Morgunblaðið - 21.08.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019
70 ára Theodór er
Siglfirðingur en býr í
Kópavogi. Hann er
lærður bakari og fór í
konditornám í Noregi.
Hann var bakari á Ísa-
firði, Dalvík og Siglu-
firði og var driffjöður í
leiklistarstarfsemi á þessum stöðum.
Hann var síðan æskulýðs- og íþrótta-
fulltrúi á Siglufirði. Síðar fór Theodór í
leiklistarnám í Drama Studio í London og
var leikari hjá Leikfélagi Akureyrar og
Leikfélagi Reykjavíkur og hefur leikið í yf-
ir 20 kvikmyndum.
Maki: Guðrún Stefánsdóttir, f. 1949, fv.
miðasölustjóri í Borgarleikhúsinu.
Börn: Hrafnhildur, f. 1969, Ásta Júlía, f.
1972, Sara, f. 1974, og Vigdís, f. 1990.
Barnabörnin eru sjö og barna-
barnabörnin tvö.
Foreldrar: Júlíus Júlíusson, f. 1927, d.
2004, kennari og áhugaleikari, og Svava
Baldvinsdóttir, f. 1929, stundaði ýmis
störf, bús. á Siglufirði.
Theodór
Júlíusson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er hart sótt að starfsemi þinni
svo þú þarft að verja hana með kjafti og
klóm. Farðu frekar fram með lipurð og til-
litssemi og þú munt undrast hversu vel þér
verður ágengt.
20. apríl - 20. maí
Naut Stundum er sannleikurinn miklu til-
þrifaminni en þú áttir von á. Láttu ekki
draga þig út í eitthvað sem þú kærir þig
ekkert um.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu stoltur af starfi þínu þótt
einhverjum finnist ekki mikið til þess koma.
Annað mun einungis koma í bakið á þér síð-
ar. Allir bera ábyrgð á sínum eigin gjörðum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú getur séð sjálfa/n þig í öðrum.
Njóttu meðbyrsins meðan hann varir og
vertu viðbúinn mótbyrnum sem óhjá-
kvæmilega kemur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu það ekki hvarfla að þér að láta
aðra um að leysa þín mál. Smámunasemin
er alveg að fara með þig þessa dagana.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það mun margt breytast á heimili
þínu á næstunni. Hugmyndir þínar um
hvernig betrumbæta megi starfsumhverfið
eru fyrirtak.
23. sept. - 22. okt.
Vog Skipulagning er ekki val, hún er nauð-
syn. Gættu þess að fórna ekki góðri vináttu
fyrir eitthvað sem skiptir litlu sem engu
máli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú lætur einskis ófreistað í leit
að sannleikanum í dag, jafnvel þótt það
baki þér óvinsældir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú eru þau öfl uppi, að þú verð-
ur að gaumgæfa framtíð þína. Gömul við-
skiptatækifæri skila arði en ný tækifæri láta
á sér standa.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gætir laðað að þér einhvern í
dag sem er staðráðinn í að gera þig að betri
manni. Reyni einhver að ráðskast með þig
muntu taka það óstinnt upp.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er mikill kraftur í þér en það
skiptir öllu máli að beina honum í rétta átt
svo þú fáir því áorkað sem þú óskar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú ættu áætlanir þínar að ganga
upp, ef þú bara sýnir ögn af þolinmæði. Það
liggur í augum uppi að þú þarft að sleppa
tökunum á ákveðnum þáttum í lífi þínu.
vel gekk. Iðulega dreymdi mig
Halldóru tengdamömmu mína og
hún vísaði mér margoft á góðan
afla, blessunin.“
Theódór var síðan með ýmsa
báta, stóra og smáa, m.a. með
Kristján Guðmundsson frá Súg-
andafirði, sem hann sótti tveggja
ára gamlan til Harstad í Noregi
1970 og var með í nokkur ár. Þá
jöfnum höndum á Íslandsmiðum og
við Austur-Grænland. Þegar við
fórum í salttúrana til V-Grænlands
voru 48 manns í áhöfn og eitt vorið
komum við heim með 446 tonn af
fullstöðnum saltfiski eftir 46 daga
túr.
Mér leið alltaf vel til sjós, þetta
var oft erfitt og mikið stress, en
líka gefandi og skemmtilegt þegar
T
heódór Jónsson er
fæddur í Reykjavík 21.
ágúst 1929. Er hann
var átta ára gamall
fórst faðir hans í sjó-
slysi og fjölskyldan flutti að Auð-
kúlu við Arnarfjörð til móðurfor-
eldranna. Um 10 ára aldurinn fór
Theódór að vitja grásleppuneta og
sækja sjó með afa sínum. Sjórinn
átti hug hans lengst af starfs-
ævinni. Sem unglingur sótti Theó-
dor bæði þorsk, síld og smokkfisk í
gjöfulan Arnarfjörðinn og er minn-
isstætt þegar hann 16 ára gamall
haustið 1935 kom að landi með 2,6
tonn af þorski á lunningafullri
trillu afa síns, en um sumarið hafði
hann verið á síld á Eldborgu.
„Ég veit ekki hvað hefði orðið ef
pabbi hefði ekki dáið, þá breyttist
margt,“ segir Theódór. „Mamma
vildi ekki að ég færi á sjóinn, en
eftir að ég kom vestur var ég
ákveðinn í að verða skipstjóri og
verða eins og pabbi.“ Innan við tví-
tugt var hann m.a. á Gylfa frá Pat-
reksfirði og rifjar Theódór upp að
Jóhann skipstjóri hafi reynst
stráknum frá Auðkúlu vel til að
komast sem fyrst inn í Stýri-
mannaskólann. Þaðan lauk Theó-
dór tveggja ára námi vorið 1951.
