Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 Aðalfundur Klakka ehf. 30. ágúst 2019 Aðalfundur Klakka ehf. verður haldinn föstudaginn 30. ágúst 2019 að Smáratorgi 3 (9. hæð), 201 Kópavogur á skrifstofu Deloitte ehf. og hefst fundurinn kl. 10:00. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2018. 2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2018 ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar ársins. 4. Kosning stjórnar. 5. Kosning endurskoðunarfélags. 6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 7. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu Klakka ehf. 8. Önnur mál. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Óskað er eftir að framboð til stjórnar félagsins berist skriflega til stjórnar að lágmarki fimm dögum fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á fundardegi. Fundurinn mun fara fram á ensku. Kópavogur, 23. ágúst 2019. Stjórn Klakka ehf. Klakki ehf. Hlíðasmára 2 201 Kópavogur Sími 550 8600 www.klakki.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Verklag lögreglu á hátíðum á vegum Reykjavíkurborgar var rætt á fundi mannréttinda-, nýsköpunar- og lýð- ræðisráðs í gær. „Við fórum yfir verklag á borgar- hátíðum og útskýrðum starfsum- hverfi okkar,“ sagði Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri Lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu (LRH). Hún sagði að þessar hátíðir væru bundnar þeim skilyrðum að lögreglan væri með gott utanum- hald. „Þetta fer allt fram í góðu sam- starfi og er skipulagt á vinnufundum með borginni og þeim sem að hátíð- unum standa,“ sagði Sigríður. Á morgun eru Reykjavíkurmara- þon Íslandsbanka og Menningar- nótt, síðustu stóru viðburðir sumars- ins í borginni. Sigríður sagði að ríkislögreglustjóri hefði gefið út nýtt hættumat fyrir bæjarhátíðir fyrir um þremur árum. LRH hefði hagað skipulagi sínu í samræmi við það. Þar er m.a. kveðið á um aukinn sýni- leika lögreglu á hátíðunum, að sér- staklega sé gætt að lokunum m.a. til að koma í veg fyrir að hægt sé að aka inn í mannfjölda og að lögreglan sé viðbragðsfljót ef eitthvað gerist. Réttmæti aðgerða dregið í efa „Það hefur ekki farið framhjá neinum sem hefur fylgst með í sum- ar að það hafa komið upp mál þar sem réttmæti aðgerða lögreglu á há- tíðum eru dregnar í efa, svo sem leit- ir án dómsúrskurðar á Secret Sol- stice og nýlegt mál þar sem ung kona var handtekin vegna gruns um mót- mæli á Hinsegin dögum,“ sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður ráðsins. Hún sagði að einstök mál yrðu ekki rædd heldur væri þetta tækifæri til að fara skipu- lega yfir vinnureglur og hvert þeir sem teldu lögreglu hafa brotið á sér gætu leitað. Með þessu vildi borgin sýna ábyrgð og bæta sambandið milli lögreglu og borgarbúa. Sigríður lögreglustjóri kvaðst ekki geta rætt einstök mál en sagði aðspurð um atvikið á Hinsegin dög- um að LRH hefði tryggt allar upp- tökur af því og sent þær til nefndar um eftirlit með lögreglu og óskað eftir að hún skoðaði málið. Ræddu verklag lögreglu  Lögreglustjóri LRH fundaði með borginni um borgarhátíðir  Borgarfulltrúi segir dæmi um mál þar sem réttmæti lögregluaðgerða á hátíðum er dregið í efa Morgunblaðið/Kristinn Löggæsla Lögreglan er við öllu bú- in á borgarhátíðum. Mynd úr safni. Norðlingaskóli var settur í gær í útikennslustofu skólans í Björnslundi. „Við byrjuðum að setja skólann í Björnslundi þegar skólinn var stofnaður 2005 enda var það lengi eina varanlega kennsluaðstaðan okkar,“ sagði Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri Norðlingaskóla. Norðlingaskóli var settur í 15. skipti í gær Skólasetningin fer alltaf fram í Björnslundi Morgunblaðið/Árni Sæberg Tveir menn hafa verið ákærðir af héraðssaksóknara fyrir meirihátt- ar brot gegn skattalögum sem varða fyrirtæki sem hét Bygg- ingarfélagið Grettir. Meint brot voru framin fyrir um það bil ára- tug, en málið var