Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Það þarf að fara þrjátíu ár aft-ur í tímann til að nema aðraeins virkni og nú er að finna hjá post-dreifingu. Smekkleysa fór af stað af viðlíka krafti árið 1986, tónleikar, plötur og uppákomur stöðugt og stanslaust og sama er upp á teningnum hér. Samlagið samanstendur af fólki sem er á unglingsaldri og rétt yfir tvítugu og starfar á mjög flötum og höfuð- lausum forsendum, enginn sér- stakur talsmaður er fyrir félags- skapinn, allar ákvarðanir eru teknar á þartilgerðum fundum og enginn hefur meira vald en næsti maður. Það er meira að segja erfitt að dírka upp meðlimi einstakra hljómsveita, sem er gott dæmi um hvernig post-dreifing fer á móti því sem við eigum að venjast úr popp- og rokkmenningu (hún er mjög egódrifin, venjulega). Tónlistarlega hafa listamenn og hljómsveitir sem starfa undir hatti post-dreifingar líka verið að sprengja upp formið og það með góðum árangri. Netkynslóðin nýtir sér það umhverfi sem hún er alin upp í og plöturnar koma venjuleg- ast út á Bandcamp-síðunni, þó að í einhverjum tilfellum komi líka út efnislegir hlutir. Ég ætla að gera mér lítið fyrir núna og rúlla yfir fimm plötur sem komið hafa út í ár. Tvær fyrstu sem ég nefni komu reyndar út í desem- ber 2018 og grófust því eðlilega undir jólafönnina. Plöturnar sem ég ætla að tala um eru allar vel til- raunakenndar. Lög eru frá 20 sek- úndum upp í sautján mínútur og það virðast engar reglur um hvern- ig plöturnar eru settar upp. Vaðið er úr einu í annað og umslags- hönnun er mjög „villt“, hallæris- legar leturgerðir og umslög sem virðast hafa verið sett saman í Paint-forritinu. Allt þetta er hluti af fagurfræði post-dreifingar. Titl- ar eru líka sérstakir, sjá t.d. plöt- una Ísland á HM/Fuck the police system með Hot Sauce Committee. Það er erfitt að lýsa innihaldinu. Allt galopið Platan byrjar með ellefu mínútna hráu bílskúrsrokki á meðan stefið „rklds“ er stutt óhljóðalist, líkt og einhverju hafi verið hent saman í kæruleysi. Já, það er „lo-fi“-bragur yfir mörgu hérna. Bamboozle Gobbledygook með Susan_Cream- cheese er með svipað sýrustig. Um- slagið er snilld og lagatitlarnir ótrúlegir. Opnunarlagið kallast „langar að flytja til ömmu og afa aftur“, „gefins HP LaserJet Pro P1102w, hreyfð mynd – ft. Hot Sauce Committee“ er annað lag og svo „pumpkin spice stóla jóga“. Platan keyrir annars mest á hryss- ingslegri tölvutónlist sem virðist dregin upp úr ódýrum hljóm- borðum. Rennslið er afar óljúft, lögin hendast til og frá í að því er virðist óskipulagðri ringulreið. Semsagt: Frábært! Eitt það besta sem ég hef heyrt úr ranni samlags- ins. Í sumar kom svo platan 1989 út, önnur breiðskífa Tucker Carl- son’s Jonestown Massacre. Brjál- æðið er orðið aðeins minna, oft flottar kassagítarstrokur undir (ó) hljóðum og stefin frá þrjátíu sek- úndum upp í tæpar tvær mínútur. Stundum kemur illa upp tekið raf- magnsgítarhjakk í einhverja stund, því næst sæmilega snotur melódía en svo surg, eins og viðkomandi hafi gleymt græjunum í gangi á meðan hann fór á klósettið. Í sumar kom líka út ný plata eftir side-project, sandinista re- lease party / ætla fara godmode, og hún er fullkomlega galin. Löng, allt á tvist og bast ekki ósvipað