Morgunblaðið - 23.08.2019, Side 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
✝ Sigvaldi PállGunnarsson
fæddist á Ólafsfirði
19. desember 1962.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 8.
ágúst 2019.
Foreldrar hans
eru Fjóla Bára
Finnsdóttir, f. 8.
október 1939, og
Gunnar Þór Sig-
valdason, f. 15. október 1938.
Systkini hans eru: Sigurbjörn
Finnur, f. 24. mars 1960, maki
Bozena Ewa Borchert, f. 24. jan-
úar 1967. Börn hans eru Stein-
grímur Arnar og Bára; Sigríð-
ur, f. 23. október 1964, maki
Hjörtur Hjartarson, f. 13. októ-
ber 1961. Börn hennar eru Seb-
astian Atli og Gunnar Hubert.
Sigvaldi giftist Bjarnheiði Er-
lendsdóttur 26. ágúst 1995.
húsum á Ólafsfirði til átján ára
aldurs. Hann hélt suður til
Reykjavíkur til að afla sér frek-
ari menntunar. Hann fór í Iðn-
skólann og nam þar bifvéla-
virkjun. Hann starfaði við það í
nokkur ár en þá togaði sjó-
mennskan. Hann var til sjós á
skipum í eigu fjölskyldunnar.
Fyrst á Sólbergi ÓF og síðan á
frystitogaranum Mánabergi ÓF.
Þegar hann kynntist Bjarnheiði
fór hann aftur í land og starfaði
með henni fyrst hjá garð-
yrkjudeild Hafnarfjarðarbæjar
og síðar fóru þau saman til
starfa hjá Keflavíkurbæ, við
sameiningu Reykjanesbæjar, og
störfuðu þar saman í allmörg
ár, Sigvaldi sem verkstjóri
garðyrkjudeildar/forstöðu-
maður vinnuskóla en Bjarnheið-
ur sem garðyrkjustjóri. Þeir
bræður Sigvaldi og Finnur ráku
saman Eðalvagnaþjónustuna og
Vitamin.is um árabil og síðar
bílaþvottastöðvar, sem varð
þeirra aðalatvinna.
Útför Sigvalda fer fram frá
Vídalínskirkju í Garðabæ í dag,
23. ágúst 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Börn þeirra eru:
Freydís Björk, f.
18. nóvember 1990.
Sambýlismaður
Þorbergur Atli
Þorsteinsson, f. 8.
október 1984, og
Gunnar Þór, f. 8.
september 1998.
Sambýliskona Eva
María Oddsdóttir,
f. 14. maí 1999.
Fyrir átti Bjarn-
heiður tvö börn: Evu Björk
Ægisdóttur, f. 25. ágúst 1977,
og Adam Bjarka Ægisson, síðar
Sigvaldason, f. 24. janúar 1981.
Á hann þrjú börn: Tönju Björk,
f. 14. mars 2007, Hrafnkel Inga,
f. 19. október 2008, og Veigar
Jökul, f. 8. desember 2015.
Adam á einn stjúpson, Þorstein
Inga Aðalheiðarson, f. 3. apríl
2001.
Sigvaldi ólst upp í föður-
Elsku pabbi minn, þú varst
besti vinur minn. Við stóðum
saman í gegnum súrt og sætt en
alltaf varstu jákvæður, sama
hvað kom upp á. Þú varst alltaf
með opinn faðm og kenndir mér
frá fæðingu að reyna mitt besta
og að horfa alltaf á björtu hlið-
arnar og gera mitt besta. Það er
því að þakka að ég er maðurinn
sem ég er í dag. Alltaf þegar mér
leið illa eða meiddi mig reyndir
þú að láta mig brosa, sama hvað
var að. Ég á frábærar minningar
með þér sem aldrei gleymast og
þú sýndir mér og kenndir að mað-
ur á alltaf að reyna sitt besta. Það
hjálpaði mér í gegnum alla æsku
mína og mun líka halda áfram að
hjálpa á efri árum. Og þetta áfall,
að þú sért farinn, mun reyna á en
þú verður alltaf í hjartastað og ég
mun reyna mitt besta að halda
áfram og brosa. Þú varst alltaf
svo góður og frábær og ég mun
alltaf elska þig og vera þakklátur
fyrir að þú varst faðir minn. Takk
fyrir allt það frábæra sem lífið
hefur upp á að bjóða.
