Vinnumarkaður - 01.10.1994, Blaðsíða 116
114
Greinargerð um aðferðir og hugtök
Ú rtak og heimtur. í úrtökuramma hverrar vinnumarkaðs-
könnunar eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar 16-74
ára sem skráðir eru í þjóðskrá og eiga lögheimili á íslandi
meðan könnunin fer fram. Þegar hver könnun er unnin eru
auk þess teknir úr úrtökurammanum allir þeir sem hafa
búsetu erlendis til 6 mánaða eða lengur. Einkum er um að
ræða námsmenn sem stunda nám erlendis utan Norður-
landanna. Þetta er gert til samræmis, en námsmönnum sem
stunda nám á einhverju Norðurlanda er skylt að flytja
lögheiinili sittþangað. I alþjóðlegum skilgreiningum erhins
vegar gert ráð fyrir allir námsmenn sem stunda nám sitt
erlendis tilheyri úrtökurammanum hversu lengi sem nám
þeirra varir.
Stærð úrtaksins hverju sinni er um 4.400 einstaklingar.
Þeim er skipt í fjóra skiptihópa. í hverri könnun er einn
hópur úrtaksins í fyrsta sinn, annar hópur í annað sinn og svo
framvegis. Við hverja nýja könnun er hópnum, sem verið
hefur í úrtakinu ijórum sinnum, skipt út fyrir aðra 1.100
einstaklinga sem valdir eru með einfaldri hendingaraðferð
án skila. Eftir að einstaklingur hefur verið í úrtakinu ljórum
sinnum er honum ekki skilað í úrtökurammann fyrr en að
liðnum Ijórum árum frá því hann var fyrst valinn, þ.e. ekki
er hægt að velj a hann að nýju fyrr en hann hefur verið hvíldur
í a.m.k. tvö ár.
I fyrstu ijórum könnunum voru nokkur frávik ífá þessum
almennu reglum.
I fyrstu könnuninni var úrtakið einungis 3.000 manns. í
þeirri næstu var 1.400 einstaklingum bætt við en engum
skipt út. Þegar þriðja könnun var gerð var þriðjungur
úrtaksins sem notað var í fyrstu könnuninni valinn af
handahófi og felldur brott. í stað þeirra voru 1.000
einstaklingar á aldrinum 16-74 ára valdir úr þjóðskrá með
hendingaraðferð. Þegar ljórða könnunin var gerð var annar
þriðjungur úr úrtakinu frá apríl 1991 valinn af handahófi og
felldur brott úr úrtakinu. í stað hans voru 1.002 einstaklingar
valdir af handahófi úr þjóðskrá.
Reiknistofnun Háskólans sá um val úrtaksins í fyrstu
þremur könnununum en frá og með nóvember 1992 hefur
það verið gert á Hagstofunni.
Svarhlutfall í vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar hefur
verið nokkuð hátt sé miðað við aðrar úrtakskannanir hér-
lendis. Á tímabilinu 1991-1993 voru svarendur á bilinu 85
- 90% af öllu úrtakinu, að lfátöldum þeim sem voru látnir
eða búsettir erlendis (9.2).
í annarri til fimmtu könnun var ekki hringt í þá þátttak-
endur sem áður höfðu hafnað þátttöku eða verið ófærir um
að svara vegna veikinda eða fötlunar. Svarhlutfallið í þessum
könnunum (sjá töflu 9.2) gefur því ekki rétta mynd af því
hversu vel tókst til við gagnaöflunina. Með því að miða við
þá sem var reynt að hringja til, þ.e. virka úrtakið, hefur
svarhlutfall verið á bilinu 90 - 93% nettó.
í nóvember 1993 var hins vegar hringt aftur í þá sem
höfðu áður neitað að svara og kom þá i ljós að 52% þeirra
vom nú tilbúnir til þátttöku, 7% vom fjarverandi, 4% vom
ófærir um að svara vegna veikinda eða fötlunar og 37%
neituðu aftur.
Öllum væntanlegum þátttakendum er sent bréf nokkru
áður en hver könnun hefst þar sem tilgangur hennar er
útskýrður og samvinnu þeirra er óskað. Auk þess fylgja
bréfinu niðurstöður næstu könnunar á undan.
Tafla 9.2. Heimtur í vinnumarkaðskönnunum Hagstofu íslands 1991-1993
Table 9.2. Response in the labour force surveys 1991-1993
Heildartölur Absolute numbers Hlutfallstölur Percent
1991 1992 1993 1991 1992 1993
Apríl Nóv. Apríl Nóv. Apríl Nóv. Apríl Nóv. Apríl Nóv. Apríl Nóv.
Úrtak Sample
Látnir Deceased
Lögheimili erlendis
Domicile abroad
Aðseturerlendis
Residence abroad
Nettó stærð úrtaks
Net sample size
Nettó úrtak Netsample
Svarendur Respondents
Neita Refusals
Veikir III
Fj arverandi A way from home
Finnast ekki No contact
Nettó virkt úrtak
Net working sample
Svarendur Respondents
Neita Refusals
Veikir III
Fjarverandi Notathome
Finnast ekki No contact
3.000 4.400 4.415 4.417
5 13 15 25
5 17 26 29
68 103 116 109
2.922 4.267 4.258 4.254
2.922 4.267 4.258 4.254
2.633 3.822 3.699 3.600
83 171 260 247
30 54 74 71
14 47 57 74
162 173 168 262
2.922 4.124 3.961 3.947
2.633 3.822 3.699 3.600
83 88 89 55
30 25 29 35
14 47 57 74
162 142 87 183
4.396 4.231 100,0 100,0
12 12 0,2 0,3
24 39 0,2 0,4
82 92 2,3 2,3
4.278 4.088 97,4 97,0
4.278 4.088 100,0 100,0
3.722 3.686 90,1 89,6
236 154 2,8 4,0
48 51 1,0 1,3
77 39 0,5 1,1
195 158 5,5 4,1
4.036 4.070 100,0 100,0
3.722 3.686 90,1 92,7
71 154 2,8 2,1
22 33 1,0 0,6
77 39 0,5 1,1
144 158 5,5 3,4
100,0 100,0 100,0 100,0
0,3 0,6 0,3 0,3
0,6 0,7 0,5 0,9
2,6 2,5 1,9 2,2
96,4 96,3 97,3 96,6
100,0 100,0 100,0 100,0
86,9 84,6 87,0 90,2
6,1 5,8 5,5 3,8
1,7 1,7 1,1 1,2
1,3 1,7 1,8 1,0
3,9 6,2 4,6 3,9
100,0 100,0 100,0 100,0
93,4 91,2 92,2 90,6
2,2 1,4 1,8 3,8
0,7 0,9 0,5 0,8
1,4 1,9 1,9 1,0
2,2 4,6 3,6 3,9