Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 TORMEK Brýnsluvélar Verslunin Brynja er umboðsaðili TORMEK á Íslandi Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 HTK-706: Aukahlutasett fyrir hnífa, skæri o.fl. Verð 21.950 TNT-708: Aukahlutasett fyrir rennismiðinn Verð 38.830 Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár s Tormek T-8 Verð 99.800 s Tormek T-4 Verð 59.800 SVM-45: Hnífastýring Verð 4.570 SVD-110: Platti Verð 4.440 SVX-150: Skærastýring Verð 6.100 SVD-186: Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn Verð 11.980 TT-50: Demantsafréttari Verð 9.980 SP-650: Gráðusteinn Verð 3.230 SVM-140: Hnífastýring Verð 6.950 SVM-00: Stýring fyrir tálguhnífa Verð 4.290 RM-533: Gúmmímotta Verð 7.210 RB-1810: Snúningsplatti Verð 7.980 PA-70: Póleringarmassi Verð 1.100 SE-77: Stýring fyrir hefiltennur og sporjárn Verð 6.980 Búið er að ráða í 98% stöðugilda í grunnskólum í Reykjavík, 96% stöðugilda í leikskólum og 78% af stöðugildum á frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum. Starfsmannaþörf hefur aukist síðan í fyrra, en þó er staðan í ráðningum betri nú en fyrir ári. Þetta kemur fram á vefsíðu Reykjavíkurborgar. Þar segir að borgin reki 63 leik- skóla þar sem um 6.000 börn dvelji og þar starfi um 1.570 manns. Óráðið er í 60 stöðugildi. Grunn- skólar borgarinnar, sem reknir eru af henni, eru 36 og í þeim eru 14.000 börn. Þar starfa um 1.970 manns og enn á eftir að ráða í átta stöðugildi kennara, 17 stöðugildi stuðningsfulltrúa, 14 skólaliða og eitt stöðugildi þroskaþjálfa. Frístundaheimilin eru jafnmörg grunnskólunum, þar munu 950 manns starfa í um 440 stöðugildum og þar verða um 4.000 börn. Enn á eftir að ráða í um 100 stöðugildi.  Búið að ráða í 98% staða í grunnskólum Í skóla Ráðningar í skóla borgar- innar hafa gengið betur en áður. Enn vantar fólk til starfa í skólunum Dæmi eru um það að ferðamenn hafi ekki fylgt fyrirmælum lög- reglu og farið inn á lokað svæði í Reynisfjöru, þar sem skriða féll á þriðjudag. Þetta staðfestir Björn Ingi Jónsson, verkefnastjóri al- mannavarna hjá lögreglunni á Suðurlandi. „Það er alltaf nóg af fólki í Reynisfjöru og það hefur alveg komið fyrir síðan við settum þenn- an borða að fólk hefur farið inn fyrir hann,“ sagði Björn. Samkvæmt 19. grein lögreglu- laga er almenningi skylt að fylgja fyrirmælum lögreglu. Ferðamenn og aðrir vegfarendur sem gerast brotlegir við þau lög gætu átt von á 100 til 500 þúsund króna sekt. Lögreglan hefur enn sem komið er ekki sektað neinn ferðamann fyrir að virða ekki lokun svæðisins en hún hefur leiðbeint ferðamönn- um og sagt þeim að virða fyrir- mælin, að sögn Björns. Almannavarnir lokuðu aðgengi að þeim hluta Reynisfjöru sem er austan við Hálsanefshelli fram á föstudag, en þá verða aðstæður kannaðar að nýju. Óljóst er hvenær aðgengi að hinu lokaða svæði verður leyft að nýju. „Þessi lokun hefur ekki mikil áhrif á aðalaðdráttaraflið, sem er náttúrlega fjaran og stuðlabergið sem er þarna,“ sagði Björn. Enn er laust efni í upptökum skriðunnar, sem var 100 metra breið, og má búast við því að áfram hrynji frá upptökum hennar næstu daga. Virða ekki lokun lögreglu Morgunblaðið/Hallur Már Reynisfjall 100 metra breið skriða féll í Reynisfjöru á þriðjudaginn.  Brotlegir gætu átt von á 100 til 500 þúsund króna sekt Atvinnuleysi í júlí var 3,1%, sam- kvæmt árstíða- leiðréttingu Hag- stofu Íslands. Litlar breytingar voru á milli mán- aða og var árs- tíðaleiðrétt at- vinnuþátttaka 81,2%, sem er rétt um 0,2 prósentu- stigum lægra en í júní. Af vinnuaflinu reyndust 208.400 vera starfandi og 5.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 81,3% og hlutfall at- vinnulausra af vinnuafli var 2,5%. Samanburður mælinga fyrir júlí 2018 og 2019 sýnir að í vinnuafli fjölgaði um 3.000 manns, en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 0,7 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 2.700 og hlutfallið var einnig 0,7 prósentustigum lægra en það var á sama tíma árið 2018. Atvinnulausir í júlí 2019 voru um 200 manns fleiri en á sama tíma árið 2018, þegar þeir voru 5.200. Atvinnuleysi í júlí var 3,1%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.