Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 ✝ Ágúst Þorvald-ur Bragason fæddist í Neskaup- stað 26. febrúar 1948. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans í Reykjavík 9. ágúst 2019 eftir skamm- vinn veikindi. Foreldrar hans voru Signý Sigur- laug Margrét Þor- valdsdóttir verkakona, f. 27.12. 1916, d. 7.9. 2009, og Bragi Jónsson verkamaður, f. 26.1. 1914, d. 26.11. 1994. Systkini Ágústs eru Ari Guðmar, f. 1938, d. 2014, Dórothea, f. 1940, d. 2004, Margrét, f. 1942, d. 2018, Hermann, f. 1943, og Vilhjálmur, f. 1954. Uppeldis- bræður hans eru Bragi Einars- son, f. 1960, og Grétar Miller, 1963. Ágúst giftist Ólínu Öldu Karlsdóttur 10. apríl 1977 og átti með henni tvö börn. Leiðir þeirra skildi. Börn þeirra eru Gréta, f. 5.12. 1976, og Jón Karl, f. 8.12. 1977. Maki Grétu er Aayush Sharma og börn hennar: Viktor Patrik, Sóldís Kara og Brynja Dís. Maki Jóns Karls er Anita Elefsen og son- ur þeirra Óskar Berg, dóttir Jóns Karls af fyrra sambandi er Katrín Helga. Eftirlifandi sambýliskona hans er Anna Kristjánsdóttir, f. 28.6. 1954, og bjuggu þau saman á Hólavegi 10 á Sauð- árkróki. Börn Önnu eru Kristján Björnsson, f. 1974, í sambúð með Halldóru Gests- dóttur, Tómas Pét- ur Heiðarsson, f. 1984, giftur Agnesi Ósk Gunn- arsdóttur, Sólrún Harpa Heiðars- dóttir, f. 1984, gift Gunnari Oddi Hall- dórssyni og Unnur Fjóla Heið- arsdóttir, f. 1988, gift Pétri Inga Gíslasyni. Barnabörn- unum fjölgaði um sex eftir að Ágúst og Anna hófu sambúð, en í hópinn bættust Ívan Otri, Daníel Guðni, Vigdís Hekla, Fanney Embla, Orri Freyr og Klara Sjöfn. Ágúst, eða Gústi eins og hann var ævinlega kallaður, bjó fyrstu æviárin í Neskaup- stað en flutti í Garðinn sex ára gamall og bjó þar fram á full- orðinsár. Hann stundaði sjó- mennsku frá unga aldri, bæði á fiskiskipum og fraktskipum. Eftir að hann hætti á sjónum starfaði hann við beitningu, flökun og fiskvinnslu. Á tíunda áratugnum flutti hann til Keflavíkur og var þar búsettur til ársins 2011, en þá hóf hann sambúð með Önnu sinni norður á Sauðárkróki, þar sem hann bjó til dánardags. Útför Gústa fer fram frá Út- skálakirkju í dag, 23. ágúst 2019, klukkan 13. Elsku Gústi minn. Nú er svo komið að ég kveð þig í hinsta sinn. Hér sit ég við eldhúsborðið okkar og fer yfir síðustu ár. Við áttum yndislegan tíma saman. Okkur þótti gaman að ferðast og keyra um landið okkar, heimsækja börnin okkar og barnabörn. Höggið kom fljótt, alltof fljótt. Þú barðist eins og hetja en því miður dugði það ekki til. Ég veit að þér líður betur núna, verkja- laus. Það verður mjög tómlegt að koma heim eftir vinnu á daginn og þú verður ekki þar, tilbúinn með kaffibollann minn. Elsku Gústi, takk fyrir öll yndislegu árin okkar. Þín verður sárt saknað. Minnig þín lifir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Þín Anna. Elsku pabbi Ég er buguð af sorg. Sársauk- inn nístir hjarta mitt. Tíminn með þér var ekki nógu langur. Minningarnar streyma um hug- ann og leita til barnæskunnar. Í seinni tíð urðu tengslin enn sterkari og er ég svo þakklát fyrir þau ár. Þakklát að vera við hlið þér í þessum erfiðu veik- indum sem tók fljótt af. Þrjár vikur. Þrjár vikur til að bæði meðtaka þennan þunga dóm og kveðja þig. Ég man síðasta spjallið, síð- ustu