Morgunblaðið - 31.08.2019, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 31.08.2019, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 SKECHERS HANIGER HERRASKÓR MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI OG EXTRA BREIÐIR. STÆRÐIR 41-48,5 HERRASKÓR 13.995 „KONAN ÞÍN STENDUR ENN VIÐ DYRNAR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... þegar hún samþykkir stefnumót. EN INDÆLL DAGUR TRÚI ÉG … HVÍ OPNARÐU EKKI AUGUN? HVÍ AÐ HÆTTA Á ÞAÐ? ER ÞAÐ RÉTT AÐ HRÓLFUR BAÐI SIG BARA EINU SINNI Á ÁRI? JÁ. HANN FER ÁRLEGA Í BAÐ ÞEGAR BORGA Á SKATTANA! HRÓLFUR VILL TAKA ALLA ÞJÁNINGUNA ÚT Á SAMA TÍMA! BJÓR BJÓR ÓR ÓR BJÓR BJÓR BJÓR BJÓR BJÓR BJÓR LÁNASJÓÐUR NÁMSMANNA „ÞÚ VEIST ÞAÐ SJÁLFSAGT EN UMSÓKNIRNAR ERU SAMÞYKKTAR Í KIPPUM.” andi eiginkona Vernharðs er Mar- grét Aðalsteinsdóttir, f. 4.2. 1955. Börn Vernharðs og Margrétar eru: 1) Henrik Linnet, f. 27.9. 1978, kvikmyndagerðarnaður í Reykjavík. Sambýliskona er Katrín Ósk Kjells- dóttir sérkennari. Sonur þeirra er Huldar Steinn Linnet, f. 8.5. 2015; 2) Steinn Linnet, f. 23.9. 1980, tölvu- tæknir, búsettur á Friðriksbergi í Danmörku. kona hans er Áróra Traustadóttir fatahönnuður. Sonur þeirra er Ísólfur Linnet, f. 6.1. 2019. Stjúpsonur Vernharðs og sonur Önnu Bryndísar er Steinberg Þór- arinsson, f. 18.7. 1981, öryggis- og tæknistjóri hjá Janusi endurhæf- ingu, búsettur í Reykjavík. Sam- býlismaður er Sturla Kaspersen tónlistarnemi. Dóttir Steinbergs er Tanja Dögg, f. 20.8. 2003. Systkini Vernharðs eru Kristján Linnet, f. 12.5. 1946, lyfjafræðingur, búsettur í Hafnarfirði; Jóhanna Linnet, f. 11.6. 1952; tækniteiknari, búsett í Garðabæ, og Svanhildur Linnet, 26.6. 1954, myndlistar- maður, búsett í Jannina á Grikk- landi. Foreldrar Vernharðs voru hjónin Henrik Linnet, f. 21.6. 1919, d. 6.6. 2014, læknir í Reykjavík, og Svana Linnet, f. 12.3. 1916, d. 29.1. 2011, húsmóðir í Reykjavík. Úr frændgarði Vernharðs Linnet Vernharður Linnet Guðrín Guðmundsdóttir húsfreyja í Heydal Runólfur Jónsson Bóndi í Heydal, í Reykjarfjarðarhreppi Jóna Runólfsdóttir húsfreyja á Hvítanesi Svana Vernharðsdóttir Linnet hjúkrunarkona í Reykjavík Elísabet Linnet húsfr. í Rvík Hlíf Svavars- dóttir ballett- höfundur Guðrún Svava Svavars dóttir mynd listar maður Jóhanna Guðríður Linnet söngkona Ragnheiður Linnet söngkona Bjarni Linnet póst- og sím- stöðvar stjóri í Vestmanna- eyjum og á Egils stöðum Vernharður Einarsson bóndi og kennari á Hvítanesi í Ögursveit Kristín Ólafsdóttir húsfreyja og ljósmóðir á Hvítanesi Einar Hálfdánarson hreppstjóri og trésmiður á Hvítanesi Jón Helgason biskup Helgi Hálfdánarson sálmaskáld Guðfi nnur Einarsson bóndi og sjómaður á Litlabæ í Ögursveit og Hvítanesi Einar Guðfi nnsson útgerðarmaður í Bolungarvík Gunnar Vernharðsson garðyrkjumaður í Grænuhlíð Vernharður Gunnarsson garðyrkjumaður í Storð Jórunn Eyjólfsdóttir húsfreyja og ljósmóðir í Reykjavík Júlíus Jóhann Ólafsson búfræðingur, bóndi á Miðjanesi í Reykhólasveit Sig- urður Rúnar Jóns son tón- listar- maður Mjall- hvít Linnet húsfr. í Rvík Ólafur Kjartan Sigurðar- son óperu- söngvari Jóhanna Erlings- son þýð andi í Rvík Jóhanna Júlíusdóttir Linnet húsfreyja í Vestmannaeyjum Kristján Linnet sýslumaður og skáld í Vestmannaeyjum Gróa Jónsdóttir húsfreyja á Akranesi, frá Vallarhúsum í Grindavík Hans Ditlev Linnet kaupmaður í Hafnarfi rði Henrik Linnet læknir í Reykjavík Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Hólkur sem á handlegg er. Hrútur stundum nafnið ber. Gúmmípoki gaurnum á. Gagnast oft í beitu má. Helgi R. Einarsson segir að lausn- in vilji endilega fá að vera svona: Hólkur, beita, hrútur er, um hömlun barneignanna sér. Svona í flýti sýnist mér smokkur leysa vandann hér. Helgi Seljan svarar: Á arminn smokknum ég smeygja fer, smokkóttur hrútur mun án vafa. Getnaðarvörnin gagnleg er, gott er smokkfisk í beitu að hafa. Guðrún Bjarnadóttir á þessa lausn: Handleggssmokkur hlýjar mér. Hrútur nefndist Smokkur. Besefasmokk bauð ég þér, en beitusmokk fékk kokkur. „Ætli þessi geri sig ekki?“ spyr Eysteinn Pétursson. Smokki á handlegg smeygja má. Smokkóttan ég hrútinn sá. Smokkur á gaurnum gagnast vel. Góða beitu ég smokkfisk tel. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Smokkur – hólkur handlegg á. Heitir Smokkur bekrinn sá. Smokkur gagnast gumum má, þeir gjarna smokk í beitu fá. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Smokk menn hafa handlegg á. Hrút smokkóttan nefna má. Smokkur gaurinn gjarnan ver. Góður til beitu smokkur er. Þá er limra: Hann Marvin er meistarakokkur meiri en annar nokkur, hans albesta krás er gullfiskaglás og grillaður beitusmokkur. Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Fögur sumarsólin skín, sendir geisla inn til mín. Baugatýr og hringahlín, hér er gátuvísan mín: Lágan mann hér líta má. Lítinn kálf nú megum sjá. Nestismalur einnig er. Á sér maður sérhver ber. Káinn orti – „ekki ný saga“: Hjá konum bæði og körlum hann kærleiksylinn fann, elskaður og virtur af öllum sem ekki þekktu hann. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Smokkar eru af ýmsu tagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.