Morgunblaðið - 23.08.2019, Side 14

Morgunblaðið - 23.08.2019, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Boris John-son, for-sætisráð- herra Bretlands, ferðaðist nú í vik- unni til bæði Berlínar og Parísar í þeirri von að hann gæti fengið Angelu Merkel Þýskalands- kanslara og Emmanuel Macron Frakklandsforseta til þess að samþykkja breyt- ingar á samkomulaginu, sem Theresa May, fyrirrennari Johnsons, fékk úr hendi Evrópusambandsins. Verkefni Johnsons er ær- ið; enda þótt May hafi sagt það samkomulag hið „besta“ sem völ væri á eru mörg ákvæði þess einfaldlega ekki sæmandi fullvalda ríki. Enda var samkomulagið jafnframt sagt eina samkomulagið sem í boði væri og þar með var það einnig versta samkomu- lag sem völ var á, eins og Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, benti á. Neðri deild breska þings- ins, sem þó er skipuð að meirihluta fólki sem virðist frekar vilja koma í veg fyrir útgönguna en að framfylgja vilja þjóðar sinnar, áttaði sig á þessu og kom í veg fyrir það í þrígang að samkomu- lagið yrði samþykkt. Þrátt fyrir það neituðu bæði May og forráðamenn Evrópusambandsins að ljá máls á því að samkomulag- inu yrði breytt. Þess í stað var farið enn dýpra í skot- grafirnar með að það sem lægi á borðinu væri það eina sem væri í boði og að því yrði ekki breytt með nokkrum hætti. Með nýjum vendi í Down- ingstræti 10 hafa komið ný skilaboð þaðan: Bretar gætu með engu móti fallist á sam- komulagið eins og það er nú. Johnson hefur enda lýst því yfir að verði engu breytt muni Bretar yfirgefa Evr- ópusambandið 31. október næstkomandi, með eða án samkomulags. Johnson hef- ur lagt áherslu á að breyta verði allra versta ákvæði samkomulagsins, norður- írska „varnaglanum“ svo- nefnda, sem á að tryggja að landamæri ríkjanna á Ír- landi haldist opin, hvað sem tautar og raular. Svörin frá Brussel hafa hins vegar haldist óbreytt. Samkomulagið, sem var vissulega frábært frá sjónar- hóli Evrópusambandsins en ekki Breta, yrði að vera samþykkt án þess að hnikað yrði til svo mikið sem einni kommu. Það var fyrst nú á miðvikudaginn sem Merkel, nýkomin úr Ís- landsför sinni, léði máls á því að hægt yrði að finna lausn á landamæravandanum. Þau skilaboð komu þó ekki án skilyrða og lausn þyrfti að finnast innan 30 daga. Johnson þáði þann tíma- frest, en ljóst þykir að for- svarsmenn Evrópusam- bandsins hafa þegar gert lítið úr þeim lausnum sem forsætisráðherrann hefur áður nefnt á landamær- unum. Það er því spurning hvort þeir taka eitthvað bet- ur í þær núna, þrátt fyrir orð Merkel. Í París mætti Johnson öðru og verra viðmóti en hjá Merkel. Macron Frakk- landsforseti hefur einhverra hluta vegna viljað gera sjálf- an sig að harðlínumanni þeg- ar kemur að útgöngumál- unum. Þannig vildi hann helst ekki framlengja tíma- frest Breta, jafnvel þó að ljóst þætti að May ætti eng- an möguleika á að koma samkomulaginu í gegn, en áhyggjur annarra ríkja urðu til þess að hann lét undan í það sinn. Macron féllst þó á tillögu Merkel um að Bretar reyndu að finna lausn innan mánaðar, en blés jafnframt á möguleikann á að varnagl- anum yrði hent fyrir róða. Ljóst er að störukeppnin vegna Brexit-málsins mun halda áfram eitthvað fram á haustið. Vonandi er boð Merkel frekar til marks um það að embættismennirnir í Brussel séu farnir að átta sig á því að Johnson hyggst ekki, getur ekki og vill ekki bakka frá þeirri afstöðu sinni að betri sé enginn samningur en sá sem nú liggur fyrir. Ef til vill eygja þeir þá von að þingheimur- inn breski muni grípa í taumana, en víst er að Evr- ópusambandsríkin sjálf munu ekki koma betur und- an áföllum en Bretar, haldi þeir sig í skotgröfunum. Og ef breska þingið ákveður á síðustu stundu að gera ekkert með vilja bresku þjóðarinnar þá er líka víst að breskir kjósendur munu minnast þess í næstu kosn- ingum. Macron og Merkel gefa misvísandi skilaboð um Brexit} Störukeppnin heldur áfram M innist ég þess er ég kynnti í ríkisstjórn drög að þingsálykt- un um að slíta viðræðum við Evrópusambandið. Skelfing greip um sig