Fréttablaðið - 23.09.2019, Page 12

Fréttablaðið - 23.09.2019, Page 12
FÓTBOLTI Valskonur urðu um helg- ina Íslandsmeistarar í fótbolta eftir 3-2 sigur á Kef lavík í lokaumferð Pepsi Max-deildar kvenna. Valur er þar með Íslandsmeistari kvenna í öllum stóru boltaíþróttunum, körfu- , hand- og fótbolta. Þetta er í fyrsta sinn sem eitt félag er handhafi Íslandsmeistaratitl- anna í stærstu þremur boltagrein- unum á Ísland, og á það bæði við um karla- og kvennaf lokk. Fyrr á árinu varð Valur Íslands-, bikar- og deildarmeistari bæði í Domino’s- deild kvenna í körfubolta og Olís- deild kvenna í handbolta. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir sem stóð vaktina á miðjunni hjá Val segir að sér hafi verið tekið vel frá fyrstu mínútu en hún kom í félagið fyrir tímabilið eftir að hafa fengið þau skilaboð að hennar krafta væri ekki óskað hjá Stjörnunni, þar sem hún hafði verið síðan 2005. „Ég vissi að þegar ég kæmi í Val þá yrði ég mikill Valsari. Ég er mikil félagsmanneskja og er mikið hér á Hlíðarenda og held mikið með Val í dag. Ég er búin með tímann minn sem Stjörnumanneskja og það er alltaf erfitt að kveðja klúbbinn sem maður var lengi í og viðskilnaður- inn var leiðinlegur þannig þetta er extra sætt,“ segir hún. Marg rét Lára Viðarsdóttir, markahæsta landsliðskona frá upp- hafi, kom aftur í Val fyrir fjórum árum úr atvinnumennskunni. Hún segir titilinn vera sérstakan í ljósi sögunnar. „Baklandið er sterkt og gott. Við erum með gott teymi í kringum okkur og allir hjálpast að og róa í sömu átt. Svo fáum við kveðjur og hvatningu frá handbolta- og körfu- boltastelpunum og ég veit hrein- lega ekki hvaða félag ætlar að toppa þennan árangur. Að vera með þrjú lið sem Íslandsmeistara á sama árinu... Þetta er bara Valur. Þetta er lýsandi dæmi fyrir þetta félag,“ segir hún. Valur endaði tímabilið án þess að tapa leik og segir Margrét Lára að hún sé ákaf lega stolt af þeim árangri. „Á stundum sem þessari finnst mér við hæfi að líta til baka og við erum búnar að vera frábærar í sumar. Við höfum ekki tapað leik og öruggar í okkar aðgerðum. Ég er ótrúlega stolt af þessu liði, þessum hóp og ungu stelpunum sem hafa stigið þvílíkt upp. Elín Metta hefur blómstrað í sumar og einhvern veginn hafa ótrúlega margar sprungið út.“ – bb FÓTBOLTI Óskar Örn Hauksson lyfti Íslandsbikarnum fyrir KR og gleðin var ósvikin. Frá því síðasta tímabil kláraðist hefur KR gert ótrúlega hluti. Þetta byrjaði strax á undirbún- ingstímabilinu þar sem liðið vann Bose-mótið eftir sigur á Breiða- bliki í vítaspyrnukeppni. Thedór Elmar Bjarnason var þá að íhuga að koma heim og taka slaginn og spilaði úrslitaleikinn. Reykja- víkurmótið var einnig tekið með gullverðlaun um hálsinn. Liðið vann svo Lengjubikarinn eftir sigur á ÍA og þó að f lestir spáðu fráfarandi Íslandsmeistur- um Vals titlinum var ljóst að eitt- hvað var að gerast í Vesturbænum undir stjórn Rúnars Kristinssonar. Mótið hófst reyndar ekkert of boðslega spes fyrir KR og var liðið í fjórða sæti eftir fimm leiki með tvo sigurleiki, tvö jafntef li og eitt tap. Í áttundu umferð fór KR upp á Akranes og vann þar spútniklið ÍA 1-3 og skellti sér á topp deildarinn- ar þar sem það hefur verið síðan. Varnarleikur KR