Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 22
Að skapa frábært og fræðandi
umhverfi krefst aðgangs að fjöl-
breytilegum hugbúnaði og marg-
miðlunarefni, úrræðum til þess að
kynna námsefnið og deila hug-
myndum. Það þarf búnað fyrir
mismunandi kennsluaðferðir til
þess að hjálpa nemendum að ná
árangri. Gagnvirkir skjáir frá
SMART og Prowise eru góð lausn
sem gerir kennslu með tölvum
auðveldari og áhrifaríkari.
Gagnvirkir skjáir umbreyta tölv-
unni í kennslu- og samstarfstæki.
Með þeim er hægt að stjórna
hugbúnaði, hafa aðgang að og
sýna upplýsingar frá internetinu,
sýna myndbönd og flytja kynn-
ingar, allt frá einum stað með því
einfaldlega að snerta skjáinn eða
skrifa á hann með þar til gerðum
penna eða fingri. Einnig er hægt
að fá PC-tölvu innbyggða í gagn-
virka skjáinn.
Hámarksárangur í kennslustof-
unni fæst með því að sýna fjöl-
breytilegt margmiðlunarefni frá
einum stað. Kennsluna má bæta
með því að beina athygli að aðal-
atriðum og skrifa niður punkta á
skjámyndina. Síðan er hægt að
búa til skýrslu um efni kennslu-
stundarinnar sem síðan má
prenta, senda með tölvupósti eða
gefa út sem HTML-skjal.
Skjáirnir eru með innbyggt
Android-stýrikerfi og einnig er
hægt að fá PC-tölvu sem tengist í
hólf í baki skjásins. Sumir skjáir
eru með fjóra hljóðnema, gott
hljóðkerfi og vefmyndavél sem
staðalbúnað. Ýmsar rafmagns
vegg- og hjólafestingar eru í
boði.
Gagnvirkir skjáir
gjörbreyta kennslunni.
Gagnvirkir skjáir
umbreyta tölvunni
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
H
ver er merkingin á bak við
Óskandi?
„Nafnið Óskandi samanstendur
af ósk og andi. Ósk er dregið af því
að óska sér en einnig vísun í föður-
nafnið Óskarsdóttir. Andi er þýðing á „spirit“
og vísun í andrúmsloftið, þar sem eitt af að-
almarkmiðum skólans er að bjóða upp á upp-
byggilegt, jákvætt og notalegt andrúmsloft.“
-vað getur þú sagt mér um skólann?
„Óskandi er dansskóli á Eiðistorgi, Seltjarn-
arnesi. Skólinn er sjálfstæð eining undir Dans-
garðinum og er í nánu samstarfi við Klassíska
listdansskólann sem er á Grensásvegi og í
Mjóddinni. Óskandi og Klassíski listdansskólinn
mynda teymi af góðum kennurum sem vinna
saman að því að bjóða upp á faglegt og fjöl-
breytt dansnám fyrir börn frá þriggja ára aldri.
Markmið skólanna er að bjóða upp á dans-
kennslu í þroskandi og uppbyggjandi umhverfi;
opna hugann fyrir sköpun og nýrri hugsun,
auka félagsfærni, hreyfifærni og sjálfstraust.“
Hvernig er námsleið Óskandi fyrir 12-15 ára
börn og 16 ára plús?
„Við hjá Óskanda á Eiðistorgi erum mjög
spennt að bjóða upp á námsleið sem heitir dans-
fjör og er skemmtileg blanda af ballett, nútíma-
dansi og jóga. Kjörið fyrir nemendur sem lang-
ar að dansa sér til ánægju og huga að líkamlegri
og andlegri þjálfun í faglegu og skemmtilegu
umhverfi.“
Hvað hefur ballettinn gert fyrir þig?
„Ég hef stundum hugsað hvað líf mitt hefði
verið öðruvísi ef ég hefði ekki byrjað í dansi og
fundið áhugamál sem ég brann fyrir. Ballettinn
og dansinn gáfu mér félagsfærni, líkamslæsi og
tækifæri til að vera í núinu og síðast en ekki síst
mikla gleði. Þegar ég hugsa um mig sem ung-
ling þá gaf dansinn mér sjálfstraust til að vera
ég sjálf, og það er eitt af því sem ég er svo þakk-
lát fyrir í dag.“
Af hverju er dans góður fyrir unga krakka?
„Hreyfing er fyrsta tungumál barnsins og
gólfið er fyrsti leikvöllurinn þar sem barnið fær
tækifæri til þess að finna og þekkja hvar eigin
líkami er í rýminu. Dans hvetur til sköpunar, ör-
yggis og forvitni, þátta sem undirbúa nemand-
ann fyrir lífið. Ég tel að ávinningurinn af dans-
tíma sé margvíslegur og lít svo á að hann skili
sér þegar litið er til framtíðar. Þegar ég bætti
við mig námi í hreyfiþroska barna öðlaðist ég
nýja sýn á hvað hreyfing og umhverfi gegna
mikilvægu hlutverki við þroskun heilans. Hvern-
ig dans og hreyfing geta stutt barnið líkamlega,
andlega og tilfinningalega og haft áhrif á sköp-
unargáfuna.“
Hvaðan kemur áhugi þinn á ballett?
„Áhugi minn á ballett og dansi byrjaði á stofu-
gólfinu heima þar sem ég dansaði alla daga og
var óstöðvandi. Þegar ég var fimm ára fór ég að
æfa samkvæmisdans en sjö ára sendu foreldrar
mínir mig í fyrsta balletttímann hjá Ballettskóla
Guðbjargar Björgvins og eftir það varð ekki aft-
ur snúið. Ég var búin að finna áhugamál og
seinna atvinnu sem ég elskaði.“
„Dans eykur félagsfærni“
Guðrún Óskarsdóttir dans-
kennari segir að ballettinn og
dansinn hafi gefið sér félags-
færni, líkamslæsi og tækifæri
til að vera í núinu. Svo ekki sé
minnst á gleðina. Hún tók
nýverið við Ballettskóla
Guðbjargar Björgvins sem nú
heitir Óskandi.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Katla Þórarinsdóttir og
Guðrún Óskarsdóttir
danskennarar Óskandi.
„Hreyfing er
fyrsta tungumál
barnsins og
gólfið er fyrsti
leikvöllurinn
þar sem barnið
fær tækifæri til
þess að finna og
þekkja hvar
eigin líkami er í
rýminu.
Fyrsta námskeið Tónagulls var haldið árið 2004.
Námskeiðin hafa vaxið og dafnað á 15 árum
og hafa aldrei verið vinsælli en nú.
Í tilefni tímamótanna bjóðum við upp á Tónagull á pólsku í
Gerðubergi í vetur, með stuðningi pólska sendiráðsins.
Hefðbundin námskeið á íslensku verða á sínum stað í
Reykjavík-Skipholti og á Selfossi. Skráningar á netinu.
Tónagull heldur tónlistarnámskeið fyrir börn 0-3 ára og
fjölskyldur þeirra þar sem gleði og þátttaka eru í fyrirrúmi.
Sjá nánar á www.tonagull.is
Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir
er höfundur og stofnandi
Tónagulls
Rannsóknagrundað
tónlistaruppeldi síðan 2004
Tónagull er 15 ára!
Tónagull þakkar viðtökurnar
á sívinsælu tónlistarnámskeiðin fyrir
foreldra og börn frá fæðingu til 3ja ára