Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
Rjóminnaf ísnum
Lára Sóley Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands (SÍ), og Magnús Geir
Þórðarson útvarpsstjóri skrifuðu í
gær undir nýjan samstarfssamning
sem felur m.a. í sér að tónleikum SÍ
verði áfram miðlað til þjóðarinnar í
beinum útsendingum á Rás 1 en
sjónvarpsútsendingum á RÚV verði
fjölgað. „Þá verður þáttur barna-
menningar aukinn í samstarfinu en
bæði SÍ og RÚV hafa lagt mikla
áherslu á dagskrá fyrir yngstu kyn-
slóðina sem er í senn fræðandi og
skemmtileg,“ segir í tilkynningu.
„Okkar farsæla samstarf við RÚV
er lykillinn að því að við sem hljóm-
sveit getum miðlað tónlist til lands-
manna og mikilvægur hlekkur þeg-
ar kemur að flutningi tónleika SÍ
hjá erlendum útvarpsstöðum. Með
þessum nýja samningi útvíkkum við
samtal og samstarf stofnananna
enn frekar og leggjum sérstaka
áherslu á samstarf á sviði barna-
menningar. Það veitir okkur dýr-
mætt tækifæri til þess að miðla
fræðslustarfi hljómsveitarinnar
sem hefur vaxið hratt og dafnað á
síðustu árum,“ segir Lára Sóley.
„Við erum afskaplega stolt af því
samstarfi sem RÚV og SÍ hafa átt
um árabil og hvernig það hefur
eflst á síðustu árum. Við búum að
því að eiga glæsilega Sinfóníu-
hljómsveit og því er það með mikilli
ánægju sem við eflum samstarfið
enn frekar. Það er í takt við aðra
þróun hjá RÚV á síðustu árum þar
sem áhersla á innlent efni og menn-
ingarefni hefur verið aukin mark-
visst. Og svo er kjörið að hin
dásamlega Maxímús Músíkmús og
annað í barnastarfi hljómsveitar-
innar birtist börnum landsins í
KrakkaRÚV,“ segir Magnús Geir.
Undirrituðu nýjan
samstarfssamning
Handsalað Lára Sóley Jóhanns-
dóttir, framkvæmdastjóri SÍ, og
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri í Hörpu í gær.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Þetta er lýrískur djass í ætt við
Norðurlandadjass,“ segir Ingi
Bjarni Skúlason, tónskáld og pí-
anóleikari, um nýútkomna plötu
sína, Tengingu. „Ég hef reyndar
sjálfur ákveðnar skoðanir varðandi
djass-hugtakið, um hvort það eigi
að vera að takmarka bæði sjálfan
sig og hlustandann með því að
segja að eitthvað sé djass. Þetta
er bara tónlist! En í eyrum
margra er þetta djass og ég er að
sjálfsögðu með djassbakgrunn eft-
ir áralangt tónlistarnám í Hollandi
og á Norðurlöndunum. En ef mað-
ur ímyndar sér heim þar sem eru
ekki til stílar, hvernig tónlist
myndi maður búa til?“ veltir tón-
skáldið fyrir sér.
Tekur lög upp á símann
Innblásturinn að baki plötunni
segir Ingi Bjarni vera „rann-
sóknarleiðangur á því hvernig ég
tengist tónlist og hvað tónlist er
fyrir mér. Mikið af þessum lögum
er sprottið upp úr söngröddinni
fremur en píanóinu sjálfu. Þá söng
ég oft stuttar hugmyndir og
reyndi svo að vinna úr þeim við pí-
anóið“. Ingi Bjarni skrifaði mast-
ersritgerð í Gautaborg sem tengd-
ist því að gefa innsæinu meira
vægi við tónlistarsköpun. „Við
gerð laganna reyndi ég að fókus-
era minna á þekkingu og fræði
sem viðkoma tónlist og leyfði frek-
ar innsæinu að ráða. Ég tók upp
fjölda lagahugmynda á símann
minn og svo valdi ég það sem tal-
aði til mín. Inni á milli voru lög
sem ég ákvað að vinna meira í.“
Ingi Bjarni segir Tengingu vera
ólíka fyrri plötum hans tveimur,
tríóplötunum Skarkala (2015) og
Fundi (2018), vegna þess að nú
bætist við gítarleikari og tromp-
etleikari. „Þau eru öll mjög lýrísk
og næm á þessa tónlist,“ segir
hann um tónlistarfólkið á plötunni.
