Morgunblaðið - 16.08.2019, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
HREINT. NÁTTÚRULEGT. ÍSLENSKT
NÝ VARA
REFOCUS
HUGUR & ORKA
Ertu að byrja í námi eða
takast á við stærri verkefni?
REFOCUS er ný vara frá GeoSilica sem
er tileinkuð þeim sem þurfa að einbeita
sér.
REFOCUS inniheldur 100% náttúrulegan
kísil með viðbættu D-vítamíni og járni.
Frábær blanda fyrir þá sem þurfa auka
hugarorku.
REFOCUS er Vegan vottuð.
mjög góð alhliða þjálfun fyrir alla, eykur styrk, liðleika og
jafnvægi og er mjög góður undirbúningur fyrir svo margt
annað. Börnin læra ákveðinn aga sem er öllum hollur. Að
læra að standa í röð og fara eftir fyrirmælum en þó byggj-
um við kennsluna mest á dansgleðinni og að það sé gaman.
Mesti ávinningurinn tel ég þó að sé að allir sem koma í
ballett læra að rétta úr sér og að líkamsstaða verður betri
og réttari. Við byrjum á að tala um það við litlu börnin
hvernig eigi að standa beinn og þau heyra oft orðið
„svanaháls“ þegar við erum að minna þau á að lengja og
rétta úr sér. Síðan eykst tæknin smátt og smátt þegar þau
læra að nota magavöðvana til að halda miðju líkamans,
sem dæmi. Enda má alltaf sjá dansara skera sig svo-
lítið úr vegna þess að þeir bera sig vel.“
Ballettskóli Eddu Scheving
var stofnaður 1961 og
hefur allar götur síðan
sérhæft sig í kennslu á
klassískum ballett
fyrir allan aldur, eða
frá tveggja ára og upp
úr.
„Við bjóðum
einnig upp á
B
rynja tók ballettkennarapróf á vegum Félags
íslenskra listdansara árið 1988 og hefur starf-
að óslitið við kennslu síðan.
Af hverju valdir þú þér ballett sem
starfsgrein?
„Það má eiginlega segja að ballettinn hafi valið mig! Ég
á svo margar minningar af mér með mömmu í tengslum
við ballettinn. Ég skottaðist með henni í vinnuna og niður í
Þjóðleikhús þegar hún sinnti verkefnum þar fyrir Ís-
lenska dansflokkinn. Ég og systir mín vorum mikið að
dansa saman og við settum oft upp heilu ballettana í stof-
unni heima. Við settum Tsjaíkovskí á fóninn, keyrðum upp
öll ljósin og spegluðum okkur svo í stærsta glugganum.
Toppurinn var þegar ég fékk svo gamla táskó að gjöf frá
einum dansara Íslenska dansflokksins. Þá leið mér eins
og príma ballerínu. Pínulítil skotta í allt of stórum
skóm en mikið fannst mér ég fín. Ætli þetta hafi ekki
verið upphafið?
Eftir að stúdentsprófi lauk tók ég ballettkennara-
prófið og fór að starfa við hlið mömmu, eiginlega án
þess að hugsa mikið um það. Ég hef alla tíð elskað
að vera innan um börn og að fá að starfa með
börnum alla daga er einstaklega gefandi
og ákveðin forréttindi og einnig að
starfa við það sem veitir manni
mesta gleðina, þá dansinn. Í dag
kenni ég alla daga en þó
mest í yngri deildinni.“
-Hvaða áhrif hefur ball-
ett á líkama og sál?
„Ballettinn er mjög
kröfuharður húsbóndi
fyrir þá sem ætla sér að ná
langt. Þetta er margra ára
vinna, krefst mikillar tækni og gríð-
arlegrar vinnu og sjálfsaga. En fyrir þá
sem stunda námið sér til ánægju er þetta
kennslu í jazzballett fyrir yngri og nútímadans fyrir eldri.
Við erum einnig með tíma fyrir eldri framhaldsnemendur
sem við köllum „20-30 ára advanced“. Svo bjóðum við upp
á flokka fyrir fullorðna á öllum aldri.
Tímar fyrir fullorðna, sem við köllum Ballett-fitness.
Svo eru Silfursvanirnir fyrir 65 ára+ og Mat-pílates,“ seg-
ir hún og bætir við: „Gaman er að segja frá því að í dag er
Edda dóttir mín í fullu starfi í skólanum og er hún því
þriðji ættliðurinn til að feta þessa braut. Það er yndislegt
að hafa hana mér við hlið og hún hefur lært bæði af mér og
ömmu sinni auk þess sem hún kemur inn með sínar
áherslur og nýja strauma.“
-Geta allir dansað ballett?
