Vinnumarkaður - 01.10.1994, Side 116

Vinnumarkaður - 01.10.1994, Side 116
114 Greinargerð um aðferðir og hugtök Ú rtak og heimtur. í úrtökuramma hverrar vinnumarkaðs- könnunar eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar 16-74 ára sem skráðir eru í þjóðskrá og eiga lögheimili á íslandi meðan könnunin fer fram. Þegar hver könnun er unnin eru auk þess teknir úr úrtökurammanum allir þeir sem hafa búsetu erlendis til 6 mánaða eða lengur. Einkum er um að ræða námsmenn sem stunda nám erlendis utan Norður- landanna. Þetta er gert til samræmis, en námsmönnum sem stunda nám á einhverju Norðurlanda er skylt að flytja lögheiinili sittþangað. I alþjóðlegum skilgreiningum erhins vegar gert ráð fyrir allir námsmenn sem stunda nám sitt erlendis tilheyri úrtökurammanum hversu lengi sem nám þeirra varir. Stærð úrtaksins hverju sinni er um 4.400 einstaklingar. Þeim er skipt í fjóra skiptihópa. í hverri könnun er einn hópur úrtaksins í fyrsta sinn, annar hópur í annað sinn og svo framvegis. Við hverja nýja könnun er hópnum, sem verið hefur í úrtakinu ijórum sinnum, skipt út fyrir aðra 1.100 einstaklinga sem valdir eru með einfaldri hendingaraðferð án skila. Eftir að einstaklingur hefur verið í úrtakinu ljórum sinnum er honum ekki skilað í úrtökurammann fyrr en að liðnum Ijórum árum frá því hann var fyrst valinn, þ.e. ekki er hægt að velj a hann að nýju fyrr en hann hefur verið hvíldur í a.m.k. tvö ár. I fyrstu ijórum könnunum voru nokkur frávik ífá þessum almennu reglum. I fyrstu könnuninni var úrtakið einungis 3.000 manns. í þeirri næstu var 1.400 einstaklingum bætt við en engum skipt út. Þegar þriðja könnun var gerð var þriðjungur úrtaksins sem notað var í fyrstu könnuninni valinn af handahófi og felldur brott. í stað þeirra voru 1.000 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára valdir úr þjóðskrá með hendingaraðferð. Þegar ljórða könnunin var gerð var annar þriðjungur úr úrtakinu frá apríl 1991 valinn af handahófi og felldur brott úr úrtakinu. í stað hans voru 1.002 einstaklingar valdir af handahófi úr þjóðskrá. Reiknistofnun Háskólans sá um val úrtaksins í fyrstu þremur könnununum en frá og með nóvember 1992 hefur það verið gert á Hagstofunni. Svarhlutfall í vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar hefur verið nokkuð hátt sé miðað við aðrar úrtakskannanir hér- lendis. Á tímabilinu 1991-1993 voru svarendur á bilinu 85 - 90% af öllu úrtakinu, að lfátöldum þeim sem voru látnir eða búsettir erlendis (9.2). í annarri til fimmtu könnun var ekki hringt í þá þátttak- endur sem áður höfðu hafnað þátttöku eða verið ófærir um að svara vegna veikinda eða fötlunar. Svarhlutfallið í þessum könnunum (sjá töflu 9.2) gefur því ekki rétta mynd af því hversu vel tókst til við gagnaöflunina. Með því að miða við þá sem var reynt að hringja til, þ.e. virka úrtakið, hefur svarhlutfall verið á bilinu 90 - 93% nettó. í nóvember 1993 var hins vegar hringt aftur í þá sem höfðu áður neitað að svara og kom þá i ljós að 52% þeirra vom nú tilbúnir til þátttöku, 7% vom fjarverandi, 4% vom ófærir um að svara vegna veikinda eða fötlunar og 37% neituðu aftur. Öllum væntanlegum þátttakendum er sent bréf nokkru áður en hver könnun hefst þar sem tilgangur hennar er útskýrður og samvinnu þeirra er óskað. Auk þess fylgja bréfinu niðurstöður næstu könnunar á undan. Tafla 9.2. Heimtur í vinnumarkaðskönnunum Hagstofu íslands 1991-1993 Table 9.2. Response in the labour force surveys 1991-1993 Heildartölur Absolute numbers Hlutfallstölur Percent 1991 1992 1993 1991 1992 1993 Apríl Nóv. Apríl Nóv. Apríl Nóv. Apríl Nóv. Apríl Nóv. Apríl Nóv. Úrtak Sample Látnir Deceased Lögheimili erlendis Domicile abroad Aðseturerlendis Residence abroad Nettó stærð úrtaks Net sample size Nettó úrtak Netsample Svarendur Respondents Neita Refusals Veikir III Fj arverandi A way from home Finnast ekki No contact Nettó virkt úrtak Net working sample Svarendur Respondents Neita Refusals Veikir III Fjarverandi Notathome Finnast ekki No contact 3.000 4.400 4.415 4.417 5 13 15 25 5 17 26 29 68 103 116 109 2.922 4.267 4.258 4.254 2.922 4.267 4.258 4.254 2.633 3.822 3.699 3.600 83 171 260 247 30 54 74 71 14 47 57 74 162 173 168 262 2.922 4.124 3.961 3.947 2.633 3.822 3.699 3.600 83 88 89 55 30 25 29 35 14 47 57 74 162 142 87 183 4.396 4.231 100,0 100,0 12 12 0,2 0,3 24 39 0,2 0,4 82 92 2,3 2,3 4.278 4.088 97,4 97,0 4.278 4.088 100,0 100,0 3.722 3.686 90,1 89,6 236 154 2,8 4,0 48 51 1,0 1,3 77 39 0,5 1,1 195 158 5,5 4,1 4.036 4.070 100,0 100,0 3.722 3.686 90,1 92,7 71 154 2,8 2,1 22 33 1,0 0,6 77 39 0,5 1,1 144 158 5,5 3,4 100,0 100,0 100,0 100,0 0,3 0,6 0,3 0,3 0,6 0,7 0,5 0,9 2,6 2,5 1,9 2,2 96,4 96,3 97,3 96,6 100,0 100,0 100,0 100,0 86,9 84,6 87,0 90,2 6,1 5,8 5,5 3,8 1,7 1,7 1,1 1,2 1,3 1,7 1,8 1,0 3,9 6,2 4,6 3,9 100,0 100,0 100,0 100,0 93,4 91,2 92,2 90,6 2,2 1,4 1,8 3,8 0,7 0,9 0,5 0,8 1,4 1,9 1,9 1,0 2,2 4,6 3,6 3,9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Vinnumarkaður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.