Morgunblaðið - 31.08.2019, Side 23

Morgunblaðið - 31.08.2019, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 Hver er úti að ganga með hvern? Kannski var það köttur. Jafnvel fugl. Hugsanlega annar hundur. Eitthvað vakti áhuga þessa forvitna hvutta sem teymdi eiganda sinn áfram á Klambratúni. Kristinn Magnússon Á vormánuðum var stofnaður samstarfs- vettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og græn- ar lausnir. Atvinnu- lífið hefur bæði metn- að og vilja til að gera enn betur og meira í loftslagsmálum en þegar hefur verið gert. Samvinna ólíkra aðila er lykill að árangri í loftslags- málum og þess vegna hafði atvinnulífið frum- kvæði að samstarfi við stjórnvöld í þeim málum. Í atvinnulífi liggja lausnirnar og því er vert að hvetja íslensk fyrirtæki til að taka þennan mála- flokk enn fastari tökum. Íslenskur iðn- aður hefur nú þegar stigið stór skref í átt að sjálfbærni og er ég sannfærð um að ís- lenskt hugvit og lausnir munu geta orðið leiðandi á heimsvísu og hjálpað öðrum þjóð- um að draga úr losun enda er lofts- lagsvandinn hnattrænn vandi. Í síðustu viku komu forsætisráð- herrar Norðurlandanna til Íslands á árlegum sumarfundi sínum og enginn annar en Þýskalandskansl- ari var gestur fundarins. Á fund- inum samþykktu ráðherrarnir nýja framtíðarsýn Norðurlandanna um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum til næstu 10 ára. Það er ánægjulegt að svo einörð samstaða náist á milli leiðtoga Norðurlandanna. Mark- miðið er að Norðurlöndin verði sjálfbærasta svæði í heimi á næstu tíu árum. Ljóst er að aðgerðir okk- ar geta orðið öðrum þjóðum leið- arljós í komandi framtíð um hvernig við getum snúið við þeirri óheilla- þróun sem hlýnun jarðar er. Því fagna ég auknu samstarfi at- vinnulífs og stjórnvalda en á móti saknaði ég þess að á sumarfundi ráðherranna skyldi ekki mikilvægi atvinnulífsins vera dregið betur fram og þær lausnir sem þar er að finna. Það er miður að í allri um- ræðunni í síðustu viku hafi lykilfor- sendan fyrir árangri í þessum mála- flokki ekki verið rædd en lausnirnar og aðgerðirnar sem kallað er eftir munu koma frá iðnaði og atvinnulífi. Saman verðum við að leita lausna sem miða að því að gera jörðina að enn betri stað fyrir komandi kyn- slóðir. Eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur » Samvinna ólíkra aðilaer lykill að árangri í loftslagsmálum og þess vegna hafði atvinnulífið frumkvæði að samstarfi við stjórnvöld í þeim málum. Guðrún Hafsteinsdóttir Höfundur er formaður Samtaka iðnaðarins. Atvinnulífið sýnir frumkvæði í loftslagsmálum Það ríkti eftirvænt- ing og gleði á stuttum viðburði sem fram fór í gær við Arngríms- götu í Reykjavík. Þar undirrituðum við samning um langþráða byggingu – Hús ís- lenskunnar. Fram- kvæmdir eru hafnar og ráðgert að þeim muni ljúka í sumarlok árið 2023. Hús íslensk- unnar verður glæsilegt og verðugur heimavöllur fyrir fjöregg íslenskrar menningar, tungumálið okkar. Þar munu tvinnast saman fortíð, samtíð og framtíð íslenskunnar. Táknrænt hús Hús íslenskunnar mun iða af lífi. Það mun hýsa fjölbreytta starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í ís- lenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Undanfarin ár hefur ekki verið unnt að halda sýningar á hand- ritum sem varðveitt eru hjá Stofn- un Árna Magnússonar en með til- komu hússins verður bylting í aðstöðu stofnunarinnar til að varð- veita, rannsaka og miðla menning- ararfi þeim sem handritin geyma. Með tilkomu hússins verða nemendur og fræðimenn í íslenskum fræðum í fyrsta sinn undir sama þaki og helstu rannsókn- argögn um þróun og sögu tungumálsins. Þannig myndar húsið umgjörð utan um þjóðararf Íslendinga og skapar aðstæður til að efla þekkingu og þróun á tungumálinu. Þá verður húsið mið- stöð fólks sem miðlar menningararfinum til komandi kyn- slóða. Handrit heim Það er tímabært að við hefjum