Morgunblaðið - 31.08.2019, Side 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
FB Selfoss
Austurvegur 64a
5709840
FB Hella
Suðurlandsvegur 4
5709870
FB Hvolsvöllur
Ormsvöllur 2
5709850
Fóðurblandan hf. - www.fodur.is - 5709800
ert þú að fara
að smala ?
VIÐ KLÆÐUM ÞIG UPP !
STÍGVÉL OG
GÚMMÍTÚTTUR
REGNFÖT
& ullarföt
sokkar og
vettlingar
50 ára Hugrún ólst upp
í Smáíbúðahverfinu í
Reykjavík en býr í Kópa-
vogi. Hún er félags-
ráðgjafi, markþjálfi og
núvitundarkennari og
rekur fræðslu- og
heilsusetrið Heillandi
hug.
Maki: Magnús Jaroslav Magnússon, f.
1969, rafverktaki.
Börn: Guðmundur Örn Magnússon, f.
1992, Bjarki Rafn Magnússon, f. 1994, og
Hildur Jara Magnúsdóttir, f. 2002. Barna-
barn er Hekla Guðmundsdóttir, f, 2018.
Foreldrar: Guðmundur Ottósson, f. 1946,
fv. verkstjóri, og Kolbrún Baldursdóttir, f.
1947, húsmóðir. Þau eru búsett í Kópa-
vogi.
Hugrún Linda
Guðmundsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú kannt að meta mótsagnir í
öðru fóki en þú leyfir þér vanalega ekki að
segja eitt en gera annað. Vertu sjálfri/um
þér samkvæm/ur.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki láta koma þér úr jafnvægi í dag,
ekki einu sinni í samskiptum við fjölskyld-
una. Ef þú ert óánægð/ur með eitthvað
skaltu leita þér hjálpar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur haft mikið að gera í
skemmtanalífinu að undanförnu. Reyndu
að draga þig í hlé og vera í einrúmi smá
stund til að róa hugann.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver er tilbúin/n að veita þér
fjárhagslega aðstoð í dag. Haltu þig við
það sem þér ber og láttu aðra um annað.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur skuldbundið sjálfa/n þig til
stórra hluta og ættir nú að segja stopp
hvað þetta snertir. Sýndu eðlilegri við-
brögð og miðaðu þau við eðli málsins.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hugmynd einhvers um skemmtun
samrýmist þinni alls ekki. Bíddu bara
sallaróleg/ur, þetta er ekkert sem þú þarft
að hafa áhyggjur af; bara gleði og gaman.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ástæðulaust að fyllast sektar-
kennd út af því sem ekki eru í þínu valdi að
breyta. Ekki hika við að leggja tillögur þín-
ar fram.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur alltaf ímyndunar-
aflið til þess að hlaupa upp á. Ekki æða
samt áfram án þess að spyrja samstarfs-
fólk þitt ráða.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Freisting kemur við sögu fyrir
hádegi. Búðu þig undir að þurfa að losa
þig við óþarfa og halda áfram þaðan sem
frá var horfið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sannleikurinn er sagna bestur
og það skaltu hafa í huga, í það minnsta
gagnvart þínum nánustu. Hlustaðu vand-
lega það mun koma sér vel.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Talaðu við einhvern eldri sem
hefur meiri reynslu en þú. Farðu í gegnum
málin og athugaðu hvaða breytinga er
þörf til þess að þú náir árangri.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þið þurfið á allri ykkar einbeitingu
að halda til þess að geta leyst persónulegt
vandamál. Munið að fljótfærni er slæm.
„Við höfum fengið gamlar upp-
tökur með KK sextettinum og Birni
R. Einarssyni og þar ber einn höfuð
og herðar yfir alla aðra, tenórsaxó-
fónleikarinn Gunnar Ormslev. Ég
tel að hann hafi verið einn besti
djassleikari Evrópu.“ Vernharður
skrifaði kaflann um djasssögu Ís-
Vernharður hefur rannsakað ís-
lenska djasssögu lengi og vinnur nú
að útvarpsþáttum um efnið, ásamt
Hreini Valdimarssyni tæknimanni.
Fyrstu þáttaröðinni um árin frá
1919 til 1943 var útvarpað 2011 og
von er á öðrum hluta á næsta eða
þarnæsta ári.
V
ernharður Linnet fædd-
ist í Reykjavík 31.8.
1944 en ólst meðal ann-
ars upp í Bolungarvík.
Hann fór snemma að
hlusta á djass. „Ég man nákvæm-
lega hvenær það gerðist. Það var í
september 1955, ég opna fyrir út-
varpið og þar er Björn R. Einarsson
með djassþátt og spilar lagið Walk-
ing Shoes með Gerry Mulligan.
Þetta flaug inn í hjartað og hefur
djassinn verið þar síðan.“ Vern-
harður stofnaði tólf ára gamall
djassklúbbinn Cotton Jazz Club í
Melaskóla. Þar spilaði hann djass
fyrir vini sína, sem þurftu svo að
taka próf eftir að hafa hlustað á
lögin. „Fyrirmyndin að þessu kom
úr skátunum, þar var alltaf verið að
taka próf.“
Vernharður lauk kennaraprófi
1968 og kenndi við Grunnskóla Þor-
lákshafnar til 1980, utan eins vetrar
er hann nam við Danmarks Lærer-
højskole í Kaupmannahöfn. Í Þor-
lákshöfn sinnti hann m.a. tónlistar-
kennslu við skólann. Hann stundaði
nám við Tónlistarskóla Reykjavíkur
árin 1959-1961, eftir það nam hann
saxófónleik hjá Andrési Ingólfssyni.
