Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 ✝ Magnús Þór-arinsson fædd- ist í Reykjavík 26. janúar 1952. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum 21. ágúst 2019. Foreldrar hans voru Vagnbjörg Jó- hannsdóttir, f. 1. september 1925 á Vopnafirði, d. 3. maí 2005, og Þórarinn Árnason, f. 24. maí 1924 á Áslaugarstöðum í Vopnafirði, d. 24. janúar 2012. Systkini Magnúsar eru: Bertha, f. 15.3. 1945, Hólmfríður, f. 9.4. 1946, Þorbjörg Jóhanna, f. 27.8. 1947, Þórarinn Vagn, f. 25.2. 1949, lést af slysförum 22.7. 1969, Rúnar, f. 27.5. 1950, Eiður, f. 24.10. 1953, Robert, f. 7.12. 1954 og Ásdís, f. 26.5. 1956. Fyrri kona Magnúsar var Sissa Hjördís Gestsdóttir, f. 7.10. 1950, börn: Gestur, f. 19.3. 1969, maki er Helena Rut Sigurðar- dóttir, f. 20.4. 1976, börn: Arn- Kjartansson, f. 29.9. 1976, börn: Ásta Sigríður, f. 9.9. 1998, Gunnar Alexander, f. 18.9. 2002, og Kjartan Bragi, f. 25.5. 2005. Maki Jóns Ólafs er María Dögg Svafarsdóttir, f. 19.7. 1976, barn: Birkir Arge Antonsson, f. 8.2. 2001; Ester Böðvarsdóttir, f. 13.5. 1981, maki er Viðar Huginsson, f. 15.9. 1976, börn: Elma Dís, f. 12.6. 2005, Andri, f. 15.1. 2010, og Dagur, f. 19.3. 2014; Mar- grét Rósa Kjartansdóttir, f. 11.8. 1983, maki er Johny Ivars Anders Österdahl, f. 25.12. 1981, börn: Tristan Dio Thor Österdahl, f. 17.4. 2011, og Saga Rebekka Maiden Öster- dahl, f. 16.7. 2015; Þórólfur Benedikt Kjartansson, f. 20.10. 1987, maki er Amanda Ger- aldsson, f. 30.4. 1994, og Eyþór Kjartansson, f. 31.3. 1992, maki er Sandra Öberg, f. 28.9. 1988, börn Söndru: Lovísa, f. 14.5. 2013, og Alex, f. 18.12. 2014. Magnús var lærður múrari og starfaði sem slíkur frá unga aldri. Magnús stundaði keppnisgolf og var virkur í golfklúbbi Vestmannaeyja. . Útför Magnúsar fer fram frá Landakirkju Vestmannaeyjum í dag, 31. ágúst 2019, klukkan 14. steinn Kári, f. 8.8. 1999, Camilla Dögg, f. 23.7. 2003, Brynjar Hrafn, f. 3.3. 2008, og Aldís Erla, f. 13.9. 2010; Guðrún, f. 16.10. 1971, maki er Þor- lákur Hilmar Morthens, f. 3.10. 1953, börn: Magnús Freyr, f. 22.11. 1989, og Karen Lísa, f. 6.10. 1998; Vagnbjörg, f. 21.1. 1978, maki er Skúli Rúnar Jónsson, f. 22.5. 1975, barn: Anja Rut, f. 1.6. 2001; og Alexandra, f. 18.12. 1989, barn: Alia Topete, f. 3.12. 2010. Eftirlifandi eiginkona Magn- úsar er Rebekka Benedikts- dóttir, f. 21.1. 1957 í Vestmanna- eyjum. Foreldrar hennar voru Ester Guðjónsdóttir, f. 4.4. 1934 í Vestmannaeyjum, d. 2.12. 2012, og Benedikt Frímannsson, f. 27.7. 1930 á Steinhóli í Fljótum, d. 10.2. 2017. Börn Rebekku eru: Jón Ólafur Kæri vinur. Nú hefur þú kvatt þetta jarðlíf. Það er með sorg í hjarta mínu sem ég vil með nokkr- um orðum kveðja þig og þakka þér fyrir allar þær mörgu góðu stundir sem við höfum átt saman á golfvellinum og einnig sem krakk- ar, sem ólumst upp sem Camp- arar. Minningarnar um þann tíma rifjuðust oft upp hjá okkur, þegar við vorum að spila golf saman og auðvitað kom aldrei neitt annað til greina þegar skipt var í tveggja manna lið en að gömlu Campar- arnir væru saman í liði. Ekki fer nú allt eins og maður hefur ætlað sér. Það varst þú sem komst til mín á spítalann í september þegar ég lá þar mölbrotinn og illa farinn og hvattir