Morgunblaðið - 16.08.2019, Qupperneq 2
Sigríður María
er hrifin af
ævintýra-
sögum. Í
uppáhaldi er
serían „The
Kingkiller
Chronicles“
eftir Patrick
Rothfuss.
fyrsta sinn sem ég eyði einhverjum pening í buxur síðan
ég keypti mér forláta Diesel „low rise“-gallabuxur fyrir
fermingarpeninginn. Það þarf varla að fylgja sögunni að
þetta er líka í fyrsta skipti sem ég er ánægð með að hafa
eytt pening í buxur.“
En uppáhaldsmatur?
„Nú erum við að tala sam-
an. Í sumar var það létt-
grilluð og þunnskorin
nautalund á beði af kletta-
salati með sítrónu, ólífuolíu
og parmesanflögum. Uppá-
haldsrétturinn er samt lík-
lega jólamaturinn; villibráð
með kantarellusósu, waldorf
og góðum kartöflum.“
Hverjir eru kostir þínir?
„Ég á auðvelt með að
setja mig í spor annarra og
„greina stöðuna“, gef (held
ég) góð ráð þó að ég fylgi
þeim ekki alltaf sjálf og svo
bý ég til frekar góða kokk-
teila.“
En brestir?
„Svona okkar á milli er ég með frestunaráráttu.
Hvort sem það kemur að verkefnaskilum eða að
mæta á réttum tíma verð ég að finna pressuna sem
myndast í tímaþröng til að komast almennilega af
stað.“
Áttu þér uppáhalds hús/heimili?
„Mér finnst alltaf best að koma heim til mín, svo að
uppáhaldsheimilið mitt er bara staðurinn sem ég bý á
hverju sinni. Hvað arkitektúr varðar er ég mjög hrifin af
hönnun Basalt arkitekta; Bláa lónið, sundlaugin á Hofsósi,
GeoSea og fleira. Amma mín, ásamt frábæru teymi, er
reyndar arkítektinn á bakvið Basalt. Þó að ég sé kannski
ekki alveg hlutlaus er stoltið mjög raunverulegt.“
Hvað er ómissandi í snyrtibuddunni?
„Clinique Smart Custom-Repair Serum + Eye Treat-
ment
Supergoop Unseen Sunscreen
Bronzing Gel frá Sensai
Mac Pro Longwear Paint Pot
Lítil augnskuggapalletta (með brúnum og gylltum lit).“
Hvað er besta ráðið?
„Við erum öll aðalhlutverkið í okkar eigin lífi. Eins yfir-
þyrmandi og það kann að virðast okkur, þá þýðir það líka
að við erum aukahlutverk í lífi annarra – misstór og
mismikilvæg – en aukahlutverk engu að síður. Stundum er
það besta sem við gerum bara að gera okkur grein fyrir
því hvernig við getum sem best sinnt því aukahlutverki í
sögu fólksins í kringum okkur.“
Hvað ertu að gera í New York um þessar mundir?
„Ég vann við lögfræðistörf hérna úti í sumar. Kláraði þá
törn á síðustu dögum og er núna að undirbúa flutninga til
Kaliforníu.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í New York?
„Ég myndi byrja hinn fullkomna dag á því að grípa mér
kaffibolla á litla kaffihúsinu sem er nokkr-
um metrum frá íbúðinni minni og lesa
fréttirnar. Síðan myndi ég gefa mér tvo
tíma í að spila tennis – ekki mjög vel
reyndar, ég byrjaði að spila núna í sumar
en þetta er hrikalega gaman. Um kvöldið
færi ég út að borða á uppáhalds-
tapasstaðinn minn, El Quinto Pino. Síðast
á dagskrá væri svo ferð til Williamsburg í
Brooklyn í alveg geðveikt bíóhús sem
heitir Nitehawk Cinema. Stemningin er
eins og blanda af Snaps og Bíó Paradís;
léttir réttir, heimalagað popp og kokkt-
eilar yfir bíómynd – frábært konsept.
Mæli innilega með því að fólk sem leggur
leið sína til New York kíki þangað ef það
hefur færi á.“
Hver er uppáhaldsbókin þín?
„Nú hef ég alltaf verið mikið fyrir ævin-
týrasögur og í uppáhaldi er serían „The Kingkill-
er Chronicles“ eftir Patrick Rothfuss. Ég bíð
spennt eftir þriðju og síðustu bókinni í seríunni, þó
að höfundurinn sé ekkert að flýta sér.“
Áttu þér uppáhaldsljóðskáld?
„Ætli ég verði ekki að tilnefna Stein Steinarr eft-
ir fullalvarlegan flutning á Verkamanninum í stóru
upplestrarkeppninni í 7. bekk. Í seinni tíð hef ég frekar
eignast uppáhaldsljóð, frekar en skáld. Upp úr standa „Do
not go gentle into that good night“ eftir Dylan Thomas og
„The Love Song of J. Alfred Prufrock“ eftir T. S. Eliot.“
Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu?
„Einhvers konar lífsfullnæging hugsa ég. Fyrir mitt
leyti fælist hún í að geta sinnt almennilega litlum hópi fólks
sem telst minn innsti hringur, samhliða því að vera með
eitthvað verkefni til að sinna. Er svolítið eins og hundur –
ef ég hef ekki næg verkefni leiðist mér og líður illa.“
Hvaða þýðingu hefur menntun fyrir þig?
„Hvers kyns menntun er af hinu góða, á meðan maður
hefur áhuga á því sem maður er að læra. Það þarf ekki að
hafa áhuga á öllum áföngum, en mikilvægt að hafa áhuga á
að læra sviðið.“
Er eitthvert fag í skólanum sem þú kannt betur við
en önnur?
