Fréttablaðið - 23.09.2019, Síða 4
ÁRA5ÁBYRGÐ FIAT ATVINNUBÍLAR
FIAT DUCATO
Verð frá 4.024.194 án vsk.
4.990.000 m/vsk.
FIAT TALENTO L2H1
Verð frá 3.298.387 án vsk.
4.090.000 m/vsk.
FIAT DOBLO
Verð frá 2.225.806 án vsk.
2.760.000 m/vsk.
FIAT FIORINO
Verð frá 1.854.032 án vsk.
2.299.000 m/vsk.
ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.FIATPROFESSIONAL.IS • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
STJÓRNMÁL Ráðherrar mæta nú
til þingnefnda til að kynna þau
mál sem þeir hyggjast leggja fram
á næstunni. Af þeim málum sem
formenn fastanefnda nefna við
Fréttablaðið má búast við að átök
um ólíka hagsmuni höfuðborgar-
svæðisins annars vegar og lands-
byggðarinnar hins vegar verði fyrir-
ferðamikil á nýhöfnu haustþingi.
Meðal stærstu mála sem koma til
þingsins eru samgönguáætlun,
auk frumvarpa um veggjöld og
einkaframkvæmdir í vegakerfinu,
frumvarp um lágmarksfjölda íbúa
í sveitarfélögum auk margra stórra
landbúnaðarmála.
Formenn fastanefnda nefna
þó f leiri mál eins og þjóðarsjóð,
lækkun bankaskatts og neyslurými
fyrir notendur fíkniefna. Þótt Alls-
herjar- og menntamálanefnd eigi
eftir að fá kynningu frá ráðherrum
er óhætt að fullyrða að styrkir til
einkarekinna fjölmiðla verði ofar-
lega á baugi í nefndinni en mennta-
málaráðherra hefur lagt áherslu á
að hið nýja styrkjakerfi komist til
framkvæmda nú um áramót. Styrr
hefur staðið um málið, ekki síst í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
Mismikill málaþungi er í nefnd-
um enda eðli þeirra og hlutverk
ólíkt. Stjórnskipunar- og eftir-
litsnefnd er ekki með eins mikið
af hefðbundnum þingmálum til
meðferðar en fjallar um skýrslur
frá bæði Ríkisendurskoðun og
Umboðsmanni Alþingis. Nefndin
fjallar líka um ýmis mál sem upp
kunna að koma til að rækja eftir-
litshlutverk þingsins. Ekki er ólík-
legt að nefndin muni funda um þau
ágreiningsmál sem komin eru upp
innan lögreglunnar en Ríkisendur-
skoðun hefur samþykkt að gera
stjórnsýsluendurskoðun á embætti
ríkislögreglustjóra.
Utanríkismálanefnd hefur einnig
nokkra sérstöðu og fjallar gjarnan
um alþjóðamál þegar þau koma
upp. „Reynslan kennir okkur að
ólíklegustu mál geta undið upp
á sig og aukaatriði jafnvel orðið
að aðalatriðum,“ segir Sigríður Á.
Andersen, nýr formaður utanríkis-
málanefndar. Nefndin tekur við
öllum EES-málum óháð því á hvaða
málefnasviði þau eru en Sigríður
hyggst setja kraft í endurskoðun á
verklagi við innleiðingu þeirra bæði
formlega og efnislega í nefndinni og
í viðeigandi málefnanefndum.
Mikið annríki verður í efnahags-
og viðskiptanefnd þetta haustið
og á formaður nefndarinnar, Óli
Björn Kárason, von á um það bil 50
Stefnir í átök borgar og byggða
Samgöngumál, veggjöld, landbúnaðarmál, sameiningar sveitarfélaga. Stærstu mál nýhafins þings eru
þekkt átakamál byggðapólitíkur hér á landi. Fréttablaðið ræddi við formenn fastanefnda Alþingis.