„Já, það geta allir dansað en lykilatriðið er að hafa gam-
an af. Hvort þú hefur alla þessa meðfæddu hæfileika sem
teljast mikilvægir til að ná langt skiptir ekki máli. Ekki
heldur hvort þú ert með háa rist eða lága, hvernig líkaminn
er byggður, það geta allir lært ballett.
Meira að segja tveggja ára kríli geta dansað ballett. Við
erum ekki að ætlast til að þau læri eða muni mikið frá ein-
um tíma til þess næsta. En að koma inn í sal með mömmu
eða pabba og bara dansa saman og syngja eða gera þrauta-
braut er svo gaman. Þau fara stundum að gráta þegar tím-
inn er búinn því þau vilja dansa meira. Þau eru svo yndis-
leg og einlæg og þegar við sjáum gleðina sem skín úr
augunum, sama á hvaða aldri það er, þá er tilgang-
inum náð.
Þetta getur verið krefjandi en einnig er svo gam-
an að sjá árangurinn og hvað þessi litli kríli ná að
muna og geta. Þau öðlast um leið styrk og öryggi
og smátt og mátt geta þau séð af foreldrum sín-
um og notið sín ein að dansa.“
Hverjir eru silfursvanir?
„Silfursvanirnir okkar eru frábær viðbót við
nemendaflóruna. Þar bjóðum við upp á mjúka og
létta tíma sem einkennast þó mest af tignarlegum
hreyfingum, glæsileika og gleði. Þar er oft mikið hlegið
og ofsalega gaman. Þetta var búið að blunda í mér í
nokkur ár því ég sá oft á netmiðlum að eldri konur
voru að óska eftir því að svona tímar væru í
boði hér á landi og við settum því saman frá-
bært prógramm fyrir aldurinn 65 ára plús
og þessir tímar hafa aldeilis slegið í gegn.
Við erum með þessa tíma á morgnana, í
eftirmiðdaginn og á kvöldin. Við erum svona
smá að vinna í því að fá þær með okkur upp á svið í Borg-
arleikhús á árlegu nemendasýningarnar. Það kemur
vonandi að því á næsta ári. Þær segjast alltaf þurfa að
æfa sig og læra meira. Sjálfar segjast þær finna mikinn
mun á sér eftir að þær byrjuðu, þá aðallega á auknum
styrk, úthaldi og jafnvægi, sem er svo nauðsynlegt þegar
við eldumst.“
Hvað gerir þú til að halda þér í formi?
„Sjálf stunda ég mat-pílates tímana sem við bjóðum upp
á. Ég er eiginlega alveg háð þeim. Þessir tímar hafa verið
mjög vinsælir enda frábært kerfi til að styrkja allt út frá
miðju líkamans. Tímarnir byggjast á styrktaræfingum,
jafnvægisæfingum og djúpvöðvaþjálfun, mest unnið á
dýnu og alltaf út frá miðju líkamans. Þetta finnst mér
besta líkamsræktin fyrir mig í dag. Næ oft að finna fyrir
nýjum harðsperrum sem ég hef kannski aldrei fundið áð-
ur.“
Hvaða heilsuráð hefur þú haldið þig við frá upphafi?
„Hreyfingin fylgir mér í vinnunni en það þarf líka að
huga að andlegri heilsu, hugsa um og næra sjálfan sig og
það finn ég betur eftir því sem ég eldist. En fyrir utan
þetta klassíska eins og að huga að mataræði og svefni
finnst mér góður göngutúr oft gera kraftaverk, andlega
sem líkamlega. Og svo auðvitað að drekka nóg af vatni.“
Hvað með drengi, eru þeir mikið í ballett?
„Drengirnir eru í minnihluta í almennu dansnámi, því
miður. En það eru alltaf að koma fleiri inn, sérstaklega í
yngstu hópana. Það er jafn hollt fyrir þá að læra aga, regl-
ur, fá að dansa eins og mús eða hoppa eins og kanína. Þetta
er þroskandi prógramm fyrir öll börn og eykur hreyfifærni
og styrk og er góður undirbúningur fyrir svo margt.“
„Ballettinn
valdi mig“
Brynja Scheving er skólastjóri Ballettskóla Eddu
Scheving. Hún hóf ballettnám ung að árum í skól-
anum móður sinnar en auk þess stundaði hún
nám í Listdansskóla Þjóðleikhússins. Hún segir
ballett kenna aga og laga stöðu fólks.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Anna K. Scheving
Ballettskóli
Eddu
Scheving var
stofnaður 1961
og hefur allar
götur síðan
sérhæft sig í
kennslu í
klassískum
ballett.
Myndir frá árlegum nemendasýningum
skólans í Borgarleikhúsinu þar sem allir
nemendur frá þriggja ára aldri koma fram.
Brynja
Scheving
ásamt dóttur
sinni Eddu.
Ljósmynd/Anna K. Scheving