hjá sjálfstæðis- mönnum þar sem þeir töldu sig ekki geta klár- að málið þrátt fyrir að þingforseti væri þeirra og stjórnin með góðan þingmeirihluta. Önnur leið var farin, en nokkrir gamlir sjálfstæðis- menn geta ekki fyrirgefið sínum mönnum það. Hinn útitekni þingflokkur sjálfstæðismanna kannast ekki við eigin ábyrgð nú sem fyrr og hefur ekki getað sagt kjósendum hvað er svona gott við orkupakkann, þrátt fyrir hringferð á ís- bílnum. Frá kosningum 2013 hefur Sjálfstæðis- flokkurinn stýrt utanríkismálanefnd. Flokkur- inn var einnig með formennsku í atvinnuvega- nefnd 2013 til janúar 2017 og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Flokkurinn hefur stýrt iðnaðarráðuneyt- inu frá 2013. Núverandi utanríkisráðherra flokksins sat í utanríkismálanefnd 2013-2014 og var formaður Íslands- deildar þingmannanefnda EFTA og EES í mörg ár áður en hann varð ráðherra. Hinn 18. mars 2015 sendir formaður utanríkismála- nefndar Birgir Ármannson utanríkisráðherra (mér) bréf þar sem segir: „Utanríkismálanefnd hefur, í samræmi við 2. gr. reglan um þinglega meðferða EES-mála, fjallað um svokallaðan þriðja orkupakka (tilskipun 2009/72/EB o.fol.) til mats á því hvort efnislegra aðlagana sé þörf. Málið er til umfjöllunar í vinnuhópi EFTA og var utanríkismálanefnd upplýst um málið með skeyti frá utanríkisráðuneyti dags. 5. mars 2014 ásamt fylgigöngum. Tilskipunin hefur fengið efnislega umfjöllun í atvinnuveganefnd og stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd. Utanríkismálanefnd ákvað í kjölfar álits nefndanna að taka málið til frekari skoð- unar, þá sérstaklega útfærslu aðlagana og stjórnskipuleg álitaefni sem uppi eru í þeim efnum og hefur fengið sérfræðinga ráðuneyta á fundi vegna málsins. Utanríkismálanefnd óskar eftir því að unnin verði greinargerð um það hvort þau drög að að- lögunartexta sem nú liggja fyrir og þær út- færslu sem þar er kveðið á um á grundvelli tveggja stoða kerfis EES-samningsins sam- rýmist stjórnarskrá.“ Hinn 26. júní 2016 svarar utanríkisráðu- neytið erindi Birgis en þá er utanríkisráðherra orðin Lilja Dögg Alfreðsdóttir. 20 september 2016 sendir þáverandi formaður utanríkismála- nefndar, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilju Dögg Al- freðsdóttur utanríkisráðherra bréf þar sem hún segir að utanríkismálanefnd hafi lokið umfjöllun um málið. Guð- laugur Þór keyrir síðan málið áfram. Sjálfstæðismenn hafa þannig stýrt orkupakka 3 í gegn- um þingið frá 2013 og til dagsins í dag. ESB mun krefjast enn meiri stjórnar á orkumarkaði Evrópu og þar með Íslandi með orkupakka 4. Vonandi gyrða sjálfstæðismenn sig í brók og koma með okkur í Miðflokknum að berjast gegn þessum yfirgangi ESB. gunnarbragi@althingi.is Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Að gyrða sig í brók, sjálfstæðismenn Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og varafor- maður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Mike Pence, varaforsetiBandaríkjanna, er vænt-anlegur til Íslands 4.september. Mun hann einnig sækja Bretland og Írland heim í ferð sinni og hitta þar m.a. forsætis- ráðherra, utanríkisráðherra og for- seta Írska lýðveldisins. Er þetta í þriðja skipti sem sitjandi varaforseti Bandaríkjanna sækir Ísland heim, en áður voru það þeir Lyndon B. John- son, árið 1963, og George H.W. Bush, árið 1983. Bæði Johnson og Bush áttu fund með þáverandi forsætisráðherra. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra mun ekki taka á móti Pence við komu hans hingað. Mun hún þess í stað sitja norrænt verkalýðsþing og hefur hún í samtali við Morgunblaðið sagst ekki sjá ástæðu til að breyta áformum. Þessi ákvörðun forsætis- ráðherra hefur fangað athygli fjöl- miðla og stjórnmálaskýrenda, hér heima og erlendis. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við stjórnmála- fræðideild Háskóla Íslands, segir það „óvenjulegt“ að forsætisráðherra landsins skuli ekki taka á móti vara- forsetanum. „Það er greinilegt að þetta hefur vakið töluverða athygli erlendis og augljóst að margir túlka þetta sem svo að hún sé að láta í ljós afstöðu sína til ríkisstjórnar Trumps, hvort sem það er rétt eða rangt,“ segir Ólafur, en sumir fjölmiðlar erlendis hafa m.a. tengt þessa ákvörðun Katrínar við ný- lega uppákomu milli Bandaríkjanna og Danmerkur. Hætti þar Donald Trump Bandaríkjaforseti skyndilega við opinbera heimsókn sína til Dan- merkur eftir að ráðamenn þar og í Grænlandi hófu að tjá sig um hug- mynd sem sögð er koma úr Hvíta hús- inu um hugsanleg kaup á Grænlandi. Aðspurður segist Ólafur ekki eiga von á því að fjarvera Katrínar muni skaða samskipti Íslands og Bandaríkjanna til lengri tíma. „Sam- skipti Bandaríkjanna við vini sína og bandamenn í Evrópu eru þó vægast sagt mjög einkennileg þessi miss- erin,“ segir hann. Fágætt tækifæri glatast Morgunblaðið setti sig í samband við alla formenn þingflokka á Alþingi og spurði þá út í ákvörðun forsætis- ráðherra. Þingflokksformenn stjórnarflokka auk Pírata og Flokks fólksins voru jákvæðir í garð þeirrar ákvörðunar Katrínar að vera erlendis þegar Pence kemur, en fulltrúar Mið- flokksins, Viðreisnar og Samfylk- ingar gagnrýndu fjarveruna mjög. „Þessi ákvörðun forsætisráð- herra er í besta falli stórundarleg. Hér er að líkindum um að ræða ann- an valdamesta mann heims, varafor- seta ríkis sem hefur verið helsti bandamaður okkar, og við höfum átt í sérstöku samstarfi við Bandaríkin áratugum saman. Mér finnst því mjög sérstakt af forsætisráðherra að hitta ekki þennan mann,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks Miðflokksins, og bætir við að hann gefi lítið fyrir skýringar Katrínar á fjarveru sinni. „Þetta eru rök sem halda engu. Þarna er hún fyrst og fremst að taka hagsmuni flokks síns fram yfir hags- muni lands og þjóðar. Fyrir Ísland skiptir jú meira máli að eiga í góðu samstarfi og samskiptum við Banda- ríkin en verkalýðsforystuna á Norðurlöndum. Auk þess efast ég ekki um að forkólfar verkalýðshreyf- inga muni skilja það að forsætisráð- herra þurfi að taka á móti varaforseta Bandaríkjanna,“ segir hann. Oddný G. Harðardóttir, formað- ur þingflokks Samfylkingar, segir Ís- land missa af tækifæri til að koma mikilvægum skilaboðum á framfæri við varaforsetann milliliðalaust. Á hún þar við áherslur Íslands í lofts- lags-, mannréttinda- og jafnréttis- málum, en Oddný segir Katrínu hafa vigt í þessum málaflokkum og því hefði fundur hennar með Pence getað skipt máli. „Það að velja frekar að tala við verkalýðsleiðtoga á Norður- löndum er bara eins og að messa yfir eigin söfnuði.“ Hanna Katrín Friðriksson, for- maður þingflokks Viðreisnar, segir í ljósi fyrri samskipta við Bandaríkin það „æskilegt“ fyrir forsætisráðherra að taka á móti Pence. „Hún hefði átt að nýta tækifær- ið, taka á móti honum og ræða brýn málefni á borð við loftslagsmál og ör- yggis- og varnarmál. En hún for- gangsraðar auðvitað sínum verk- efnum,“ segir Hanna Katrín og bætir við: „Ég verð samt að segja að ég er mjög hissa á þessari forgangsröðun því forsætisráðherra Íslands á alla jafna gott aðgengi að aðilum vinnu- markaðar á Norðurlöndum.“ Katrín útskýrt málið vel Birgir Ármannsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir forsætisráðherra hafa gefið skýr- ingar á aðstæðum sínum. „Hún met- ur sína stöðu í þessu og hvaða skuld- bindingum hún hefur að gegna. Ég hef ekki athugasemdir við það.“ Willum Þór Þórsson, formaður þingflokks Framsóknar, tekur í svip- aðan streng. „Forsætisráðherra hef- ur útskýrt þetta ágætlega sjálf.“ Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður þingflokks Pírata, segist skilja Katrínu vel. „Ég myndi ekki vilja hætta við mín plön til að hitta ná- kvæmlega þennan mann.“ Þá segist Guðmundur Ingi Kristinsson, formaður þingflokks Flokks fólksins, skilja vel að Katrín vilji síður breyta fyrri áformum. Fjarvera forsætis- ráðherra óvenjuleg AFP Á leiðinni Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, er væntanlegur hingað til lands. Að öllu óbreyttu mun forsætisráðherra þó ekki hitta Pence.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.