„Varðandi tónlistina sjálfa þá er
kannski meiri frjáls spuni sem
blandast við tilbúnar útsetningar.
Svo það er aðeins opnara and-
rúmsloft en á tríóplötunum.“
Kynntust í flökkunámi
Tónlistarfólkinu sem kemur
fram með honum á plötunni
kynntist Ingi Bjarni þegar hann
stundaði nám á Norðurlöndunum.
„Í náminu flakkaði ég milli þriggja
borga á Norðurlöndum; Gauta-
borgar, Óslóar og Kaupmanna-
hafnar, og kynntist fólki í gegnum
námið.“ Trompetleikarinn Jakob
Eri Myhre og trommarinn Tore
Ljøkelsøy eru Norðmenn sem
voru með Inga Bjarna í þessu
flökkunámi. Bassaleikarinn Daiel
Andersson er Svíi og Merje Kägu
frá Eistlandi spilar á gítar, en Ingi
Bjarni segir hana sinn uppáhalds-
gítarleikara til þess að spila með.
Ingi Bjarni segir útgáfuferlið hafa
verið langt. „Þessi músík er ekk-
ert rosalega ný fyrir mér lengur
en nú er þetta loksins að koma
út.“
Útgáfunni verður fagnað með
tónleikaferðalagi um landið.
Haldnir verða tónleikar í Stykkis-
hólmi, á Ísafirði og í Borgarnesi.
Tónleikar í Reykjavík verða svo
haldnir föstudaginn 27. september
í Fríkirkjunni í Reykjavík áður en
haldið verður til Vestmannaeyja
og Hveragerðis. Nánari upplýs-
ingar má finna á vefnum:
www.ingibjarni.com.
„Ég er alltaf að vinna í laga-
hugmyndum en ég er ekki alveg
ákveðinn hvað næsta verkefni
verður. Ég á til dæmis nokkur lög
tilbúin fyrir þessa sömu hljómsveit
en svo hef ég líka verið að gæla
við þá hugmynd að gefa út sóló-
píanódisk einhvern tímann. En
það er ekkert ákveðið,“ segir Ingi
Bjarni að lokum.
Ljósmynd/Marek Meristo
Kvintett Ingi Bjarni Skúlason, tónskáld og píanóleikari, (annar frá vinstri) ásamt hljóðfæraleikurum í kvintett hans.
Leyfir innsæinu að ráða
Tónskáldið og píanóleikarinn Ingi Bjarni Skúlason gefur út plötuna Tengingu
Frjáls spuni í bland við tilbúnar útsetningar Fer í tónleikaferð um landið
Tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafninu á Akureyri í dag kl.
15 á Akureyrarvöku. Annars vegar
er um að ræða sýningu Hrafnhild-
ar Arnardóttur / Shoplifter, sem
nefnist Faðmar, og hins vegar sýn-
ingu Eiríks Arnars Magnússonar,
sem nefnist Turnar.
„Sýning Hrafnhildar er í rými
sem tileinkað er safnkennslu
Listasafnsins. Með vísun í æv-
intýraheima, frjóu ímyndunarafli
og leikgleði höfða litrík verkin til
barna á öllum aldri og ekki síður
til barnsins sem býr innra með
fullorðnum,“ segir í tilkynningu.
„Í öllum mínum verkum vinn ég
aðallega út frá þeirri tilfinningu
sem ég hef fyrir viðfangsefninu
hverju sinni. Þegar ég leita að
efnivið fyrir verkin þá leita ég eftir
gömlum hlutum með sögu eða þá
hlutum sem hafa glatað upphaf-
legu hlutverki sínu. Að mínu mati
er fegurð og saga á bak við bók
sem einhver batt saman í hönd-
unum fyrir hundrað árum. Bók
sem hefur ef til vill farið víða þar
til hún endaði á skurðarborðinu
hjá mér,“ segir Eiríkur Arnar í til-
kynningunni frá Listasafninu á
Akureyri.
Verk Eiríkur Arnar Magnússon hef-
ur aðallega unnið fígúratíf málverk.
Faðmar og Turnar í
Listasafninu á Akureyri
Innsetning Hrafnhildur Arnar-
dóttir, betur þekkt sem Shoplifter.