Morgunblaðið - 21.08.2019, Page 29

Morgunblaðið - 21.08.2019, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 Glæsilegir skartgripir innblásnir af íslenskri sögu GULL SM IÐUR & SKARTGR I PAHÖNNUÐUR Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is Hjólandi vegfarandi á leið um innsetningu kínverska listamannsins Ai Weiwei í hafnarborginni Rio de Janeiro á suðausturströnd Brasilíu. Innsetningin nefnist „Forever Cycles“ sem þýða mætti sem Endalaus hringrás, en verkið samanstendur af yfir þúsund reiðhjólum úr ryðfríu stáli. Innsetningin er hluti af listsýningu Ai Weiwei sem opnuð verður í Rio de Janeiro í dag. AFP Yfir þúsund hjól í innsetningu Ai Weiwei Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason er tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Greint var frá því í gær- kvöldi á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Hauga- sundi. Þá er myndin einnig í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna, EFA, ásamt 45 öðrum og verða fimm myndir á endanum tilnefndar eftir kosningu meðlima Evrópsku kvikmyndaakademí- unnar sem eru 3.600 talsins. Fimm kvikmyndir eru tilnefndar til Kvikmynda- verðlauna Norðurlandaráðs en hinar fjórar eru Dronningen frá Danmörku eftir leikstjórann May el-Toukhy, Aurora frá Finnlandi eftir Miia Tervo, Blindsone frá Noregi eftir leikstjórann Tuva Nov- otny og Rekonstruktion Utøya frá Svíþjóð eftir Carl Javér. Markmið verðlauna Norðurlandaráðs, sem eru ein eftirsóttustu verðlaunin á Norðurlöndunum, er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál sem og að vekja at- hygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála, skv. tilkynningu. Verðlaunaféð nemur 350 þúsund dönskum krónum og skiptist jafnt milli handritshöfundar, leikstjóra og framleiðanda. Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson hlaut verðlaunin í fyrra en áður hafði hann hlotið þau fyrir Hross í oss. Tilkynnt verður um vnningshafa við há- tíðlega athöfn þriðjudaginn 29. október í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi. Tilnefnd til verðlauna Norðulandaráðs og í forvali EFA Tilnefnd Úr kvikmyndinni Hvítur, hvítur dagur. Stjórnendur Ríkislistasafnsins í Dresden upplýstu fyrr í sumar að til stæði að hreinsa málverkið „Ung stúlka les bréf við opinn glugga“ sem Johannes Vermeer málaði á ár- unum 1657-1659 og fjarlægja síðari tíma yfirmálun á hluta verksins. Í 275 ár hefur veggurinn að baki stúlkunni á málverkinu verið auður, en nýjar og ítarlegar rannsóknir sýna að Vermeer málaði stóra inn- rammaða mynd af ástarguðinum Amor sem hékk á bakveggnum. Í frétt danska dagblaðsins Politik- en kemur fram að í sex manna al- þjóðlegri ráðgjafarnefnd safnsins hafi til að byrja með ekki ríkt ein- hugur um þá ákvörðun að fjarlægja yfirmálunina. „Við ræddum hvort réttlætanlegt væri að fjarlægja fingrafar sögunnar af verkinu. Einn sérfræðinganna hafði efasemdir um hvort það væri siðferðislega rétt að fjarlægja yfirmálunina í ljósi þess að Amor hafði verið hulinn síðan á 18. öld. Það er svona sem við þekkjum verkið og því er yfirmálunin hluti af sögu málverksins,“ segir danski sér- fræðingurinn og prófessorinn Jørg- en Wadum í samtali við Politiken, en Wadum á sæti í alþjóðlegu ráð- gjafarnefndinni sem aðstoðaði stjórnendur safnsins í ákvörðun sinni. Wadum stýrir Miðstöð list- fræðilegra rannsókna og forvörslu (Cats) í Kaupmannahöfn. Hann hef- ur mikla reynslu af málverkum Ver- meer, en fyrir um aldarfjórðungi hafði hann yfirumsjón með forvörslu „Stúlku með perlueyrnalokk“ sem er frægasta málverk Vermeer. Að sögn Wadum skipti fyrrnefndur sérfræð- ingur um skoðun nokkrum mánuðum síðar og því var það samdóma álit nefndarinnar að réttlætanlegt væri að fjarlægja yfirmálunina. Þekktur fyrir tómu rýmin Í umfjöllun Politiken kemur fram að málverkið sem um ræðir hafi komist í vörslu Ríkislistasafnsins í Dresden árið 1742, en á þeim tíma var Vermeer nánast gleymdur í lista- sögunni. Í skjölum safnsins má sjá að á þeim tíma var málverkið eignað Rembrandt. Athygli vekur að á sama tíma og verkið komst í eigu safnsins var franski forvörðurinn Jean- Baptiste Slodtz, sem unnið hafði að forvörslu málverksins, ráðinn í stöðu yfirforvarðar safnsins. Ein kenn- ingin um sögu málverksins er að Slodtz hafi málað yfir bakvegginn til þess að verkið líktist meira öðrum verkum Rembrandt. „Slodtz gæti hafa málað yfir bak- vegginn vegna þess að hann langaði í starfið í Dresden. Hann gaf þeim málverkið og sagði það eftir Rem- brandt og fékk í framhaldinu starfið,“ segir Wadum. Það var ekki fyrr en á miðri 19. öld sem listfræð- ingar, undir stjórn Théophile Thoré-Bürger, komust að því að mál- verkið væri eftir Vermeer. Það var síðan ekki fyrr en 1979 sem það upp- götvaðist að málað hefði verið yfir hluta þess. Þegar sýna átti verkið í Bandaríkjunum var það myndað með röntgengeislum og þá sást ástarguðinn í fyrsta sinn. Á þeim tíma töldu forverðir að Vermeer hefði sjálfur málað yfir bakvegginn og því var ekki talin ástæða til að fjarlægja yfirmálunina. Nýjar rann- sóknir gerðar í Dresden og Kaup- mannahöfn hafa hins vegar leitt í ljós að málað var yfir bakvegginn löngu eftir að Vermeer lauk við uppruna- lega verkið. „Yfir ástarguðinum fannst fernisering frá tíma Vermeer. Ofan á ferniseringunni fannst þunnt lag af óhreinindum sem staðfestir að málverkið hefur hangið á vegg um nokkurn tíma og safnað ryki. Ofan á rykinu var önnur fernisering sem yfirmálunin var síðan máluð á,“ segir Wadum og bendir á að seinni fernis- eringin og yfirmálunum er talin vera frá 18. öld. Þar með hafi verið ljóst að Vermeer hafi ekki sjálfur málað yfir hluta verks síns til að einfalda mynd- bygginguna. „Í listasögunni hefur Vermeer ver- ið þekktur fyrir tómu rýmin sín, sem opin hafa verið til túlkunar,“ segir Wadum og tekur fram að viðbúið sé að breytingin á verkinu hugnist ekki öllum. Gangi allt að óskum lýkur for- vörslunni á næsta ári, en ætlunin er að sýna það á stórri sýningu í Japan. silja@mbl.is Amor lá í leyni  Unnið er að hreinsun málverks eftir Vermeer  Nýjar rannsóknir sýna að Vermeer huldi ekki sjálfur bakvegginn Ljósmyndir/Staatliche Kunstsammlung Dresden Falinn Vinstra megin er málverkið „Ung stúlka les bréf við opinn glugga“ sem Johannes Vermeer málaði 1657- 1659. Hægra megin sést sama verk eftir að forverðir hafa fjarlægt hluta málningar sem hylur ástarguðinn Amor.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.