því sem ég hef verið að lýsa. Maður þarf að leggja sig eftir að hafa hlustað. Sérstaklega hafði ég gaman af inn- komu Bleachkid. Þvílík sturlun! „Eðlilegasta“ platan hérna er ný plata með Korter í flog, Anna & Bernhard Blume (drepa alla fas- ista). Sveitin leggur sig eftir eins lags súrkálsrokki og býr yfir hljóð- færaskipan þar sem gítarar og trommur koma við sögu. Hugsa sér! Framlag post-dreifingar til ís- lenskrar grasrótartónlistar er ómælt. Þótt það yrði lagt niður á morgun er það samt búið að skrifa sig inn í sögubækurnar. Vindarnir hafa ekki verið svona ferskir í ára- tugi. Hér má allt, hér er allt gert og allt fullkomlega galopið. Yndislegt. » Stundum kemur illaupp tekið rafmagns- gítarhjakk í einhverja stund, því næst sæmilega snotur melódía en svo surg, eins og viðkomandi hafi gleymt græjunum í gangi á meðan hann fór á klósettið. Listasamlagið post- dreifing hefur verið af- ar öflugt í ár og hafa nokkrar mikilsverðar plötur komið út á þess vegum. Hér verður gerð grein fyrir þeim. Þar sem mörkin liggja nefnist sýn- ing á verkum Helga Gíslasonar myndhöggvara sem opnuð verður í Ásmundarsafni í dag kl. 16. Sýn- ingin er sú fjórða í röð einkasýn- inga fimm listamanna sem eiga það sameiginlegt að hafa skapað áber- andi útilistaverk í borginni. Sýn- ingarstjórar eru Sigurður Trausti Traustason og Yean Fee Quay. „Helgi á allmörg listaverk í al- mannarými, bæði í Reykjavík, hér og þar um um landið og erlendis. Á sýningunni í Ásmundarsafni eru verk eftir Helga sem kallast á við útilistaverk hans í gegnum tíðina. Helgi hefur á löngum ferli unnið verk sín í margskonar efni, dregið fram eiginleika hvers um sig og fengið til að lúta vilja sínum. Málm- ur, tré, gler, gifs og textíll leika í höndum hans. Verkin eru formföst en túlkun þeirra er fljótandi, lif- andi og opin. Þar er tíminn meitill sem breytir túlkun verkanna og hver kynslóð gengur að þeim sem óskrifuðu blaði. Helgi fæst í verk- um sínum við manneskjuna og til- vist hennar. Efnisval og formgerð leggur grunn að hughrifum og túlkun sem endurspeglar tilfinn- ingaskalann. Helgi vinnur abstrakt verk og hálffígúratíf verk sem eru hrein abstrakt fyrir honum. Í list- inni leitar hann að því hvar mörkin liggja. Bæði hans mörk sem lista- manns en einnig verkanna,“ segir í fréttatilkynningu. Þar kemur fram að opinber verk Helga skiptist í pöntuð verk og minnisvarða annars vegar og hins vegar þau sem spretta að öllu leyti upp úr hans hugarheimi. „Útilistaverkin og önnur listsköpun hans eru nátengd, allt er á einhvern hátt afleiðing þess sem á undan er komið og vex úr þeim hugmyndaheimi sem Helgi er að vinna í hverju sinni.“ Meðal útilistaverka Helga í Reykjavík eru Scienta sol mentis (2005) sem stendur við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti; minnisvarði um Albert Guðmundsson (2009) við Laugardalsvöll og minnismerki Kaldalóns (1978) í Grjótaþorpinu í Reykjavík. Helgi fæddist í Reykja- vík 1947 og stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1965-69, var í frjálsri myndlistar- deild við sama skóla 1970-71 og Va- land-listaháskóla Gautaborgar 1971-76. Leit að því hvar mörkin liggja Skúlptúr Verk eftir Helga Gíslason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.