Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019 É g lærði fyrst stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, síðan fór ég í meistaranám í London School of Economics (LSE) og tók því næst MBA-nám í Edinburgh Business School. Undanfarin tvö ár hef ég verið í doktorsnámi í Grenoble Ecole de Management (GEM) meðfram störfum fyrir EFTA,“ segir Aðalsteinn, sem er framkvæmdastjóri hjá EFTA og ber ábyrgð á daglegum rekstri stofnunar- innar. „Við erum með höfuðstöðvar í Genf, þar sem við fáumst við fríverslunarsamninga, en flestir starfsmenn eru í Brussel, þar sem við önnumst umsjón með EES-samn- ingnum. Svo er einnig lítil starfsstöð í Lúxemborg sem annast samstarf við ESB um hagtölur. Ég hef heimili í Genf en er í Brussel í hverri viku. Síðan flýg ég til Íslands tvisvar á ári til að kenna samningatækni í HR. Í vetur kall- aði ríkissáttasemjari síðan á mig til að vinna með sér og það hefur verið einstaklega jákvætt og gefandi,“ segir hann. Aðalsteinn hefur brennandi ástíðu fyrir samn- ingatækni. „Þú finnur varla nokkurt fag sem hefur jafn mikla praktíska þýðingu fyrir fólk í daglegu lífi og starfi. Rann- sóknir í samningatækni eru einnig algerlega heillandi, þar sem blandast ólíkar fræðigreinar – eins og t.d. sálfræði, hagfræði, leikjafræði, stjórnmálafræði, mannfræði o.s.frv. – og ólíkar rannsóknaraðferðir. Í grunninn fjallar samn- ingatækni um hvernig við tökum ákvarðanir með öðrum. Árangur okkar í lífinu, hvað sem við fáumst við, byggir mikið á þekkingu, hæfileika og færni í að vinna með öðrum – og stundum takast á við önnur sjónarmið – að sameigin- legri ákvarðanatöku.“ Hvaðan kemur þessi áhugi? „Ég las fyrstu bókina í samningatækni þegar ég var þrettán ára og hreinlega gat ekki lagt hana frá mér. Þessi neisti varð að báli í MBA-náminu þar sem ég tók áfanga í samningatækni. Þegar ég fann hversu áhrifaríkar þær að- ferðir sem ég lærði voru í vinnunni varð bálið að ástríðu. Það sem er mest spennandi er þegar tekst að ná frábær- um samningi og á sama tíma uppfylla þarfir mótaðilans og skapa sátt. Eins þegar vel tekst til við að aðstoða aðra við lausn erfiðra deilumála.“ Hvernig nýtist hann í lífinu? „Hvar á ég að byrja? Áhugi á samningatækni nýtist í daglegu lífi í samskiptum við maka, börn, ættingja og vini. Hún nýtist þegar þú semur um laun og hún nýtist sér- staklega í daglegu starfi þar sem þú kaupir eða selur vörur og þjónustu og tekur ákvarðanir með kollegum um lausn verkefna. Samningatæknin gefur þér nýja sýn á ákvarðanatöku, samskipti, togstreitu og átök. Hún gefur þér verkfæri til að takast á við og stjórna ferli viðræðna og hagnýt ráð við mismunandi aðstæður sem koma upp. Áherslan er ekki að ná sem mestu fyr- ir þig í öllum aðstæðum heldur að skilja þarfir og langanir fólks í kring- um þig, vanda samskipti og gæta þess að þó að við tökumst stundum á um málefni getum við átt einlæg, heið- arleg og góð samskipti.“ Hvað þykir þér skemmtilegast að semja um? „Mér finnst skemmtilegast að tak- ast á við flóknar samningaviðræður þar sem mætast margir ólíkir aðilar með mismunandi hagsmuni, þarfir og viðhorf. Það er áskorun en um leið ótrúlega gefandi að setja sig í spor annarra og takast á við þá óhjákvæmilegu togstreitu sem myndast á milli þess að vinna saman að lausn og gæta eigin hagsmuna.