Sjáumst síðar.
Gunnar Þór Sigvaldason.
Elsku besti pabbi minn, ég
skrifa þessi orð til þín með tárin í
augunum. Í tæplega 29 ár þekkti
ég þig og má með sanni segja að
það hafi verið bæði frábær og
gleðileg ár. Þú varst einstakur
maður, alltaf svo glaður, jákvæð-
ur, hjartagóður, bjartsýnn,
traustur og vildir allt fyrir alla
gera. Lífsgleðin þín smitaði okk-
ur öll. Þegar ég kom í þennan
heim varðst þú mjög fljótt í uppá-
haldi hjá mér, þú sýndir og gafst
mér endalausa ást og umhyggju
og varst mikið með mig. Fjórtán
árum seinna byrja ég að vinna hjá
þér í Kringlubóni með skóla, fæ
svo fullt starf eftir grunnskóla.
Nokkrum árum seinna bætist
Gæðabón í fjölskylduna og færi
ég mig þangað. Þú ákveður að
slást í hópinn með okkur á gólfinu
nokkru síðar mér til mikillar
ánægju. Ég kem aldrei til með að
gleyma þessum skemmtilega
tíma. Þarna kynntist ég nýrri hlið
á þér og verð ég að segja að þú
varst jafn góður yfirmaður og
faðir. Samband okkar hefur alltaf
verið náið en þökk sé þessum
tíma saman varð það enn nánara
og þú fékkst einnig að kynnast
mér betur. Ég er svo ótrúlega
þakklát og heppin að eiga þig sem
föður, fyrir allar minningarnar og
góðu stundirnar. Betri pabba er
ekki hægt að óska sér. Þú ert
hetjan mín og fyrirmynd. Ég
mun alltaf muna þig.
Elsku pabbi, takk fyrir að vera
þú og allt sem þú hefur verið fyrir
okkur öll. Ég virði þig, elska þig
og kveð þig með miklum söknuði,
við sjáumst síðar. Þín dóttir,
Freydís Björk.
Það var um vetur að ég hitti
Sissa í fyrsta sinn þegar ég kom í
heimsókn til Heiðu vinkonu
minnar í Hafnarfirði að kíkja á
nýja fjallmyndarlega kærastann
hennar. Ég man hvað hann var
kurteis og örlítið feiminn en þeg-
ar við vorum búin að drekka
nokkra bolla af kaffi og rabba um
heima og geima fékk ég á tilfinn-
inguna að hann væri vandaður
maður eins og seinna átti svo
sannarlega eftir að koma á dag-
inn. Það sem heillaði mig samt
mest við þessi fyrstu kynni okkar
var ástin sem hann sýndi Heiðu
og hvernig augu þeirra glömpuðu
þegar þau horfðu hvort á annað
eða hlógu eins og krakkar í fjör-
ugum samræðum við eldhúsborð-
ið sem mér þótti einkum gaman
að vera partur af. Það var líka
hans rólega yfirbragðið og hnytt-
in tilsvör sem drógu mig að hon-
um enda vorum við aldrei í vand-
ræðum með umræðuefni – allt
óþvingað og fljótandi. Þessir
eiginleikar hans gerðu einnig að
verkum að litlu börnin hennar
Heiðu drógust ósjálfrátt að hon-
um og leið ekki langur tími þar til
þau litu á hann sem föður, Sissa
til mikils stolts og gleði, enda
elskaði hann þau bæði sem sín
eigin börn. Og eftir að litla dóttir
þeirra fæddist, hún Freydís,
ljómaði hann eins og sólin þegar
ég kom í heimsókn og mátti varla
af henni líta. Því var ég fjarska-
lega glöð þegar mér var sýndur
sá mikli heiður að gæta hennar
þegar þau brugðu sér af bæ í eitt
sinnið og tímdi varla að skila
henni aftur. Það sama gerðist
þegar Gunnar fæddist. Hef það
ljóslifandi í huga mér þar sem
Sissi sat með hann nýfæddan í
fanginu þegar ég kom í heimsókn,
augun glitrandi af hamingju og
röddin heit af stolti. Og árin liðu
og börnin uxu úr grasi í þessu
umvefjandi öryggi sem hann gaf
þeim öllum með sinni góðu nær-
veru og vel ígrunduðum skoðun-
um, bæði á mönnum og málefn-
um, sem margt mátti læra af
enda lagði hann metnað sinn í að
vera þeim öllum bæði traustur
faðir og vinur. Hann studdi þau
hvert fyrir sig áfram í hverju því
sem þau höfðu áhuga á, með far-
sæld þeirra og lífshamingju í fyr-
irrúmi, ráðagóður og hvetjandi.
Seinna átti Sissi eftir að sýna mér
það sama viðmót algerlega óum-
beðinn. Standa tryggur við hlið
mér þegar viðskiptadraumar
hrundu og gefa mér þá dýrmætu
gjöf að vera vinur minn, sama
hvað gerðist, traustur eins og
klettur í ólgusjó sem brimið beit
ekkert á. Það er það sem ég er
þakklátust fyrir af öllu. Að hann
varð jafn heilsteyptur og traustur
vinur minn eins og Heiða, eða þau
tvö, enda voru þau samstiga sem
einn hugur, og sagði hann oft með
sannfæringarkrafti í röddinni að
ást þeirra Heiðu og samheldni
væri það afl sem gerði þeim sem
hjónum mögulegt að mæta hvers
konar erfiðleikum sem yrðu á
vegi þeirra, með styrk og yfirveg-
un, enda fá pör sem ég hef hitt um
ævina sem áttu sömu djúpu vin-
áttuna og þau. Og það var mikill
sannleikur í orðum hans að ekk-
ert afl væri sterkara en samheld-
in hjón. Þetta hugarfar einkenndi
hann alla ævi, bæði á góðum og
gjöfulum stundum, gegnum veik-
indin og allt til hans síðasta dags
þar sem hann hafði með hjálp
Freydísar hagrætt þannig hlut-
unum að úthugsuð og óvænt af-
mælisgjöf beið Heiðu á dánarbeð-
inum, þar sem hann hafði
dauðveikur með síðustu kröftun-
um náð því takmarki að lifa fram
á afmælisdag hennar. Þannig
hafa örlögin bundið svo um að sá
dagur er orðinn dagurinn þeirra
beggja – tvinnaður saman til ei-
lífðar eins og töfrum líkast.
Ég sendi Heiðu mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur, börnum,
systkinum og öldruðum foreldr-
um.
Blessuð sé minning þín.
Hellen Linda Drake.
Meira: mbl.is/minningar
Sigvaldi Páll
Gunnarsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi Sissi.
Ég elska þig svo mikið,
þú varst alveg æðislegur
afi.
Það er svo leiðinlegt að
þú fórst en ég veit að þú
ferð aldrei alveg.
Þú verður alltaf innra
með okkur.
Þú varst skemmtilegur,
fyndinn, góður, hugrakkur
og það var svo gaman að
spila við þig.
Nú ertu á góðum stað
hjá Guði með öðrum engl-
um.
Vonandi líður þér vel
þarna uppi, elsku afi.
Ég elska þig rosalega
mikið.
Þín afastelpa,
Tanja Björk.
Elsku afi.
Ég elskaði þig mikið og
þú varst svo skemmtilegur.
Það er svo sorglegt að þú
sért farinn.
Þinn afastrákur,
Hrafnkell Ingi.
✝ Greta MaríaSigurðardóttir
fæddist 26. október
1941 í Reykjavík.
Hún lést á Land-
spítalanum 17.
ágúst 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurður
Páll Samúelsson, f.
7. nóvember 1910,
d. 23. nóvember
1993, og Þórunn
Jónsdóttir, f. 31. ágúst 1914, d.
6. júní 2000.
Systkini Gretu Maríu eru þau
Jón Baldur, f. 8. október 1937, d.
28. apríl 2015, og Karitas
dísar eru Styrmir og Sindri. 3)
Þórunn Sif, f. 9. febrúar 1964,
dóttir hennar er Aþena Eydís
Kolbeinsdóttir. 4) Sigurður Arn-
ar, f. 10. janúar 1966, eiginkona
Sigríður Jónasdóttir, börn
þeirra eru Auður Arna, Brynja,
Bjarki og Fannar. Hún átti tvö
barnabarnabörn.
Greta María gekk í Laugar-
nesskóla, Gagnfræðaskólann við
Lindargötu og síðar Gagn-
fræðaskóla verknáms sem var
til húsa í Brautarholti 18.
Greta María var heimavinn-
andi húsmóðir á fyrstu árum
barna sinna en þegar fjöl-
skyldan fluttist til Svíþjóðar
1969 hóf hún störf hjá sjúkra-
húsinu í Malmö. Fjölskyldan
fluttist heim 1973 og hóf Greta
María þá störf sem talsíma-
vörður hjá talsambandi við út-
lönd. Þegar sjálfvirkt talsam-
band við útlönd komst á færði
hún sig yfir til Menningarstofn-
unar Bandaríkjanna og starfaði
þar, og síðar í sendiráði Banda-
ríkjanna, sem fulltrúi. Starfs-
ævinni lauk Greta María sem
fulltrúi í flugkortadeild Flug-
málastjórnar á Reykjavíkur-
flugvelli.
Greta María sinnti ýmsum fé-
lagsstörfum um ævina, var
t.a.m. formaður Slysavarna-
deildar kvenna í Reykjavík um
nokkurra ára bil og tók þátt í
International Women’s Club er
hún starfaði í sendiráðinu. Hún
starfaði einnig með kynningar-
klúbbnum Björk. Þá var hún til
æviloka systir í Rebekkustúku
Oddfellow nr. 04, Sigríði, og
vann þar m.a. að góðgerðar-
málum.
Útför Gretu Maríu fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag, 23. ágúst 2019, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Þórunn, f. 7. nóv-
ember 1949.
Greta María
gekk að eiga Böðv-
ar Pál Ásgeirsson,
húsasmíðameistara
og matsmann, 19.
maí 1962. Böðvar
fæddist 11. febrúar
1941. Börn þeirra
eru: 1) Þóra
Brynja, f. 3. desem-
ber 1960, eigin-
maður Árni Friðriksson, dóttir
þeirra er Greta María. 2) Ásgeir
Baldur, f. 8. október 1962, maki
Hjördís Arnardóttir, sonur Ás-
geirs er Böðvar Páll, synir Hjör-
Kveðja til móður, ömmu og
tengdamóður.
Þótt sólin nú skíni á grænni grundu,
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kölluð á örskammri
stundu,
í huganum hrannast uppsorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga
og góða,
svo gestrisin, einlæg og hlý.
En örlög þín ráðin – mig setur hljóða,
við hittumst ei framar á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó komin sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Höf. ókunnur)
Ásgeir Baldur, Böðvar
Páll og Hjördís.
Það getur verið erfitt að sætta
sig við hvað lífið er hverfult, sér í
lagi þegar kemur að því að kveðja
ástvini. Amma okkar var stór-
kostleg kona, hjartahlý, fyndin,
góð og tók öllum opnum örmum.
Það var alltaf nóg að gera hjá
henni þar sem allir sem komu
þeim hjónum nálægt vildu hafa
þau með í öllum partíum þar sem
þau voru hrókar alls fagnaðar.
Enginn fór nokkurn tímann
svangur heim frá ömmu því hún
hafði yfirleitt mestar áhyggjur af
því að ekki væri til nægur matur
fyrir alla sem var þó aldrei raunin
og við munum líklega sakna þess
mikið að fá vöfflur og ömmukök-
ur í hvert skipti sem við förum í
heimsókn í Sandavaðið.
Það er mikill missir fyrir okk-
ur öll að sjá á eftir ömmu yfir
móðuna miklu, enda auðgaði hún
líf allra sem hún kynntist. Við
systkinin erum þakklát fyrir allar
stundirnar sem við áttum með
ömmu, og þó að við óskum þess
að þær hefðu orðið miklu fleiri þá
mun minning hennar lifa með
okkur um ókomna tíð og ylja okk-
ur um hjartað á erfiðum stund-
um. Við minnumst þess sérstak-
lega þegar við vorum lítil og
fengum næturpössun hjá ömmu
og afa, þá söng amma okkur alltaf
í svefn og mun þetta textabrot úr
„Komdu inn í kofann minn“ ávallt
minna okkur á hana og þessar
stundir:
Komdu inn í kofann minn,
er kvölda og skyggja fer.
Alltaf brennur eldurinn
á arninum hjá mér.
Ég gleymdi einni gjöfinni,
og gettu, hver hún er.
Ég gleymdi einni gjöfinni,
ég gleymdi sjálfum mér.
(Davíð Stefánsson)
Góða ferð elsku amma.
Þín barnabörn,
Auður Arna, Brynja,
Bjarki og Fannar.
Kynni okkar hófust 1981 í
Eyktarási. Böðvar og Greta
höfðu byggt sér fallegt hús á
númer sjö og við bjuggum beint á
móti þeim. Strax við fyrstu kynni
fann ég hvað Greta var yndisleg
og hafði góða nærveru. Það var
mikill samgangur næstu árin og
mér fannst ég hafa eignast við-
bótarfjölskyldu. Við Greta vorum
saman í alls konar klúbbum;
saumaklúbbi, kynningarklúbbn-
um Björk, gourmet-klúbbi og
International Women’s. Hún var
með stórt hjarta og mikla útgeisl-
un og það var alltaf gaman að
vera með henni í stórum hópi eða
bara við tvær. Ég grét þegar hún
og Böðvar fluttu í Garðabæ því
ég var svo hrædd um að við
myndum ekki hittast eins oft. En
það var ekki þannig og vinskap-
urinn hélt áfram.
Elsku vinkona, nú er komið að
kveðjustund og ég er afar þakk-
lát fyrir samfylgdina í gegnum
árin.
Elsku Böðvar, Þóra, Ásgeir,
Sif, Siggi og fjölskyldur, við Við-
ar sendum ykkur innilegustu
samúðarkveðjur.
Anna Kristín Einarsson.
Með sérstakri hlýju og sökn-
uði minnist ég nú Gretu Maríu,
þessarar elskulegu konu sem ég
hef þekkt frá barnæsku. Margar
minningar allt frá barnæsku
tengjast Gretu. Hún var ung
þegar hún kynntist frænda mín-
um, Böðvari, og sambúð þeirra
hefur varað í meira en sextíu ár.
Samgangur milli móður Böðvars,
Þóru frænku, og minnar fjöl-
skyldu var mikill þegar Greta
kom inn í fjölskylduna. Móðir
mín Auður og Þóra voru systur.