mig og blést í mig bar- áttukjarki fyrir væntanlegt sumar en svo þremur mánuðum seinna snérist dæmið allt í einu við. Þú ætlaðir að fara að draga úr vinnu og gefa þér meiri tíma í golfið en þá greindist þú með þennan ill- víga sjúkdóm sem lagt hefur svo marga bæði unga sem aldna. Það eitt og sér að hafa starfað með þér við starf eldri kylfinga GV hefur gefið mér mikið. Þið Rebekka styrktuð eldri kylfinga til fjölda ára og erum við ykkur ómetan- lega þakklátir fyrir þann stuðning. Vin sínum skal maður vinur vera, þeim og þess vin. En óvinar síns skyli engi maður vinar vinur vera. (Úr Hávamálum) Nú er komið að leiðarlokum, kæri vinur, og ég þakka þér fyrir samfylgdina og megi Guð og engl- ar hans vera með þér og styrkja Rebekku, Gest, Guðrúnu, Vagn- björgu, Alexöndru, stjúpbörn, barnabörn og aðra ástvini þína. Far þú í friði, kæri vinur. Sævar og fjölskylda. Magnús Þórarinsson Vegna mistaka við framsetn- ingu þessarar greinar er hún birt aftur. Herdís Tryggvadóttir var gæðakona, í sjón og reynd. Henn- ar er nú minnst með hlýju og virðingu en umfram allt gleði. Við fyrstu kynni afvopnaði hún okk- ur, menntaskólavini barna henn- ar, á sinn fallega og einlæga hátt. Þess vegna þótti okkur öllum vænt um hana. Hún var öðruvísi jarðtengd en hinar mömmurnar; kannski var hún af annarri jörð? Við vissum að hún hafði verið alin upp við góð efni en þegar við tókum að knýja hjá henni dyra var hún fyrir löngu búin að kon- vertera úr verðgildum yfir í manngildi – og átti digra sjóði í Herdís Tryggvadóttir ✝ HerdísTryggvadóttir fæddist 29. janúar 1928. Hún lést 15. ágúst 2019. Útför hennar fór fram 23. ágúst 2019. þeim gjaldmiðli. Umburðarlyndi hennar gagnvart sperriþörf okkar var án fyrirvara og móttökurnar ávallt eins og höfðingja bæri að garði, þó ekki væri fylgt ströngum etikettum um heimsóknar- tíma. Og kraftaverk mátti það heita að varðhundurinn Pedró skyldi ekki hafa sent okkur nema einu sinni upp á slysavarðstofu í stíf- krampasprautu. Þegar tíminn var kominn á stjórnlaust flug og árin þotin út í buskann – þá náði maður alltaf andanum þegar fundum bar sam- an á förnum vegi. Þá var hún al- veg til í að leyfa manni að þykjast svolítið ennþá – en átti nú oftast sjálf pönslínuna sem gerði þessa stuttu samfundi svo skemmti- lega. Og maður skynjaði ávallt hversu stolt hún var – réttilega – af öllu sínu fólki og þakklát fyrir það sem henni var trúað fyrir. Ögmundur Skarphéðinsson. Það haustar að og í dag kveðjum við tengdamóður mína. Ég gæti ekki hafa eignast betri tengdamóður en hana Ernu. Hæfilega afskiptasöm til að Erna Finnsdóttir ✝ Erna Finns-dóttir fæddist 20. mars 1924. Hún lést 23. ágúst 2019. Útför Ernu fór fram 29. ágúst 2019. maður efaðist ekki um væntumþykjuna en aldrei um of. Ég kom inn í fjölskyldu Ernu á síðasta tán- ingsári mínu, nítján ára, og leið þar strax svo vel að mér fannst ég hafa verið þar lengi, slíkt var viðmótið. Erna var stólpinn sem manni fannst ekki haggast í umróti tímans, lygn og djúp eins og fljót. Var til staðar í stóru og smáu með sína góðu nærveru. Hún var umhyggjusöm, hreinskilin og hnyttin. Þau Geir voru samstiga hjón, gestrisin og mörg góð veislan, stór og smá, var haldin á Dyngjuveginum. Vel