Morgunblaðið - 31.08.2019, Side 38
38 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
EM 2020
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Landsliðsþjálfararnir Erik Hamrén
og Freyr Alexandersson tilkynntu
23 manna landsliðshóp fyrir leikina
gegn Moldóvu og Albaníu í undan-
keppni EM karla í fótbolta 2020
Laugardalnum í gær.
Jóhann Berg Guðmundsson og
Alfreð Finnbogason eru ekki í hópn-
um að þessu sinni. Jóhann Berg
meiddist í leik Burnley og Wolves í
ensku úrvalsdeildinni 25. ágúst og
verður frá næstu vikurnar. Alfreð
hefur verið að glíma við meiðsli síð-
ustu mánuði og var það sameiginleg
ákvörðun hans og landsliðsþjálfar-
anna að hann yrði ekki með í lands-
liðsverkefninu.
Alfreð reynir að ná fyrra formi
„Jói hefði ekki náð leikjunum. Við
erum í frábæru samstarfi við Burn-
ley og við gerðum allt sem við gát-
um til að reyna að fá hann til að vera
með, en hann er ekki klár. Alfreð er
að glíma við lengri meiðsli og er að
reyna að ná fyrra formi. Hann er í
góðu líkamlegu formi en þarf að
spila. Alfreð hefur lengi komið til
móts við landsliðið í verra standi en
hann vill vera í. Með langtíma mark-
mið verður hann að fá að halda upp-
byggingu sinni áfram til að vera klár
í október,“ sagði Freyr Alexand-
ersson aðstoðarlandsliðsþjálfari í
samtali við Morgunblaðið.
Birkir Már Sævarsson er ekki í
hópnum, en hann missti stöðu sína í
byrjunarliðinu í leikjunum við Alb-
aníu og Tyrkland í júní. Hann er nú
dottinn úr hópnum, eins og Rúrik
Gíslason. Samúel Kári Friðjónsson
er hins vegar kominn í hópinn á nýj-
an leik. Samúel var í HM-hópnum í
Rússlandi en ekki í hópnum í júní.
Arnór Sigurðsson er einnig í
hópnum. Hann hefur verið frá
keppni síðan hann meiddist í leik
CSKA Moskvu og Sotsí í rússnesku
úrvalsdeildinni 11. ágúst.
Án félags en í betra standi
Birkir Bjarnason og Emil Hall-
freðsson eru í hópnum, þrátt fyrir
að þeir séu án félags. Samningi
Birkis við Aston Villa var rift á dög-
unum og samningur Emils við Ud-
inese rann út eftir síðustu leiktíð.
Freyr hefur litlar áhyggjur af Emil
og Birki.
„Við erum búnir að vera í góðu
sambandi við þá báða. Emil hefur
verið að æfa hjá FH og einn. Hann
er í rosalega góðu standi. Emil hef-
ur verið meiddur í hné í langan tíma
en nú er hann verkjalaus og í mikið
betra standi en í júní. Hann spilaði
frábærlega á móti Tyrkjunum, en
það var ákveðin áhætta að láta hann
spila þann leik,“ sagði Freyr um
Emil. Þrátt fyrir að Birkir sé samn-
ingslaus hefur hann fengið að æfa
með Aston Villa.
„Birkir er að æfa með Aston Villa
á meðan hann er að klára sín mál.
Hann spilaði æfingaleikina með
Villa í sumar en þegar hann kom til
móts við okkur í júní var hann ekki
búinn að spila síðan í mars og þar á
undan ekki neitt. Þeir eru báðir í
betra standi en í júní, þótt þeir hafi
spilað frábærlega þá. Staðan að vera
án klúbbs er auðvitað aldrei góð,
fyrst og fremst fyrir þá sjálfa. Ég
hef hins vegar engar áhyggjur af því
að þetta verði ekki klárt hjá þeim
fyrir októberleikina. Þeir þurfa að
velja rétt með framtíðarsýn í huga.“
Markmiðið að ná í sex stig
Ísland hefur aldrei mætt Moldóvu
áður í A-landsleik. Moldóva hefur
aðeins unnið 3 af síðustu 24 leikjum
sínum og er með þrjú stig eftir fjóra
leiki í H-riðlinum. Liðið vann An-
dorra á heimavelli en tapaði fyrir
Frökkum á heima og Tyrkjum og
Albönum á útivelli. Ísland hefur sex
sinnum mætt Albaníu, síðast í júní á
þessu ári. Ísland hefur unnið þrjá
síðustu leikina gegn Albaníu, alla
með einu marki. Albanía er með sex
stig í riðlinum eftir sigur á Andorra
á útivelli og Moldóvu á heimavelli en
tap fyrir Íslandi á Laugardalsvelli
og gegn Tyrkjum á heimavelli.
Freyr er afar spenntur fyrir leikj-
unum, eftir tvo góða sigra í júní.
