Morgunblaðið - 23.08.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Nói-Síríus hf. og Orkla ASA hafa
komist að samkomulagi um kaup
þess síðarnefnda á 20% hlut í Nóa-
Síríusi, að undangengnu samþykki
Samkeppniseftirlitsins. Báðir aðil-
ar eru ásáttir um að kaupverð
verði ekki gefið upp að svo stöddu.
Orkla er skráð á hlutabréfamarkað
í Noregi og hefur fjárfest umtals-
vert í matvælafyrirtækjum á
Norðurlöndum. Á síðasta ári nam
velta fyrirtækisins nær 570 millj-
örðum íslenskra króna, en Orkla
er með ríflega átján þúsund starfs-
menn á sínum snærum. Til sam-
anburðar starfa um 150 manns hjá
Nóa Síríusi og er velta félagins
rétt um 0,6% af veltu Orkla.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafði Nói-Síríus ekki aug-
lýst eftir áhugasömum fjárfestum
eða verið í söluhugleiðingum. Til-
boð Orkla hafi því verið að eigin
frumkvæði ásamt því að vera tals-
vert betra en tilboð annarra fjár-
festa sem lýst höfðu áhuga á fyrir-
tækinu höfðu verið fram til þessa.
Þá hafi framtíðarplön Orkla einnig
haft mikið að segja, en fyrirtækið
vonast til að styðja við frekari vöxt
sælgætisgerðarinnar. Þannig
verða starfsmenn Nóa-Síríus ekki
varir við neinar breytingar auk
þess sem vonir standa til að hægt
verði að efla stöðu fyrirtækisins á
markaði hér á landi. Þá herma
heimildir Morgunblaðsins einnig
að ólíkt öðrum áhugasömum fjár-
festum hafi verið skýr vilji hjá
Orkla að halda starfsemi Nóa-Sírí-
usar með óbreyttu sniði. Með
þessu kemst Orkla jafnframt inn á
íslenskan markað og getur þannig
styrkt stöðu sína meðal íslenskra
neytenda.
Gætu keypt allt fyrirtækið
Athygli vekur að í tilkynningu
sem Orkla sendi frá sér vegna
yfirvofandi kaupa kemur fram að
sælgætisframleiðandinn rótgróni
geti með öllu verið kominn í eigu
fyrrnefnda félagsins árið 2021. Í
tilkynningunni segir orðrétt að
„samkomulagið feli í sér mögu-
leika á að kaupa þá hluti sem eftir
eru þegar árið 2020 er liðið“.
Í svari við fyrirspurn Morgun-
blaðsins segir Finnur Geirsson,
forstjóri Nóa-Síríusar, að alls sé
óvíst að Orkla muni ganga frá
kaupum á öllum hlutum í fyrir-
tækinu. „Það er talað um slíkt sem
möguleika. Það er alls ekki víst að
af því verði,“ sagði í svarinu, en að
öðru leyti vildi Finnur ekki tjá sig
um málið og vísaði í fréttatilkynn-
ingu Nóa Síríusar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er kaupréttur Orkla ekki
eins afdráttarlaus og ýjað er að í
tilkynningu fyrirtækjanna. Þar
segir, eins og fram kemur hér að
framan, að Orkla geti keypt fyrir-
tækið endanlega eftir árið 2020,
sem er vissulega rétt. Að því er
heimildir Morgunblaðsins herma
er þó hugsanlegt að Nói Síríus hafi
sett inn ákvæði þar sem fyrirtækið
getur sömuleiðis keypt Orkla út úr
fyrirtækinu að nýju að framan-
greindum tíma liðnum.
Mikil ánægja með kaupin
Í fréttatilkynningu sem send var
fjölmiðlum lýstu stjórnendur
beggja fyrirtækja yfir mikilli
ánægju með samninginn. „Við er-
um mjög ánægð með þessa niður-
stöðu og hlökkum til að vinna með
Orkla að rekstri félagsins. Nói-
Siríus byggist á rótgrónum og
traustum grunni og munum við
halda áfram þeirri vegferð sem
fyrirtækið hefur verið á undan-
farin ár,“ er haft eftir Finni.
Jeanette Hauan Fladby, for-
stjóri Orkla, tók í svipaðan streng.
„Við sjáum mikil tækifæri til að
skapa virði með því að nýta styrk-
leika fyrirtækjanna þvert á mark-
aði, auka skilvirkni í framleiðslu
Nóa-Síríusar og styrkja stöðu
Orkla á Íslandi, sem er vaxandi
markaður.“
Tilboð Orkla afar gott
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nói-Síríus Greint var frá því í gær að Orkla hefði keypt um 20% eignarhlut.