Þingmenn landsbyggðarkjördæmanna þriggja munu hafa í nógu að snúast
á yfirstandandi þingi miðað við viðfangsefnin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Meðal helstu mála í
nefndum Alþingis
Utanríkismálanefnd
• Ýmsar lagabreytingar með það
markmið að tryggja áunnin rétt-
indi breskra og íslenskra borgara
við Brexit
• Verklag við innleiðingu EES-
gerða
Efnahags- og viðskiptanefnd
• Þjóðarsjóður
• Lækkun bankaskatts
• Lækkun erfðafjárskatts
• Breytingar á samkeppnislögum
• Breytingar á lögum um neyt-
endalán – neytendavernd gagn-
vart smálánafyrirtækjum
Atvinnuveganefnd
• Búvörulög – kostnaður við út-
hlutun tollkvóta
• Endurskoðun búvörusamnings
• Einföldun regluverks í sjávar-
útvegi og landbúnaði
• Bætt eftirlit með fiskveiði
(meðal annars vegna brottkasts)
Umhverfis- og samgöngunefnd
• Samgönguáætlun
• Gjaldtaka af umferð og heimild
til að fela einkaaðilum fjár-
mögnun, framkvæmdir og
veghald á tilteknum köflum
þjóðvega
• Lágmarksfjöldi íbúa í sveitar-
félagi
Fjárlaganefnd
• Fjárlög og fjáraukalög
• Frumvarp um umbótamál
ríkisins
• Fjármálaáætlun fyrir árin 2021 til
2025 (á vorþingi)
Allsherjar- og menntamálanefnd
• Stuðningur við einkarekna fjöl-
miðla
• Breytingar á fyrirkomulagi
námslána
• Frumvarp um heimild ráðherra
til að skipa sama sýslumanninn
yfir fleiri embætti
Velferðarnefnd:
• Frumvarp um Neyslurými
• Heildarendurskoðun lyfjalaga
Stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd
• Umfjöllun um skýrslur ríkisend-
urskoðunar og umboðsmanns
Alþingis
• Breytingar á upplýsingalögum –
réttarstaða þriðja aðila
Sigríður Á.
Andersen
utanríkismála-
nefnd
Helga Vala
Helgadóttir
velferðarnefnd
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd
Páll Magnússon
allsherjar- og
menntamála-
nefnd
Bergþór Ólason
umhverfis- og
samgöngunefnd
Óli Björn
Kárason
efnahags- og
viðskiptanefnd
Willum Þór
Þórsson
fjárlaganefnd
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
atvinnuvega-
nefnd
málum frá ríkisstjórninni, auk þing-
mannamála. „Nefndarmenn þurfa
ekki að hafa áhyggjur af verkefna-
skorti í vetur,“ segir Óli Björn.
Bergþór Ólason, for maðu r
umhverfis- og samgöngunefndar,
býst við miklum skoðanaskiptum
um annars vegar samgöngumál og
hins vegar um fyrirhugaðan lág-
marksfjölda íbúa í sveitarfélagi en
í atvinnuveganefnd má einkum
búast við skiptum skoðunum um
landbúnaðarmálin.
adalheidur@frettabladid.is
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
1 Hilmar biðlar til stjórn valda um hjálp: „Ég er mjög leiður
yfir þessu“ Mohammad Sayeed,
dyggur stuðningsmaður íslenska
landsliðsins, fær ekki vegabréfs-
áritun hingað til lands. Stjórnar-
meðlimur Tólfunnar er leiður.
2 Stuðnings menn E ver ton æfir út í Gylfa Stuðningsmenn
Everton eru æfir út í Gylfa Sigurðs-
son vegna frammistöðu hans í
tapi Everton á laugardaginn.
3 Tryggvi Rúnar: „Má Katrín skammast sín fyrir sinn þátt
í þessari sögu“ Barna barn eins af
sak borningunum í Guð mundar-
og Geir finns málinu, er harðorður í
garð forsætisráðherra.
4 „For ysta Eflingar hagi sér eins og verstu skúrkar í at vinnu-
rek enda stétt“ Tveir starfsmenn
Eflingar sendu frá sér yfirlýsingu
vegna ummæla framkvæmda-
stjóra Eflingar um helgina.
HÚSAVÍK Starfsmaður PCC-kísil-
versins á Bakka slasaðist í síðasta
mánuði þegar hann fékk í sig skot
úr byssu sem er notuð til að losa
þrýsting úr bræðsluofnum verk-
smiðjunnar. Þetta er annað slíkt slys
á tæpu ári. Skotið endurkastaðist í
hönd starfsmannsins en hann var
aldrei í lífshættu. Byssuskotin eru
varaúrræði til að losa ofnana ef
hefðbundnar leiðir eru ekki færar,
til dæmis vegna bilunar. – bþ
Annað slys í
kísilveri PCC
Byssan sem brúkuð er á Bakka.
2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-F
D
2
4
2
3
D
6
-F
B
E
8
2
3
D
6
-F
A
A
C
2
3
D
6
-F
9
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K