snertinguna, síðasta koss- inn, síðasta andardráttinn. Ég mun alltaf muna. Takk fyrir allt, elsku pabbi. Ég sakna þín nú og alla tíð. Ef ég ætti eina ósk ég myndi óska mér að ég fengi að sjá þig brosa á ný. Eitt andartak á ný í örmum þér á andartaki horfinn varstu mér. Ég trúi því á andartaki aftur verð hjá þér. Þín elskandi dóttir, Gréta. Elsku afi. „Einstakur“ er orð sem notað er þeg- ar lýsa á því sem er engu öðru líkt, faðmlagi eða sólarlagi, eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vin- semd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og þeirra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem lýsir þér. Minning þín er ljós í lífi okkar. Viktor Patrik, Sóldís Kara og Brynja Dís. Ágúst Þorvaldur Bragason Sálm. 86.11 biblian.is Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. ✝ Svala Markús-dóttir fæddist 18. ágúst 1955 á Sólvangi í Hafnar- firði. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 17. ágúst 2019. Hún var dóttir hjónanna Soffíu Sigurðardóttur og Markúsar Berg- manns Kristins- sonar. Svala var fjórða í röð sjö systra, hinar eru: Helga, f. 1951, Fjóla, f. 1952, Hulda, f. 1954, Lilja, f. 1962, Árdís, f. 1964, og 2005, og dóttir Markúsar og Karenar Ernu er Dísella Berg- mann, f. 30. september 2012. 3) Sonja, f. 24. júní 1985, hún gift- ist Sveini Ómari Kristinssyni. Dóttir þeirra er Ragnhildur Laufey, f. 2. apríl 2005, þau skildu. Sambýlismaður Sonju er Jón Magnús Jónsson. Svala lauk gagnfræðaprófi frá verslunardeild Flens- borgarskólans í Hafnarfirði. Síðar lauk hún stúdentsprófi frá sama skóla og menntaði sig sem læknaritari og starfaði við það allar götur síðan, fyrst á bækl- unardeild Landspítalans við Hringbraut og í Fossvogi. Síð- ustu árin starfaði hún sem læknaritari á Heilsugæslustöð- inni Sólvangi í Hafnarfirði. Útför Svölu fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 23. ágúst 2019, klukkan 15. Sædís, f. 1975. Svala giftist hinn 27. desember 1975 Leifi Jónssyni sím- smið, f. 12. desem- ber 1954, d. 27. júlí 2012. Þau bjuggu lengst af í Hafnar- firði. Börn Svölu og Leifs: 1) Ragnhild- ur, f. 22. nóvember 1976, d. 18. mars 1977. 2) Markús Bergmann, f. 5. janúar 1980. Sambýliskona hans er Karen Erna Ellertsdóttir. Sonur Mark- úsar er Egill Hrafn, f. 12. júlí Elsku mamma mín, í dag kveð ég þig í hinsta sinn. Ég á erfitt með að trúa því að þú sért látin og ég geti aldrei hitt þig aftur eða hringt til að spjalla um daginn og veginn. Við mamma vor- um alltaf bestu vinkonur og bröll- uðum ýmislegt saman, alla sunnu- daga þegar pabbi sat yfir fótboltanum fórum við saman í heimsóknir eða kíktum í Kringl- una, því ekki nenntum við að hanga yfir fótbolta. Mamma var heimavinnandi þar til ég var 10 ára gömul, hún reyndi að hafa mig hjá dagmömmu á morgnana á meðan Markús bróðir var í skólanum svo hún fengi smá tíma fyrir sig en ég var engin morgunmanneskja og tók því ekki vel að vera rifin upp fyrir allar aldir svo hún gafst upp á því en fékk svo leikskólapláss eftir hádegi fyrir mig. Ég var alltaf hangandi í mömmu eða var allavega ekki langt frá henni. Þau pabbi grínuðust með það seinna meir að ég væri ástæð- an fyrir því að ég ætti ekki yngri systkini þar sem ég var svo forvitin og var manna seinust til að sofna á heimilinu. Mamma var mikill húmoristi og hafði mjög svartan húmor ásamt því að hafa húmor fyrir sjálfri sér allt fram á seinustu daga. Til dæm- is var ég með hana í fyrstu heim- sókn inni á krabbameinsdeild þeg- ar hún lítur á klukkuna og svo á mig og segir: „Jahhh, það tekur því ekki fyrir mig að byrja að horfa á framhaldsþætti.