Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
É
g lærði fyrst stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, síðan fór ég í meistaranám í London
School of Economics (LSE) og tók því næst
MBA-nám í Edinburgh Business School.
Undanfarin tvö ár hef ég verið í doktorsnámi í
Grenoble Ecole de Management (GEM) meðfram störfum
fyrir EFTA,“ segir Aðalsteinn, sem er framkvæmdastjóri
hjá EFTA og ber ábyrgð á daglegum rekstri stofnunar-
innar.
„Við erum með höfuðstöðvar í Genf, þar sem við fáumst
við fríverslunarsamninga, en flestir starfsmenn eru í
Brussel, þar sem við önnumst umsjón með EES-samn-
ingnum. Svo er einnig lítil starfsstöð í Lúxemborg sem
annast samstarf við ESB um hagtölur. Ég hef heimili í
Genf en er í Brussel í hverri viku. Síðan flýg ég til Íslands
tvisvar á ári til að kenna samningatækni í HR. Í vetur kall-
aði ríkissáttasemjari síðan á mig til að vinna með sér og
það hefur verið einstaklega jákvætt og gefandi,“ segir
hann.
Aðalsteinn hefur brennandi ástíðu fyrir samn-
ingatækni.
„Þú finnur varla nokkurt fag sem hefur jafn mikla
praktíska þýðingu fyrir fólk í daglegu lífi og starfi. Rann-
sóknir í samningatækni eru einnig algerlega heillandi, þar
sem blandast ólíkar fræðigreinar – eins og t.d. sálfræði,
hagfræði, leikjafræði, stjórnmálafræði, mannfræði o.s.frv.
– og ólíkar rannsóknaraðferðir. Í grunninn fjallar samn-
ingatækni um hvernig við tökum ákvarðanir með öðrum.
Árangur okkar í lífinu, hvað sem við fáumst við, byggir
mikið á þekkingu, hæfileika og færni í að vinna með öðrum
– og stundum takast á við önnur sjónarmið – að sameigin-
legri ákvarðanatöku.“
Hvaðan kemur þessi áhugi?
„Ég las fyrstu bókina í samningatækni þegar ég var
þrettán ára og hreinlega gat ekki lagt hana frá mér. Þessi
neisti varð að báli í MBA-náminu þar sem ég tók áfanga í
samningatækni. Þegar ég fann hversu áhrifaríkar þær að-
ferðir sem ég lærði voru í vinnunni varð bálið að ástríðu.
Það sem er mest spennandi er þegar tekst að ná frábær-
um samningi og á sama tíma uppfylla þarfir mótaðilans og
skapa sátt. Eins þegar vel tekst til við að aðstoða aðra við
lausn erfiðra deilumála.“
Hvernig nýtist hann í lífinu?
„Hvar á ég að byrja? Áhugi á samningatækni nýtist í
daglegu lífi í samskiptum við maka, börn, ættingja og vini.
Hún nýtist þegar þú semur um laun og hún nýtist sér-
staklega í daglegu starfi þar sem þú kaupir eða selur
vörur og þjónustu og tekur ákvarðanir með kollegum um
lausn verkefna. Samningatæknin gefur þér nýja sýn á
ákvarðanatöku, samskipti, togstreitu og átök. Hún gefur
þér verkfæri til að takast á við og stjórna ferli viðræðna og
hagnýt ráð við mismunandi aðstæður sem koma upp.
Áherslan er ekki að ná sem mestu fyr-
ir þig í öllum aðstæðum heldur að
skilja þarfir og langanir fólks í kring-
um þig, vanda samskipti og gæta þess
að þó að við tökumst stundum á um
málefni getum við átt einlæg, heið-
arleg og góð samskipti.“
Hvað þykir þér skemmtilegast
að semja um?
„Mér finnst skemmtilegast að tak-
ast á við flóknar samningaviðræður þar sem mætast
margir ólíkir aðilar með mismunandi hagsmuni, þarfir og
viðhorf. Það er áskorun en um leið ótrúlega gefandi að
setja sig í spor annarra og takast á við þá óhjákvæmilegu
togstreitu sem myndast á milli þess að vinna saman að
lausn og gæta eigin hagsmuna.“
Ertu með hjónabandssamning?
