Vinnumarkaður - 01.10.1994, Page 122

Vinnumarkaður - 01.10.1994, Page 122
120 Greinargerð um aðferðir og hugtök atvinnugrein. Fjöldi vinnuvikna einyrkja var metinn á grund- velli upplýsinga úr staðgreiðsluskrá skatta. Tölur um mannaflann eru árstölur. Skipting mannaflans eftir rnánuðum er fundinn með því nota stuðla sem líkja eftir árstíðasveiflu mannaflans. í áætlunum Þjóðhagsstofnunar um mannaflatölur 1992 og 1993 eru stuðst við sömu hlutfallslegu skiptingu eftir kyni og búsetu og niðurstöður ársins 1991 bentu til. Skráð atvinnuleysi eftir aldri og lengd atvinnuleysis. Hagstofan hefur safnað gögnum um lengd skráðs atvinnu- leysis efltir aldri og kyni í lok febrúar, maí, ágúst og nóvember frá 1986. Framtil maí 1993 vareinungisleitaðeftirskýrslum frá sveitarféiögum sem höfðu samkvæmt lögum skyldu til að reka opinbera vinnumiðlun, þ.e. sveitarfélögum með 500 eða fleiri íbúa. Þessir staðir voru innan við 80.1 júlí og ágúst 1993 gerði Hagstofan sérstaka könnun meðal allra sveitar- félaga í landinu á því hverjir sjá um opinbera atvinnu- leysisskráningu fyrir hönd viðkomandi sveitarfélags. Frá og með ágúst 1993 hefur verið aflað skýrslna frá öllum þeim sveitarfélögum og vinnumiðlunum, um 140 að tölu, sem skrá atvinnuleysi samkvæmt þessari athugun. Aldursskipting í gögnum er miðuð við fæðingarár. í febrúar og maí er miðað við þá sem verða 16 ára og eldri í árslok. I ágúst og nóvember er miðað við þá sem verða 15 ára og eldri í árslok. Tölur um atvinnulausa ná til allra þeirra sem eru skráðir atvinnulausir á viðmiðunardegi, hvort sem þeir eiga rétt á bótum eða ekki. Heimtur á skýrslum til Hagstofunnar hafa að jafnaði verið slælegri en heimtur á mánaðarlegum skýrslum til Vinnumála- skrifstofunnar. Þekjanhefureinnigveriðminni. Þettabreyttist frá og með ágúst 1993. 9.2.3 Hugtök Aaetlaður mannafli. Aætlaður mannafli telst vera áætlaður ijöldi ársverka eða heildarljöldi ígilda fullra starfa. Tvö hlutastörf með 50% starfshlutfalli teljast þannig vera eitt ársverk. I ársverkum eru talin töpuð ársverk vegna atvinnu- leysis. Meðalatvinnuleysi í mánuði. Meðalatvinnuleysi í mánuði er fundið með því að deila meðalljölda virkra daga í mánuði (21,67 dagur) í fjölda skráðra atvinnuleysisdaga. Lengd skráðs atvinnuleysis. Með lengd skráðs atvinnu- leysis er átt við fjölda vikna sem einstaklingur hefur verið samfellt á atvinnuleysisskrá á viðmiðunardegi. Þótt ein- staklingur missi rétt til atvinnuleysisbóta fellur hann þar með ekki af atvinnuleysisskrá. Ihlaupavinna eða hlutavinna hefur heldur ekki áhrif á talningu atvinnuleysisvikna nema sú vinna valdi því að einstaklingur verði tekinn af atvinnu- leysisskrá í eina viku eða lengur. 9.3 Framreikningur vinnuafls 9.3.1 Uppruni gagna Hagstofan gerir á þriggja ára fresti mannfjöldaspár sem byggðar eru á mismunandi forsendum um fæðingartíðni, dánartíðni op flutninga til og frá landinu. Þessi spá var síðast gerð 1991. I Landshögum, ársriti Hagstofunnar, er jafnan birtar nýjasti framreikningur mannfjöldans miðað við til- teknar forsendur um dánar- og fæðingartíðni og flutninga að og frá landinu. Framreikningur sá á vinnuafli sem hér er birtur er annars vegar byggður á mannfjöldaspá frá árinu 1991 sem birtist í Landshögum 1993 og hins vegar á vinnumarkaðskönnunum Hagstofunnar 1991-1993. 9.3.2 Forsendur Eftirfarandi forsendur liggjatil grundvallar vinnuaflsspánni: Dánartíðni er látin minnka um 0,5% á ári ffam til ársins 2000 með upphafstíðni jafngamalla árganga 1985-1989. Eftir árið 2000 er dánartíðni látin vera óbreytt. Fæðingartíðni er látin minnka niður í 1,9 böm á ævi hverrar konu frá og með árinu 1997. Meðaltíðni flutninga 1986-90 er látin gilda um brottflutninga, þó þannig að flutningar til og frá landinu em látnir standa á jöfiiu. Meðalatvinnuþátttaka 1991-1993 á hverju fimm ára aldursbili, {16-19 ára, 20-24 ára, 25-29 ára .. 70-74 ára}, að teknu tilliti til áætlaðs íjölda með aðsetur en ekki lögheimili erlendis, er látin vera óbreytt allt tímabilið fyrir sömu aldurshópa. 9.4 Fjöldi í stéttarfélögum 9.4.1 Uppruni gagna, þekja og áreiðanleiki Hagstofan hóf á þessu ári að safna skýrslum um fjölda félagsmanna í stéttarfélögum 31. desember ár hvert, eftir kyni og tegund aðildar, vegna skýrslugerðar um vinnu- markaðinn. Leitað er til heildarsamtaka og einstakra stéttar- félaga utan heildarsamtaka sem em á skrá hjá embætti Ríkissáttasemjara. Ef ekki fást skriflegar, sundurliðaðar upplýsingar er fjöldi félagsmanna áætlaður í samráði við forsvarsmenn viðkomandi sambanda eða stéttarfélaga. Tölur um heildar- fjölda í stéttarfélögum ná ekki til félagsmanna með aukaaðild. 9.4.2 Hugtök Virkur félagsmaður. Með virkum félagsmanni er átt við félagsmann sem greiðir félagsgjöld til viðkomandi stéttar- félags og nýtur allra réttinda innan þess, þ.m.t. atkvæðisréttar og kjörgengis. Fullgildur félagsmaður. Félagsmaður sem nýtur allra réttinda innan stéttarfélags, þ.m.t. atkvæðisréttar og kjörgengis, hvort sem hann greiðir félagsgjöld eða ekki. 9.5 Samanburður við önnur lönd 9.5.1 Uppruni gagna, þekja og áreiðanleiki Meginefni töflu um atvinnuþátttöku og atvinnuleysi nokkurra OECD-landa er fengið úr skýrslunni Labour Force Statis- tics 1972-1992, OECD 1994. Alþjóðlegum samanburði ætti að taka með vissum fyrirvara þar sem ekki er alltaf víst að hugtök, aðferðir og flokkanir á gögnum séu sambærilegar milli landa. Fyrir hvert land hefur hins vegar verið vandlega gætt að því að viðhalda innbyrðis samhengi tímaraða svo að tölur milli ára séu sambærilegar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Vinnumarkaður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.