í hádeginu.
Félagsvist kl. 13 í Borgum og hannyrðir í listasmiðju.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, viðtals-
tími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 13.30,
bónusbíllinn kl. 14.40. Uppl. í s. 411 2760.
Seltjarnarnes Botsía, Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl.
10.30. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Vöfflukaffi og kynningar-
fundur vegna félagsstarfsins verður fimmtudaginn 29. ágúst í Félags-
heimilinu kl. 15. Ath. skráning stendur yfir á óperuna Brúðkaup
Fígarós sem fram fer föstudaginn 20. september. Einnig er hafin
skráning á föstu námskeiðin í vetur. Allar uppl. hjá Kristínu í
s. 893 9800.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt-
ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-Hrólfar ganga frá Nauthóli
Öskjuhlíð kl. 10. Kaffistaður eftir göngu er Bakaríið Austurveri.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Atvinnublað
Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, á mbl.is og finna.is
Valgarð Briem
Við fyrrverandi starfsmenn,
sem gjarnan kölluðum hann
„Maó formann“, þökkum honum
af heilum hug fyrir samstarfið og
ræktarsemi hans og Bentu við
hópinn alla tíð síðan.
Blessuð sé minning Valgarðs
Briem.
Kári Jónasson,
Marinó Þorsteinsson.
„Frændi minn,“ svaraði Val-
garð ákveðinn, „þarf ekki að fara
á vergang með sín hross.“
Móðir mín, Kristín Claessen,
hafði eins og svo oft leitað ráða
hjá Valgarð frænda sínum. Að
þessu sinni var úrlausnarefnið að
finna húsaskjól fyrir klárhest,
sem sonur hennar, þá táningur,
hafði hug á að eignast. Svarið
lýsti Valgarð vel. Hann var
frændrækinn svo af bar og ég
naut góðs af. Næstu mánuðina
hýsti hann ekki bara hann Glað
minn, heldur naut ég einnig fé-
lagsskapar hans, Bentu og sona
þeirra við útreiðar og lengri
hestaferðir.
Valgarð og mamma voru hálf-
systkinabörn, en að auki þre-
menningar á tvo vegu. Þetta var
því geirnegld ættartenging, enda
fjölskyldubönd flókin í Skagafirð-
inum fyrir ríflega öld. Valgarð
ræktaði þessi ættartengsl af
þrótti og nákvæmni og hélt mikil-
vægum fróðleik til haga. Hann
hafði forystu um að fá Guðna Th.
Jóhannesson til að rita ævisögu
annars frænda, Gunnars Thor-
oddsen. Benta og hann stofnuðu
að auki minningarsjóð, sem
kenndur er við Gunnar og hefur
haldið nafni hans á lofti. Þá átti
Valgarð hugmyndina að því að fá
Guðna til að skrá ævisögu afa
míns, Eggerts Claessen, þótt
Guðmundur Magnússon hafi tek-
ið við því verki og skrifað bókina,
þegar sá fyrrnefndi var kosinn til
annarra starfa.
Móðir mín og Laura systir
hennar eru nú einar eftir af sinni
kynslóð afkomenda afa síns og
Valgarðs. Vitundin um ættina og
sögu hennar helst þó lifandi, ekki
síst í þeim heimildum sem Val-
garð átti frumkvæði að.
Minningin um góðan, hjálp-
saman og tryggan frænda lifir
einnig skýrt í huga okkar sem
nutum. Ég votta Bentu og fjöl-
skyldunni allri mína innilegustu
samúð.
Eggert Benedikt
Guðmundsson.
Það er svo ótal margt sem
kemur upp í hugann þegar minn-
ast skal Valgarðs Briem vinar
míns.