Um miðja síðustu öld komu ný-
sköpunartogararnir hver af öðrum
til landsins og boðuðu byltingu í at-
vinnulífi landsmanna. Theódór réði
sig til Bæjarútgerðar Reykjavíkur
og varð stýrimaður á bv. Pétri
Halldórssyni RE 207 og tók síðan
við sem skipstjóri á Skúla Magnús-
syni RE 202. Þá var hann aðeins 28
ára gamall og gekk vel. Hann var
síðan skipstjóri á Þorsteini Ing-
ólfssyni RE 206 í 2-3 ár, en hætti
störfum hjá Bæjarútgerðinni upp
úr 1960 þegar ákveðið var að selja
Þorstein til Grikklands.
Leiðsögn í gegnum drauma
„Þessi togaraár eru eftirminni-
leg, það var oft mikill afli og
óhemju vinna. Um borð í togur-
unum voru yfirleitt hörkukallar og
það var lykillinn að árangri. Oft
vorum við stóran hluta ársins við
Vestur-Grænland, en annars
var hann um tíma stýrimaður á
flutningaskipunum Ísnesi og Akra-
nesi. Eftir að hann kom í land
starfaði hann meðal annars hjá Ál-
verinu í Straumsvík, Háskólabíói
og hjá ÁTVR.
Spurður um áhugamál segist
Theódór hafa gripið í ýmislegt eins
og golf og brids og vonandi verið
liðtækur. Hann hafi alltaf haft
gaman af tónlist, ekki síst djassi,
og Louis Armstrong og Benny
Goodmann hafa alltaf verið í miklu
uppáhaldi. Theódór rifjar upp að
hann hafi verið byrjaður að læra á
píanó átta ára gamall þegar fjöl-
skyldan flutti vestur í Arnarfjörð
og píanóið var selt. Þá hafi hann
talsvert stundað laxveiði á árum
áður, en segist efast um að hann
myndi sleppa nýveiddum laxi eins
og nú sé víða regla. Hann hefur í
áratugi fylgst með enska boltanum
þar sem Liverpool er efst á blaði
og segir að fyrsta ferðin á Anfield
fyrir tveimur árum með börnum og
barnabörnum hafi verið stórkost-
leg.
Theódór segist njóta þess á efri
árum að eiga góða og dugmikla
fjölskyldu, bæði sína afkomendur
og Sólveigar konu sinnar. Það
verði seint fullþakkað. Þau Sólveig
eru nýlega flutt til Reykjavíkur og
búa nú í Mörkinni við Suðurlands-
braut, en höfðu áður búið á
Tálknafirði og Selfossi.
Fjölskylda
Theodór var giftur Ernu Rafn
Jónsdóttur, f. 1929, d. 2010, þau
slitu samvistir 1995.
Börn Theódórs og Ernu eru: 1)
Margrét Theódórsdóttir, f. 28.3.
1954, skólastjóri Tjarnarskóla,
sambýlismaður: Ágúst Ingi Jóns-
son, blaðamaður. Synir hennar eru
Guðmundur Páll Friðbertsson og
Theódór Friðbertsson; 2) Halldór
Jón Theódórsson, f. 15.9. 1958, bif-
vélavirki, eiginkona: Ingibjörg
Leifsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Börn þeirra eru Erna Rún, Helgi
Rúnar og Haukur Örn; 3) Sigrún
Edda Theódórsdóttir, f. 13.6. 1968,
táknmálstúlkur og deildarstjóri á
leikskóla, sambýlismaður: Karl.
Theódór Jónsson, skipstjóri frá Auðkúlu – 90 ára
Aldrei einn á ferð Theódór Jónsson með börnum sínum Sigrúnu Eddu,
Halldóri Jóni og Margréti í pílagrímsferð til Liverpool fyrir tveimur árum.
„Leið alltaf vel til sjós“
Á góðri stundu Sólveig Baldurs-
dóttir og Theódór Jónsson.
Góður afli Skipstjórinn í aðgerð á
Vestfjarðamiðum um 1960.
50 ára Þórhallur
er fæddur og upp-
alinn á Akranesi en
býr á Enghavevej í
Kaupmannahöfn.
Hann er rekstrar-
stjóri hjá hljóm-
plötuútgáfunni
Crunchy Frog sem rekur einnig
barina Whammy Bar á Amager,
Mudhoney á Norðurbrú og Crane
Brothers í Hillerød. Þórhallur er auk
þess rekstrarstjóri hjá tónlistar-
forlaginu Crunchy Tunes.
Maki: Arndís Inga Magnúsdóttir, f.
1971, BA í frönsku og starfsmaður
Icelandair í Kaupmannahöfn.
Börn: Inga Þórhallsdóttir, f. 2001,
og Daði Þórhallsson, f. 2003.
Foreldrar: Jón Rafns Runólfsson, f.
1945, fyrrverandi umsjónarmaður
Jónshúss í Kaupmannahöfn, og Inga
Harðardóttir, f. 1948, framhalds-
skólakennari. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Þórhallur Rafns
Jónsson
Til hamingju með daginn
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Hreint loft - betri heilsa
Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum.
Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglu-
gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og
fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
Verð kr
18.890
Verð kr
49.920
Verð kr.
35.850
Verð kr.
15.960
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón