Morgunblaðið - 31.08.2019, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 31.08.2019, Blaðsíða 9
Morgunblaðið/Ingó Rjúpur Leyft verður að veiða rjúpur samtals í 22 daga í nóvember. Leyft verður að veiða rjúpu fimm daga í viku, frá föstudegi til þriðju- dags, frá 1. til 30. nóvember. Sam- tals eru þetta 22 veiðidagar en á síðasta ári voru veiðidagarnir 15. Samkvæmt upplýsingum frá um- hverfis- og auðlindaráðuneytinu fylgir ráðherra með þessu ráðgjöf Umhverfisstofnunar, sem var unn- in í samstarfi við Náttúrufræði- stofnun Íslands, Fuglaverndarfélag Íslands og Skotvís. Á síðasta ári var heildarveiði miðuð við 67.000 rjúpur en ekkert viðmið er sett nú að gera hvað þeir geta til að særa ekki fugl umfram það sem þeir veiða m.a. með því að ljúka veiðum áður en rökkvar. Veiðiverndarsvæði verður áfram á Suðvesturlandi líkt og und- anfarin ár. Veiðimönnum er enn fremur bent á að kynna sér tak- markanir á veiðum á friðlýstum svæðum. Gengið er út frá að rjúpnaveiði verði með sama hætti árin 2020 og 2021 með fyrirvara þó um hugsan- legar breytingar. Fleiri veiðidagar á rjúpnaveiðum  Leyft að veiða fimm daga í viku í nóvember  Veiðibann verður áfram í gildi annað en að veiðimenn eigi að miða við veiði til eigin neyslu. Áfram veiðibann Áfram er í gildi sölubann á rjúp- um sem þýðir að óheimilt er að flytja út, bjóða til sölu eða selja rjúpur og rjúpnaafurðir. Mun Umhverfisstofnun fylgja sölubann- inu eftir. Í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu segir að veiði- menn séu eindregið hvattir til að sýna hófsemi og sérstaklega beðnir FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 Álagning opinberra gjalda á lögaðila árið 2019 vegna rekstrarársins 2018 fer fram í september nk. Forráðamenn lögaðila, sem enn hafa ekki staðið skil á skattframtali 2019 ásamt ársreikningi, eru hvattir til að annast skil hið allra fyrsta. Skráður lögaðili skal ætíð skila skattframtali vegna undangengins reikningsárs þrátt fyrir að engin eiginleg starfsemi eða rekstur hafi átt sér stað á reikningsárinu. Félög eiga jafnframt að skila ársreikningi til ársreikningaskrár. Skattframtali og ársreikningi ber að skila rafrænt á skattur.is Til forráðamanna hlutafélaga, einkahlutafélaga og annarra skattskyldra lögaðila um skil á skattframtali 2019 Áminning um framtalsskil lögaðila 442 1000 rsk@rsk.is Þjónustuver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Rafmagnshleðsluturnar fyrir Vest- mannaeyjaferjuna Herjólf eru nú komnir í Vestmannaeyjahöfn og Landeyjahöfn. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir að vonast sé til að uppsetningu þeirra ljúki í október eða nóvember og þá geti vélar skips- ins gengið fyrir rafmagni á leiðinni milli Eyja og Landeyjahafnar. Að sögn Guðbjarts Ellerts Jóns- sonar framkvæmdastjóra er miðað við að hægt verði að hlaða skipið í báðum höfnunum milli ferða, sem eru nú sjö á dag. Á stjórnarfundi Herjólfs ohf. í síð- ustu viku var fjallað um fund með Vegagerðinni þar sem farið var yfir uppgjör vegna tafa á afhendingu nýrrar ferju. Guðbjartur segir að vegna þess hve miklar tafir urðu á því að félagið fengi nýja skipið afhent hafi kostn- aður félagsins við reksturinn verið meiri en áætlað var, þar sem gamli Herjólfur sé dýrari í rekstri en nýja skipið, bæði vegna meiri olíueyðslu og stærri áhafnar. Legið hafi fyrir að félagið muni fá þessar tafir bætt- ar en því uppgjöri sé ekki lokið enn. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Rafhlaða Hleðsluturninum komið fyrir á höfninni í Vestmannaeyjum. Hleðslu- turnar fyr- ir Herjólf  Líður að því að skip- ið gangi fyrir rafmagni Guðni Th. Jó- hanneson, forseti Íslands, mun ferðast til Pól- lands í dag ásamt Elizu Reid for- setafrú. Þar taka þau ásamt fleiri þjóðhöfðingjum og fulltrúum ríkja þátt í at- höfn til að minn- ast innrásar Þjóðverja í Pólland en sá atburður markaði upphaf heims- styrjaldarinnar síðari árið 1939. Minningarathöfnin fer fram á Pil- sudski-torgi á sunnudaginn. Um kvöldið munu forsetahjónin síðan sitja kvöldverð í boði Andrzej Duda, forseta Póllands. Örnólfur Thorsson forsetaritari segir að embættinu hafi borist beiðnir um tvíhliða fundi með Guðna á meðan hann væri í Pól- landi en ekki var hægt að koma því við enda um stutta ferð að ræða. „Þetta er svo stuttur tími. Við komum annað kvöld [í kvöld] og förum svo heim á sunnudags- kvöldið. Þetta er tvíþætt dagskrá yfir daginn. Því miður gafst ekki tækifæri til þess að eiga neina tví- hliða fundi þrátt fyrir nokkrar beiðnir um slíkt. Í það minnsta ekki formlega,“ segir Örnólfur. mhj@mbl.is Forsetahjón- in til Póllands Guðni Th. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.