„Þetta er spennandi. Maður er
búinn að bíða eftir þessu síðan flaut-
að var af á móti Tyrkjum í júní. Við
hefðum helst viljað spila strax vik-
una á eftir. Nú er loksins komið að
þessu og við erum spenntir,“ sagði
Freyr. Hann segir markmiðið ein-
falt. Íslenska liðið ætlar sér sex stig
úr leikjunum tveimur.
„Moldóva er með fínt lið. Þar eru
góðir og reynslumiklir leikmenn í
bland við unga og spræka leikmenn.
Þeir eru hættulegir andstæðingar
en með litla hefð. Við erum með
hefðina, reynsluna og meiri gæði í
okkar liði. Ef við erum í standi setj-
um við þá kröfu að klára heimaleik-
inn, að sjálfsögðu.
Markmiðið er að taka sex stig úr
þessum leikjum. Við förum til Alb-
aníu og spilum við hörkulið á úti-
velli. Fyrst og síðast hugsum við
ekki öðruvísi en við ætlum að ná í
sex stig. Það eru bara þrír mánuðir
eftir af þessari undankeppni. Nú
verðum við að nýta meðbyrinn sem
skapaðist í júníglugganum,“ sagði
Freyr ákveðinn.
Verðum að
nýta okkur
meðbyrinn
Morgunblaðið/Hari
Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er á sínum stað í hópnum.
Tveir mikilvægir leikir í undankeppni
EM 2020 Jóhann og Alfreð ekki með
Inkasso-deild karla
Leiknir R. – Haukar ................................ 2:0
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson 14., Ignacio
Anglada 45.
Fram – Víkingur Ó. ................................. 0:0
Fjölnir – Þróttur R. ................................. 6:0
Albert Ingason 6., 12., Orri Þórhallsson 25.,
78., Bergsveinn Ólafsson 19., Sigurpáll
Pálsson 47.
Staðan:
Fjölnir 19 11 5 3 41:19 38
Grótta 18 9 7 2 37:25 34
Þór 18 9 6 3 30:18 33
Leiknir R. 19 10 3 6 33:26 33
Víkingur Ó. 19 7 7 5 22:16 28
Keflavík 18 8 4 6 27:23 28
Fram 19 8 3 8 27:29 27
Þróttur R. 19 6 3 10 34:35 21
Afturelding 18 5 3 10 23:34 18
Haukar 19 3 7 9 24:36 16
Magni 18 4 4 10 22:45 16
Njarðvík 18 4 2 12 18:32 14
2. deild karla
KFG – Kári ............................................... 1:3
Pétur Árni Hauksson 18. – Andri Júlíusson
4., 79., Árni Þór Árnason 46.
Leiknir F. – Völsungur ........................... 2:1
Guðmundur Arnar Hjálmarsson 6., Myko-
las Krasnovskis 53. – Aðalsteinn Jóhann
Friðriksson 90.
4. deild karla
Úrslitakeppni:
Hvíti Riddarinn – Björninn......................1:1
Hamar – Kormákur/Hvöt........................ 3:2
Ýmir – Ægir.............................................. 0:2
Elliði – GG................................................. 4:2
Undankeppni EM kvenna
A-riðill:
Eistland – Holland ................................... 0:7
Kósóvó – Tyrkland ................................... 2:0
Slóvenía – Rússland ................................. 0:1
B-riðill:
Bosnía – Georgía ...................................... 7:1
C-riðill:
N-Írland – Noregur ................................. 0:6
D-riðill:
Moldóva – Tékkland................................. 0:7
E-riðill:
Skotland – Kýpur ..................................... 8:0
Þýskaland
B-deild:
Sandhausen – Darmstadt ....................... 1:0
Rúrik Gíslason lék fyrstu 81 mínútuna
fyrir Sandhausen.
Guðlaugur Victor Pálsson byrjaði inni á
hjá Darmstadt en var rekinn út af á 58. mín.
Holland
B-deild:
Excelsior – Helmond ............................... 3:1
Elías Már Ómarsson lék fyrstu 59 mín-
úturnar með Excelsior.
Pólland
Korona Kielce – Jagiellonia ................... 0:2
Böðvar Böðvarsson var ekki í leik-
mannahópi Jagiellonia.
Arka Gdynia – Górnik Zabrze ............... 1:0
Adam Örn Arnarson var allan tímann á
varamannabekk Górnik Zabrze.
Danmörk
OB – SönderjyskE ................................... 0:0
Eggert Gunnþór Jónsson lék síðustu 20
mínúturnar með SönderjyskE. Ísak Óli
Ólafsson var allan tímann á bekknum.
Svíþjóð
Helsingborg – Östersund........................ 2:0
Daníel Hafsteinsson kom inn á hjá Hels-
ingborg eftir 84 mínútur.
B-deild:
Brage – GAIS ........................................... 1:1
Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn
með Brage.