“ Svo sótsvartur var húmor hennar að stundum vissi ég ekki hvort ég ætti að gráta eða hlæja. Hún var alæta á tónlist, allt frá gömlu góðu lögunum í þau allra nýjustu. S.O.B. var eitt af hennar uppáhaldslögum en hún sagði eitt skiptið þegar það kom í útvarpinu að hún yrði að hætta að hlusta á það um tíma því þegar hún söng og var að dilla sér mikið með því rauk blóðþrýstingurinn upp úr öllu valdi. Mamma og pabbi voru mjög samrýnd enda höfðu þau verið gift í 37 ár þegar pabbi féll frá. Árið 2012 þegar pabbi dó var eins og hluti af mömmu hefði dáið líka. Þó svo að hún léti ekki á því bera dagsdag- lega talaði hún um einmanaleika og að hún saknaði hans. Hún var al- gjör nagli og stundum of sterk að mér fannst, en það er kannski eðli- legt miðað við það sem hefur geng- ið á í lífi hennar. Núna ertu komin aftur til pabba og Ragnhildar systur sem ég veit að þú varst orðin spennt að hitta aftur. Við sjáumst svo í sumarland- inu þegar minn tími er búinn hér. Tárin renna sorgin snertir hjartað mitt lítið tré fellir laufin eitt og eitt uns þau hverfa ofan í jörðina og koma ekki upp aftur. Ég sé þig í huga mér og dagurinn hverfur út í buskann og eilífðin sjálf stoppar. Ég kveð þig með söknuð í hjarta og tár á hvarmi. Eins og hörpustrengur er hjarta mitt þegar ég hugsa um brosið þitt eins og fallegur dagur sem kemur og fer mun stjarnan þín lýsa upp hjá mér þetta er kveðjan mín til þín elsku besta mamma mín. (Solla Magg) Þín dóttir Sonja. Elsku Svala systir okkar er látin eftir stutta baráttu við krabba- mein. Það er skarð fyrir skildi í okkar þétta systrahópi, hennar verður sárt saknað. Svala var sú fjórða í okkar sjö systra hópi. Miðj- an er farin. Við systur höfum alltaf verið mjög nánar og gert margt saman. Áður fyrr fórum við saman í systraferðir þar sem fjölskyldur okkar eyddu saman góðri helgi. Svala og Leifur ákváðu oft hvert farið yrði. Leifur mágur okkar var skemmtilegur og fyndinn og hann fann upp á því að kalla ferðir okkar „Leitina að ættaróðalinu, Syðri- Freðmundastaðamýri“. þessi stað- ur er ekki til, en við höfum síðan kallað hópinn okkar „Systurnar frá Syðri-Freðmundastaðamýri“. Svala er núna komin á áfangastað og bíður eftir okkur og gerir allt tilbúið á ættaróðalinu. Hún var mjög skipulögð og alltaf með allt á hreinu. Frábærar minningar eru tengdar þessum ferðum okkar og við og börnin okkar áttum oft okk- ar bestu stundir á þessum ferða- lögum. Í seinni tíð höfum við systur hist vikulega, alltaf á föstudögum. Komið saman, borðað saman, gert handavinnu og spjallað og skegg- rætt um allt og ekkert. Þessi nána samvera okkar hefur gert það að verkum að við systur höfum ekki haft mikla þörf fyrir að tilheyra einhverjum félagsskap eða eiga vini eða vinkonur utan systrahóps- ins. Það er að sumu leyti gott en að öðru leyti slæmt. Við eigum samt allar eina eða tvær góðar vinkonur sem gjarnan hafa þá verið með- teknar í systrahópinn. Við erum af- ar