Hann kenndi við Breiðholtsskóla frá
1980 til 2004, utan fimm ár er hann
starfaði sem fastráðinn dagskrár-
gerðarmaður við Ríkisútvarpið.
Fyrir útvarp vann hann m.a. leik-
gerðir úr fornsögunum fyrir unga
hlustendur. Kappar og kjarnakonur
voru þættir úr Íslendingasögum
(1988) og Garpar, goð og valkyrjur
voru þættir úr fornaldarsögum
(1989).
Frá 2004 hefur Vernhaður ein-
göngu starfað við djasstónlist, sem
greinahöfundur, gagnrýnandi,
þáttagerðarmaður og kennari. Hann
hefur skrifað um djass í ýmis tíma-
rit og dagblöð, íslensk sem erlend,
frá því að hann gaf út fyrsta fjölfald-
aða tímarit sitt, Cotton Jazz Club,
árið 1955 og ritstýrði m.a. Jazz-
málum (1967). Hann var djass-
gagnrýnandi Helgarpóstsins 1979 til
1988 og Morgunblaðsins1997 til
2017. Hann hefur unnið að gerð
djassþátta fyrir Ríkisútvarpið frá
1980.
lands í fyrstu bókinni sem gefin hef-
ur verið út um evrópskan djass: The
History of European Jazz (Equinox
Publishing Ltd. 2018).
Vernharður var ásamt Ólafi
Ormssyni og Þorsteini Marelssyni
einn af Lystræningjunum og gáfu
þeir út samnefnt tímarit frá 1976-
1981. Gáfu þeir út tvö önnur tímarit
og fjölmargar bækur. Vernharður
þýddi m.a. skáldsögur eftir Jannic
Storm og Hans Hansen fyrir Lyst-
ræningjann. „Þetta var alveg brjál-
æðislega gaman og stanslaust tap.
En við gáfum út tvær bækur sem
urðu mjög vinsælar, Sjáðu sæta
naflann minn og Haltu kjafti og
vertu sæt, og þær náðu að borga
upp tapið á hinum bókunum.“
Vernharður hefur verið formaður
Jazzvakningar frá 1980 og var fram-
kvæmdastjóri RúRek-djasshátíðar-
innar 1991-1996. Vernharður hefur
flutt fyrirlestra um djass hjá ýmsum
félagasamtökum og skólum, allt frá
grunnskólum til háskóla, og hefur
kennt djasssögu við Tónlistarskóla
FÍH, seinna MÍK, frá 2014. Vern-
harður hefur hlotið viðurkenning-
arnar gullheiðursmerki FÍH 2007
og Bjarkarlaufið 2009 fyrir kynn-
ingu á íslenskri djasstónlist.
Fjölskylda
Eiginkona Vernharðs er Anna
Bryndís Kristinsdóttir, f. 24.7. 1960,
fv. fulltrúi hjá Sjónvarpinu. For-
eldrar hennar voru hjónin Kristinn
Hallsson óperusöngvari, f. 1926, d.
2007, og Hjördís Sigurðardóttir, f.
1925, d. 1983, húsmóðir. Fyrrver-
Vernharður Linnet djassfræðingur – 75 ára
Glatt á hjalla Anna Bryndís, Ísólfur, Vernharður og Huldar Steinn.
Djassinn flaug inn í hjartað
Á Hótel Sögu Vernharður, Niels-Henning Ørsted Pedersen, Solveig eigin-
kona hans og Ólafur Ormsson eftir tónleika Niels-Hennings árið 1994.
Strákarnir Frá vinstri: Steinn, Hen-
rik og Steinberg ásamt vini þeirra,
Bryngeiri Sigurðssyni.
Systurnar Urður og Röskva Arnald-
ardætur seldu límónaði á götuhorni
við Hólatorg í Vesturbæ og söfnuðu
3.165 kr. sem þær gáfu Rauða kross-
inum að gjöf. Rauði krossinn þakkar
Röskvu og Urði fyrir þetta frábæra
framlag.
Hlutavelta
40 ára Ásdís er Reyk-
víkingur og ólst upp í
Breiðholtinu en býr í
Grafarvogi. Hún er bif-
vélavirki og orku- og
umhverfistæknifræð-
ingur að mennt og er
móttökustjóri hjá
Brimborg.
Maki: Þorvaldur Tolli Ásgeirsson, f. 1971,
þjónustustjóri hjá Hamri.
Dóttir: Ólavía Sif Kristjánsdóttir, f.
2000. Börn Þorvaldar eru Ásgeir Þór, f.
1995, Jökull Elí, f. 1999, og Kristín Inga, f.
2001.
Foreldrar: Hjálmar Axelsson, f. 1950,
bifvélavirki, búsettur í Reykjavík, og
Oddný Gréta Eyjólfsdóttir, f. 1953, hús-
móðir í Reykjavík.
Ásdís Gréta
Hjálmarsdóttir
Til hamingju með daginn