„Gerðardómsréttur og hvers kyns málflutningur.“
Áttu þér uppáhaldstískumerki?
„Eiginlega ekki, en ég finn alltaf eitthvað fallegt í Other
Stories. Svo finnst mér AYR-gallabuxur æði. Þetta er í
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Elínrós Líndal elinros@mbl.is, Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Snæfríður Ingadóttir
sneaja@gmail.com, Nína Guðrún Geirsdóttir ninagudrun@gmail.com Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina
tók Árni Sæberg
S
kemmtilegasti tími ársins er fram undan. Eftir heitar sumarnætur
er farið að skyggja á ný og flest þráum við að komast í rútínu eft-
ir hömluleysi sumarsins.
Þetta er líka tíminn þegar fólk skipuleggur komandi vetur og
reynir að gera örlítið betra mót nú en í fyrra. Það er samt vand-
lifað í þessum heimi því mannfólkið þarf alltaf einhverja örvun en svo má
hún ekki vera of mikil svo við brennum ekki yfir.
Flestir eru þó sammála um að áhugavert nám og námskeið auðgi líf okk-
ar, planti nýjum hugmyndum og trekki okkur í gang.
Ef þú ert ekki með neinar hugmyndir um hvað þú gætir gert til að trekkja
þig í gang eru fjölmargar góðar hugmyndir hér í blaðinu sem gætu hjálpað
þér að taka ákvörðun. Hvort sem það er að skrá þig í dansnám, auka les-
hraðann, fara í MBA-nám eða komast að því í eitt skipti fyrir öll hvað allir
þessir draumar þýða eiginlega. En á Akureyri er hægt að fara á sérstakt
draumanámskeið sem hjálpar þér að ráða í ævintýri næturinnar.
Samningatækni er til dæmis nokk-
uð sem við þyrftum flest að vera betri
í. Aðalsteinn Leifsson, sérfræðingur í
samningatækni, segir að allt lífið snú-
ist um að semja, hvort sem það er á
vinnumarkaði eða í einkalífi. Ef við er-
um góð í að semja verðum við
ánægðari með eigin tilveru.
„Hjónabandið er í grunninn sam-
ningur um að elska, styðja og rækta
hvort annað – við erum í þessu sam-
an til að við getum bæði vaxið og not-
ið. Við hjónin höfum verið saman í
meira en 25 ár, við eigum fjögur börn og erum bæði mjög virk og fáum ólík-
ar hugmyndir. Við höfum t.d. flutt til Noregs til þess að ég geti elt mína
drauma og til Brussel til að hún geti elt sína. Sumir samningar okkar á milli
eru næstum formlegir, eins og um verkaskiptingu á heimilinu, þar sem okk-
ur tókst að finna lausn sem virkar fullkomlega fyrir okkur eftir rúmlega 15
ára hjónaband og miklar viðræður,“ segir hann í viðtali við Skólablaðið.
Í blaðinu er líka viðtal við Ólöfu Júlíusdóttur, sem í dag ver doktorsritgerð
sína í félagsfræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni skoðaði hún stöðu
kynjanna á vinnumarkaði og þá sérstaklega í viðskiptalífinu. Í niðurstöðum
ritgerðarinnar kom fram að ástin spilar stórt hlutverk þegar kemur að stöðu
kvenna í atvinnulífinu. „Þrátt fyrir að hægt sé að kaupa sér þrif og pössun er
ekki hægt að kaupa sig frá allri ábyrgð. En við lifum á tímum frjálshyggj-
unnar þegar tími er mældur í peningum og tíminn sem fer í að sinna fjöl-
skyldunni nýtur síður virðingar í okkar samfélagi,“ segir Ólöf í viðtalinu.
Þótt við séum frekar framarlega þegar kemur að jafnréttisbaráttu er enn
mikill munur á stöðu kvenna í stjórnendastöðum í viðskiptalífinu.
Fólk í nútíma ástarsamböndum og hjónaböndum getur að sjálfsögðu
lagt sitt af mörkum þegar kemur að eigin heimilislífi þótt það ráði ekki öllu á
vinnustaðnum sínum. Við getum til dæmis ákveðið
að taka jafnmikið til, getum skipst á að kaupa í mat-
inn og elda og með góðri samningatækni er hægt
að skipta með sér verkum á sanngjarnan hátt án
þess að allt fari í hund og kött.
Aðalsteinn bendir líka á að það sé aldrei bara ein
leið í boði og fólk þurfi að átta sig á því. Hann bendir
á að við lendum í ógöngum þegar við erum til í að
gera hvað sem er til að eignast eitthvað eitt frekar
en annað, eins og til dæmis hús eða bíl.
Í þetta má lesa að lífið verður í raun miklu betra
ef fólk sleppir tökunum og hugsar áður en það
framkvæmir.
Þarftu að læra
að semja?
Marta María Jónasdóttir
Fagurkeri sem les
ævintýrasögur
Sigríður María
Egilsdóttir er að
flytja til Kaliforníu
þar sem hún mun
leggja stund á
nám við Stan-
ford-háskóla.
Basalt arkitekt-
ar hönnuðu
Vök baðhús.
Sigríður María Egilsdóttir útskrifaðist með mastersgráðu í lögfræði
fyrr í sumar frá Háskólanum í Reykjavík en heldur út til Stanford í fram-
haldsnám í alþjóðlegri viðskiptalögfræði á næstu dögum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Sensai
bronzing
gel er eitt af
því sem
Sigríður
María notar.
Sigríður María mælir
með að fara í Nite-
hawk Cinema í Willi-
amsburg í Brooklyn.