Hann var sannarlega fyrir-
mynd í háttum, hugsun og gjörð-
um og höfðinglegt var yfir-
bragðið. Yfirvegun, rósemi
hugans og fordómaleysi voru ein-
kenni hans. Sagnamaður mikill
og hárfínn húmorinn og svo
hláturinn eftir góða sögu ógleym-
anlegur. Blæbrigði raddarinnar
og framsögnin eins og hjá marg-
reyndum leikara. Lífsglaður var
hann og félagslyndur enda vin-
margur.
Eins og í búddafræðum vann
hann án afláts án þess að strita
og afköstin eftir því – með mikl-
um ólíkindum.
Kynni mín af Valgarði og
Bentu spanna tæp 60 ár. Sem
stráklingur að fylgjast með þeim
flytja inn í nýuppgert húsið nr. 2
við Sörlaskjól árið 1960. Glæsileg
hjón með tvo unga drengi, Óla
Jón og Garðar, og Gunnlaug rétt
ófæddan ef ég man rétt.
Síðan urðum við nágrannar til
áratuga þegar við Sigrún fluttum
á æskuheimili mitt við Faxaskjól.
Samspil þeirra Valgarðs og
Bentu í lífinu minnti á einhvern
hátt á ósigrandi tvenndarpar í
tennis. Hrósaði Valgarð ein-
hverju sinni fyrir garðinn þeirra.
„Blessaður Bjarni minn, þetta er
allt hún Benta mín eða sérðu mig
hér oft úti í garði?“
Ég kynntist Valgarði síðar enn
frekar þegar leiðir lágu saman á
vettvangi starfa okkar. Ég sem
starfsmaður vátryggingafélaga
sem tryggðu skip og vörur í flutn-
ingi og hann sem einn helsti og
reyndasti sjóréttarfræðingur
landsins. Félögin sem ég starfaði
fyrir notfærðu sér þjónustu hans
og þekkingu. Naut þeirrar
ánægju að funda með honum
reglulega fyrir hönd félaganna
um árabil.
Þegar gengið var upp stigann
á aðra hæð á Sóleyjargötu 17
marraði í honum þannig að ekki
fór á milli mála þegar gest bar að
garði.
Í miðjum stiganum gall við
rödd að ofan: „Velkominn vinur-
inn minn. Komdu við í eldhúsinu,
þar er nýlagað kaffi á könnunni.“
Þannig hófust oft fundir okkar
Valgarðs. Tímanum var ekki sóað
á þessum bæ frekar en öðrum
verðmætum. Nýtni og ráðdeild
honum í blóð borin.
Skrifstofa Valgarðs var sólrík
með gömlum virðulegum hús-
gögnum og glugga með útsýni yf-
ir Hljómskálagarðinn. Fyrrver-
andi æskuheimili hafði hann
umbreytt í notalegar skrifstofur
þar sem hann rak lögfræðistofu
ásamt Garðari syni sínum. Sjálf-
blekungur var notaður til skrifta
og bréfsefnin; upptekin umslög
og bakhliðar bréfa sem ekki
þurfti að geyma. Á snifsin ritaði
hann athugasemdir og uppköst
að bréfum með öruggri hendi
jöfnum höndum sem mál voru
reifuð. Aldrei sást nokkurt hik
þegar skrifað var. Eins og tölva
sem hafði verið mötuð á öllum
lagabókstafnum ásamt nýjustu
reglum og lögum í alþjóðlegum
sjórétti var gengið frá málum.
Skemmtisaga kom í fundarlok.
Hann kunni þær nokkrar. Stund-
um komu áður sagðar sögur og
var þá engu minna hlegið en fyrr.
Alltaf leystur út með konfekt-
mola í nesti.
Að leiðarlokum kveðjum við
Sigrún kæran vin með þakklæti
fyrir öll skemmtilegheitin og
vinarþelið.
Við hugsum til Bentu, Óla
Jóns, Garðars og Gunnlaugs og
fjölskyldna þeirra og sendum
þeim innilegar samúðarkveðjur.
Bjarni Grétar Bjarnason.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra horn-
inu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“ val-
inn úr felliglugganum. Einnig er
hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en
ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar