Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Roby leðursófi Lengd 172 cm. Verð 270.000 kr. Lengd 194 cm. Verð 295.000 kr. Lengd 214 cm. Verð 310.000 kr. fyrir heimilið Sendum um land allt Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hafrannsóknastofnun hefur ekki fengið neinar tilkynningar um að eldislax hafi veiðst eða sést í laxveiði- ám í sumar. Sumarið er ekki liðið og ef eldislax er að svamla við ströndina gæti hann gengið upp í ár síðsumars. Matvælastofnun og Fiskistofa hafa fengið tvær tilkynningar á þessu ári um göt á netpokum sjókvía. Báðar eru frá Arnarlaxi, annars veg- ar í janúar vegna kvíar við Hringsdal í Arnarfirði og hins vegar í lok síð- ustu viku vegna kvíar við Laugardal í Tálknafirði. Í hvorri kví eru hátt í tvö hundruð þúsund laxar, innan við 300 gramma seiði að meðaltali í Tálknafirði og 1,3 kg lax í Arnarfirði. Ekki er talið líklegt að lax hafi sloppið úr þessum kvíum, allavega ekki margir. Við hvoruga kvína fannst lax og ekki varð vart við breytingar á lífmassa. Viðkomandi stofnanir, Matvælastofnun og Fiski- stofa, treysta sér þó ekki til að gefa neitt út um það hvort lax hafi sloppið eða ekki. Gætu átt eftir að koma Hafrannsóknastofnun er með vöktun á lífríki laxveiðiánna, meðal annars með tilliti til erfðablöndunar við eldislax. Engin tilkynning hefur borist um að eldislax hafi veiðst í sumar og eldislax hefur ekki sést við myndavélaeftirlit sem er í nokkrum ám. Ragnar Jóhannsson, sviðsstjóri fiskeldis hjá Hafrannsóknastofnun, bendir á að lítið vatn hafi verið í ánum og lítið hafi veiðst. Þá hafi ekki verið mikið um óhöpp í eldinu. Hann tekur fram að eldislaxar komi yfir- leitt seint inn í árnar. Þeir taki strauið upp þegar þeir verða kyn- þroska. Það gerist oft síðla sumars og þess vegna geti eldislax enn átt eftir að finnast í ánum. Þess ber að geta að ef seiði hafa sloppið úr kví Arnarlax í Tálknafirði nú í ágúst ganga þau til hafs og skila sér ekki til baka fyrr en eftir að minnsta kosti tvö ár. Á síðasta ári fékk Hafró 12 eldis- laxa sem veiddir voru í laxveiðiám. Þeir fóru í arfgerðargreiningu hjá Matís. Þeir níu fiskar sem greindir voru reyndust allir koma úr þremur strokum fyrr á því ári, hjá Arnarlaxi í Hringsdal í Arnarfirði og Laugar- dal í Tálknafirði. Laxarnir höfðu gengið í ár á Vestfjörðum en einnig einn í Dölum, annar í Vatnsdal og sá þriðji í Eyjafirði. Margir fylgjast með Hafrannsóknastofnun er að auka myndavélaeftirlit í laxveiðiám. Í sumar var eftirlit í 4-5 ám en stefnt er að því að það verði í 12 ám innan þriggja ára. Einnig er stunduð raf- veiði til að kanna hvort seiði eldislax eða blendingar eru í ánum. Hafró heldur úti sérstakri vefsíðu um þessa vöktun. Ragnar segir að mikið sé fylgst með, sérstaklega myndavélun- um þegar laxinn er að ganga í árnar, og fái starfsfólk Hafró hjálp frá not- endum vefjarins til að fylgjast með eldislaxi. Þar er jafnframt hægt að tilkynna grun um eldislax í ám. Skjáskot úr myndavélaeftirliti Eftirlit Lax er enn að ganga í árnar. Þessi 68 sentímetra fiskur gekk í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi í gær. Hann er greinilega ekki af eldisstofni. Enn ekki fund- ist eldislax í ám  Ekki staðfest strok úr sjókvíum í ár Höskuldur Daði Magnússon Gunnlaugur Snær Ólafsson Bjarni Benediktsson, fjármálaráð- herra og formaður Sjálfstæðisflokks- ins, boðaði það í viðtali í Kastljósi í fyrrakvöld að stefnt væri að því að til- kynna nýjan dómsmálaráðherra áður en þing hæfist í september. Ríkis- ráðsfundur hefur verið boðaður föstu- daginn 6. september. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir mun ekki gegna embættinu áfram að því er fram kom í máli Bjarna í þættinum. Hún tók sem kunnugt er við af Sigríði Á. Andersen til bráðabirgða í vor eftir afsögn hinnar síðarnefndu. Bjarni sagði aðspurður að hann teldi ekki ástæðu til að leita út fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins við val á nýjum dómsmálaráðherra. Viðmælendur Morgunblaðsins telja að all nokkrir kostir séu í stöð- unni fyrir formanninn. Flestir muni þeir þó kalla á misjöfn viðbrögð, ánægju í einu horni en óánægju í öðru. Þau nöfn sem einna helst hafa verið nefnd sem líklegir kostir í emb- ættið eru Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir, ritari flokksins, Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmála- ráðherra, Bryndís Haraldsdóttir, Birgir Ármannsson þingflokksfor- maður og Brynjar Níelsson. Öll nema Bryndís eru lögfræðimenntuð en al- gengt hefur verið að lögfræðingar sitji í stól dómsmálaráðherra, þó að það sé ekki algild regla, samanber Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Ög- mund Jónasson. „Allir sem eru í pólitík vilja hafa sem mest áhrif og það væri eitthvað að mér ef ég hefði ekki áhuga á því,“ segir Brynjar Níelsson, spurður um hvort hann hafi áhuga á embætti dómsmálaráðherra. Brynjar kveðst telja að hann hafi marga kosti sem nýtast myndu í ráðu- neytinu. „Þingflokkurinn býr að því að hafa innan sinna raða mann sem hefur unnið áratugum saman innan dómskerfisins. Það væri ekki óskyn- samlegt að nýta sér það.“ Ekki náðist í Áslaugu Örnu eða Sigríði Andersen í gær. „Það virðist ljóst að Þórdís Kolbrún haldi áfram í sínu ráðuneyti og þá aukast kannski möguleikar á því að Áslaug Arna komi til sögunnar. Nema að gerðar verði einhverjar hrókering- ar á ráðherraliðinu,“ segir Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmála- fræði við Háskóla Íslands, þegar hún er beðin að leggja mat á stöðuna. Hún kveðst telja að valið standi helst á milli Áslaugar Örnu og Sigríð- ar Andersen. Birgir Ármannsson komi vissulega til greina en Áslaug sé ofar á lista en hann og auk þess kona en áhersla á kynjajafnrétti innan ríkisstjórnarinnar vegi eflaust þungt. „Innan ríkisstjórnarinnar er auðveld- ast fyrir Bjarna að gera Áslaugu Örnu að ráðherra. En Sigríður er mögulega í sterkri stöðu gagnvart einhverjum í grasrótinni í Reykjavík. Ég myndi telja að Áslaug Arna hefði vinninginn.“ Stefanía rifjar upp að Bjarni hafi leitað til Ólafar Nordal í embætti inn- anríkisráðherra þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir hrökklaðist þaðan. „Nú virðist ekkert álíka í stöðunni,“ segir hún. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, segir að hlut- fall kvenna sé heldur lágt í þingflokki Sjálfstæðisflokksins svo freistandi sé fyrir Bjarna að setja konu í embættið. „Mér finnst nú ólíklegt að Páll [Magnússon] eða Jón Gunnarsson verði valdir í embætti dómsmálaráð- herra, hins vegar eru dómsmálin á sérsviði Brynjars Níelssonar. En þá kemur spurningin hvort flokkurinn telji nauðsynlegt að hafa eina konu til viðbótar í ráðherraembætti.“ Beðið eftir ákvörðun Bjarna  Nýr dómsmálaráðherra verður skipaður í byrjun september  Bjarni Benediktsson segir ástæðu- laust að leita út fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins  Margir þingmenn nefndir til sögunnar Stefanía Óskarsdóttir Ólafur Þ. Harðarson Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Eins og mér var kynnt þetta var sama fermetraverð á öllum íbúðum sem Félag eldri borgara í Reykja- vík, FEB, byggði í Árskógum 1 til 3. Skipti þá engu hvort um íbúðir á efstu hæð annars staðar í húsinu væri að ræða,“ segir einstaklingur í FEB sem ekki vill láta nafns síns getið en sótti um íbúð í húsunum. Í tæpar þrjár vikur hafa blaða- menn reynt árangurslaust að ná í Gísla Jafetsson, framkvæmdastjóra FEB, og Þorberg Halldórsson, for- mann byggingarnefndar, til þess að fá svör um fyrirkomulag úthlut- unar í Árskógum 1 til 3, m.a. til að spyrja hvort rétt sé að fermetra- verð sé það sama óháð staðsetn- ingu íbúðar, auk fleiri atriða sem út af hafa staðið. Lífaldur galopnaði úthlutunina Félagar í Félagi eldri borgara í Reykjavík sem tjáð hafa sig við Morgunblaðið eru ósáttir við fram- kvæmd úthlutunarinnar og þá leynd sem hvílt hefur yfir henni. Einn félagsmaður gagnrýnir ákvæðið um að horft skuli til lífald- urs umsækjanda til þess að skapa ákveðna breidd í aldurshópi verð- andi íbúa, þar sem slíkt ákvæði galopni úthlutunina og erfitt sé að henda reiður á hvort eitthvað mis- jafnt hafi átt sér stað við úthlutun. Félagsmaður sem blaðið ræddi við sagðist hafa skilning á því að ekki væri gott að íbúar væru allir á sama aldri. Hins vegar væri slæmt að vita ekki hversu mikið vægi það hefði við úthlutun. Einnig hefur verið bent á að hugsanlega hafi ekki allir einstaklingar setið við sama borð vegna ákvæðis um það hvenær umsækjendur settu sig á lista yfir áhugasama. Hugsanlega hafi einhverjir félagsmenn haft þar forskot. Önnur ákvæði, svo sem um fé- lagsaðild og lengd hennar eða fjár- hagslega getu, skuldbinding um fasta búsetu og samþykkt á kvöð- um lóðar og íbúðar, hafa að sögn heimildarmanna ekki verið um- deild. Viðmælendur Morgunblaðsins segja að þegar gagnsæi sé ekki nægt fari sögur af stað og það sé aldrei gott. Sátu allir við sama borð?  Sama fermetraverð á öllum íbúðum í Árskógum 1-3  Fyrirkomulagið gagnrýnt af félögsmönnum í FEB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.