Fréttablaðið - 23.09.2019, Page 34

Fréttablaðið - 23.09.2019, Page 34
Fyrirtækið Rými selur fyrst og fremst fallega ofna í fínni kantinum, hitapanela sem sinna geislahitun í híbýlum og loft- skiptakerfi, sem eru frábær nýjung í loftræstingu. „Rými selur vönduð þýsk loft- skiptakerfi, en slík kerfi hafa verið í miklum vexti síðasta áratuginn eða svo,“ segir Þorsteinn Þorsteinsson, sölustjóri hjá Rými. „Þau eru mjög hljóðlát, en loftskiptin virka þannig að bæði heitt og kalt loft sem kemur inn er sent í gegnum varmaskipti. Heitara loft hitar þá kaldara og öfugt, eftir þörfum,“ segir Þor- steinn. „Það munar bara einni gráðu á loftinu sem kemur inn og fer út. Þannig er hægt að halda jafnvægi í hitastigi loftsins og spara bæði hita og orku.“ Það er svo hægt að breyta öllum stillingum með forriti í símanum og til dæmis tímastilla kerfið, þannig að maður komi heim úr vinnunni í hreint og ferskt loft.“ Lækkar kostnað, minnkar þrif Heimir Finnsson pípulagninga- meistari setti upp loftskiptakerfi á heimili sínu og er afar ánægður með kerfið. „Þetta þrælvirkar. Maður losnar til dæmis alltaf við alla matarlykt út Alltaf ferskt loft á heimilinu Það fer ekki mikið fyrir loftskiptakerfinu í loftinu á stofunni hjá Heimi, þar sjást aðeins þessi litlu göt í loftinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Ívar Guðlaugur Ingvarsson, jarð-fræðingur og stofnandi Ingeto, hefur starfað að margvíslegri rannsóknarvinnu á jarðvegi og sjó á Íslandi. Allar rannsókn- irnar miða að því að sækja orku úr umhverfinu fyrir varmadælur með ýmsum lausnum. Rannsóknirnar hefur Ívar meðal annars unnið í samstarfi við Die Friedrich- Alexander háskólann í Erlangen- Nürnberg þar sem hann stundaði meistaranám, Rehau í Þýskalandi og Orkustofnun. „Við fengum sýni víðsvegar frá í Evrópu og mældum varmaeiginleika jarðvegsins við mismunandi aðstæður. Rannsókn- in beindist að því að sækja orku úr jarðvegi. Ég komst meðal annars að því að íslensku sýnin sýndu fram á öðruvísi gildi en víða í Evr- ópu,“ segir Ívar. „Til að búnaðurinn virki sem best þurfa fyrst að fara fram ýmsar rannsóknir,“ bendir hann á. „Áhersla var lögð á að nýta tækni og búnað sem góð reynsla er komin á en með varmadælum er hægt að sækja orku á umhverfis- vænan hátt sem þar að auki eykur orkusparnað hjá neytendum.“ Ingeto býður upp á mikið úrval af varmadælum og búnað til að gera þær skilvirkar, svo sem lághitaofna, stýribúnað og loft- hreinsikerfi. Öll kerfin eru hönnuð með þarfir viðskiptavinar að leiðarljósi. Ingeto sér um að hanna kerfin í samstarfi við notendur, framleiðendur, hönnuði og verk- fræðinga, allt eftir því hvað á við í hvert skipti. Rafson ehf. sér um sölu, uppsetningu og þjónustu en einnig eru þjónustuaðilar úti um allt land. „Varmadæla ein og sér er ekki töfralausn, hlutirnir þurfa að passa saman en þá er átt við hitastýringu, hringrásardælur, loftflæði og síðast en ekki síst þarf kerfið að vera sniðið að notand- anum sjálfum. Eins fer það eftir aðstæðum hvar þörfin er mest. Oft er hægt með réttri stýringu á ofna- kerfi að lækka orkukostnað um 30% jafnt á heimilum sem vinnu- stöðum,“ útskýrir Ívar. „Ingeto býður upp á bestu mögulegu lausnir hverju sinni. Við sérhæfum okkur í sölu og þjónustu á vörum frá leiðandi merkjum í Evrópu og eigum sterkt tengslanet við framleiðendur. Við setjum aðstæður og óskir viðskiptavina í fyrsta sæti og leitumst ávallt við að finna hagstæðustu lausnina,“ bætir Ívar við. „Við vinnum með ýmsum fyrirtækjum, meðal annars fjölda verkfræðistofa. Allir birgjar sem við verslum við eru evrópskir en meðal þeirra er Dimplex í Þýskalandi sem er annað tveggja fyrirtækja í heim- inum sem komu fyrst með varma- dælur á almennan markað.