„Marga! Hjónabandið er í grunninn samningur um að
elska, styðja og rækta hvort annað – við erum í þessu sam-
an til að við getum bæði vaxið og notið. Við hjónin höfum
verið saman í meira en 25 ár, við eigum fjögur börn og er-
um bæði mjög virk og fáum ólíkar hugmyndir. Við höfum
t.d. flutt til Noregs til þess að ég geti elt mína drauma og
til Brussel til að hún geti elt sína. Sumir samningar okkar
á milli eru næstum formlegir, eins og um verkaskiptingu á
heimilinu þar sem okkur tókst að finna lausn sem virkar
fullkomlega fyrir okkur eftir rúmlega 15 ára hjónaband og
miklar viðræður!“
Hvað segir maki og börn, ertu búin að smita þau?
„Sumum finnst einkennilegt að semja við börnin um
ákvarðanir í daglegu lífi en þegar þú viðurkennir börnin
sem samningsaðila gefur þú þeim rödd við borðið – sem
eykur sjálfstraust þeirra og ábyrgð. Allir á heimilinu hafa
smitast af áhuganum á samningatækni og hann nýtist vel.
Konan mín rekur eigið fyrirtæki og
hefur starfað við viðskiptaþróun fyrir
alþjóðleg fyrirtæki þar sem samn-
ingatækni nýtist gríðarlega vel.“
Hvernig er fagið samningatækni
byggt upp í MBA-náminu í HR?
„Í MBA-náminu leggjum við mikla
áherslu á að efla færni, viðhorf og
dómgreind, ekki síður en fræðilega
þekkingu. Eina leiðin til að gera það er að láta nemendur
takast á við verkefni og „uppgötva“ lausnirnar áður og
setja þær síðan í fræðilegt samhengi. Ég læt alla nem-
endur lesa hartnær allt lesefni áfangans og skila verk-
efnum áður en þeir ganga inn í fyrstu kennslustundina,
þannig að við þurfum ekki að nota tíma í að fara yfir
grundvallarþekkingu sem hægt er að læra af bók. Sá tími
sem við höfum saman er allur nýttur í hagnýtar æfingar
og samningaviðræður sem gefa nemendum færi á að upp-
lifa þær áskoranir, tilfinningar og álitaefni sem koma upp í
ólíkum samningaviðræðum og – ef vel tekst til – komast
þeir sjálfir á sporið um leiðir til að ná sem mestum ár-
angri. Síðan ræðum við upplifunina af æfingunum, hvað
við getum tekið með okkur og hagnýtt okkur í næstu æf-
ingu og í lífinu sjálfu.“
Hvað ættu allir að vita um samningatækni?
„Rannsóknir benda hins vegar eindregið til þess að við
séum flest slæmir samningamenn! Margir óttast að semja
og biðja um það sem þeir vilja – og sætta sig því við það
sem þeir geta fengið án teljandi samninga. Með því að
nýta einfaldar og heiðarlegar aðferðir nærðu hins vegar
ekki aðeins betri árangri fyrir þig heldur getur þú einnig á
Hvernig við tökum
ákvarðanir með öðrum
Aðalsteinn Leifsson, framkvæmdastjóri hjá EFTA, er sérfræðingur í samningatækni og hefur brennandi
ástríðu fyrir faginu. Að hans mati er varla hægt að finna nokkurt fag sem hefur jafn mikla praktíska þýðingu
fyrir fólk í daglegu lífi og starfi. Hann kennir samningatækni við MBA-deildina í Háskólanum í Reykjavík.
Elínrós Línda | elinros@mbl.is
„Aldrei að falla fyrir
einni lausn! Ef þér
finnst þú verða að fá
þetta hús, þennan bíl
eða þessa einu lausn
ertu í vandræðum.“
„Hjónabandið er í
grunninn samningur
um að elska, styðja og
rækta hvort annað –
við erum í þessu sam-
an til að við getum
bæði vaxið og notið.“