Nói-Síríus verði hugsanlega alfarið í eigu Orkla innan tveggja ára Tilboðið
umtalsvert betra en boð annarra fjárfesta Deildar meiningar um kauprétti
króna miðað við 680 milljóna króna
tap á sama tímabili í fyrra. Samsett
hlutfall nam 94,5% miðað við
105,2% fyrir annan ársfjórðung í
fyrra. Sé litið til afkomu síðustu sex
mánaða nemur heildarhagnaður
tímabilsins 2.601 milljón króna í
samanburði við 119 milljónir króna
í fyrra. Samsett hlutfall nemur
96,2% en nam 101,3% í hálfsárs-
uppgjöri Sjóvár í fyrra. Eignir Sjó-
vár námu 51,8 milljörðum króna 30.
júní sl., eigið fé 15,7 milljörðum
króna og skuldir 36,2.
Heildarhagnaður tryggingafélags-
ins Sjóvár nam 1.548 milljónum
króna á öðrum ársfjórðungi í sam-
anburði við 630 milljóna króna tap
á sama tímabili í fyrra sem rekja
má til nokkurra stórra tjóna að
sögn Hermanns Björnssonar, for-
stjóra Sjóvár, í tilkynningu.
Hagnaður af vátrygginga-
starfsemi fyrir skatta nam 578
milljónum króna en 47 milljónum
króna á öðrum ársfjórðungi í fyrra.
Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi
fyrir skatta nam 1.184 milljónum
Hagnaður Sjóvár 1,5 milljarðar króna
Hagnaður Miklar sveiflur eru á vátryggingarekstri Sjóvár á milli ára.
23. ágúst 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.09 124.69 124.39
Sterlingspund 150.46 151.2 150.83
Kanadadalur 93.29 93.83 93.56
Dönsk króna 18.467 18.575 18.521
Norsk króna 13.853 13.935 13.894
Sænsk króna 12.862 12.938 12.9
Svissn. franki 126.61 127.31 126.96
Japanskt jen 1.1654 1.1722 1.1688
SDR 170.14 171.16 170.65
Evra 137.71 138.49 138.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.1121
Hrávöruverð
Gull 1499.65 ($/únsa)
Ál 1755.5 ($/tonn) LME
Hráolía 60.11 ($/fatið) Brent
Félagið NT ehf.
keypti í gær
hluti fyrir 76
milljónir króna í
Icelandair
Group. Gengu
viðskiptin í gegn
á genginu 7,15.
NT er að fullu
leyti í eigu Óm-
ars Benedikts-
sonar, varafor-
manns stjórnar Icelandair Group.
Hann átti ekki hluti í félaginu fyrir
viðskiptin. Bréf Icelandair hækk-
uðu nokkuð í Kauphöll eftir við-
skiptin eða um 2,1% og standa nú í
genginu 7,28.
Markaðsverðmæti Icelandair
nemur nú 39,6 milljörðum króna.
Eigið fé félagsins nam 53,6 millj-
örðum króna í lok júnímánaðar.
Keypti í
Icelandair
Ómar
Benediktsson
Félagið hækkaði
í kjölfarið um 2,1%
Talsverð umskipti urðu á rekstri
Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) á
öðrum ársfjórðungi þessa árs frá því
sem var sama
tíma í fyrra.
Hagnaður tíma-
bilsins var ríflega
1,3 milljarðar
króna, en í fyrra
nam tap sama
tímabils 140 millj-
ónum króna.
Rekja má góða
afkomu ársfjórð-
ungsins til ávöxt-
unar fjárfestingaeigna sem skilaði
nær 1,5 milljörðum króna. Til sam-
anburðar hafði sú upphæð numið
334 milljónum króna árið áður.
Tekjur tímabilsins jukust um 30,1%
milli ára og voru tæplega 10,3 millj-
arðar króna. Samsett hlutfall var
96,8%, en það var ríflega 109,9% í
ársfjórðungnum í fyrra.
Sé horft til fyrstu sex mánaða árs-
ins jókst hagnaður verulega og fór
úr 149 milljónum króna í fyrra í 1,7
milljarða króna árið 2019. Samtals
jukust fjárfestingatekjur um 127,3%
á fyrri helmingi ársins og námu ríf-
lega 2,4 milljörðum króna.
Samkvæmt uppfærðri rekstr-
arspá gerir TM ráð fyrir að hagn-
aður ársins fyrir tekjuskatt verði um
2,7 milljarðar króna. Þá var einnig
greint frá því að niðurstaða í við-
ræður TM um kaup á Lykli mundu
liggja fyrir í september.
Engin viðskipti voru með hluta-
bréf TM í Kauphöll Íslands í gær, en
gengið stendur nú í 31,1 kr.
aronthordur@mbl.is
Umskipti í
rekstri TM
milli ára
TM Uppgjör.