Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 2

Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 2
Sigríður María er hrifin af ævintýra- sögum. Í uppáhaldi er serían „The Kingkiller Chronicles“ eftir Patrick Rothfuss. fyrsta sinn sem ég eyði einhverjum pening í buxur síðan ég keypti mér forláta Diesel „low rise“-gallabuxur fyrir fermingarpeninginn. Það þarf varla að fylgja sögunni að þetta er líka í fyrsta skipti sem ég er ánægð með að hafa eytt pening í buxur.“ En uppáhaldsmatur? „Nú erum við að tala sam- an. Í sumar var það létt- grilluð og þunnskorin nautalund á beði af kletta- salati með sítrónu, ólífuolíu og parmesanflögum. Uppá- haldsrétturinn er samt lík- lega jólamaturinn; villibráð með kantarellusósu, waldorf og góðum kartöflum.“ Hverjir eru kostir þínir? „Ég á auðvelt með að setja mig í spor annarra og „greina stöðuna“, gef (held ég) góð ráð þó að ég fylgi þeim ekki alltaf sjálf og svo bý ég til frekar góða kokk- teila.“ En brestir? „Svona okkar á milli er ég með frestunaráráttu. Hvort sem það kemur að verkefnaskilum eða að mæta á réttum tíma verð ég að finna pressuna sem myndast í tímaþröng til að komast almennilega af stað.“ Áttu þér uppáhalds hús/heimili? „Mér finnst alltaf best að koma heim til mín, svo að uppáhaldsheimilið mitt er bara staðurinn sem ég bý á hverju sinni. Hvað arkitektúr varðar er ég mjög hrifin af hönnun Basalt arkitekta; Bláa lónið, sundlaugin á Hofsósi, GeoSea og fleira. Amma mín, ásamt frábæru teymi, er reyndar arkítektinn á bakvið Basalt. Þó að ég sé kannski ekki alveg hlutlaus er stoltið mjög raunverulegt.“ Hvað er ómissandi í snyrtibuddunni? „Clinique Smart Custom-Repair Serum + Eye Treat- ment Supergoop Unseen Sunscreen Bronzing Gel frá Sensai Mac Pro Longwear Paint Pot Lítil augnskuggapalletta (með brúnum og gylltum lit).“ Hvað er besta ráðið? „Við erum öll aðalhlutverkið í okkar eigin lífi. Eins yfir- þyrmandi og það kann að virðast okkur, þá þýðir það líka að við erum aukahlutverk í lífi annarra – misstór og mismikilvæg – en aukahlutverk engu að síður. Stundum er það besta sem við gerum bara að gera okkur grein fyrir því hvernig við getum sem best sinnt því aukahlutverki í sögu fólksins í kringum okkur.“ Hvað ertu að gera í New York um þessar mundir? „Ég vann við lögfræðistörf hérna úti í sumar. Kláraði þá törn á síðustu dögum og er núna að undirbúa flutninga til Kaliforníu.“ Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í New York? „Ég myndi byrja hinn fullkomna dag á því að grípa mér kaffibolla á litla kaffihúsinu sem er nokkr- um metrum frá íbúðinni minni og lesa fréttirnar. Síðan myndi ég gefa mér tvo tíma í að spila tennis – ekki mjög vel reyndar, ég byrjaði að spila núna í sumar en þetta er hrikalega gaman. Um kvöldið færi ég út að borða á uppáhalds- tapasstaðinn minn, El Quinto Pino. Síðast á dagskrá væri svo ferð til Williamsburg í Brooklyn í alveg geðveikt bíóhús sem heitir Nitehawk Cinema. Stemningin er eins og blanda af Snaps og Bíó Paradís; léttir réttir, heimalagað popp og kokkt- eilar yfir bíómynd – frábært konsept. Mæli innilega með því að fólk sem leggur leið sína til New York kíki þangað ef það hefur færi á.“ Hver er uppáhaldsbókin þín? „Nú hef ég alltaf verið mikið fyrir ævin- týrasögur og í uppáhaldi er serían „The Kingkill- er Chronicles“ eftir Patrick Rothfuss. Ég bíð spennt eftir þriðju og síðustu bókinni í seríunni, þó að höfundurinn sé ekkert að flýta sér.“ Áttu þér uppáhaldsljóðskáld? „Ætli ég verði ekki að tilnefna Stein Steinarr eft- ir fullalvarlegan flutning á Verkamanninum í stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk. Í seinni tíð hef ég frekar eignast uppáhaldsljóð, frekar en skáld. Upp úr standa „Do not go gentle into that good night“ eftir Dylan Thomas og „The Love Song of J. Alfred Prufrock“ eftir T. S. Eliot.“ Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu? „Einhvers konar lífsfullnæging hugsa ég. Fyrir mitt leyti fælist hún í að geta sinnt almennilega litlum hópi fólks sem telst minn innsti hringur, samhliða því að vera með eitthvað verkefni til að sinna. Er svolítið eins og hundur – ef ég hef ekki næg verkefni leiðist mér og líður illa.“ Hvaða þýðingu hefur menntun fyrir þig? „Hvers kyns menntun er af hinu góða, á meðan maður hefur áhuga á því sem maður er að læra. Það þarf ekki að hafa áhuga á öllum áföngum, en mikilvægt að hafa áhuga á að læra sviðið.“ Er eitthvert fag í skólanum sem þú kannt betur við en önnur? „Gerðardómsréttur og hvers kyns málflutningur.