hefur verið til fyrirmyndar og liðið hefur aðeins fengið á sig 22 mörk. Séu varnar- menn liðsins skoðaðir þá má þar finna markvörðinn Beiti Ólafsson sem var nánast hættur í fótbolta. Hægri bakvörður hefur verið Kenny Chopart sem er þekktari fyrir sóknarleik en varnarleik en Daninn hefur sprungið út í nýrri stöðu. Kristinn Jónsson hefur verið vinstri bakvörður og er einn af mönnum mótsins. Frá því Kristinn snéri heim úr atvinnu- mennsku hefur hann lítið sýnt í búningi KR en í sumar hefur hann blómstrað svo eftir hefur verið tekið. Miðverðirnir eru annars vegar Finnur Tómasson og hins vegar Ar nór Sveinn Aðalsteinsson. Finnur hefur komið eins og storm- sveipur inn í íslenskan fótbolta og margir vilja meina að Arnór sé einn af mikilvægustu mönnum KR. Hann er jú ekki vanur að spila miðvörð, er með ungling sér við hlið og óreyndan Dana hægra megin við sig. Lykilmenn hafa sloppið við meiðsli og þannig hafa Óskar Örn, Pálmi Rafn, Tobias Thomsen og Pablo Punyed spilað nánast hverja mínútu. Þegar svo meiðslin bönk- uðu á dyrnar komu aðrir inn í liðið svo áfallið varð minna. Arnþór Ingi varð á skömmum tíma einn mikilvægasti leikmaður liðsins og þegar hann meiddist út tíma- bilið var búist við að KR myndi taka smá dýfu. Það gerðist þó ekki. KR er vel að titlinum komið. Liðið spilaði heilsteyptasta bolt- ann í sumar og náði í úrslit sem skiptu máli. Rúnar Kristinsson hefur verið frábær á hliðarlínunni og varla stigið feilspor. Í viðtölum eftir að titillinn kom í hús er ljóst að þjálfarateymið vann vel saman og náði vel til leikmanna. Það skil- aði sér í að Óskar Örn fékk bikar- inn af hentan í gær. benediktboas@frettabladid.is KR-ingar hafa verið magnaðir í allt sumar og eru verðskuldaðir sigurvegarar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Björgvin Stefánsson og Rúnar Krist- insson á góðri stundu. Óskar Örn Hauksson klappar fyrir stuðningsmönnum KR. Ein af stjörnum KR í sumar, Arnór Sveinn, smellir kossi á bikarinn. Margrét Lára og Dóra María Lárusdóttir rífa upp Íslandsmeistarabikarinn en níu ár eru síðan Valur vann síðast. Valskonur töpuðu ekki leik á tíma- bilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Magnað hjá KR á Meistaravöllum KR fékk Íslands- meistarabikarinn af- hentan í gær eftir sigur á FH. Tímabilið hefur verið lyginni líkast fyrir stuðningsmenn KR sem hafa geta brosað ansi lengi. 3 mörk hefur KR skorað á 55. mínútu. 4 vítaspyrnur hefur KR fengið í sumar og skorað úr þeim öllum. 37 gul spjöld hefur KR fengið. 2 rauð spjöld hefur liðið fengið í sumar. 308 leiki hefur Óskar Örn Hauksson spilað í efstu deild. Hann sló einn- ig markamet í Ellerts B. Schram í sumar og er orðinn markahæsti KR-ingurinn. 4 tapleikir í sumar hjá KR. Fyrir Grindavík og HK í deildinni, FH í bikarnum og Molde í Evrópukeppninni. 9 sinnum í sumar vann KR eins marks sigur, þar af fjórum sinnum 1-0. 49 stig eru komin í hús og getur KR jafnað stigametið í 12 liða deild, 52 stig, sem KR sjálft og Stjarnan eiga. Valskonur handhafar allra Íslandsmeistaratitla í kvennaflokki +PLÚS 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 D 6 -E 4 7 4 2 3 D 6 -E 3 3 8 2 3 D 6 -E 1 F C 2 3 D 6 -E 0 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.