Vinnumarkaður - 01.10.1994, Blaðsíða 122
120
Greinargerð um aðferðir og hugtök
atvinnugrein. Fjöldi vinnuvikna einyrkja var metinn á grund-
velli upplýsinga úr staðgreiðsluskrá skatta.
Tölur um mannaflann eru árstölur. Skipting mannaflans
eftir rnánuðum er fundinn með því nota stuðla sem líkja eftir
árstíðasveiflu mannaflans. í áætlunum Þjóðhagsstofnunar
um mannaflatölur 1992 og 1993 eru stuðst við sömu
hlutfallslegu skiptingu eftir kyni og búsetu og niðurstöður
ársins 1991 bentu til.
Skráð atvinnuleysi eftir aldri og lengd atvinnuleysis.
Hagstofan hefur safnað gögnum um lengd skráðs atvinnu-
leysis efltir aldri og kyni í lok febrúar, maí, ágúst og nóvember
frá 1986. Framtil maí 1993 vareinungisleitaðeftirskýrslum
frá sveitarféiögum sem höfðu samkvæmt lögum skyldu til
að reka opinbera vinnumiðlun, þ.e. sveitarfélögum með 500
eða fleiri íbúa. Þessir staðir voru innan við 80.1 júlí og ágúst
1993 gerði Hagstofan sérstaka könnun meðal allra sveitar-
félaga í landinu á því hverjir sjá um opinbera atvinnu-
leysisskráningu fyrir hönd viðkomandi sveitarfélags. Frá og
með ágúst 1993 hefur verið aflað skýrslna frá öllum þeim
sveitarfélögum og vinnumiðlunum, um 140 að tölu, sem
skrá atvinnuleysi samkvæmt þessari athugun.
Aldursskipting í gögnum er miðuð við fæðingarár. í
febrúar og maí er miðað við þá sem verða 16 ára og eldri í
árslok. I ágúst og nóvember er miðað við þá sem verða 15 ára
og eldri í árslok.
Tölur um atvinnulausa ná til allra þeirra sem eru skráðir
atvinnulausir á viðmiðunardegi, hvort sem þeir eiga rétt á
bótum eða ekki.
Heimtur á skýrslum til Hagstofunnar hafa að jafnaði verið
slælegri en heimtur á mánaðarlegum skýrslum til Vinnumála-
skrifstofunnar. Þekjanhefureinnigveriðminni. Þettabreyttist
frá og með ágúst 1993.
9.2.3 Hugtök
Aaetlaður mannafli. Aætlaður mannafli telst vera áætlaður
ijöldi ársverka eða heildarljöldi ígilda fullra starfa. Tvö
hlutastörf með 50% starfshlutfalli teljast þannig vera eitt
ársverk. I ársverkum eru talin töpuð ársverk vegna atvinnu-
leysis.
Meðalatvinnuleysi í mánuði. Meðalatvinnuleysi í mánuði
er fundið með því að deila meðalljölda virkra daga í mánuði
(21,67 dagur) í fjölda skráðra atvinnuleysisdaga.
Lengd skráðs atvinnuleysis. Með lengd skráðs atvinnu-
leysis er átt við fjölda vikna sem einstaklingur hefur verið
samfellt á atvinnuleysisskrá á viðmiðunardegi. Þótt ein-
staklingur missi rétt til atvinnuleysisbóta fellur hann þar
með ekki af atvinnuleysisskrá. Ihlaupavinna eða hlutavinna
hefur heldur ekki áhrif á talningu atvinnuleysisvikna nema
sú vinna valdi því að einstaklingur verði tekinn af atvinnu-
leysisskrá í eina viku eða lengur.
9.3 Framreikningur vinnuafls
9.3.1 Uppruni gagna
Hagstofan gerir á þriggja ára fresti mannfjöldaspár sem
byggðar eru á mismunandi forsendum um fæðingartíðni,
dánartíðni op flutninga til og frá landinu. Þessi spá var síðast
gerð 1991. I Landshögum, ársriti Hagstofunnar, er jafnan
birtar nýjasti framreikningur mannfjöldans miðað við til-
teknar forsendur um dánar- og fæðingartíðni og flutninga að
og frá landinu.
Framreikningur sá á vinnuafli sem hér er birtur er annars
vegar byggður á mannfjöldaspá frá árinu 1991 sem birtist í
Landshögum 1993 og hins vegar á vinnumarkaðskönnunum
Hagstofunnar 1991-1993.
9.3.2 Forsendur
Eftirfarandi forsendur liggjatil grundvallar vinnuaflsspánni:
Dánartíðni er látin minnka um 0,5% á ári ffam til ársins
2000 með upphafstíðni jafngamalla árganga 1985-1989.
Eftir árið 2000 er dánartíðni látin vera óbreytt. Fæðingartíðni
er látin minnka niður í 1,9 böm á ævi hverrar konu frá og
með árinu 1997. Meðaltíðni flutninga 1986-90 er látin gilda
um brottflutninga, þó þannig að flutningar til og frá landinu
em látnir standa á jöfiiu.
Meðalatvinnuþátttaka 1991-1993 á hverju fimm ára
aldursbili, {16-19 ára, 20-24 ára, 25-29 ára .. 70-74 ára}, að
teknu tilliti til áætlaðs íjölda með aðsetur en ekki lögheimili
erlendis, er látin vera óbreytt allt tímabilið fyrir sömu
aldurshópa.
9.4 Fjöldi í stéttarfélögum
9.4.1 Uppruni gagna, þekja og áreiðanleiki
Hagstofan hóf á þessu ári að safna skýrslum um fjölda
félagsmanna í stéttarfélögum 31. desember ár hvert, eftir
kyni og tegund aðildar, vegna skýrslugerðar um vinnu-
markaðinn. Leitað er til heildarsamtaka og einstakra stéttar-
félaga utan heildarsamtaka sem em á skrá hjá embætti
Ríkissáttasemjara.
Ef ekki fást skriflegar, sundurliðaðar upplýsingar er
fjöldi félagsmanna áætlaður í samráði við forsvarsmenn
viðkomandi sambanda eða stéttarfélaga. Tölur um heildar-
fjölda í stéttarfélögum ná ekki til félagsmanna með aukaaðild.
9.4.2 Hugtök
Virkur félagsmaður. Með virkum félagsmanni er átt við
félagsmann sem greiðir félagsgjöld til viðkomandi stéttar-
félags og nýtur allra réttinda innan þess, þ.m.t. atkvæðisréttar
og kjörgengis.
Fullgildur félagsmaður. Félagsmaður sem nýtur allra
réttinda innan stéttarfélags, þ.m.t. atkvæðisréttar og
kjörgengis, hvort sem hann greiðir félagsgjöld eða ekki.
9.5 Samanburður við önnur lönd
9.5.1 Uppruni gagna, þekja og áreiðanleiki
Meginefni töflu um atvinnuþátttöku og atvinnuleysi nokkurra
OECD-landa er fengið úr skýrslunni Labour Force Statis-
tics 1972-1992, OECD 1994.
Alþjóðlegum samanburði ætti að taka með vissum fyrirvara
þar sem ekki er alltaf víst að hugtök, aðferðir og flokkanir
á gögnum séu sambærilegar milli landa. Fyrir hvert land
hefur hins vegar verið vandlega gætt að því að viðhalda
innbyrðis samhengi tímaraða svo að tölur milli ára séu
sambærilegar.