nú formlegar viðræður við dönsk stjórnvöld um að fleiri handritum úr safni Árna Magnússonar, sem nú eru varðveitt hjá Árnastofnun í Kaupmannahöfn, verði skilað hing- að heim. Í kjölfar handritamálsins svonefnda var mörgum handritum skilað á árunum 1971-1997 en tæp- lega 1400 þeirra eru enn í Kaup- mannahöfn. Í vikunni var málið rætt í ríkisstjórn og í framhaldinu samþykkt að skipa starfshóp sem fara mun yfir næstu skref. Þá ráð- geri ég einnig að funda með menntamálaráðherra Danmerkur um málið nú í september. Viðhorf okkar og meðvitund um mikilvægi handritanna fyrir sögu okkar og tungumál hafa breyst umtalsvert á þeim áratugum sem liðnir eru frá samningagerðinni við Dani. Að- staðan til þess að varðveita, rann- saka og miðla þeim menningararfi sem handritin geyma verður öll önnur með tilkomu Húss íslensk- unnar. Handritasafn Árna Magn- ússonar er einstakt og ómetanlegt, ekki aðeins fyrir okkur heldur einnig sem hluti af bókmenntasögu heimsins. Til marks um það er handritasafnið á skrá Menningar- málastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. UNESCO) yfir andleg minni veraldar. Áfram íslenska Um þessar mundir vinnum við að aðgerðaáætlun sem byggist á þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi síðastliðið vor um hvernig efla megi íslensku sem opinbert mál hér á landi. Þegar hafa verið kynntar ýmsar leiðir í þá veru sem meðal annars tengjast máltækni og útgáfu bóka á íslensku. Með þings- ályktuninni, og þeim 22 aðgerðum sem þar eru tilgreindar, er mark- miðið að ná ennþá betur utan um það mikilvæga og viðvarandi verk- efni stjórnvalda að tryggja að ís- lenska verði áfram notuð á öllum sviðum íslensks samfélags. Verk- efnið er spennandi og ánægjulegt hversu margir sýna því áhuga og vilja leggja því lið. Helstu markmið aðgerðanna eru í fyrsta lagi að ís- lenska verði notuð á öllum sviðum samfélagsins, í öðru lagi að ís- lenskukennsla verði efld á öllum skólastigum ásamt menntun og starfsþróun kennara og í þriðja lagi að framtíð íslenskrar tungu í staf- rænum heimi verði tryggð. Tækni- bylting gjörbreytir nú okkar dag- lega lífi. Um leið og í því felast spennandi tækifæri er sú þróun einnig áskorun fyrir íslenskuna. Til að mynda hefur snjalltækjabylt- ingin aukið verulega aðgang að er- lendu afþreyingarefni og upplýs- ingaveitum. Til að íslenskan verði áfram gjaldgeng og okkar sjálf- sagða mál hafa stjórnvöld fjárfest í máltækniáætlun fyrir íslensku. Markmið hennar er að tryggja að hægt sé að nota íslensku í sam- skiptum við tæki og í allri upplýs- ingavinnslu. Sameiginlegt verkefni Íslenskan opnar leið inn í fortíð- ina með því að tengja okkur við fólkið sem hér lifði áður og þann menningarheim sem bókmennt- irnar geyma – en hún opnar líka leið út í heim því ef hugsun og skilningur á móðurmálinu er frjór og fjölbreyttur erum við betur í stakk búin til þess að læra og með- taka önnur mál og menningu. Það eru forréttindi fyrir fámenna þjóð að tala eigið tungumál og við ætl- um að snúa vörn í sókn fyrir ís- lenskuna. Þegar talið berst að tungumálinu og fólk ræðir um verndun íslenskunnar og menning- ararfsins gleymum við því stundum að tungumálið er í senn okkar verk og verkfæri. Íslenskan lifir á með- an við notum hana og nýtum í öll- um okkar daglegu störfum. Við höfum val um að efla hana og styrkja á hverjum einasta degi. Það er ekki flókið verkefni en kallar á ákveðna viðhorfsbreytingu. Við berum öll sameiginlega ábyrgð á framtíð tungumálsins og ég bind vonir við að með Húsi íslenskunnar muni rannsóknir og miðlun á því sviði eflast og dafna, okkur öllum til heilla. Eftir Lilju Alfreðsdóttur » Það eru forréttindi fyrir fámenna þjóð að tala eigið tungumál og við ætlum að snúa vörn í sókn fyrir íslenskuna. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. Hús þjóðarinnar – hús íslenskunnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.