“ Áttu þér uppáhaldstískumerki? „Eiginlega ekki, en ég finn alltaf eitthvað fallegt í Other Stories. Svo finnst mér AYR-gallabuxur æði. Þetta er í 2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Elínrós Líndal elinros@mbl.is, Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Snæfríður Ingadóttir sneaja@gmail.com, Nína Guðrún Geirsdóttir ninagudrun@gmail.com Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Árni Sæberg S kemmtilegasti tími ársins er fram undan. Eftir heitar sumarnætur er farið að skyggja á ný og flest þráum við að komast í rútínu eft- ir hömluleysi sumarsins. Þetta er líka tíminn þegar fólk skipuleggur komandi vetur og reynir að gera örlítið betra mót nú en í fyrra. Það er samt vand- lifað í þessum heimi því mannfólkið þarf alltaf einhverja örvun en svo má hún ekki vera of mikil svo við brennum ekki yfir. Flestir eru þó sammála um að áhugavert nám og námskeið auðgi líf okk- ar, planti nýjum hugmyndum og trekki okkur í gang. Ef þú ert ekki með neinar hugmyndir um hvað þú gætir gert til að trekkja þig í gang eru fjölmargar góðar hugmyndir hér í blaðinu sem gætu hjálpað þér að taka ákvörðun. Hvort sem það er að skrá þig í dansnám, auka les- hraðann, fara í MBA-nám eða komast að því í eitt skipti fyrir öll hvað allir þessir draumar þýða eiginlega. En á Akureyri er hægt að fara á sérstakt draumanámskeið sem hjálpar þér að ráða í ævintýri næturinnar. Samningatækni er til dæmis nokk- uð sem við þyrftum flest að vera betri í. Aðalsteinn Leifsson, sérfræðingur í samningatækni, segir að allt lífið snú- ist um að semja, hvort sem það er á vinnumarkaði eða í einkalífi. Ef við er- um góð í að semja verðum við ánægðari með eigin tilveru. „Hjónabandið er í grunninn sam- ningur um að elska, styðja og rækta hvort annað – við erum í þessu sam- an til að við getum bæði vaxið og not- ið. Við hjónin höfum verið saman í meira en 25 ár, við eigum fjögur börn og erum bæði mjög virk og fáum ólík- ar hugmyndir. Við höfum t.d. flutt til Noregs til þess að ég geti elt mína drauma og til Brussel til að hún geti elt sína. Sumir samningar okkar á milli eru næstum formlegir, eins og um verkaskiptingu á heimilinu, þar sem okk- ur tókst að finna lausn sem virkar fullkomlega fyrir okkur eftir rúmlega 15 ára hjónaband og miklar viðræður,“ segir hann í viðtali við Skólablaðið. Í blaðinu er líka viðtal við Ólöfu Júlíusdóttur, sem í dag ver doktorsritgerð sína í félagsfræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni skoðaði hún stöðu kynjanna á vinnumarkaði og þá sérstaklega í viðskiptalífinu. Í niðurstöðum ritgerðarinnar kom fram að ástin spilar stórt hlutverk þegar kemur að stöðu kvenna í atvinnulífinu. „Þrátt fyrir að hægt sé að kaupa sér þrif og pössun er ekki hægt að kaupa sig frá allri ábyrgð. En við lifum á tímum frjálshyggj- unnar þegar tími er mældur í peningum og tíminn sem fer í að sinna fjöl- skyldunni nýtur síður virðingar í okkar samfélagi,“ segir Ólöf í viðtalinu. Þótt við séum frekar framarlega þegar kemur að jafnréttisbaráttu er enn mikill munur á stöðu kvenna í stjórnendastöðum í viðskiptalífinu. Fólk í nútíma ástarsamböndum og hjónaböndum getur að sjálfsögðu lagt sitt af mörkum þegar kemur að eigin heimilislífi þótt það ráði ekki öllu á vinnustaðnum sínum. Við getum til dæmis ákveðið að taka jafnmikið til, getum skipst á að kaupa í mat- inn og elda og með góðri samningatækni er hægt að skipta með sér verkum á sanngjarnan hátt án þess að allt fari í hund og kött. Aðalsteinn bendir líka á að það sé aldrei bara ein leið í boði og fólk þurfi að átta sig á því. Hann bendir á að við lendum í ógöngum þegar við erum til í að gera hvað sem er til að eignast eitthvað eitt frekar en annað, eins og til dæmis hús eða bíl. Í þetta má lesa að lífið verður í raun miklu betra ef fólk sleppir tökunum og hugsar áður en það framkvæmir. Þarftu að læra að semja? Marta María Jónasdóttir Fagurkeri sem les ævintýrasögur Sigríður María Egilsdóttir er að flytja til Kaliforníu þar sem hún mun leggja stund á nám við Stan- ford-háskóla. Basalt arkitekt- ar hönnuðu Vök baðhús. Sigríður María Egilsdóttir útskrifaðist með mastersgráðu í lögfræði fyrr í sumar frá Háskólanum í Reykjavík en heldur út til Stanford í fram- haldsnám í alþjóðlegri viðskiptalögfræði á næstu dögum. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Sensai bronzing gel er eitt af því sem Sigríður María notar. Sigríður María mælir með að fara í Nite- hawk Cinema í Willi- amsburg í Brooklyn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.