Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Skráning er hafin
schballett.is • 861 4120Skipholt • Kópavogur • Grafarvogur
Ballett frá 2ja ára
Jazzballett
Ballett-fitness
Silfursvanir 65 ára+
Mat-pílates
og 20-30 ára advanced
Ást kvenna
til karla
spilar stórt
hlutverk
Ólöf Júlíusdóttir ver doktorsritgerð sína í
félagsfræði í dag og fer athöfnin fram í Hátíða-
sal Háskóla Íslands klukkan 14. Ritgerðin ber
heitið Tíminn, ástin og fyrirtækjamenning:
Valdaójafnvægi kvenna og karla í stjórnenda-
stöðum í íslensku efnahagslífi. Ólöf hefur alltaf
haft áhuga á hvers kyns mismunun og þegar
henni bauðst tækifæri á að skoða valdaójafn-
vægi í íslensku viðskiptalífi lét hún slag standa.
Marta María | mm@mbl.is
T
íminn, ástin og fyrirtækjamenning, hvernig
tengjast þessi þrjú hugtök og hvers vegna urðu
þau fyrir valinu?
„Þegar leitað var eftir skýringum á lágu hlut-
falli kvenna eða að sama skapi á háu hlutfalli
karla í æðstu stjórnendastöðum í íslensku viðskiptalífi
voru þessi þemu; tíminn, ástin og fyrirtækjamenning
áberandi þegar ég vann upp úr viðtölunum og könnuninni
sem rannsóknin byggist á. Einnig byggist greiningin á
þessum kenningarlegu nálgunum um tímann, ástina og
fyrirtækjamenningu en Anna G. Jónasóttir, prófessor
emeritus við háskólann í Örebro, kom fram með kenn-
inguna um valdatengsl ástarinnar (e. Love power) sem
eina af skýringum á undir-
skipun kvenna í nútíma sam-
félagi.
Þemun þrjú eiga það sam-
eiginlegt að varpa ljósi á
hvers vegna karlar (í gagn-
kynhneigðum samböndum)
viðhalda völdum sínum í
ábyrgðarfullum stöðum.
Karlar hafa tímann meira á
valdi sínu, þ.e.a.s. þeir hafa
frekari tækifæri en konur til
að firra sig fjölskylduábyrgð
og geta þar af leiðandi veitt
launaðri vinnu meiri tíma.
Hvernig ástin er skipulögð
og hugsuð í vestrænum samfélögum á einnig þátt í því að
viðhalda kynjakerfinu þar sem karlar „græða“ meira á
ást kvenna en öfugt. Karlar í æðstu stjórnendastöðum í
viðskiptalífinu eiga frekar maka sem taka á sig fjölskyldu
og heimilisábyrgð sem er hluti af ást kvenna til karla og
þeir nýta sér það. Ástin gefur þeim þannig frelsi og tíma
til að koma sér áfram á kostnað maka sinna. Fyrirtækja-
menning er síðan önnur skýring en hún virðist vera hlið-
Það var algengara að þær
þyrftu að sinna þessu
tvennu jöfnum höndum
fljótlega eftir barnsburð,
foreldrahlutverkinu og
stjórnendastarfinu, þrátt
fyrir að eiga lagalegan rétt
á 3-6 mánaða mæðraorlofi.
Konurnar tóku því oft stutt
fæðingarorlof eða tóku
börnin með sér í vinnuna.
vinna