Vinnumarkaður - 01.10.1994, Blaðsíða 119
Greinargerð um aðferðir og hugtök
117
mælenda sinna ranglega, hlaupið yfir spumingar, ruglast í
röð þeirra eða umorðað þær þannig að innihald verði annað
en til stóð. Einkum bar á slíkum vandamálum þegar notuð
voru prentuð spumingablöð.
I vinnumarkaðskönnuninni er reynt að vinna gegn þessu
með því að ráða spyrla sem hafa reynslu írá fyrri könnunum,
þjálfa þá og fara vandlega yfir spumingalistann áður en
könnun hefst. Frá og með nóvember 1992, þegar spurt var
með aðstoð tölvu, jókst öryggi við framkvæmd viðtala til
mikilla muna.
Úrvinnsluskekkjur. Skráningarskekkjur geta líka orðið
þegar handskrifaðar upplýsingar em skráðar í tölvur. Þessu
stigi í gagnaúrvinnslunni var sleppt frá og með nóvember
1992 þegar áðumefnt tölvuforrit var tekið í notkun. í þeirri
könnun og hinni næstu var eigi að síður haldið áíram að skrá
upplýsingar um störf og atvinnugrein á spumingablöð.
Skekkjur geta slæðst inn vegna flokkunar einstakra
„opinna" spuminga. Hér ber einkum að nefna flokkun á
starfsgreinum, atvinnugreinum og menntunarflokkum. Slíkar
skekkjur geta stafað af ófullnægjandi upplýsingum í
frumgögnum, óljósum leiðbeiningum í flokkunarkerfum og
mistökum flokkunarfólks.
Reynt hefur verið eftir megni að halda úrvinnsluskekkjum
í lágmarki með nákvæmri endurskoðun og kerfisbundinni
villuleit með aðstoð tölvuforrita.
Sniðskekkjur. Ófullnægjandi skipulagning og hönnun
könnunar getur leitt til niðurstaðna sem em ekki í samræmi
við raunveruleikann. Orðalag spurninga getur valdið
misskilningi, mismunandi röð spurninga getur leitt til
mismunandi svara og reynsla svarenda af fyrri könnunum
getur haft áhrif á svör þeirra. Sé könnun ekki framkvæmd á
sama hátt í hvert skipti er hætta á að samanburður milli ára
verði erfiðari en ella.
Reynt hefur verið eftir megni að vanda til spumingalistans
og nota sömu starfsaðferðir í öllum könnunum. Þess ber þó
að geta að kannanimar fyrstu þrjú árin vom frumraun á sviði
vinnumarkaðsrannsókna hér á landi. Þótt spumingalistinn
hafi verið óbreyttur að stofni til allan tímann hafa átt sér stað
ýmsar breytingar á orðalagi og röðun spuminga á tímabilinu
1991-1993. Bætt hefur verið inn ljölmörgum spumingum
frá fyrstu könnuninni.
Vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar er aðeins gerð tvisvar
á ári. Það getur leitt til ónákvæmni við mat á stærðum sem
era bundnar árstíðasveiflum. Mat á meðalatvinnuleysi á ári
er dæmi um slíka stærð þar sem atvinnuleysi einnar viku í
apríl og einnar viku i nóvember er notað til að meta
meðalfjölda atvinnulausra allt árið. Ef sveiflur í skráðu
atvinnuleysi undanfarinna tuttugu ára eru skoðaðar virðist
þó sem meðaltal mánaðanna apríl og nóvember gefi all góða
mynd af meðalatvinnuleysi hvers árs (sjá mynd 9.1). Á
þessu tuttugu ára tímabili var munurinn á meðaltali þessara
mánaða og meðaltali alls ársins mest 316 einstaklingar.
Yfirleitt var meðaíatvinnuleysi í apríl og nóvember nokkra
lægra en ársmeðaltalið, einkum fram til ársins 1988. Eftir
1988 hefúr meðalfrávik þessara mánaða frá ársmeðaltalinu
verið innan við 1%.
Þótt alltaf sé hætta á umtalsverðum frávikum er ekki
tilefni til annars en að álíta að skekkjur í vinnumarkaðs-
könnunum Hagstofunnar af þessari ástæðu séu ínnan
viðunandi marka.
Mynd 9.1. Frávikmeðalatvinnuleysisíaprílognóvemberfráársmeðaltalihversárs 1975-1993
Figure 9.1. Deviation of April/November average unemployment rates from annual unemployment rates 1975-1993
3
X