“ Ívar og samstarfsfólk hans hafa verið að rannsaka hvernig best er að nota orku úr íslenskum sjó við Seyðisfjörð til að kynda með varmadælum. „Við unnum þetta verkefni fyrir Nýsköpunar- og iðn- aðarráðuneytið með erlendri verk- fræðistofu sem sérhæfir sig í slíkum verkefnum. Niðurstöðurnar sýndu þrjár mismunandi leiðir til að hita húsnæði á Seyðisfirði með varma- dælum sem sækja orkuna í kaldan sjóinn. Þetta var í fyrsta skipti sem sýnt hefur verið fram á raunhæfa og hagkvæma aðferð til að nýta svona kaldan sjó í svona stóru verkefni. Þá teljum við nauðsynlegt að vinna með óháðum aðilum í stórum verk- efnum þar sem trúverðugleiki þarf að vera báðum megin borðsins,“ segir Ívar og bendir á að gott sam- starf hafi verið við Guðmund H. Sigurðsson hjá Rafson en hann sé með 15 ára reynslu í uppsetningu á varmadælubúnaði og búnaði honum tengdum. „Til að tryggja sem bestu þjónustu verðum við með nám- skeið á tveimur stöðum hér á landi í október sem verða haldin af tækni- manni frá Dimplex. Hann mun sýna hvernig á að þjónusta búnað frá okkur eins og varmadælur, loftræsikerfi, stýribúnað og fleira,“ segir Ívar en Ingeto hefur verið með fjölmörg námskeið á undanförnum árum, bæði hér á landi og erlendis. Ingeto hefur starfað frá árinu 2016 og hefur vaxið mikið frá þeim tíma. Ívar hefur sjálfur unnið við orkurannsóknir frá árinu 2013. Til að fræðast meira um ýmsa möguleika er varðar hitun húsa með varmadælum er hægt að hafa samband við Ívar hjá Ingeto í síma 888 3361 eða Rafson. Þá er hægt að skoða vöruúrval á heimasíðunni www.ingeto.eu. Raunhæf lausn til að lækka hitakostnað Fyrirtækið Ingeto sérhæfir sig í hönnun á dælukerfum í samstarfi við Rafson ehf. Fyrirtækið býð- ur margvíslegar lausnir er varða varmadælur og ofnakerfi. Gæði og fagmennska eru í fyrirrúmi. Ívar Guðlaugur frá Ingeto og Guðmundur frá Rafson ehf. á Seyðisfirði. Rými selur loft- skiptakerfi sem geta séð heimil- inu fyrir fersku og góðu lofti og lækkað kynding- arkostnað, geisla- hitunarkerfi og gullfallega ofna. af heimilinu á 10-15 mínútum eftir eldamennsku því það er stöðugt að koma ferskt loft inn í húsið,“ segir Heimir. „Á morgnana er líka alltaf ferskt loft í öllu húsinu þó að gluggar hafi verið lokaðir á meðan fólk svaf, því það myndast ekkert þungt loft. Það sama gildir ef maður hefur verið að heiman í hálfan mánuð og allir gluggar hafa verið lokaðir á meðan. Annar kostur, sem ég sá ekki fyrir, er að það berst miklu minna ryk inn í íbúðina, sem minnkar þörfina fyrir þrif. Maður þarf í rauninni aldrei að opna glugga frekar en maður vill,“ segir Heimir. „Varmaskiptakerfið tryggir líka að kyndikostnaður í húsinu verður rosa lítill. Þetta ætti bara að vera staðal- búnaður í öll hús,“ segir Heimir. Ný aðferð við hitun sem sparar orku „Við seljum líka hitapanela sem eru snilldartæki, en útreikningar sýna að þeir spara orku um allt að 45 prósent. Panelarnir senda frá sér hitageislun sem hitar þig en ekki endilega allt rýmið,“ segir Þorsteinn. „Auðvitað hitnar rýmið um leið, en það er ekki tilgangur kerfisins. Hitamyndavélar sýna að hitinn verður mestur neðst og kalda loftið situr efst í herberginu, öfugt við það sem gerist vanalega. Þetta var sett upp í 23 metra hæð í nýju flugskýli Icelandair og svínvirkar þar,“ segir Þorsteinn. „Annar góður kostur við þessa hitunaraðferð er að skýlið kólnar til dæmis ekki mikið þó að það sé opnað. Hitablásaraloft myndi allt leita út og hitastigið falla, en hitinn er kominn aftur mjög fljótt þegar svona geislun er notuð. Þessi tækni hefur líka verið að koma inn í skrif- stofubyggingar hægt og rólega og það er einnig hægt að láta kerfið taka inn kalt vatn, en þá virkar það jafn vel og loftræsting til að kæla loftið.“ Fallegir ofnar í öll rými „Við seljum líka ýmsar gerðir af ofnum til að prýða heimili, en útlit ofnanna er tekið inn í hönnun rýmanna sem þeir eiga að prýða,“ segir Þorsteinn. „Það eru nokkur dæmi um vel heppnaða nýtingu á slíkum ofnum í Reykjavík, til dæmis á Exeter hótelinu, Grill- markaðnum og á nýja Hilton hótelinu í Hafnarstræti.“ fyrir öll tölvurými og gagnaver Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræsti- kerfi Hismið FRETTABLADID.IS á frettabladid.is hlustaðu þegar þér hentar 4 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U RLOFTRÆSTIKERFI OG HITASTÝRINGAR 2 3 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 D 7 -0 2 1 4 2 3 D 7 -0 0 D 8 2 3 D 6 -F F 9 C 2 3 D 6 -F E 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.