Fréttablaðið - 23.09.2019, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 2 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
Kolefnisjafnaðu
aksturinn með
Orkulyklinum
Jafnaðu þig
hjá Orkunni
orkan.is
A
ct
av
is
9
1
1
0
1
3
Omeprazol
Actavis
20 mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
STJÓRNMÁL Fjórar nýjar ríkisstofn-
anir verða til á næstunni nái áform
ríkisstjórnarinnar fram að ganga.
Húsnæðis- og mannvirkjastofn-
un er ætlað að leysa af hólmi bæði
Íbúða lánasjóð og Mannvirkjastofn-
un og verður hinni nýju stofnun
ætlað að „annast framkvæmd hús-
næðis- og byggingarmála hér á landi
og framfylgja þeirri stefnu stjórn-
valda að almenningur hafi aðgengi
að viðunandi og öruggu húsnæði á
viðráðanlegu verði í samræmi við
þarfir hvers og eins, óháð efnahag
og búsetu, sem er vistvænt, heilsu-
samlegt og uppfyllir nútímakröfur
og hafi þannig raunverulegt val um
búsetuform“, að því er fram kemur
í þingmálaskrá félags- og húsnæðis-
málaráðherra.
Frumvarp fjármálaráðherra um
nýja Nýsköpunar- og umbótastofn-
un verður lagt fram í næsta mánuði.
Gert er ráð fyrir að Ríkiskaup verði
grunnur að nýrri stofnun á þessu
sviði sem heildstæð nýsköpunar-
og umbótastofnun á vegum ríkisins.
Á vorþingi hyggst umhverfisráð-
herra setja á fót Þjóðgarðsstofnun
sem ætlað er að taka við verkefnum
Vatnajökulsþjóðgarðs, þjóðgarðs-
ins á Þingvöllum og verkefnum
á sviði náttúruverndar á vegum
Umhverfisstofnunar.
Þá hyggst nýr dómsmálaráðherra
leggja frumvarp um endurupptöku-
dóm fram að nýju en frumvarp um
sérstakan dómstól um endurupp-
töku mála var fyrst lagt fram í tíð
Sigríðar Á. Andersen.
Í frumvarpinu er lagt til að endur-
upptökunefnd verði lögð niður og
settur verði á fót sérdómstóll sem
skeri úr um hvort heimila skuli
endurupptöku mála sem dæmd
hafa verið í héraði, Landsrétti eða
Hæstarétti. Samkvæmt frumvarp-
inu á hinn nýi dómstóll að hafa
aðsetur hjá Dómstólasýslunni.
Á næstu dögum verður lagt fram
að nýju frumvarp fjármálaráðherra
um Þjóðarsjóð. Sjóðnum verður
ætlað að gegna því meginhlutverki
að verða eins konar áfallavörn fyrir
þjóðina þegar ríkissjóður verður
fyrir fjárhagslegri ágjöf í tengslum
við meiri háttar ófyrirséð áföll á
þjóðarhag. Ekki er ljóst af frum-
varpinu hvort og hve mikil yfir-
bygging Þjóðarsjóðs verður.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, segir áformin
ekki til þess fallin að auka skil-
virkni eða hagræðingu í kerfinu,
það sé einfaldlega ekki innbyggt í
ríkisstjórnina.
„Það er alltaf gott að sameina
ríkisstofnanir og reyna að ná sem
mestri hagræðingu í ríkisrekstri
en þessi ríkisstjórn er ekki að ein-
falda stjórnkerfið, hún er að flækja
það,“ segir Þorgerður Katrín. „Ríkis-
stjórnin er ekki að spá í neitt annað
en að halda sér saman, á meðan
þenst ríkisbáknið út.“ – aá / sjá síðu 4
Fjórar nýjar
ríkisstofnanir
áformaðar
Ríkisstjórnin áformar að sameina og breyta ríkis-
stofnunum ásamt því að setja á laggirnar nýjan
dómstól sem og Þjóðarsjóð. Alls verða til fjórar
nýjar ríkisstofnanir. Formaður Viðreisnar telur
áformin ekki verða til að auka skilvirkni í kerfinu.
Ríkisstjórnin er
ekki að spá í neitt
annað en að halda sér
saman, á meðan þenst
ríkisbáknið út.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir,
formaður
Viðreisnar
Fjöldi manns tók þátt í göngu í tilefni af bíllausa deginum í hádeginu í gær. Bíllausi dagurinn er árlegur við-
burður, gangan í gær var skipulögð af Samtökum um bíllausan lífsstíl og Ungum umhverfissinnum. Gengið,
eða hjólað, var frá gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar niður að Lækjartorgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ÍÞRÓTTIR Valskonur urðu um helg-
ina Íslandsmeistarar í knattspyrnu
þegar liðið vann Keflavík í lokaleik
sínum í Pepsi Max-deild kvenna.
Þar með eru Valskonur handhafar
allra stóru boltatitlanna. Valskonur
urðu Íslands-, bikar- og deildar-
meistarar bæði í Domino’s-deild
kvenna í körfubolta og Olís-deild
kvenna í handbolta.
Hinum meg in
við lækinn fékk
KR af hentan
Íslandsmeist-
arabikarinn
eftir sigur á
FH. Mikil gleði
ríkti á Meistara-
völlum í gær
þeg a r Ósk a r
Örn Hauksson
lyfti bikarnum.
– bb / sjá síðu 12
Bikarar á loft
UMHVERFISMÁL Auðvelt væri að
skipta út einni milljón lítra af
olíu, sem notuð er í Eyjafirði, fyrir
lífdísil. Olían yrði framleidd úr líf-
rænum úrgangi sem fellur til. Orku-
skiptin væri hægt að framkvæma á
innan við tveimur árum.
„Við gerum ráð fyrir að verkefnið
muni kosta um fimm hundruð
milljónir króna og greiðast upp á
um 15 árum,“ segir Guð-
mundur Haukur
Sigurðsson, fram-
k v æ m d a s t j ó r i
Vistorku á Akur-
eyri. Ef af yrði
myndi það þýða
minnkandi kolefn-
islosun sem nemur
útblæstri þús-
und bíla.
– sa / sjá
síðu 6
Olía úr fitu
2
3
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
D
6
-E
4
7
4
2
3
D
6
-E
3
3
8
2
3
D
6
-E
1
F
C
2
3
D
6
-E
0
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K