Morgunblaðið - 16.08.2019, Qupperneq 12
A
rna Gerður Bang fór á
sínum tíma í Háskóla Ís-
lands og útskrifaðist það-
an með BA-gráðu í heim-
speki með ítölsku sem
aukafag. „Heimspekin heillaði mig
snemma, ekki síst stjórnmálaheim-
speki og umhverfissiðfræði með sín-
um áleitnu og óþægilegu spurningum
um umgengni okkar hvert við annað,
aðrar dýrategundir og móður jörð.
Ég nýtti tækifærið á meðan á nám-
inu stóð og tók hluta þess sem Eras-
mus-skiptinemi í heimspeki við
Middlesex University í London. Það
var virkilega þroskandi reynsla og
mæli ég eindregið með því að taka
hluta náms erlendis sé það í boði.
Dvölin í London ýtti undir enn frek-
ari áhugi minn á endalausum pæl-
ingum um alþjóðastjórnmál, sam-
skipti og siðfræði. Ég fann að mig
langaði til að kafa dýpra í fræðin og
lauk í framhaldinu meistaraprófi í Al-
þjóðastjórnmálafræði (MSc Int-
ernational Relations) í London Scho-
ol of Economics and Political Science
(LSE).“
Hvernig lýsir þú vinnunni þinni?
„Vinnan mín sem sérfræðingur á
alþjóðdeild Alþingis felst m.a. í því að
veita þingmönnum og alþjóða-
nefndum faglega aðstoð á sviði al-
þjóðamála og undirbúnings fyrir al-
þjóðlega þingmannafundi hér heima
og erlendis. Ég vinn þessa stundina
aðallega með Íslandsdeildum þriggja
alþjóðanefnda sem beina sjónum sín-
um að málefnum Sameinuðu þjóð-
anna, öryggis- og varnarmálum og
norðurslóðamálum.“
Hvers vegna viðbótar diplómanám
í opinberri stjórnsýslu? „Ég fann
vaxandi löngun til að fríska upp á
toppstykkið og takast á við hugar-
leikfimi á nýjum sviðum sem gætu
nýst mér bæði í leik og starfi. Mig
langaði til að dýpka skilning minn
fræðilega á stjórnun, stjórnsýslunni
og ákvarðanatöku, án þess þó að
minnka við mig vinnu. Það hentaði
því vel að skrá sig í diplómanám á
meistarastigi í opinberri stjórnsýslu
við Háskóla Íslands með vinnu og
klára það á viðráðanlegum hraða. Að
því loknu er svo hægt að taka stöð-
una um það hvort maður vilji halda
áfram og fá námið metið að fullu inn í
MPA-námið (meistaranám í opin-
berri stjórnsýslu) í sama skóla.“
Hvernig fannst þér námið?
„Mér fannst það eflandi, gefandi
og gleðjandi. Það spilaði vel saman
við meistaragráðuna mína í alþjóða-
stjórnmálafræði og frá fyrsta áfanga
naut ég þess að sökkva mér ofan í
námið og finna sömu ástríðuna og áð-
ur fyrir því að uppgötva og skilja ný
fræði. Að bæta við sig nýrri þekkingu
og ná settu marki er svo nærandi og
gaf mér aukið hugrekki til að spyrja
nýrra og krefjandi spurninga.“
Hvað kom á óvart?
„Kannski helst hvað námsefnið var
dýnamískt og frjótt og hver einasti
áfangi gagnlegur. Verkefnin voru
raunhæf og endurspegluðu íslenskan
veruleika á skemmtilegan og krefj-
andi hátt.“
Hvernig sérðu fyrir þér að
nota það?
„Námið breikkaði starfsmöguleika
mína og uppfærði ferilskrána mína á
styrkjandi hátt. Það hefur eflt mig í
starfi á ýmsa vegu; aukið sjálfstraust
og fengið mig til að horfa út fyrir
boxið og skoða hlutina frá nýjum
sjónarhornum. Það er svo hollt að
stíga aðeins út fyrir þægindaramm-
ann og hrista aðeins upp í hlutunum.
Það kemur í veg fyrir stöðnun og ýtir
undir og nærir forvitnina sem býr í
okkur öllum.“
Hvernig er lífið utan vinnu?
„Glimrandi gott og fallegt. Þó að
vellíðan í vinnu sé ómetanleg er dýr-
mætasti tíminn samt klárlega með
fjölskyldu og vinum.“
Hvað finnst þér áhugavert að gera?
„Ég hef alltaf haft gríðarlegan
áhuga á því að heimsækja ný land-
svæði og menningarheima. Að upp-
lifa það hvernig fólk hagar lífi sínu á
mismunandi vegu eftir heimshlutum
finnst mér heillandi og áhugavert.
Fjölskyldan mín er þó helsta áhuga-
mál mitt og veit ég ekkert betra en
að eiga stundir með henni. Ekki
skemmir fyrir ef hægt er að sam-
tvinna þær stundir með hinu stóra
áhugamálinu mínu sem eru ferðalög.
Að ferðast um heiminn hefur verið
samofið einkalífi mínu og vinnu um
árabil og þykir mér það dýrmæt for-
réttindi.“
Áttu gott ráð fyrir þá sem langar að
bæta við sig í námi?
„Já, ekki hika við að kanna málið
og taka fyrsta skrefið. Það er ótal
margt í boði hjá menntastofnunum
og háskólum og oft eru vinnuveit-
endur tilbúnir að koma til móts við
starfsfólk varðandi sveigjanleika og
endurmenntun. Þegar ég byrjaði í
náminu fannst mér gott að fara ekki
of geyst af stað, án þess þó að missa
marks á endapunktinum, sem var að
klára námið innan ákveðins tíma-
ramma.“
Er stjórnsýsla skemmtileg?
„Ef þú hefur gaman af alls konar
starfsemi sem snýr að því að fram-
fylgja stefnu stjórnvalda hverju sinn,
þá er hún dúndurskemmtileg.“
Er vinnustaðurinn góður?
„Eftir 15 fín ár starfandi á skrif-
stofu Alþingis svara ég því heilshug-
ar játandi. Þar starfar afburðahæft
og yndislegt fólk eftir góðum gildum.
Mér þykir virkilega vænt um vinnu-
staðinn minn.“
Hvað er menntun í þínum huga?
„Mennt er máttur, endurmenntun
er ofurmáttur!“
„Nám nærir
forvitnina“
Arna Gerður Bang alþjóðastjórnmálafræð-
ingur hefur starfað um árabil sem sérfræðingur
á alþjóðadeild nefndasviðs Alþingis. Hún lauk
viðbótar diplómanámi á meistarastigi í opin-
berri stjórnsýslu í Háskóla Íslands í sumar.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019