var hald- ið utan um fjölskylduna og sam- verustundir margar, grillað oft á sumrin en grillmenninguna höfðu þau tekið með sér frá Ameríku. Það var gott að vera samvistum við Ernu og Geir og þess hefur nafna Ernu, Erna Sigga dóttir okkar Hallgríms elsta sonar þeirra, notið og er þakklát fyrir. Hún var fyrsta barnabarnið og tíður nætur- gestur hjá afa og ömmu frá unga aldri. Ekki var verra að flytja seinna í næstu götu og geta æft sig á flygilinn hennar ömmu fyrir píanótíma. Það var notalegt að heyra oft djassinn duna á fóninum þegar litið var inn á Dyngjuveginn. Erna var hrifin af djassi og við Hallgrímur náðum að fara með þeim Ernu og Geir og Finni mági á djassklúbb í New York þar sem þekktir djassleikarar spiluðu. Það átti við Ernu og varð eftirminnileg kvöldstund. Við reyndum líka að komast inn í Studio 54 en það tókst ekki. Erna var afskaplega góður ferðafélagi og við fórum marg- ar ferðirnar saman til útlanda, bæði borgar- og sólarlanda- ferðir. Hún kunni vel við sig í hlýjunni. Ekki voru laxveiði- ferðirnar síðri og þar sýndi hún mikla þrautseigju því hún vissi að ekki fiskast ef færið er ekki út’í. Hún var hörkuveiðimaður og efldi okkur hin einnig til dáða. Þetta voru skemmtilegar ferðir í góðum félagsskap með mörgu góðu fólki, ómetanlegar í minningabankanum. Erna hélt áfram að veiða vel fram á efri ár. Nú þegar laufin fara að skipta litum og náttúran að leggjast í dvala kveð ég tengda- móður mína með þakklæti fyrir árin fimmtíu sem við áttum saman. Aðalbjörg Jakobsdóttir. Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA DÓRA REBEKKA JÓHANNESDÓTTIR, Klapparhlíð 1, Mosfellsbæ, er látin. Útför hennar fer fram frá Guðríðarkirkju mánudaginn 2. september klukkan 13. María Kristjánsdóttir Soffía Haraldsdóttir Ólafur Helgi Haraldsson Hrafnhildur Haraldsdóttir Jóhannes Snævar Haraldsson Gunnsteinn Haraldsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Gígja, lést þriðjudaginn 27. ágúst í Brákarhlíð, Borgarnesi. Hún verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 7. september klukkan 14. Rúnar Viktorsson Kristín Guðjónsdóttir Jensína Waage Hrafnhildur Waage Ólafur Waage Gunnþórunn B. Gísladóttir Kári Waage Brynja Waage Ragnar H. Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, unnusta, systir, mágkona og frænka, KRISTÍN AÐALSTEINSDÓTTIR fatahönnuður sem lést á Kaiser-sjúkrahúsinu í Los Angeles 25. júní sl. Útför hennar fer fram í Árbæjarkirkju 5. september klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Aðalsteinn Dan Árnason John Bergeson Ragnar S. Aðalsteinsson Jónína Magnúsdóttir Eggert B. Aðalsteinsson Svanlaug Aðalsteinsdóttir Sigurjón Kristinsson og systkinabörn Ástkær móðir okkar, THEODÓRA ÁSDÍS SMITH, Dódó, Miðleiti 1, Reykjavík, sem lést 21. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. september klukkan 13. Óskar Smith Grímsson María Pétursdóttir Anna Guðrún Pétursdóttir Trausti Pétursson Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi, ÞRÁINN HARALDSSON, lést fimmtudaginn 22. ágúst. Útför verður frá Lindakirkju þriðjudaginn 3. september klukkan 13. Haraldur Helgi Þráinsson Harpa Tómasdóttir Unnur Helga Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.