Noregur
Odd – Bodö/Glimt.................................... 3:1
Oliver Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Bodö/Glimt.
KNATTSPYRNA
Þýskaland
B-deild:
Konstanz – Bietigheim ....................... 23:25
Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim.
Lübeck-Schwartau – Gummersbach 22:20
Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði ekki
fyrir Lübeck-Schwartau.
Danmörk
Aalborg – Nordsjælland ..................... 34:25
Janus Daði Smárason skoraði 4 mörk
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon var
ekki í leikmannahópnum. Arnór Atlason er
aðstoðarþjálfari liðsins.
Lemvig – Ribe-Esbjerg....................... 23:26
Rúnar Kárason skoraði 4 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Daníel Þór Ingason 4 en
Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki.
HANDBOLTI
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Íslandsmeistari í
golfi, er í 47.-59. sæti á KPMG-mótinu sem fram fer í
Belgíu, samtals sex höggum undir pari eftir fyrstu
tvo keppnisdagana. Mótið er hluti af Áskor-
endamótaröð Evrópu.
Guðmundur Ágúst lék annan hringinn á mótinu í
gær á 73 höggum og var samtals á tveimur höggum
yfir pari. Guðmundur fór illa af stað og fékk skolla
strax á fyrstu braut. Hann fékk svo þrjú pör í röð
áður en hann fékk tvöfaldan skolla á fimmtu holu.
Hann fékk svo skolla á sjöttu holu en fugl á þeirri
áttundu. Guðmundur lék mun betur á seinni nýjan
holunum, þar sem hann fékk þrjá fugla og tvo skolla.
Guðmundur Ágúst spilaði frábært golf á fyrsta
keppnisdegi mótsins, en hann paraði fyrstu fjórar
holurnar. Þar á eftir fylgdu tveir fuglar í röð og
hann fékk svo aftur fugl á áttundu braut. Hann fékk
svo fimm fugla á seinni níu holunum og var í þriðja
sæti á mótinu eftir fyrsta keppnisdaginn.
Guðmundur fór nokkuð örugglega í gegnum
niðurskurðinn eftir fyrstu tvo keppnisdagana, en
niðurskurðarlínan miðast við fimm högg undir pari.
Meistarinn í 47.-
59. sæti í Belgíu
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Fugl Guðmundur Ágúst Kristjánsson fékk átta
fugla á fyrsta keppnisdegi í Belgíu.
Íslendingaliðið Ribe-Esbjerg vann dramat-
ískan 26:23-útisigur á Lemvig í 1. umferð
dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í
gær.
Ribe-Esbjerg leiddi með einu marki í hálf-
leik, 12:11, en Lemvig kom til baka í seinni
hálfleik og leiddi með tveimur mörkum þegar
fjórar mínútur voru til leiksloka, 23:21. Ribe-
Esbjerg átti hins vegar ótrúlegan lokakafla
þar sem liðið skoraði fmm mörk gegn engu og
Íslendingaliðið fagnaði þriggja marka sigri í
leikslok.
Rúnar Kárason skoraði fjögur mörk fyrir
Ribe-Esbjerg og Daníel Þór Ingason gerði
þrjú en Gunnar Steinn Jónsson komst ekki á
blað.
Þá fóru ríkjandi meistarar Álaborgar vel af
stað og unnu 34:25-sigur á Nordsjælland á
heimavelli en staðan í hálfleik var 18:17, Aal-
borg í vil. Janus Daði Smárason skoraði fjög-
ur mörk fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnús-
son lék ekki með liðinu.
Ótrúlegar loka-
mínútur í Lemvig
Markmenn:
Hannes Þór Halldórsson, Val
Ögmundur Kristinsson, Larissa
Rúnar Alex Rúnarsson, Dijon
Varnarmenn:
Samúel Kári Friðjónsson, Víking
Ragnar Sigurðsson, Rostov
Kári Árnason, Víkingi R.
Ari Freyr Skúlason, Oostende
Sverrir Ingi Ingason, PAOK
Hörður Björgvin Magnússon, CSKA
Moskva
Jón Guðni Fjóluson, Krasnodar
Hjörtur Hermannssmon, Bröndby
Miðjumenn:
Aron Einar Gunnarsson, Al-Arabi
Birkir Bjarnason, án félags
Emil Hallfreðsson, án félags
Gylfi Þór Sigurðsson, Everton
Arnór Ingvi Traustason, Malmö
Rúnar Már Sigurjónsson, Astana
Guðlaugur Victor Pálsson,
Darmstad
Arnór Sigurðsson, CSKA Moskva
Sóknarmenn:
Kolbeinn Sigþórsson, AIK
Jón Daði Böðvarsson, Millwall
Viðar Örn Kjartansson, Rubin Kazan
Albert Guðmundsson, AZ Alkmaar
23 manna landsliðshópurinn