þakklátar fyrir Svölu systur okkar. Hún var oft rödd skynsem- innar í okkar hópi, þó að hún gæti alveg tekið þátt í glensi og gamni. Svala hafði mjög kaldhæðinn húm- or og kom það berlega í ljós í þess- ari baráttu hennar við krabbamein- ið. Hún vissi að henni mundi ekki batna og þetta mundi bara enda á einn veg. En hún var svo fullkom- lega æðrulaus að það var aðdáunarvert. Hún sagði bara: „Jæja, ég fer þá ekkert að byrja á því að horfa á einhverja framhalds- þætti, það tekur því ekki!“ Lífið fór ekkert neinum sérstök- um silkihönskum um elsku systur okkar. Hún fékk sinn skerf af áföll- um í lífinu. Stærsta áfallið var það þegar hún missti elstu dóttur sína Ragnhildi í bílslysi aðeins fjögurra mánaða gamla. Hún jafnaði sig aldrei fyllilega á þeim missi. Svo missti hún eiginmann sinn Leif Jónsson fyrir sjö árum úr illvígu heilakrabbameini. Hún stóð eins og klettur við hlið hans í veikindunum og var alltaf jafn æðrulaus. Hennar aðferð til að komast af, var að sætta sig við að þessu yrði ekki breytt og það mundi ekki bæta neitt úr skák ef hún missti sig í einhverju drama. Þú átt aðdáun okkar allra, elsku systir, þú ert fyrirmynd okkar í því hvernig taka skuli á erfiðum hlut- um í lífinu. Við erum allar óskap- lega sorgmæddar yfir því að hafa misst þig. Við sem fórum alltaf ósjálfrátt í aldursröð við hin ýmsu tækifæri. Það verður erfitt að venj- ast því að það vanti þig í röðina okkar. Við vonum að þú sért nú á betri stað með Leifi þínum og Ragnhildi. Blessuð sé minning þín. Systurnar frá Syðri-Freðmund- astaðamýri, Helga, Fjóla, Hulda, Lilja, Árdís og Sædís. Elskuleg Svala móðursystir mín, falleg og mikil sómakona hef- ur nú kvatt þennan heim. Fyrir mér var Svala alger klettur sem ávallt var hægt að treysta á, en hún og Leifur Jónsson heitinn, eigin- maður hennar, voru mér alltaf mik- il stoð og stytta og í miklu uppá- haldi hjá mér. Þegar ég var bara lítil stúlka þótti mér alltaf svo ólýsanlega gaman að vera hjá þeim og var allt- af leyfilegt að skellibjallast um og knúsa og hlæja. Ég hafði mikið dá- læti á þeim hjónum og þar var allt- af til nóg af mat, gleði og hlýju, hvað annað þarf maður. Eftir að ég varð fullorðin þá fór- um við í allnokkrar systraferðir og var Leifur þar mikilvægur skemmtikraftur með gítarinn og Svala alltaf með allt til alls því hún hugsaði einhvern veginn alltaf fyrir öllu. Afar tryggur vinskapur hefur síðan skapast milli mín og dóttur hennar, Sonju, og lofaði ég að passa upp á hana síðustu daga Svölu. Umhyggja þeirra var alltaf aug- ljós gagnvart mér og kunni ég ávallt að meta það. Þegar hallaði undan fæti hjá mér þá voru þau t.d. snör í snúningum til þess að redda mér sófasetti sem þau áttu því Svala sagði að þau þyrftu nú hvort eð er að fara að skipta um sófasett, alltaf svo hugulsöm og úrræðagóð. Gaman var að koma með börnin til þeirra því þá var tekinn upp gítar og glamrað fyrir krakkana og öll- um leið eins og þau væru hjartan- lega velkomin. Svala var einstaklega jarðbund- in og skipulögð og aldrei var maður í vafa um hvar maður hefði hana. Húmor hennar var kolsvartur og gat maður endalaust hlegið að því sem vall upp úr henni, síðast aðeins tveimur dögum áður en hún kvaddi þennan heim. Því miður veiktist hún elsku Svala en tók veikindum