Morgunblaðið - 31.08.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
flot í polli einum í grunni hússins.
Á heimasíðu stofnunarinnar er
sigling bátsins sögð tákn um að
skriður sé nú kominn á þau áform að
reisa myndarlegt hús yfir íslenska
tungu og þau verk sem skrifuð hafa
verið á tungumálinu.
Framkvæmdin öll er sögð munu
kosta um 6,2 milljarða króna, en und-
irbúningur að framkvæmdum hófst í
júlí og var byrjað að steypa í grunn-
inn skömmu seinna. Gert er ráð fyrir
að húsið verði opnað árið 2023.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð-
herra og þáverandi menntamála-
ráðherra, fyrstu skóflustungu að
Húsi íslenskunnar. Var grafið fyrir
grunni hússins, en framkvæmdir hóf-
ust ekki.
Á ársfundi stofnunar Árna Magn-
ússonar árið 2016 tilkynnti Illugi
Gunnarsson, þáverandi mennta-
málaráðherra, að öll tvímæli um Hús
íslenskunnar væru tekin af. Settu
Guðrún Nordal, forstöðumaður
stofnunarinnar, og Illugi bréfbát á
Samningur vegna byggingar Húss ís-
lenskunnar var undirritaður á bygg-
ingarstað við Arngrímsgötu í
Reykjavík í gær. Húsinu er ætlað að
hýsa starfsemi stofnunar Árna
Magnússonar og þau íslensku hand-
rit sem skilað var til landsins frá
Danmörku.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, Guðrún
Ingvarsdóttir, forstjóri Fram-
kvæmdasýslu ríkisins, og Karl Andr-
eassen, framkvæmdastjóri Ístaks,
undirrituðu samninginn.
„Þetta eru merk tímamót, við er-
um að reisa Hús íslenskunnar sem
mun geyma mestu menningar-
verðmæti sögunnar. […] Þetta er hús
sem við munum öll njóta góðs af og
vera stolt af í framtíðinni,“ sagði
Lilja Dögg í samtali við mbl.is í gær.
„Þarna verður sýningaraðstaða og ég
sé það fyrir mér að þetta verði mjög
eftirsóknarverður staður fyrir bæði
Íslendinga til þess að skoða handritin
og kynnast þeim og svo auðvitað er-
lenda ferðamenn.“
Langur aðdragandi
Lengi hefur staðið til að byggja
hús undir handritin og var meðal
annars gert ráð fyrir húsnæði stofn-
unar Árna Magnússonar í skýrslu
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins frá 2007. Árið 2013 tók
Morgunblaðið/Hari
Framkvæmdasvæðið Borgarbúar hafa lengi fylgst með „holunni“ en nú má eiga von á meira lífi á svæðinu.
„Hús sem við öll
munum njóta góðs af“
Samningur vegna Húss íslenskunnar undirritaður í gær
Samningur Karl Andreassen og Lilja Dögg Alfreðsdóttir tókust í hendur.
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Falleg lífstíls- og heimilisvöruverslun í Kringlunni með virkilega flottar
vörur. Verslunin er ung að árum og þannig gefst tækifæri fyrir nýjan
eiganda að móta hana eftir sínum hugmyndum. Hagstæður
leigusamningur í boði.
• Framleiðslufyrirtæki á matvælasviði. Fyrirtækið fullvinnur ákveðnar
fiskafurðir og selur innanlands sem og erlendis. Það er í
leiguhúsnæði og býr við góðan tækjakost. Velta 200-300 kr. og
afkoma með ágætum.
• Heildverslun sem flytur inn ýmsan tæknibúnað til hitunar, kælingar og
loftræstingar. Velta yfir 200 mkr. og góð afkoma.
• Bílaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem sér um minni háttar
viðgerðir og viðhald. Velta 90 mkr. Góður hagnaður.
• Rótgróin heildsala með sérhæfðar vörur fyrir byggingariðnað. Velta
100mkr. Góður hagnaður.
• Trésmiðja með 40 ára rekstrarsögu sem sérhæfir sig í
innréttingasmíði fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið er vel
tækjum búið og í eigin húsnæði. Velta 130 mkr.
• Fyrirtæki sem framleiðir ákveðnar tegundir einfaldra matvæla fyrir
aðra aðila á markaði. Töluverð sjálfvirkni þannig að kostnaði er
mjög stillt í hóf. Velta 100 mkr. og afkoman sérlega góð.
• Lítið ferðaþjónustufyrirtæki í góðum vexti sem býður fjölbreyttar ferðir
á Suðurlandi. Eigið húsnæði og góður búnaður. Velta 50mkr. Góður
vöxtur.
• Þjónustufyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði sem hefur eftirlit mað hreinlæti á
vinnustöðum, gerir tillögur að kerfum og sér um úttektir. Velta 100 mkr. og
góð afkoma.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
LOKADAGAR
fyrir heimilin í landinu
Sparidagar
Skoðaðu úrvalið okkar á
*SENDUM UM LAND ALLTLágmúli 8 | S: 530 2800
10%
afsláttur
49’’ 55’’ 65’’ 75’’
15-40%
afsláttur
25%
afsláttur
Allt um sjávarútveg