Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 20% afsláttur af Oakley í tilefni Reykjavíkurmaraþons Hlaupari: Arnar Pétursson Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Allir á ákveðnum aldriþekkja Dallas-þættina oghafa skoðanir á þeim.Dallas sameinaði fólk, öll þjóðin horfði á þáttinn á sama tíma einn dag í viku í línulegri dagskrá á sjónvarpsstöðinni einu. Sá raun- veruleiki er horf- inn,“ segir Karl Ferdinand Thor- arensen, sem ætl- ar að halda ör- námskeið um Dallas-sjónvarps- þættina í septem- ber. „Á nám- skeiðinu ætla ég að spá og spekú- lera í öllu í kring- um þættina, reyna að fanga stemn- inguna, skoða hvað var í gangi í samfélaginu og af hverju þeir voru vinsælir. Við mamma sátum ævin- lega límd við skjáinn þegar Dallas fór í loftið, það var heilög stund á mínu heimili. Ég var ekki nema sjö ára þegar þættirnir komu til sýn- ingar hér á landi 1981, en þeir fóru í loftið 1978 í Bandaríkjunum. Þetta var fyrsta sápuóperan sem Íslend- ingar fengu á skjáinn og götur Reykjavíkur tæmdust á miðviku- dagskvöldum þegar Dallas var á dagskrá,“ segir Karl, sem ætlar á námskeiðinu að skoða og velta upp menningarlegum og samfélagsleg- um málum sem tengjast þáttunum. „Mér finnst áhugaverð félags- leg stúdía hvernig brotin fjölskylda í Texas verður að menningarlegu fyrirbæri úti um allan heim. Leikar- ana og handritshöfundana hafði ekki órað fyrir vinsældunum. En fólk viðurkenndi ekkert endilega að það væri að horfa á þættina, því það var eitthvert stigma tengt þessu, enda var þetta sápuópera sem flokkast undir lágmenningu. Þættirnir voru byggðir á einföldum erkitípum, þar sem hetjan og skúrkurinn breytast aldrei. J.R. mýkist aldrei og Bobby verður ekkert minna góður. Fyrstu átta seríurnar slógu í gegn en eftir það fór að fjara undan, Bobby hætti og kom aftur og áhorfendum leið eins og þeir hefðu verið sviknir. Þetta náði aldrei sömu hæðum aftur.“ J.R. fannst græðgi vera góð „Í Dallas-þáttunum var verið að reyna að búa til eitthvað sem leit ekki út fyrir að vera klippt út úr tískutímariti þar sem allir eru eins. Larry Hagman sem lék J.R. og Ken Kercheval sem lék Cliff Barnes voru ekkert að fara að vinna í fegurðar- samkeppni. En þeir smellpössuðu inn í hlutverkin og þetta voru vel menntaðir leikarar sem höfðu leikið á sviði og þeir negldu þetta,“ segir Karl, sem horfði aftur á þættina eftir að hann varð fullorðinn. „Mér finnst merkilegt hvernig þetta varð til, úr hverju þetta sprettur. Þetta var fyr- ir tíma kapals og nets og CBS- sjónvarpsstöðin fékk handritshöf- und til að koma með hugmyndir að þætti og ein þeirra var fjölskyldu- drama sem gerist í Texas. Hann fékk aðstoð við skrifin frá handrits- höfundum í New York, en þeir höfðu aldrei komið til Texas og vissu ekk- ert um Dallas. Kúrekahattar, naut- gripir og olía var það sem þessir höf- undar tengdu við þetta svæði, en fólkið sem bjó í Dallas var ekki sátt og sagði engan vera með kúrekahatt í Dallas eða ganga í kúrekastíg- vélum. Fólk var ekki ánægt með að tengja sápuóperu við Dallas, því Kennedy hafði verið drepinn þar fáum árum áður, 1963, og borgin var kölluð City of Hate. Dallas-búar vildu ekkert af þessum þáttum vita, en það átti eftir að breytast þegar þættirnir slógu í gegn og ferðamenn streymdu til Dallas. Ímynd borgar- innar breyttist við tilurð gerviheims sem búinn var til allt annars staðar. Southfork-búgarðurinn er orðinn að frægu safni.“ Karl ætlar á námskeiðinu að skoða þættina út frá því hvað var í gangi í stjórnmálum og menningar- lífi á þeim tíma. „Þættirnir fönguðu algerlega tíðarandann. Reagan tók við forsetaembættinu 1981 þegar Dallas var í hæstu hæðum í vinsæld- um. Með Reagan kom þetta viðhorf að græðgi væri góð, og Dallas fangar það algerlega, það kjarnast í sjálfum J.R.“ »32 Dallas dró alla þjóðina að skjánum Örnámskeið um Dallas- þættina verður í næsta mánuði og menningarleg og samfélagsleg mál tengd þeim skoðuð. Á Southfork-búgarðinum Stórfjölskyldan saman komin og allt virðist leika í lyndi, glansmyndin sett upp. Karl Ferdinand Thorarensen Örnámskeið Karls um Dallas- þættina verður haldið 11. sept. kl. 17.30 í Fellsmúla 26. Farið verður yfir tilurð þáttanna, persónur og leikendur, félagsleg og menningar- leg áhrif amerísks sjónvarps og arfleifð þáttanna. Skráning á vef- síðunni igodumfelagsskap.is Ljósmynd/Wikipedia

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.