sínum með miklu æðruleysi og dáðist ég að henni alveg til endaloka. Nú þegar endalokin eru komin sitjum við eftir með sárt ennið og syrgjum elsku Svölu. Takk fyrir allt. Svala mín, hvíl í friði og hvar sem þú nú ert vona ég að Leifur og Ragnhildur umvefji þig í ástar- faðmi sínum. Kannski eruð þið saman í Dúfnahólum 10, hver veit? Ykkar verður sárt saknað. Með ást og virðingu, Berglind Soffía Blöndal. Fyrir um 10 árum settist kona við tölvuna á skrifborðinu á móti mér í litlu einingunni á Sólvangs- vegi 3. Það var hún Svala. Þann dag hófst vinskapur okkar sem allt- af varð betri og sterkari. Síðan þá höfum við verið saman að mestu leyti átta klukkustundir á sólar- hring fyrir utan fríin okkar. Okkur líkaði þetta það vel að þegar við þurftum að flytja búferlum í vinnunni urðu skrifborðin okkar að snúa eins, við þurftum að halda áfram að sjá hvor aðra. Síðan eru rúm sjö ár og ennþá snúa borðin eins og okkur fannst það alltaf jafn gott. Það var því mikið áfall þegar Svala veiktist fyrr á árinu og átti ekki afturkvæmt til okkar. Ýmislegt var líkt með okkur, við áttum mörg systkini, elskuðum ketti, nutum þess að prjóna og síð- ast en alls ekki síst báðar með mikla ferðabakteríu. Við höfðum gaman af því að fylgjast með undir- búningi ferðalaga hjá hvor annarri og svo auðvitað fengum við allar ferðasögurnar. Við áttum virkilega gott sam- starf og vináttu. Við gátum oft sam- nýtt krafta okkar í vinnunni ef eitt- hvað kom upp á sem við vorum ekki alveg að ráða við. Það var auð- vitað sjaldgæft, sérstaklega hjá Svölu sem var mikil fagmanneskja og kunni svo margt annað líka. Margar stundir áttum við saman þar sem við gátum látið ýmislegt frá okkur, ekki síst það sem við vildum ekki að færi lengra. Það voru góðar stundir. Elsku besta Svala. Ástarþakkir fyrir frábært samstarf, allt spjallið, það sem þú kenndir mér, ekki síst þennan síðasta mánuð og mest af öllu fyrir að vera góður vinur. Þú ert, varst og verður ein sú allra besta. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Kæru Sonja, Markús og fjöl- skyldur sem og systur Svölu og fjölskyldur, innilegar samúðar- kveðjur til ykkar allra. Minning um yndislega konu lifir. Takk fyrir allt. Þín Ásgerður (Ása). Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Við á heilsugæslunni Sólvangi í Hafnarfirði vorum heppin að fá Svölu til starfa hjá okkur sumarið 2007. Svala var frábær læknaritari, nákvæm, skipulögð og hafði góða yfirsýn yfir þau verkefni sem fyrir lágu. Hún var traustur og góður starfsmaður sem sinnti störfum sínum af alúð. Svala hafði góða nærveru og sá oft skemmtilegu hliðarnar á málunum sem ein- kenndi samskipti hennar bæði við skjólstæðinga og samstarfsfólk. Svala var líka ótrúlega sterk og æðrulaus í baráttu sinni við veik- indin, hún var hetja. Við minnumst Svölu okkar með miklu þakklæti og munum varð- veita minningar um góðan og traustan vinnufélaga. Við þökkum henni fyrir afar góð kynni og sam- vinnu á heilsugæslunni og vottum fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd samstarfsfólks á heilsugæslunni Sólvangi, Heiða Davíðsdóttir. Svala Markúsdóttir HINSTA KVEÐJA En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Þín Ragnhildur Laufey.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.