þingfest í Héraðs- dómi Suðurlands í gærmorgun. Mönnunum tveimur er gefið að sök að hafa ekki staðið skil á stað- greiðslu fjármagnstekjuskatts sem nam rúmum 16,6 milljónum kr. en um var að ræða fjármagnstekju- skatt af 166,5 milljóna króna arð- greiðslu sem greidd var úr bygg- ingarfélaginu árið 2008 til mannanna tveggja. Þá er þeim einnig gefið að sök að hafa ekki staðið skil á skattframtölum fyrir- tækisins vegna rekstraráranna 2008 og 2009 á lögmæltum tíma. Tveir menn í Gretti ákærðir fyrir milljóna skattsvik Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu í gær. Í Kópavogi stöðv- aði lögreglan kannabisræktun og lagði hald á 39 kannabisplöntur. Sakborningurinn var hins vegar látinn laus að lokinni skýrslutöku. Vinnueftirlitið óskaði eftir aðstoð lögreglu í Grafarholti vegna er- lendra verkamanna sem voru þar í vinnu án allra réttinda. Er málið nú í rannsókn. Einnig var tilkynnt um þjófnaði úr verslunum, m.a. í mat- vöruverslun í Hafnarfirði. Þar voru þjófar þó á bak og burt er lögregla kom á svæðið. Með 39 kannabis- plöntur í Kópavogi Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni í gærmorgun. „Ég get staðfest að vistmaður á Litla-Hrauni fannst lát- inn við opn-un klefa í morgun. Ekk- ert bendir til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti en lögreglan sér um rannsókn,“ sagði Páll Winkel fangelsismálastjóri við mbl.is í gær. Aðstandendum hins látna var til- kynnt andlátið. Páll bætti við að um harmleik væri að ræða og að bæði vistmenn og starfsmenn fangels- isins væru harmi slegnir. Fannst látinn á Litla-Hrauni Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Ef þetta þýðir betri kjör til lang- frama myndum við ekki setja okkur upp á móti því,“ segir Breki Karls- son, formaður Neytendasamtakanna. Vísar hann í máli sínu til hugsanlegr- ar sameiningar tveggja af stóru við- skiptabönkunum þremur. Eins og Morgunblaðið greindi frá í síðasta mánuði hafa stjórnarmenn Arion banka og Íslandsbanka ekki útilokað sameiningu. Þá sagði Brynj- ólfur Bjarnason, stjórnarformaður Arion banka, að með sameiningu væri jafnframt hægt að spara háar fjárhæðir. Breki segir að erfitt sé að segja til um málið að svo stöddu enda sé fyrst og fremst mikilvægt að samkeppni ríki á markaði. „Þetta er ekki alveg klippt og skorið auk þess sem það er mikilvægt að hafa ekki hagsmuni til skamms tíma að leiðarljósi. Það kæmi til kasta samkeppnisyfir- valda að búa þann- ig um hnútana að það ríki áfram samkeppni,“ segir Breki. Birna Einars- dóttir, bankastjóri Íslandsbanka, tjáði sig um samein- ingarmál í Bítinu á Bylgjunni í gær- morgun. Þar sagði hún að sparnaður með sameiningu myndi draga úr helmingi kostnaðar annars bankans hið minnsta. Ef skoðaður er ársreikn- ingur Íslandsbanka í fyrra má fljótt sjá að um umtalsverðar upphæðir er að ræða. Rekstrarkostnaður bankans nam ríflega 32 milljörðum króna í fyrra. Sparnaður er því að lágmarki 16 milljarðar króna árlega. Að sögn Breka er mikilvægast að tryggja góð lánakjör fyrir einstak- linga. „Lífeyrissjóðir hafa komið sterkir inn á lánamarkað og aukið samkeppni. Við viljum hafa öfluga samkeppni þannig að tryggt sé að góð kjör fáist,“ segir Breki. Góð kjör verði tryggð Í þessari viku var greint frá sam- starfi MasterCard og tæknirisans Apple, en fyrirtækin bjóða nú upp á greiðslumiðlun á áður óþekktum kjörum. Spurður hvort sameining sé nauðsynleg til að mæta erlendri sam- keppni kveðst Breki eiga erfitt með að segja til um það. „Ég verð að játa að ég hef ekki séð þessa erlendu samkeppni nema á sjóndeildarhringnum. Bankarnir eru ekkert í greiðslumiðlun enda er mikilvægast fyrir mér að tryggja að- gengi að fjármunum og góð kjör á lánum á neytendamarkaði,“ segir Breki. Opnað á sameiningu  Formaður Neytendasamtakanna útilokar ekki sameiningu tveggja banka  Hagsmunir neytenda settir í fyrsta sæti Breki Karlsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.