Morgunblaðið - 16.08.2019, Síða 21
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 21
Viltu gerast vinur JSB?
Danslistarskóli JSB er á facebook
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili
að Frístundakorti Reykjavíkurborgar
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Nám og kennsla
Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem listdansskóli á grunn- og
framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB.
Kennslustaður: Danslistarskóli JSB í Reykjavík, Lágmúla 9.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Kennsla hefst 4. september
Rafræn skráning er á jsb.felog.is. Nánari upplýsingar í síma 581 3730.
Jazzballett
Skemmtilegt og fjölbreytt dansnám fyrir stelpur
og stráka frá 6 ára aldri.
Í boði eru byrjenda- og framhaldshópar á
aldrinum 6-7 ára, 8-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára
og 16 ára og eldri.
Uppbyggileg dansþjálfun sem veitir nemendum
útrás fyrir dans- og sköpunargleði. Unnið er með
fjölbreytta tónlist í tímum. Frábært dansnám sem
eflir og styrkir nemendur, bæði líkamlega
og andlega.
Forskóli fyrir 3-5 ára
Skemmtilegt og þroskandi dansnám fyrir börn
á aldrinum 3-5 ára. Dansgleði og hreyfifærni
nemenda virkjuð í gegnum dans og leiki.
Kennt er 1x í viku.
Vertu með í vetur!
Innritun fyrir haustönn stendur yfir á www.jsb.is
og kunna ekki að tjá tilfinningar sínar. Það getur verið
vandasamt að vita hvar heilbrigð mörk liggja þegar fólki
hefur ekki verið kennt að setja sér sjálfum og öðrum
heilbrigð mörk. Fæstir kunna hins vegar að lesa hugs-
anir og flestir eru til í að virða þau mörk sem þeim eru
sett.“
Sara tekur dæmi um fólk sem hringir og biður um að-
stoð.
„Ef þú segir nei við fólk þegar það biður um aðstoð
hringja þessir aðilar vanalega bara í einhvern annan, án
þess að erfa það við þig. Það er mikil sjálfsvirðing fólgin í
því að kunna að setja heilbrigð mörk.“
Erum með innbyggða skömm úr æsku
Er ekki nóg að segja fólki að elska sig fyrst og aðra
svo?
,,Nei, því við erum öll með ótta við það óþekkta. Mín
reynsla er sú að við erum með innbyggða skömm úr
æsku þar sem við upplifðum okkur ekki nóg. Rótin er sú
að sem börn vorum við elskuð fyrir það sem við gerðum, í
staðinn fyrir það eitt að vera til. Við hrósum fyrir ranga
hluti. Við t.d. hrósum börnunum okkar fyrir háar ein-
kunnir í stað heiðarleika eða að tjá tilfinningar sínar.
Þetta gerir það að verkum að sjálfsmat okkar sem börn
og samþykki felst í einkunnaspjaldinu. Afleiðingarnar
eru þær að við leitum eftir samþykki með árangri og við
verðum aldrei nóg, þar sem það er alltaf hægt að ná
meiri árangri. Dæmið gengur ekki upp. Við verðum eins
og hamstrar í hjóli í vinnunni og í öllum þeim verkefnum
sem við tökum okkur fyrir hendur. Þar til við lendum á
vegg og fáum kulnun, streitutengda kvilla eða aðra sjúk-
dóma. Rannsóknir sýna að það er sterkt samband á milli
áfalla í bernsku og líkamlegra heilsufarsvandamála, en
áföll eru ekki bara atburðir sem rata í fréttirnar. Eins er
ekki viðurkennt í dag að gangast við öllum tilfinningum
sínum. Því allur skalinn er eðlilegur. Það er almennt ekki
viðurkennt að það felist styrkleiki í berskjöldun. Ef fólk
á hús, börn og fellihýsi er eins og það sé búið að afsala
sér réttinum að mega vera með vandamál, sem er fráleitt
að mínu mati.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Sem lögmaður má
ráðleggja fólki og fara
með stærstu hags-
munamál þess sam-
kvæmt lögum. For-
ræði barna, framtíð
fyrirtækis, skilnaðir,
kynferðisbrot og
fleira. En við nálg-
umst ekki kjarnann,
rót vandans, þar sem
orsökina er að finna.
Ef við óttumst stöð-
ugt að vera hafnað
eða dæmd og viður-
kennum ekki þessa
skömm og sektar-
kennd sem fylgir
okkur verðum við
ekkert annað en
leikbrúða sem
speglar annað fólk.
Þá erum við sífellt í
viðbragði og reyn-
um að þóknast.