“ Ertu með hjónabandssamning? „Marga! Hjónabandið er í grunninn samningur um að elska, styðja og rækta hvort annað – við erum í þessu sam- an til að við getum bæði vaxið og notið. Við hjónin höfum verið saman í meira en 25 ár, við eigum fjögur börn og er- um bæði mjög virk og fáum ólíkar hugmyndir. Við höfum t.d. flutt til Noregs til þess að ég geti elt mína drauma og til Brussel til að hún geti elt sína. Sumir samningar okkar á milli eru næstum formlegir, eins og um verkaskiptingu á heimilinu þar sem okkur tókst að finna lausn sem virkar fullkomlega fyrir okkur eftir rúmlega 15 ára hjónaband og miklar viðræður!“ Hvað segir maki og börn, ertu búin að smita þau? „Sumum finnst einkennilegt að semja við börnin um ákvarðanir í daglegu lífi en þegar þú viðurkennir börnin sem samningsaðila gefur þú þeim rödd við borðið – sem eykur sjálfstraust þeirra og ábyrgð. Allir á heimilinu hafa smitast af áhuganum á samningatækni og hann nýtist vel. Konan mín rekur eigið fyrirtæki og hefur starfað við viðskiptaþróun fyrir alþjóðleg fyrirtæki þar sem samn- ingatækni nýtist gríðarlega vel.“ Hvernig er fagið samningatækni byggt upp í MBA-náminu í HR? „Í MBA-náminu leggjum við mikla áherslu á að efla færni, viðhorf og dómgreind, ekki síður en fræðilega þekkingu. Eina leiðin til að gera það er að láta nemendur takast á við verkefni og „uppgötva“ lausnirnar áður og setja þær síðan í fræðilegt samhengi. Ég læt alla nem- endur lesa hartnær allt lesefni áfangans og skila verk- efnum áður en þeir ganga inn í fyrstu kennslustundina, þannig að við þurfum ekki að nota tíma í að fara yfir grundvallarþekkingu sem hægt er að læra af bók. Sá tími sem við höfum saman er allur nýttur í hagnýtar æfingar og samningaviðræður sem gefa nemendum færi á að upp- lifa þær áskoranir, tilfinningar og álitaefni sem koma upp í ólíkum samningaviðræðum og – ef vel tekst til – komast þeir sjálfir á sporið um leiðir til að ná sem mestum ár- angri. Síðan ræðum við upplifunina af æfingunum, hvað við getum tekið með okkur og hagnýtt okkur í næstu æf- ingu og í lífinu sjálfu.“ Hvað ættu allir að vita um samningatækni? „Rannsóknir benda hins vegar eindregið til þess að við séum flest slæmir samningamenn! Margir óttast að semja og biðja um það sem þeir vilja – og sætta sig því við það sem þeir geta fengið án teljandi samninga. Með því að nýta einfaldar og heiðarlegar aðferðir nærðu hins vegar ekki aðeins betri árangri fyrir þig heldur getur þú einnig á Hvernig við tökum ákvarðanir með öðrum Aðalsteinn Leifsson, framkvæmdastjóri hjá EFTA, er sérfræðingur í samningatækni og hefur brennandi ástríðu fyrir faginu. Að hans mati er varla hægt að finna nokkurt fag sem hefur jafn mikla praktíska þýðingu fyrir fólk í daglegu lífi og starfi. Hann kennir samningatækni við MBA-deildina í Háskólanum í Reykjavík. Elínrós Línda | elinros@mbl.is „Aldrei að falla fyrir einni lausn! Ef þér finnst þú verða að fá þetta hús, þennan bíl eða þessa einu lausn ertu í vandræðum.“ „Hjónabandið er í grunninn samningur um að elska, styðja og rækta hvort annað – við erum í þessu sam- an til að við getum bæði vaxið og notið.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.