Þóra bjó með foreldrum sínum
eftir að hún missti mann sinn Ás-
geir ungan, þannig að þrjár kyn-
slóðir bjuggu saman á Leifsgöt-
unni, móðurafi minn og amma og
svo Þóra með börnin sín tvö,
Bödda og Biddu eins og þau voru
kölluð. Greta bættist í hópinn 18
ára og varð strax ein af fjölskyld-
unni. Hún var svo fjörug,
skemmtileg og góð og öllum leið
vel í návist hennar. Það var henn-
ar aðalsmerki.
Varla er hægt að minnast á
Gretu Maríu án þess að Böðvar
sé nefndur um leið. Þau urðu ung
par, eignuðust fjögur börn og
gerðu alltaf allt saman og voru
bestu félagar hvort annars.
Missir Bödda er mikill. Greta
kunni að gleðjast yfir lífinu og
njóta þess sem lífið bauð henni.
Raungóð og heil í samskiptum.
Hún var góð fyrirmynd, elskaði
börnin sín og barnabörn. Öllum
leið alltaf vel hjá Gretu og allir
voru alltaf velkomnir. Alltaf
gaman að spjalla og hlæja sam-
an. Greta elskaði að gera fallegt í
kringum sig, eiga fallega hluti og
gefa fallega hluti. Hún naut þess
að fara á „loppe“ í Danmörku
þegar hún var í heimsókn hjá
eldri dóttur sinni, gramsa og
finna ótrúlega fína muni sem hún
naut að gauka að manni. Ég naut
gjafmildi hennar, og á falleg
staup, dúka og fleira sem hún
fann og gaf við tækifæri.
Í nokkur ár bjuggu Böðvar og
Greta María í Malmö í Svíþjóð.
Það var örugglega góður tími.
Krakkarnir allir fæddir, og gam-
an að kynnast annars konar lífi
en heima á Íslandi, en árin 1966
og 67 fóru margir íslenskir iðn-
aðarmenn til Svíþjóðar í leit að
meiri vinnu en hægt var að fá hér
heima. Þau bæði og sérstaklega
Greta minntust áranna þeirra
þar með gleði. Þau ferðuðust þar
meira en annars hefði verið hægt
og eignuðust nýja vini og fengu
nýja og dýpri sýn á lífið og til-
veruna, eins og allir sem fara á
nýjar slóðir. Þau komu heim aft-
ur 1973 og þá tók við hið hefð-
bundna líf Íslendinga, að koma
sér upp húsnæði og vinna eins og
hægt var. Greta tók fullan þátt í
því og vann mikið. Hún vann t.d.
vaktavinnu á talsambandi við út-
lönd og gat þá verið heima á dag-
inn hjá börnunum. Fleiri vinnu-
staðir urðu þess aðnjótandi að
hafa Gretu í vinnu, en hún var alls
staðar alveg sérstaklega vinsæl,
vinnusöm og vinamörg.
Þegar ég náði aldri og eignað-
ist sjálf kærasta og eiginmann
urðu Greta og Böðvar vinir
okkar. Þó að rúmur áratugur í
aldri skildi að fundum við aldrei
fyrir því. Greta og Böddi urðu
aldrei gömul, þau áttu alltaf sam-
leið með öllum aldurshópum.
Við Þórður sendum kærum
frænda, Böðvari, börnum hans,
Þóru Brynju, Ásgeiri, Þórunni
Sif og Sigurði ásamt fjölskyldum,
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning
Gretu Maríu.
Lilja Héðinsdóttir.
Greta María
Sigurðardóttir
HINSTA KVEÐJA
Sofðu nú blundinum væra,
blessuð sé sálin þín hrein.
Minningin, milda og tæra,
merluð, í minningar stein.
Man ég þig ástkæra meyja,
meðan að lifi ég hér.
Minning sem aldrei skal deyja
samverustundin með þér.
(Bryndís Halldóra Jónsd.)
Kveðja frá systur og
fjölskyldu,
Karitas Þórunn
Sigurðardóttir.